Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Búnaðarþíng samþykkti búvörusamninginn 30-1 Morgunblaðið/RAX SLÁTURTÍÐ er að ljúka víðast hvar á landinu en hér er verið að slátra í Leirársveit. Bændur, sem eru að íhuga að hætta búskap, verða því að taka ákvörðun um það á næstu dögum. Morgunblaðið/Júlíus ÖNNUM kafnir lögreglu- menn við hraðamælingar. 200 kærðir fyrir hrað- akstur RÚMLEGA 200 ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í Reykjavík síðustu 2 sólarhringa. Hverjum þeirra verður gert að greiða a.m.k. 5.000 krónur í sekt. Lögreglan í Reykjavík hefur haft hópa lögreglumanna við hraðamælingar frá morgni til kvölds undanfarna daga og er afrakstur þeirra starfa sá sem fyrr greinir. Að sögn lögreglu hafa flestir ökumannanna verið kærðir fyr- ir 80-100 km/klst. akstur en einnig eru þess mörg dæmi að menn sem ekið hafa með meira en 60 km/klst. hraða þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. hafi verið kærðir. Þeir sem aka 10-40 km/klst. yfir leyfðan hámarkshraða geta átt von á 5-9 þúsund króna sektum. Fari hraðinn yfir það eru mál send dómstólum til meðferðar. Auk þess er nú færð ökuferilsskrá hjá lögregl- unni þannig að þeir sem staðn- ir eru ítrekað að smærri brotum í umferðinni geta átt yfir höfði sér ökuleyfissviptingu, en því úrræði er einnig beitt við þá sem aka meira en 50 km/klst. umfram hámarkshraða. BÚNAÐARÞING samþykkti bú- vörusamning um sauðfjárfram- leiðslu í gær með 30 atkvæðum gegn einu. Sex fulltrúar sátu hjá. Aður hafði þingið samþykkt með 26 atkvæðum gegn 13 að afgreiða samninginn á þinginu, en senda hann ekki í almenna atkvæða- greiðslu til sauðfjárbænda. Miklar umræður urðu á þinginu um hvort setja ætti samninginn í almenna atkvæðagreiðslu. Hluti þeirra fulltrúa sem börðust fyrir því að samningurinn yrði afgreidd- ur með þeim hætti treysti sér ekki til að styðja samninginn við endan- lega atkvæðagreiðslu og sat því hjá. Deilt um hver ætti að greiða atkvæði Þeir sem vildu afgreiða samn- inginn á þinginu bentu á að hætta væri á að m'arkmið um uppkaup á framleiðslurétti í haust næðust ekki ef samningurinn færi í al- menna atkvæðagreiðslu, en talið var að atkvæðagreiðsla tæki a.m.k. tvær vikur. Sláturtíð væri því lokið þegar atkvæðagreiðslu væri lokið. Nauðsynlegt væri þar að auki að taka strax á birgðavandanum. Talsmenn þess að láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu bentu á að sú leið væri lýðræðislegri og að það væri áfall fyrir Bændasam- tökin að fara hana ekki. Guðmund- ur Lárusson, formaður Landssam- taka kúbænda, benti á að árið 1991, þegar afgreiða átti núgild- andi samning, hefði verið beitt sömu rökum og nú, að ekki væri tími fyrir atkvæðagreiðslu og að óvissa ríkti um hveijir ættu að fá að greiða-atkvæði. Ekki hefur verið gerður neinn verkaskiptasamningur milli nýrra Bændasamtakanna og búgreinafé- laganna. Engar formlegar reglur liggja því fyrir um hvernig á að standa að atkvæðagreiðslu meðal bænda. Á búnaðarþingi var tals- vert rætt um hverjir ættu að fá að greiða atkvæði um samninginn ef hann færi í almenna atkvæða- greiðslu. Flestir töldu rétt að ein- ungis sauðfjárbændur greiddu at- kvæði. í tillögu sem lögð var fyrir þingið var lagt til að atkvæðisrétt hefðu einungis greiðslumarkshaf- ar, enda væru þeir aðilar að bún- aðarsambandi eða búgreinafélagi. Heimtökuréttur