Morgunblaðið - 12.10.1995, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Gert er ráð fyrir að nýr verslunarháskóli rísi af grunni við Listabraut
Tólf þúsund fer-
metra skóli á allt
að níu hæðum
GÖTUMYNDIN eins og hún kemur til með að líta út úr lofti.
Nýi Verslunarháskólinn verður, eins og sjá má, á horni Kringlu-
mýrarbrautar og Listabrautar, gegnt Morgunblaðshúsinu, og við
hliðina á nýja Verslunarskólahúsinu við Listabraut.
SKIPULAGSNEFND hefur á borð-
um sínum hugmyndir Verslunar-
skóla íslands að nýjum Verslunar-
háskóla á lóð Verslunarskólans við
Listabraut. Þorvarður Elíasson
skólastjóri segir að stefnt sé að því
að bjóða fyrsta áfanga út í lok árs-
ins 1996. Fyrsti áfangi telur 3.800
fm af 12.100 fm grunnfleti. Fullbú-
in verður byggingin allt að níu
hæðir og kostar yfir 1.200 milljón-
ir. Núverandi húsnæði Verslunar-
skóla íslands við Listabraut er
7.500 fm.
Þorvarður sagði að skólinn hefði
smám saman verið að feta sig að
háskólastiginu. „Við höfum verið
með tölvuháskóla og ætlum að taka
upp verslunarnám með svipuðum
hætti og gert er víða í Evrópu,"
sagði hann. Hann tók fram að
ástæðan væri sú að skólanum væri
falið að mennta starfsmenn fyrir
atvinnulífið. „Verslunarskólinn hef-
ur þjónað því hlutverki í 90 ár.
Hins vegar hefur þróunin smám
saman orðið sú að nemendur hafa
ekki farið til starfa í atvinnulífmu
eftir verslunarpróf heldur haldið
ÞRÍR íslendingar um þrítugt,
Hallgrímur Magnússon og Björn
Ólafsson, sem báðir eru félagar
í Hjálparsveit skáta í Reykjavík,
og Einar Stefánsson í Hjálpar-
sveit skáta í Kópavogi, klifu á
tind fjallsins Cho Oyu í Tíbet í
byrjun mánaðarins. Þar með
settu þeir íslenskt hæðarmet í
fjallaklifri.
Fjallið er 8.201 metri á hæð
og er sjötta hæsta fjall í heimi.
Tók það þá rúman hálfan mánuð
að klífa fjallið. Félagarnir voru
eina viku að komast aftur niður
og til byggða. Þeir eru allir við
bestu heilsu.
Hörður Magnússon, bróðir
Hallgríms, hefur verið í sam-
bandi við þá félaga og segir
hann að litlar líkur hafi verið
taldar á því að þeir kæmust all-
ir á toppinn. „Það er krafta-
verki líkast að þeir skyldu allir
komast upp,“ segir Hörður.
íshamrar í 7.300 m hæð
Fjallgöngumennirnir þurftu
m.a. að komast fram hjá íshöm-
rum sem eru í 7.000 til 7.300
metra hæð. Fyrra hæðarmet ís-
lendings var um 7.200 metrar
en það setti Helgi Benediktsson
áfram, tekið stúdentspróf og farið
í framhaldsnám við Háskóla Islands
eða aðra skóla. Okkur þykir því
óhjákvæmilegt að færa skólann aft-
ur nær atvinnulífinu með því að
taka upp viðskipta- og stjórnun-
arnám á háskólastigi.“
Ólíkt námi í HÍ
Þorvarður sagði að kennt yrði til
BS-gráðu og námið yrði ólíkt námi
í viðskiptdgild HÍ. „Við viljum stuðla
að viðskiptamenntum alls staðar í
atvinnulífínu og sækjumst eftir
nemendum með mismunandi bak-
grunn. Skóiinn leggur áherslu á að
nemendur verði látnir leysa raun-
hæf verkefni og hvatt verði til frum-
kvæðis enda viljum við gjarnan fá
frumkvöðla út úr skólanum. Námið
verður sniðið að þörfum atvinnu-
veganna og sérstaklega litið til út-
flutningsmála," sagði Þorvarður og
óttaðist ekki að offramboð yrði af
viðskiptafræðingum enda væri
heldur ekki víst að þeim fjölgaði.
Mjög mikill fjöldi stundaði við-
skiptanám í erlendum háskólum.
Hann sagði að aðeins yrði um eðli-
á fjallinu Diran í Pakistan. Einar
og Björn höfðu áður hæst klifið
Lenínfjallið í Pamir fjalla-
klasanum sem er um 7.000
metra hátt. Hallgrímur hefur
hæst klifið Mont Blank sem er
4.800 m hátt.
Nokkrir leiðangrar eru farnir
á Cho Oyu á hveiju ári og segir
Hörður að fjallgöngumenn sæki
mikið í að klífa fjöll sem eru
yfir 8.000 metrar á hæð. Að
meðaltali komast um 30% af
þeim sem reyna að klífa Cho
Oyu alla leið upp. 14 manns tóku
þátt í leiðangrinum og komust
aðeins fjórir alla leið á toppinn
auk Sherpa, þar á meðal Islend-
ingarnir þrír. Sherpar eru nep-
alskur þjóðflokkur, sem hefur
útvegað burðarmenn til leið-
angra í Himalaja síðan fyrir ald-
armót.
Hörður segir að eitt af vanda-
málunum við slíkar fjallaferðir
sé aðlögun að lofthæðinni og
súrefnisskorti sem henni fylgi.
Sumir geti aðlagast henni en
aðrir ekki og mismunandi er
eftir einstaklingum hve langan
tíma aðlögunin tekur.
