Morgunblaðið - 12.10.1995, Qupperneq 19
Réttarhöld vegna morðanna í Cromwell-stræti
Sökuð um að hafa lim-
lest fórnarlömb sín
Winchester. Reuter.
MEINTUR fjöldamorðingi, Rose-
mary West, sem sökuð er um að
hafa myrt 10 ungar stúlkur ásamt
eiginmanni sínum á heimili þeirra
við Cromwell-stræti í borginni Glo-
ueester í Mið-Englandi, hefur ver-
ið fyrir rétti, sökuð um að hafa
tekið þátt í að limlesta fórnarlömb-
in af ráðnum hug.
Réttarhöld hófust yfir Rose-
mary West í síðustu viku en mað-
ur hennar framdi sjálfsmorð sl.
nýjársdag. Hún neitar öllum sak-
argiftum. Lík fómarlamba þeirra
fundust undir kjallaragólfí heimilis
þeirra fyrr á árinu eða reyndust
hafa verið grafin í baklóð hússins.
Auk stúlknanna 10 er Fred
West ákærður fyrir að hafa myrt
fyrrverandi eiginkonu sína og
barnfóstru og grafið þær í jörðu.
Samkvæmt framburði rann-
sóknarlögreglunnar vantaði ýmist
aðra eða báðar hnéskeljar á lík sjö
fórnarlambanna. í hin líkin vant-
aði smábein úr höndum, fótum eða
hálsi.
Lögmaður saksóknara fullyrti
að hverfandi líkur væri á því að
lögreglunni hefði yfírsést beinin
þegar líkin voru grafín upp og þau
hefðu heldur ekki getað morknað
og orðið að mold.
í upphafsræðu saksóknara var
því haldið fram, að West-hjónin
hefðu misnotað ungar stúlkur kyn-
ferðislega á heimili sínu og meðal
stúlknanna voru -dóttir Rosemary
West og stjúpdóttir.
í gær báru tvær konur vitni.
Önnur þeirra kvaðst- hafa sætt
kynferðislegri misnotkun af hálfu
West-hjónanna eftir að hafa ráðist
til starfa sem barnapía í Crom-
well-stræti. Sagði hún að Rose-
mary West hefði ekki leikið þar
minna hlutverk en maður hennar.
Leituðu að fórnarlömbum
Hin konan gætti einnig barna
hjá West-hjónunum er þau bjuggu
í Midland Road, þ.e. áður en þau
fluttu í Cromwell-stræti. Hélt hún
því fram að West hefði ítrekað
reynt að fá sig til kynlífs með
þeim hjónum en ætíð hafnað hon-
um. Hefði hann gert Rosemary
út sem vændiskonu og sjálfur leg-
ið á gægjum er hún tók móti við-
skiptavinum. Einnig hefði hún
verið í aðalhlutverki er þau fóru í
ökuferðir um Gloueester og ná-
grannaborgir gagngert til þess að
hafa upp á stúlkum sem hlaupist
höfðu að heiman og reyna tæla
þær til vistar hjá sér. Hefði Fred
rætt fjálglega við sig um það og
sagt að helst reyndu þau að hafa
upp á 14-15 ára stúlkum því mest-
ar líkur væru á að þær væru
óspjallaðar.
Viltu nýta þér 4 helgar?
Meirapróf
nám til aukinna ökuréttinda
; Námskeið á ökunámsbraut hefst þann 27.10. nk.
Og enn er Nyi ökuskólinn í fararbroddi.
Eftir áramót tekur til starfa vinnuvélabraut.
Námskeið á ökunámsbraut tryggir þér verulegan
afslátt á vinnuvélabraut í framtíðinni.
Nýí ðkushðlinn, Klettagörðum 11 (gegnt Víðeyjarferjunní), símí 588 4500
ESTEE LAUDER
Jafnvel þó þú notir aldrei farða
prófaðu
Enjjghten
Skin-Enhancing
Makeup
Kynning í dag og á morgun frá kl. 12-18
gardeur®
Ný sending af
gardeur buxum.
velkomin.
i isKUversiun, öeuj. s: doi ioou.
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 19
ERLENT
Y G E A
rtivöruveralun
Austurstræti
Reuter
Claes ver si g
fyrir þingnefnd
Brussel. Reuter.
WILLY Claes, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins (NATO),
fær tækifæri til að verja sig á
föstudag þegar hann kemur fyrir
belgíska þingnefnd, sem kann að
ákveða í næstu viku hvort biðja
eigi þingið um að ijúfa þinghelgi
hans vegna mútuhneykslis.
Lagt hefur verið að fram-
kvæmdastjóranum að segja af sér
vegna ásakana um að hann hafi
vitað um greiðslur sem Flæmski
sósíalistaflokkurinn á að hafa þeg-
ið af ítalska þyrlufyrirtækinu Ag-
usta vegna kaupa Belga á 46 her-
þyrlum fyrir 12 milljarða belgískra
franka (26,5 milljarða króna) árið
1988. ClaeS, sem var efnahags-
málaráðherra á þessum tíma,
kveðst saklaus af sakargiftunum
og Agusta neitar því að hafa greitt
flokknum mútur.
Claes kemur fyrir sérstaka
nefnd, sem skipuð er þingmönnum
úr öllum flokkum, á föstudag.
Nefndin fjallar um hvort tjúfa
beri þinghelgi hans svo hægt verði
að ákæra hann fyrir spillingu, fjár-
svik og fölsun.
Skýrslur saksóknara kynntar
Ásakanirnar koma fram í skýrsl-
um frá saksóknaranum Jacques
Velu við æðsta dómstól Belgíu,
Cour de Cassation, eina dómstólinn
sem getur sótt ráðherra og fyrrver-
andi ráðherra til saka. Hann ræddi
sakargiftimar ýtarlega á fundi með
þingnefndinni fyrir luktum dyrum
á þriðjudag.
Heimildarmenn, sem tengjast
viðræðunum, sögðu að Velu hefði
látið í ljós áhyggjur af uppnáminu
sem beiðni hans um að fá að ákæra
Claes hefur valdið undanfama
daga.
Velu hefur ennfremur óskað eft-
ir því að Guy Coeme, fyrrverandi
varnarmálaráðherra, verði ákærð-
ur vegna sama máls. Coeme á enn
sæti í neðri deild þingsins og kem-
ur fyrir nefndina á föstudagsmorg-
un. Hann hefur einnig haldið fram
sakleysi sínu.
Átök í
Píreus
STARFSMAÐUR í skipasmíða-
stöð í Píreus, hafnarborg
Aþenu, fleygir spýtu í átt að
óeirðaíögreglu í gær. Til
harðra átaka kom fyrir framan
ráðuneyti kaupskipaflotans
gríska er starfsmenn mótmæltu
fyrirhugaðri lokun skipasmíða-
stöðvar í einkaeigu.