Morgunblaðið - 27.09.1995, Qupperneq 24
24 E FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Tölvupóstur vinnur á
Tölvupóstur vinnur sífellt á enda hand-
hægt og hraðvirkt samskiptatól.
Holberg Másson hefur unnið við
nettengingar og tölvupóst í á annan
áratug, meðal annars fyrir útgerðar-
menn á Kamtsjatka.
HOLBERG með yfirmönnum tölvudeilda Dalmoreproduct,
stærsta sjávarútvegsfyrirtækis Rússlands, með 16.000 starfs-
menn. Fyrir það fyrirtæki, sem gerir út um 100 skip, hannaði
Netverk fjarskiptakerfi milli skrifstofu og skipa.
HOLBERG Másson var meðal
frumkvöðla í nettengingum tölva á
íslandi, hefur unnið við slíkt að
segja frá árinu 1981. Hann segist
hafa komið inn í tölvunámið á rétt-
an hátt, þ.e. með raungreinabak-
grunn, sem hafí dugað honum vel.
Heillaðist ekki af
gataspjöldum
Holberg segist fyrst hafa komist
í tæri við tölvur 1974 þegar hann
fór í tækniháskólann í New Mexico.
„Þar voru menn látnir vinna við
gataspjöld, sem heillaði mig ekki,“
segir Holberg og hlær við, „þó mér
hafí fundist það áhugavert að vissu
leyti. Ég fluttist til Albuquerque og
þaðan til smábæjar Soccorro sem
var skammt frá og fór að læra eðlis-
fræði. í Albuquerque var smá versl-
un sem seldi tölvur, sem menn
þurftu að setja saman sjálfír. Einn
vinur minn var eitthvað að snúast
í kringum það, en við vorum svo
blankir að við gátum ekki önglað
saman fyrir vél, því ein tölva kost-
aði svipað og eins vetrar nám.“
Holberg segist ekki geta gert sér
grein fyrir því hvers vegna hann
átti svo greiða leið inn í tölvuheim-
inn. „Þetta lá einhvem veginn mjög
vel fyrir mér. Þegar maður er búinn
að læra eðlisfræði og kynnast raf-
eindabúnaði þá eru tölvur ekki flók-
in fyrirbæri.
í dag er aftur á móti búið að
setja svo mikið á milli notandans
og tölvunnar að það er skiljanlegt
að mönnum finnist þeir ekki vera
í sambandi við það sem er að ger-
ast. Áður fyrr var þetta allt svo
gagnsætt og ég naut góðs af því
að hafa komið með réttan bakgrunn
inn í tölvur."
Holberg segir að fram eftir
níunda áratugnum hafí menn verið
að átta sig á að tölvutæknin opnaði
leið til að gera meira en þeir höfðu
áður gert sér í hugarlund.
„Á þeim tíma voru menn yfirleitt
að hugsa um það helst hvernig
nota mætti tæknina og hugbúnað-
inn til að gera það betur og hraðar
sem þeir höfðu gert áður, en núorð-
ið eru menn famir að hugsa meira
um það hvað þeir geta gert í dag
sem þeir gátu ekki áður, eða datt
ekki í hug að gera áður,“ segir
Holberg.
Tölvunetamaður
Holberg hefur helst fengist við
nettengingar og tók reyndar þátt í
fyrstu víðnettengingunni hér á
landi. „Þegar ég starfaði hjá RARIK
1982 vom tengdar saman fyrstu
þijár sjálfstæðu tölvumar hér á
landi, Háskólatölvan, RARIK-töl-
van og tölva hjá Kristjáni Ó. Skag-
fjörð. Þær vom tengdar með leigu-
línu, búnaður fenginn að láni og
settur upp tölvupóstur. Þetta var
prófað í nokkra mánuði og virkaði
vel. Við sáum í hendi okkar gagnið
af þessari tengingu, en þetta var
hinsvegar það dýrt að við gátum
ekki réttlætt að halda því áfram,
meðan ekki voru fleiri tölvur til að
tengjast. 1986 var tengingin svo
sett upp aftur.
1984 til 85 vaknaði áhugi á að
auka upplýsingastreymi varðandi
verkefni og lagerstöðu RARIK og
þá var tekin sú ákvörðun að byggja
upp tölvunet um landið, sem var
eitt fyrsta verkefnið þar sem tölv-
umar voru hér og þar um landið
og svo tengdar saman, en áður var
málum yfirleitt svo háttað að byggt
var á miðlægri vél í Reykjavík sem
allir tengdust.