Undirbúningur fyrir leiðang-
urinn tók 3-4 ár.
lega samkeppni við HÍ að ræða og
ekki væri sérstök ástæða til að ótt-
ast hana.
Raunhæf verkefni
Þorvarður sagði að stefnt væri
að þvj að bjóða út fyrst áfanga
byggingarinnar í lok næsta árs.
Með því móti mætti hefja kennslu
á 3.800 fm húsnæði haustið 1998.
Fyrsti og annar áfangi eru á fimm
hæðum. Núverandi áætlanir gera
ráð fyrir að framkvæmdir við þriðja
áfanga, fimm til níu hæða bygg-
ingu, hefjist árið 2002. Sérstök
áhersla verður lögð á vinnuaðstöðu
nemenda og bókasafn í húsinu. Að
HÚSIÐ nr. 24b við Laugaveg
skemmdist og tengibygging áföst því
er talin ónýt eftir að eldur kom upp
í húsinu á þriðja tímanum í fyrri-
nótt. Eldurinn kom upp í rafmagns-
lausri tengibyggingunni.
Eini íbúi hússins var sofandi á
annarri hæð hússins. Hann varð elds-
ins var og lét kalla á slökkvilið. íbú-
ar nálægra húsa voru ræstir út og
iátnir bíða á veitingahúsinu 22 með-
an unnið var að slökkvistarfí.
Slökkvistarf tók rúmlega tvær
klukkustundir en tengibyggingin er
talin ónýt. Brandveggir á báða vegu
meðtöldum nemendum Tölvuháskóla
er gert ráð fyrir að hægt verði að
taka á móti 500 nemendum á há-
skólastigi. Arkitektar eru Ormur Þór
og Örnólfur Hall.
Hvað kostnaðarliðinn varðaði,
sagði Þorvarður að gert væri ráð
fyrir að heildarkostnaður við bygg-
inguna yrði yfir 1.200 milljónir. Þar
af verði kostnaður við fyrsta áfanga
um 400 milljónir. Byggingin yrði
fjármögnuð með sama hætti og nýi
Verslunarskólinn. Sótt yrði í sjóði
Verslunarskólans og fjáröflunar-
nefnd Verslunarráðs Islands undir
forsæti Ragnars Halldórssonar
myndi vinna að öflun fjár.
auðvelduðu slökkiliði að halda eldin-
um í skefjum og koma í veg fyrir
að hann læstist í næstu hús.
Unnið var við að slökkva húsið
með bílum og mannskap bæði iauga-
vegs- og Grettisgötumegin en
Laugavegur 24b er bakhús.
Tengibyggingin var nýtt undir
geymslur en talið er að útigangs-
menn hafi einnig hafst þar við um
nætur.
Eldsupptök eru til rannsóknar en
vegna þess hve húsið er mikið brunn-
ið er vettvangsrannsóknin erfið, að
sögn lögreglu.
V estmannaeyjar
Formlegri
leit að stúlk-
unni hætt
FORMLEGRI leit að Stein-
unni Þóru Magnúsdóttur, 14
ára gamalli stúlku sem síðast
sást til í Vestmannaeyjum
aðfaranótt sunnudagsins 1.
október, hefur verið hætt.
Að sögn lögreglunnar í
Vestmannaeyjum verður þó
enn um sinn svipast eftir
stúlkunni í höfninni, en þar
fannst hálsklútur sem talið
er að stúlkan hafi verið með
þegar síðast spurðist til henn-
ar.
Mætingar á vegum
53 hafa lát-
ist á síðasta
áratug
Á SÍÐUSTU 10 árum hafa
53 Iátist í umferðarslysum
hér á landi sem urðu með
þeim hætti að tvö ökutæki
voru að mætast á beinum
vegi eða í beygju. Þar er um
að ræða 29 ökumenn bifreiða,
17 farþega í framsæti, fimm
farþega í aftursæti, einn öku-
mann bifhjóls og einn farþega
á bifhjóii.
Samkvæmt upplýsingum
Umferðarráðs hafa allt að
37,5% banaslysa á þessu
tímabili orðið með þessum
hætti, og það sem af er þessu
ári hafa 27,8% beðið bana í
árekstri tveggja bíla sem hafa
verið að mætast á vegi.
Heilari
kærður fyr-
ir kynferð-
isáreitni
KONA um þrítugt hefur kært
lækningamiðil eða heilara
fyrir að hafa áreitt sig og
haff í frammi kynferðislega
tilburði við sig.
Þetta hafi átt sér stað þeg-
ar konan ieitaði eftir heilun-
arþjónustu þeirri sem maður-
inn er sagður veita.
Kæran barst RLR í fyrra-
dag og var rannsókn málsins
á byijunarreit í gær.
Gestur bar-
inn með
göngustaf
MAÐUR sem var barinn í
höfuðið af gestgjafa sínum
var fluttur á Borgarspítalann
frá Keflavík í fyrradag.
Mennirnir höfðu setið að
drykkju á heimili í Keflavík
ásamt tveimur öðrum þegar
þeim varð sundurorða. Við-
skiptum þeirra lauk með því
að húsráðandinn tók göngu-
staf og sló gest sinn í höfuðið.
Sá hlaut talsverða áverka,
en þó ekki lífshættulega, að
sögn lögreglu, og var fluttur
á Borgarspítaiann þar sem
hann var lagður inn til skoð-
unar og eftirlits.
Árásarmaðurinn var yfir-
heyrður hjá lögreglu en látinn
laus í fyrrakvöld.
Björn Hallgrímur Einar
Ólafsson Magnússon Stefánsson
Nýtt íslenskt hæðarmet í fjallaklifri
Klifu 8.200 metra
háan fjallstind
Morgunblaðið/Júlíus
LOGAR stóðu hátt upp úr þaki hússins.
Eldur við Laugaveg