Morgunblaðið - 12.10.1995, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Papandreou
fordæmir upp-
reisn sósíalista
Aþenu. Reuter.
ANDREAS Papandreou, forsætis-
ráðherra Grikklands, reyndi í gær
að kveða niður uppreisn innan Sós-
lalistaflokksins vegna meintra ein-
ræðistilburða hans og deilna um
áhrifamikla eiginkonu hans. For-
sætisráðherrann var harðorður í
ræðu, sem hann flutti í miðstjóm
flokksins, og sagði að þolinmæði
sín væri á þrotum, hann gæti ekki
liðið „heigulskap og vanþakklæti"
andstæðinga sinna öllu lengur.
Papandreou viðurkenndi að
nokkrir af forystumönnum sósíal-
ista hefðu snúist gegn honum og
sagði að þeir yllu flokknum álits-
hnekki. Hann virtist jafnvel mana
þá til að segja sig úr flokknum og
stofna nýjan flokk.
Ræðan varð til þess að atkvæða-
mikill sósíalisti, Dimitris Tsovolos,
fyrrverandi fjármálaráðherra, sagði
sig strax úr flokknum. Talið er að
fleiri sósíalistar fari að dæmi hans.
Þetta er í fyrsta sinn sem Pap-
andreou stendur frammi fyrir slíkri
uppreisn frá því hann stofnaði Sós-
íalistaflokkinn árið 1974. „Nú er
kominn tími til að hefja val á eftir-
manni Andreas Papandreou," sagði
einn andstæðinga hans, Stelios
Papathemelis, fyrrverandi lögreglu-
málaráðherra og einn af virtustu
forystumönnum flokksins.
Embættum hafnað
Þegar stokkað var upp í stjórn
Papandreous nýlega ákváðu nokkr-
ir atkvæðamiklir sósíalistar að
hafna ráðherraembættum og nú
gefa þeir ekki kost á sér í 18 mán-
aða framkvæmdastjóm flokksins.
Papandreou var afskrifaður sem
stjórnmálamaður eftir afhroð sós-
íalista í þingkosningunum árið 1989
þegar hann átti í vök að veijast
vegna ákæru um spillingu, framhjá-
halds og slæmrar heilsu eftir hjarta-
skurðaðgerð. Hann sigraðist þó á
þessu mótlæti, var sýknaður af
spillingarákærunni og leiddi flokk-
inn til sigurs í kosningunum í októ-
ber 1993, þegar hann fékk 47%
atkvæða.
Forsætisráðherrann hefur þó
verið umdeildur meðal sósíalista
vegna heilsubrestsins og mikilla
áhrifa þriðju eiginkonu hans, Dimi-
tru Liani, sem er fertug. Forsætis-
ráðherrann skipaði hana sem skrif-
stofustjóra sinn eftir kosningasig-
urinn og afskipti hennar af stjórn-
málunum hafa síðan farið sívax-
andi.
Nóbelsverðlaun í efna- og eðlisfræði
Osonrannsóknir
og efniseindir
Stokkhólmi. Reuter.
HOLLENSKUR, mexíkóskur og
bandarískur vísindamaður hlutu
Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár
og tveir Bandaríkjamenn skipta
með sér Nóbelsverðlaununum í
eðlisfræði að þessu sinni.
Þeir, sem skipta efnafræðiverð-
laununum með sér, eru Hollend-
ingurinn Paul Crutzen, Mexíkó-
maðurinn Mario Molina og Banda-
ríkjamaðurinn F. Sherwood Row-
land en í tilkynningu sænsku vís-
indaakademíunnar segir, að þeir
hafi rannsakað myndun og eyð-
ingu ósons í andrúmsloftinu og
sýnt fram á hve viðkvæmt óson-
lagið er.
Þeir, sem hlutu verðlaunin í
eðlisfræði, eru þeir Martin L. Perl
við Stanford-háskóla og Fredrick
Reines við háskólann í Kaliforníu.
I tilkynningu vísindaakademíunn-
ar sagði, að Perl fengi verðlaunin
fyrir að finna tá-létteindina og
Reines fyrir að staðfesta tilvist
fiseindarinnar. Munu þeir skipta
með sér verðlaunafénu, rúmlega
64 milljónum kr.
Reuter
HLÝTT hefur verið í Evrópu að
undanförnu og hefur það aukið
á mengun víða, til dæmis í París
þar sem börnum, öldnu fólki og
sjúklingum hefur verið ráðlagt
Málað í
móðunni
að halda sig innan dyra. Lista-
maðurinn Raymond Mason, sem
er af ensku bergi brotinn, lét þó
ekki mengunarmóðuna trufla sig
enda með grímu fyrir vitunum.
Heseltine á þingi breska Ihaldsflokksins
Sameinaður flokk-
ur og sigurviss
Vinstriarmurinn óttast að Major fari of langt til hægri
Blackpool. Reuter.
MICHAEL Heseltine, aðstoðarfor-
sætisráðherra bresku stjórnarinnar,
flutti mikla hvatningarræðu á
landsfundi íhaldsflokksins í
Blackpool í gær og skoraði á flokks-
bræður sína að duga vel og beijast
sem einn maður fyrir sigri í næstu
kosningum. Fór hann oft háðuleg-
um orðum um Tony Blair og Verka-
mannaflokkinn, sem hefur nú 30
prósentustig umfram íhaldsflokk-
inn í skoðanakönnunum.