Ég hætti hjá RARIK 1985 og fór
að vinna hjá ítölu við það verkefni
að tengja saman verkfræðistofur
víða um land og tengjast síðan aðil-
um eins og Landsvirkjun, Orku-
stofnun og Háskólanum. Það vom
tengdir saman mjög margir aðilar
á næstu árum, meðal annars
SKÝRR og síðan kom það verkefni
að setja upp net fyrir útibú Útvegs-
bankans og vinna í ráðgjöf fyrir
sjávarútvegsráðuneytið. Meðal
verkefna sem vom unnin þar á þess-
um tíma var að setja saman kerfí
sem gæti haldið utan um upplýs-
ingar um afla frá ýmsum stöðum á
landinu, og vigtarkerfí sem safnaði
upplýsingum um landaðan afla víða
á landinu. 1988 tengdum við Itölu
TCP/IP neti Hafrannsóknastofnun-
ar, en Hafrannsóknastofnunir. hafði
frumkvæði að því að koma á alnet-
tengingu við útlönd, og ítala var
fyrsta hlutafélagið sem tengdist
alnetinu 1988. 1990 var nafni Itölu
breytt í Netverk, sem ég og fjöl-
skylda mín eigum saman. í millitíð-
inni var þó stofnað fyrirtækið Is-
net, sem átti að einbeita sér að
nettengingum og þjónustu, en það
gekk ekki upp m.a. vegna hindrana
í fjarskiptalögunum fyrir fyrirhug-
aðri þjónustu ísnets. Aðrir hafa
prófað ýmislegt s.s. upplýsinga-
dreifingu í gegnum Teletext búnað,
sem er svipaður og Skjávarp, en
byggir á að notendur tengjast mið-
stöð með tölvum sínum. Svipað er
að ganga í dag með veraldarvefn-
um, þ.e.a.s. dreifíng upplýsinga á
tölvuneti. Eitt af mörgum vanda-
málunum er smæð markaðarins, en
mörg dæmi eru um að menn hafa
gefist upp á verkefnum hér á landi
vegna hennar, en önnur verkefni
hafa einmitt gengið vegna þess að
menn hafa sótt á erlenda markaði."
Nýjungarnar koma í litlum
fyrirtækjum
„Það er algengt að þessar nýj-
ungar komi í litlum fyrirtækjum,
stærri fyrirtækin hafa ekki verið
tilbúin til þess að taka þá áhættu
að fara út í ný verkefni. Litlu fyrir-
tækin hafa reynt það en oft verið
vanmetin vegna þess að þau hafa
ekki haft nægt fjármagn, það er
svo lítið áhættuíjármagn í umferð
hér.
ísnet átti að fara út í EDI verk-
efni, pappírslaus viðskipti. Við
stofnuðum EDI félag íslands og
Icepro nefnd sem fjallar um bætt
verklag í viðskiptum og starfar inn-
an stjórnarráðsins. Við unnum með
áhugavert verkefni 1991, ÍSEDI
’91, og í tengslum við það fór tollur-
inn í gang með pappírslausar toll-
skýrslur, sem var fyrsta verkefnið
hér á þessu sviði.
Það hefur fengist ágætis reynsla
og þekking á þessu, en þetta er
ekki komið eins langt af stað og
menn höfðu vonast til í upphafi.
Ein af ástæðunum fyrir því að EDI
er ekki komið lengra er hve tölvu-
póstur er lítið notaður hér á Iandi.
Við gerðum því átak í að fá menn
til að nota tölvupóst og í dag sjáum
við mikla grósku í tölvupóstþjón-
ustunni m.a. í gegnum Skímu,
SKÝRR og Póst'og síma, sem eru
allir með gáttir og þjónustu beinlín-
is við tölvupóst og ekki skal gleyma
Inetnet á íslandi hf. sem veitir
tölvupóstþjónustu á þjónustuneti
sínu. Ég geri ráð fyrir því að það
verði miklu meiri notkun á tölvu-
pósti framundan en hingað til, fyrir-
tæki eru farin að nota tölvupóst af
fullri alvöru og það er mjög mikill
áfangi, en tölvupóstur er mun betra
verkfæri og ódýrari í rekstri en t.d.
fax.“
Tölvupóstur
flýtir vinnslu
„Tölvupóstur leyfir vinnubrögð
sem flýta fyrir vinnslu mála, hann
leyfír þér að auka hraða í samskipt-
um á milli aðila, auðveldar flokkun
og vinnslu gagna, hann auðveldar
að framsenda og senda upplýsingar
á dreifíngarlista, að hafa ýmislegt
sjálfvirkt, margt sem ekki er hægt
í faxi, sem er tölvuvædd pappírs-
samskipti. Ég held líka að eftir þvi
sem fólk notar tölvupóstinn meira
og treystir honum sé brautin greið
fyrir ÉDI viðskipti í kjölfarið.