einn og sér skap- aði ekki atkvæðisrétt. Þessi tillaga var gagnrýnd af mörgum og bent á að varasamt væri að binda at- kvæðagreiðsluna við þá sem hefðu greiðslumark því að samningurinn ijallaði um alla sem framleiddu kindakjöt. Ýmsir bentu á að mikil hætta væri á að einhveijir bændur myndu kæra atkvæðagreiðsluna og það gæti leitt til óvissu um af- drif samningsins fram undir ára- mót. Hvatt til samstöðu Á þinginu voru samþykktar nokkrar ályktanir um framkvæmd samningsins. Þar var m.a. hvatt til leitað yrði allra leiða til að koma í veg fyrir heimaslátrun og tekið yrði tillit til þeirra sem breytt hafa búskaparháttum sínum eða aukið greiðslumark sitt fyrir 1. nóvember 1995 þegar ákvörðun yrði tekin um beitingu heimildarákvæðis um að afurðir þess sauðfjár, sem fjölg- að er frá 1994/1995 skuli allar fara á erlendan markað. Auk þess var hvatt til þess a.m.k. helmingi af því ijármagni sem fara á til hagræðingar og þróunarstarfs samkvæmt búvörusamningnum yrði varið til markaðs- og þróunar- starfs á innlendum markaði. Ari Teitsson, formaður Bænda- samtakanna, sagði þegar hann sleit búnaðarþingi að enginn hefði fengið það sem hann vildi með nýjum búvörusamningi. Viðræð- urnar hefðu verið erfiðar og samn- ingurinn væri umdeildur bæði inn- an bændastéttarinnar, meðal stjórnmálamanna og ýmissa hags- munasamtaka. Hann hvatti bænd- ur til að slíðra sverðin og standa saman um nýja samninginn. Margt benti til að bændur mættu búast við harðri gagnrýni á næstu miss- erum og því væri mikilvægt að þeir stæðu saman, en legðu ekki andstæðingunum vopn í hendur. Noregur og Rússland bjóða allt að 15.000 tonna kvóta, auk skipta á veiðiheimildum Fyrra boð endur- tekið í alvöru Noregur og Rússland virðast nú tilbúin að bjóða * Islandi svipaðan kvóta í Smugunni og rætt var um síðastliðið vor, en ekki staðið við, skrifar Olafur Þ. Stephensen. Ekki er þó búizt við endanlegu samkomu- lagi á samningafundi í Moskvu í næstu viku. NORSK og rússnesk stjórnvöld virð- ast nú tilbúin til þess í alvöru að bjóða íslandi' svipaðan samning um veiðar í Smugunni og rætt var óformlega síðastliðið vor við ísienzka embætt- ismenn. Heimildir Morgunblaðsins herma að Noregur og Rússland hafi nú gefið í skyn að semja megi um allt að 15.000 tonna þorsk- kvóta í Barentshafi, að frátöldum hugsanleg- um gagnkvæmum veiðiheimildum, sem ísland og Noregur myndu semja um sín á milli. Morgunblaðið greindi frá því 25. apríl að norskir og rússneskir embættismenn hefðu viðrað við íslenzka sendimenn á úthafsveiði- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York hugmyndir um að íslendingar fengju 15.000 tonna þorskkvóta í Smugunni, að uppfylltum nokkrum skilyrðum, og jafnvel meira ef sam- ið yrði um gagnkvæmar veiðiheimildir. Á samningafundi embættismanna ríkjanna þriggja, sem hófst í Ósló 26. apríl, höfðu Rússar og Norðmenn hins vegar dregið í lapd og buðu ekki nema 8.000 tonna kvóta. ís- lenzku samningamennirnir höfnuðu því til- boði algerlega og slitu viðræðunum. Bilið styttist Nú virðist bilið á milli deiluaðila hins veg- ar hafa stytzt verulega. Útgerðarmenn og stjórnmálamenn hér heima hafa undanfarið rætt um að hægt væri að semja um kvóta, sem væri til dæmis á bilinu 14.000 til 18.000 tonn. Þeir, sem áður hafa viljað krefjast margra tuga þúsunda tonna kvóta, hafa hins vegar mjög slegið af kröfum sínum. Sjálfur Jóhann A. Jónsson, formaður úthafsvéiði- nefndar Landssambands íslenzkra útvegs- manna, sagði í Morgunblaðinu í gær að hann teldi raunhæft að semja um 20.000 tonna kvóta. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hafa Norðmenn gefið í skyn að þeir séu tilbúnir að semja um allt að 15.000 tonn, auk þess sem hægt yrði að semja um gagn- kvæmar veiðiheimildir. 3.000 til 5.000 tonn í skiptum Hugmyndir hafa verið uppi um að slík veiðiheimildaskipti yrðu tengd stofnstærð þorsks á íslandsmiðum og í Barentshafi, þannig að ef þorskstofninn hér við land efld- ist, fengju Norðmenn kvóta. Ef Barentshafs- þorskurinn væri í góðu ásigkomulagi, mætti hins vegar auka kvóta íslendinga. Fyrirkomu- lag af þessu tagi myndi líkast til koma íslend- ingum til góða fyrsta kastið, enda er þorsk- stofninn hér ennþá veikur en stofninn í Bar- entshafi stendur vel. Rætt hefur verið um að þessar heimildir gætu orðið á bilinu 3.000 til 5.000 tonn, þannig að samanlagður kvóti íslands í Barentshafi myndi slaga upp í þau 20.000 tonn, sem íslenzkir útgerðarmenn virðast hafa sætt sig við. Samningar um gagnkvæmar veiðiheimildir yrðu eflaust flóknir og heimildir Morgun- blaðsins herma að ekki sé útilokað að samn- ingur um lausn Smugudeilunnar kveði á um að Noregur og ísland haldi áfram viðræðum um gagnkvæmar veiðiheimildir; með öðrum orðum að ekki yrði endanlega gengið frá þeim þætti samninganna strax. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur einkum verið rætt um kvótatölur á þeim tveimur fundum Halldórs Ásgrímssonar og Bjorns Tore Godal, utanríkisráðherra Noregs, sem farið hafa fram undanfarið, og ráðherrarnir fikrað sig nær hvor öðrum. Stærð kvótans verður hins vegar að skoða í samhengi við ýmsa aðra þætti, til dæmis hvort íslenzk skip fái að taka kvóta sinn á Svalbarðasvæðinu. íslenzk stjórnvöld munu líta svo á að þótt deilan um Svalbarðasvæðið og Smugudeilan séu í raun aðskildar — önnur snýst um rétt íslands sem aðildarríkis Svalbarðasáttmálans og hin um rétt til veiða á úthafinu — muni væntanlegur samningur við Noreg og Rúss- land binda enda á deilur ríkjanna um þorsk- veiðar í Barentshafinu sem heild. Aftur á móti eru ýmsar aðrar fisktegundir en þorskur veiðanlegar á Svalbarðasvæðinu, til dæmis rækja, sem ekki hefur verið kvótasett. ís- lenzka samninganefndin á viðræðufundinum, sem verður í Moskvu í næstu viku, mun senni- lega vilja ræða um rétt íslands til veiða á þessum tegundum sömuleiðis. Samningum lýkur varla í Moskvu Hugsanlegt er talið að grundvöllur sam- komulags muni liggja fyrir eftir fundinn um Smuguna í Moskvu næstkomandi fimmtudag. Þó verður varla gengið formlega frá sam- komulagi fyrr en síðar, og þá fyrir atbeina ráðherra úr ríkisstjórnum landanna þriggja. Á föstudeginum verður fundað um stjórn veiða í Síldarsmugunni og er ekki búizt við að samningar náist þar heldur, enda hefur málið nú flækzt nokkuð og telja má líklegt að ríkin þijú verði að samþykkja aðild Evr- ópusambandsins að viðræðum um veiðar á norsk-íslenzku síldinni. Fundurinn mun fyrst og fremst vera hugsaður sem undirbúningur fyrir fund Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði- nefndarinnar, sem fara mun fram í nóvem- ber, en þar verða síldveiðarnar til umræðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.