Heseltine vísaði á bug öllu tali
um hugsanlegan ósigur í næstu
kosningum og sagði, að íhalds-
flokkurinn væri smeinaður flokkur,
sem vildi sigra og ætlaði sér að
gera það. Dró hann dár að Blair
og Verkamannaflokknum, sem
hlypi ýmist til vinstri eða hægri og
stæði nú uppi stefnulaus, og sagði,
að tilraun Blairs til að tala fyrir
munn uppgjafahermanna og sannra
föðurlandsvina væri andvana fædd.
Ræðu Heseltines var vel fagnað en
hann forðaðist hins vegar að slá á
sömu þjóðernisstrengina og Michael
Portillo varnarmálaráðherra í fyrra-
dag.
Meiri sátt um Evrópumál
Flokksþingið hefur til þessa ein-
kennst af meiri sátt um Evrópumál-
in en áður en vinstriarmurinn í
íhaldsflokknum, sem lítur á Hesel-
tine sem leiðtoga sinn, óttast, að
þessi friður sé fyrst og fremst til-
kominn fyrir það, að Major hafi
færst verulega til hægri. Varð til
að auka enn á áhyggjurnar þegar
Alan Howarth þingmaður og fyrr-
verandi ráðherra hljóp yfir til
Verkamannaflokksins en hann var
í vinstraarmi íhaldsflokksins.
Edwina Currie, fyrrverandi ráð-
herra í ríkisstjórn Ihaldsflokksins,
sagði í gær, að það jafngilti ósigri
í kosningum ef Major ætlaði að
færa flokkinn lengra til hægri á
sama tíma og Verkamannaflokkur-
inn leitaði inn á miðjuna.
Á þinginu í gær voru kynntar
ýmsar fyrirætlanir stjórnarinnar,
meðal annai-s að einkavæða jám-
brautimar snemma á næsta ári og
herða mjög eftirlit með bótagreiðsl-
um til að koma í veg fyrir misnotkun.
Bandarískur prófessor um Kensington-steininn
Rúnirnar á mállýsku
íbúa í Bohúsléni
Alexandriá/ o ) íVTSU'’ ^
Kehsington Minneapolts,'' ,_z r V
ó/ Nevyjfbrk
chicago o teið víkinganna til Ameríku
BANDARIKIN vMiigm komu austan um haf til Grcenlands.
Þaban sigldu þeir vestur um til Baffinslands og inn
1 á Hudson-flóa. Þaöan lá leibin um Winnipegvatn og
Raubá til núverandi mibvesturríkja Bandaríkjanna
NÝJAR deilur eru hafnar um
Kensington-steinninn svonefnda
sem fannst í Minnesota skörrimu
fyrir aldamótin. Á honum er ár-
talið 1362 og rúnaletur sem
finnandinn, sænsk-ættaður bóndi
á staðnum, og fleiri töldu sanna
að norrænir menn hefðu haft þar
viðdvöl og kannað stærri svæði í
Norður-Ameríku en áður var tal-
ið.
Norrænir fræðimenn hafa yfir-
leitt verið mjög vantrúaðir á að
steinninn væri annað en fölsun.
Jónas Kristjánsson prófessor
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins margt benda ti|
að áletrunin væri fölsun seinni
tíma manna. „Þetta er með
böngulegri fölsunum, líklegast áð
bóndinn hafi bara verið að gera
þetta sem grín, það hefði verið
hægt að gera þetta miklu betur,“
sagði Jónas.
Sums staðar gætti enskuáhrifa
en grundvöllurinn virtist vera
nútímasænska, beygingar sem
enn hefðu verið umtalsverðar í
skandinaviskum málum, einnig í
sænsku, á þessum tíma, væru
mjög á reiki, sums staðar vantaði
endingarnar. Notkun á hljóðinu þ
væri beinlínis röng, m.a. væri
orðið dagur látið hefjast á þessu
hljóði. „En mér er sagt að steinn-
inn sé mjög í tísku núna,“ sagði
Jónas.
Hann sagðist ekki hafa kynnt
sér röksemdir bandaríska málvís-
indamannsins Roberts Hall en
skýrt hefur verið frá kenningum
hans í Berlingske Tidende um að
steinninn sé ófalsaður.
Morgunblaðið ræddi símleiðis
við Hall sem var prófessor við
Cornell-háskóla í New York. Hall
er nú á eftirlaunum en segist
vera að safna gögnum um Kens-
ington-steininn og vera orðinn
sannfærður um að hann sé ekta.
„Öllum mótbárunum hefur
þegar verið svarað. Ég fullyrði
að ekki séu nein merki um nítj-
ándu aldar sænsku I rúnaletrinu.
Málið sem notað er í rúnaletrinu
er sennilega mállýska sem notuð
var í Bohusléni [í Vestur-Svíþjóð,
við norsku landamærin] og þess
vegna er þýðingarlaust að benda
á frávik þegar það er borið saman
við forníslensku,“ sagði Hall.
„Einnig má telja líklegt að það
beri meiri keim af daglegu tal-
máli en hefðbundnar rúnaáletran-
ir.“
Hall nefndi að ekki væru notað-
ar rómverskar tölur eins og á
öðrum rúnasteinum en til væru
ótvíræðar vísbendingar um að
arabískt talnakerfi hefði þekkst
I Norður-Evrópu þegar á 12. öld.
Hall sagði ennfremur að þeir
sem kannað hefðu aðstæður þar
sem steininn fannst hefðu verið
sannfærðir um að nútímamenn
hefðu ekki getað komið honum
fyrir án þess að þeir hefðu séð
þess einhver merki. Fornleifa-
fræðingar hefðu bent á að ekki
hefði verið hægt að raska jarð-
vegi á staðnum án þess að það
hefði sést.