í dag vinnum við við tölvupóst-
kerfí. Við erum með umboð fyrir
slíkt kerfí, höfum skrifað hugbúnað
fyrir tölvupóst og veitum þjónustu
fyrir tölvupóst og pappírslaus við-
skipti. Sem dæmi má nefna að ný-
verið skiluðum við af okkur gáttum
og póstkerfí fyrir SKÝRR og Póst
og síma, við höfum unnið ýmis verk-
efni fyrir Póst og síma, unnið fyrir
Reiknistofu bankanna vegna ÉDI
samskipta, fyrir Tryggingastofnun
ríkisins og nokkur önnur verkefni
á svipuðu sviði fyrir aðra. Síðan
tókum við svo að okkur uppbygg-
ingu á tölvuneti og tölvupóstverk-
efni í Rússlandi."
IVflög spennandi
verkefni
Holberg segir að Rússlandsverk-
efni Netverks sé á Kamtsjatka
skaga í Austur-Síberíu. „Við höfum
verið að læra á þann markað og
það er mjög spennandi mál. Við
höfum flutt úr landi hug- og vélbún-
að vegna verkefnisins, þekkingu
okkar og vinnu og höfum fengið
greiddar fyrir tæpar 20 milljónir
króna. Við erum búnir að gera
samninga um töluvert fleiri verk-
efni, en þó til séu undirritaðir samn-
ingar er eins víst þarna fyrir austan
að ekkert verði úr sumum verkefn-
anna.
Ástæðan fyrr því að Rússarnir
leituðu til okkar á sínum tíma var
að þeir vildu að við settum upp EDI
samskipti, en við erum ekki enn
komnir að því þrátt fyrir alla vinn-
una sem við erum búnir að vinna.
Þetta var eins og þeir hefðu viljað
kaupa sér bíl, en engir væru vegirn-
ir, engar bensínstöðvar og enginn
með bílpróf eða viðgerðarkunnáttu.
Við erum smám saman að byggja
upp tölvusamkipti og vonumst til
að geta komið á EDI samskiptum
í vetur. Rússarnir eru mjög áhuga-
samir, fylgjast vel með og vilja fá
allt það nýjasta, en þeir eiga eftir
að stíga mörg skref í átt að því sem
þeir vilja.
Tíu viðskiptavinir á
Kamtsjatka
Við erum nú með tíu viðskipta-
vini á Kamtsjatka höfum komið
okkur upp umboðsmönnum sem við
gerum ráð fyrir að eigi eftir að
gera_ rekstrargrundvöllinn traust-
ari. I framhaldi af þessu höfum við
verið að ræða við fyrirtæki í
Vladivostok og Moskvu. Kostnaður
við markaðs- og sölustarf hefur
verið mjög mikill en er nú að byija
að skila sér. Kosturinn fyrir okkur
er að hafa stærri markað til að
selja þekkingu og búnað sem við
erum að bjóða, við höfum líka gott
Foreldrar! - Kennarar!
Fjölbreytt úrval kennsluforrita og íslandshandbókin á margmiðlunardiski
til sýnis í bás Námsgagnastofnunar í Laugardalshöll.
Kennsluforrit auka færni
og kunnáttu barna
og ungmenna.
•
Forritin hafa að bjóða
skemmtilega leiki, keppni,
fróðleik og þjálfun.
Forritin henta öllum
aldursflokkum og tengjast
flestum námsqreinum
grunnskólans
Sljámynd úr (orrilinu FjársjóSurinn.
Kennsluforrit Námsgagnastofnunar fást í Skólavörubúðinni
Laugavegi 166 • 105 Reykjavík • Sími 552 8088 • Fax 562 4137
HLUTAFELÖG
UMSÝSLA HLUTASKRÁR
Hlutvls er forrit fyrir Windows til aö halda
utan um vinnslu meö hlutaskrá hlutafélaga,
t.d. hlutafjáraukningar, jöfnun, arö o.fl. Meö
Hlutvís er hægt aö prenta út flesta papplra
tengda umsýslu hlutaskrár, s.s. hlutabréf,
arösávlsanir, fundarboö, atkvæöaseöla
o.m.fl. Á meöal félaga sem nota kerfiö eru
Eignarhaldsfélagiö Alþýöubankinn hf.,
Kælismiöjan Frost hf., Globus-Vélaver hf.,
Einar J. Skúlason hf., Keflavíkurverktakar,
o.fl.
HUGLIST HF
HUGLIST HF SÍMI 588-1020
KNARRARVOQI 4 FAX 568-8583
104 REYKJAVIK NETFANG huglist@centrur