Morgunblaðið - 12.10.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 21
Nýr leiklistar-
ráðunautur í
Þj óðleikhúsinu
HÁVAR Siguijónsson
hefur verið ráðinn nýr
leiklistarráðunautur
Þjóðleíkhússins í stað
Árna Ibsens, sem
starfað hafði í leikhús-
inu til fjölmargra ára.
Sjö umsækjendur sóttu
um starfið.
Hávar Sigurjónsson
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum vð
Sund 1978, BA-prófi
frá leiklistardeild Há-
skólans í Manchester á
Englandi 1982 og
MA-prófi í leikstjórn
og leikhúsfræðum frá
leiklistardeild háskól-
ans í Leeds. Veturinn 1989-1990
stundaði hann framhaldsnám í leik-
stjórn í London.
Hávar var blaðamaður og rit-
stjóri fréttablaðsins Feykis á Sauð-
árkróki 1983-1985, starfaði við
auglýsingagerð 1986-1988 og var
blaðamaður á Morgunblaðinu 1988-
1991, ásamt því að starfa við leik-
stjórn með áhugaleik-
félögum. Hann var
leiklistarráðunautur
Ríkisútvarpsins frá
1991-1993 og hefur
verið samningsbundinn
leikstjóri við Þjóðleik-
húsið undanfarin tvö
leikár.
Hávar hefur starfað
sem leikstjóri hjá Al-
þýðuleikhúsinu, Út-
varpsleikhúsinu, Ríkis-
sjónvarpinu, Leikfélagi
Ákureyrar og Þjóðleik-
húsinu og meðal sýn-
inga sem hann hefur
leikstýrt eru Ég heiti
ísbjörg, ég er ljón,
Barpar, Gaukshreiðrið, Dóttir Lúsi-
fers og Taktu lagið, Lóa!
Hávar hefur unnið leikgerðir og
þýðingar fyrir leiksvið og Útvarps-
leikhúsið og fyrr á þessu ári var
frumsamið leikrit hans eitt fimm
leikrita sem hlaut sérstaka viður-
kenningu í Leikritasamkeppni Rík-
isútvarpsins.
Hávar
Sigurjónsson
Reuter
Tenórar í tónleikaferð
TENÓRARNIRþrír, Luciano
Pavarotti, Placido Domingo og
Jose Carreras, tilkynntu í gær
að þeir hygðust leggja upp í tón-
leikaferð um mitt næsta ár. Munu
þeir syngja fyrir um 300.000
manns hveiju sinni en borgirnar
sem þeir heimsækja eru Tókýó í
júní 1996, London og New York
í júlí, Miinchen í ágúst og ferð-
inni lýkur i Melbourne í mars
1997. Tenórarnir hafa áður sung-
ið saman í Róm í lok heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu
1990 og Los Angeles fjórum
árum seinna. Hveijir tónlekasr
munu standa í 2 Vá klukkustund
og verður flutt gamalt efni og
nýtt. Fílharmóníusveit Lundúna
leikur undir í Evrópu og Ástralíu
en hljómsveit Metropolitan-óper-
unnar í New York. Miðaverð í
Lundúnum verður frá 3.500 kr.
og upp í 35.000 kr.
Nordisk Barne- og Undomskorsamarbeid
Tíu manna hópur
sækir Island heim
DAGANA 13.-15. október sækir
tíu manna hópur frá félagsskapn-
um NORBUSAM (Nordisk Barne-
og Undomskorsamarbeid) Island
heim. Tilgangur heimsóknarinnar
er að kynnast starfsemi íslenskra
barna- og unglingakóra, efla kóra-
samstarf á Norðurlöndunum meðal
annars með því að skapa tengsl
við leiðandi listamenn á sviði kór-
menningar hér á landi.
Af þessu tilefni verða haldnir
tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur-
borgar, þar sem fram munu koma
eftirtaldir kórar ásamt stjórnend-
um sínum.
Barnakór Flataskóla/Guðfinna
Dóra Ólafsdóttir, Drengjakór
Laugarneskirkju/Friðrik S. Krist-
insson, Unglingakór Selfoss-
kirkju/Glúmur Gylfason og Kór
Öldutúnsskóla/Egill R. Friðleifs-
son.
Tónleikamir verða í Tjarnarsal
á laugardaginn kl. 13.30 og taka
um eina klukkustund. Efnisskráin
verður fjölbreytt með íslenskri og
erlendri tónlist. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis.
Ólafur B. Ólafsson tónmennta-
kennari við Öskjuhlíðarskóla hefur
undirbúið komu. NORBUSAM
hingað til lands. Hann hefur notið
velvilja kórstjóranna sem nefndir
voru hér að framan. Einnig hafa
Haukur Guðlaugsson söngmála-
stjóri, Þorgerður Ingólfsdóttir kór-
stjóri Menntaskólans í Hamrahlíð
og Reykjavíkurborg o.fl. verið inn-
an handar vegna heimsóknarinnar.
t i I b o ð
bókabúðu m
f s I á t t u r
MEISOIDBOK
DM AIMNIEIM
fæst i næstu
bókabúö
Villtir svanir er í senn kvennasaga, fjölskyldusaga og
mannkynssaga. Höfundurinn, Jung Chang, segir hér
sögu fjölskyldu sinnar frá sjónarhóli þriggja kynslóða
kvenna; sjálfrar sín, móður sinnar og ömmu.
Lesandinn fær hér ómetanlega og óvenjulega innsýn
í sögu Kína á þessari öld - en um leið er þetta
nærfærin og áhrifamikil lýsing á örlögum einstaklinga
sem urðu fórnarlömb maóismans. Villtir svanir er saga
um mannlega reisn, hetjuskap og fegurð í miðri
vargöldinni.
Bókin hefur farið sigurför um öll Vesturlönd frá því
hún kom út árið 1991 og hefur trónað á toppi
metsölulista víða um lönd undanfarin misseri.
Gagnrýnendur hafa hlaðið bókina lofi og jafnað henni
við sögulegar skáldsögur eins og þær gerast bestar -
nema hér er hvert orð dagsatt.
Hjörleifur Sveinbjörnsson íslenskaði.
O R L A G 1 í
M Á L O G IVI E N N 1 N <3 1