Morgunblaðið - 27.09.1995, Side 19

Morgunblaðið - 27.09.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 E 19 IB.".SMBFBETTIB •Leiðir til að læsa tölvufærsl- um eru mikið í umræðu um þessar mundir, enda skiptir slíkt miklu máli vegna verslun- ar á alnetinu. Fyrir átján árum lýstu þrír tölvufræðingar, sem störfuðu við að finna upp hug- búnaðarlás fyrir tölvusam- skipti, því yfir að þeir væru búnir að finna óskeikula leið til að læsa tölvugögnum og skoruðu á aðra tölvufræðinga að reyna að brjóta upp setn- ingu sem þeir höfðu læst. Tölvufræðingur við rannsókn- amiðstöð Bell símafyrirtækis- ins, Aijen K. Lenstra, tók áskoruninni 1993 og í maí 1994 tilkynnti hann að honum hefði tekist að lesa úr RSA-129, sem svo var kölluð eftir heiti fyrir- tækis upphafsmannanna og þess að lykillinn að gátunni var 129 tákna. RSA neyddist til að greiða fyrir 100 dala verðlaunin sem lofað hafði veri hverjum þeim sem tækist að leysa gátuna. Til að leysa þrautina hafði Lenstra myndað eins konar ofurtölvu á alnetinu, fengið til liðs við sig um 600 aðstoðar- menn og látið 1.600 tölvur vinna verkið, en hver tölva reiknaði hluta verkefnisins. Þó tekist hafi að brjóta upp þetta fullkomna læsingu á texta, segja tölvuspekingar að ekki sé ástæða til að óttast því önnur slíka átta mánaða/1.600 tölvu atlaga færi ekki fram hjá neinum og að auki er 126 tákna læsing löngu úrelt; í dag nota menn 516 til 1024 tákna Iæsingu. Til að bijóta upp 1024 tákna læsingu þyrfti 3x10" MlPS-ár, en MIPS er skamm- stöfun fyrir milljón aðgerðir á sekúndu. SKJÁVARPI frá Sharp. Skjávarpar og -plötur til Há- skólans FYRIR skemmstu var gerður samn- ingur á milli Háskóla íslands og Skrifbæjar um kaup Háskólans á skjávörpum og skjáplötum frá Sharp til að nota við kennslu í ýmsum deildum háskólans að und- angengnu útboði hjá Ríkiskaupum. Um er að ræða búnað sem gerir notandanum kleift að tengja tölvu og myndbandstæki við skjávarp- ana/skjáplöturnar sem síðan varpa myndinni á tjald. Búnaðurinn verður settur upp nú á haustönn og fyrir vikið verða glærur óþarfar í Háskólanum og framsetning öll faglegri. Skjávarp- arnir, sem eru með innbyggðan ljós- gjafa, standa ýmist á borði eða eru hengdir í loft og geta verið állt að sautján metra frá tjaldinu. Stærð myndarinnar getur verið allt að hálfur áttundi metri hom í horn. Skjáplöturnar eru notaðar með hefðbundnum myndvörpum, en líkt og með skjávarpann má jafnt tengja þær myndbandstæki eða tölvu. Allar PC samhæfðar tölvur má tengja búnaðinum og Macintosh tölvum, aukinheldur öll helstu myndbandakerfi, PAL, SECAM og NTSC. Einnig má tengja búnaðinn hljóðkerfi, en annars er innbyggður magnari og hátalarar. FRÁ Töframyndum Hans Petersen í Kringlunni. Tölvuunnar myndir FRAMFARIR í grafíkvinnslu í tölvum eru gríðarlegar og nýt- ast ekki bara þeim sem vinna á tölvur, því nýjasta tækni í meðferð ljósmynda hentar vel ef gera á við mynd eða lag- færa. Hans Petersen hefur komið sér upp tækjabúnaði til að þjónusta viðskiptavini sína betur, hvort sem um er að ræða áhugaljósmyndara eða atvinnumenn, og kynnir um þessar mundir tækni sem gerir kleift að koma tölvumyndum yfir á Ijósmyndafilmu, sem síð- an er hægt að nota eins og hveija aðra filmu. Meðal þess sem Hans Peter- sen býður viðskiptavinum er að breyta ljósmyndum í tölvu, til að mynda skipta um ba- grunn, eða bæta úr skák ef eitthvað hefur farið úrskeiðis í myndatökunni, prenta tölvu- gögn á pappír eða glærur, færa upplýsingar og/eða myndir á CD-ROM diska, koma filmum yfir í tölvutækt form og fleira mætti nefna. HUGBÚNAÐUR FYRIR WIND0WS FRÁBÆR ÞJÓNUSTA gn KERFISÞRÓUN HF. Fákaleni 11 - Sími 568 8055 Hátúnl 6 A, sími 561-4040, fax 561-4005 SÍNWIRKINN 'i, Símtctfq h.f. kynnir... SINWIRKINN Simtetíq. hf Nitsuko Venus Ný fullkomlega ISDN samhæfð símstöð - óendanlegir möguleikar. Plantromics höfuðheyrnartól • Létt og meðfærileg • Ótrúlegur tímasparnaður • Engin vöðvabólga Hymax símkerfið - fyrir stærri og smærri fyrirtæki • Langlínulæsingar • Hringiflutningur • Skilaboðakerfi • Kallkerfi • o.fl. o.fl. í tilefni sýningarinnar í Laugardagshöll; AT&T 3242 CSM á frábæru tilboðsverði kr. 39.900 * í bás nr. 50 • Þyngd 270 g. • Símaskrá 60 númer • Rafhlaða: 18 klst. í biðstöðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.