Morgunblaðið - 12.10.1995, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 27
BÍLATRYGGIIMGAR
EFFACIL 30 ML
- augnhremsivökvi,
ROUGE ABSOLU
- rakagefandi varaHtur.
INTENCILS
augnháralitur.
BIENFAIT TOTAL 10 ML
- vítamínfyUt dagkrem.
SNYRTITASKA
Þessi kaupauki fæst eingöngu í neðantöldum verslunum frá fimmtudegi til laugardags.
Kaupaukinn fylgir þegar keyptir eru tveir hlutir frá LANCÖME , þar af 50 ml krukka af einhverju
eftirtalinna krema: Primordiale, Rénergie, Nutriforce, Niosome+ eða Hydrative.
Miðbær Laugavegs Apótek Rangár Apótek
Miðstræti 14, Vestmeyjum, sími 481 1505 Laugavegi 16, sími 552 4047 Hellu. Hvolsvelli, sfmi 487 5030
KJÖTVÖRUR
íslensku tryggingafélögin koma
ekki illa út gagnvart iðgjaldagreið-
endum þegar á það er iitið hvern-
ig iðgjöld endast til greiðslu tjóna.
Hér fara nánast öll iðgjöldin í bóta-
greiðslu'r en félög í flestum öðrum
löndum hafa nokkurn afgang til
að greiða kostnað. í þessum
samanburði verður þó að rifja upp
umræður um það hvort uppbygg-
ing íslensku tryggingafélaganna á
öryggisálagi bótasjóða hafi hækk-
að tjónakostnað óeðlilega.
Loks má geta þess að sam-
keppni veitir tryggingafélögunum
víða gott aðhald í verðlagningu.
Samkeppnin virðist minni hér á
landi enn sem komið er en hefur
þó verið að þróast, hvað sem sem
framtíðin ber í skauti sér.
í bílatryggingar að meðaltali á
hvern bfl í landinu og eru fimm
lönd með hærri iðgjöld en tólf
með lægri. Þessi samanburður
hefur hins vegar litla aðra þýð-
ingu en að sjá stærð trygginga-
markaðarins í viðkomandi löndum
því það er svo mismunandi hvern-
ig fólk tryggir. Allir verða að
kaupa lögboðnar ábyrgðartrygg-
ingar en í sumum löndum er hlut-
fallslega mjög lítið keypt af frjáls-
um tryggingum en í öðrum er
meirihluti bílaflotans í kaskó.
Við samanburð á einstökum
tryggingagreinum milli landa er
oft notað hlutfall tjónakostnaðar
af iðgjöldum, það er hvernig ið-
gjöldin endast til greiðslu tjóna.
Sá samanburður ætti að hafa
meiri þýðingu í þessu samhengi
enda gefur hann vísbendingar um
það hvort tryggingafélögin eru að
okra á bíleigendum. Hjá Sambandi
evrópskra tryggingafélaga liggja
fyrir tölur um mörg Evrópulönd
fyrir árið 1993. Með samanburði
þeirra við ísland sést að tjóna-
kostnaður íslensku tryggingafé-
laganna er mjög hár, eða 99% af
iðgjöldum að meðaltali. Algengt
er að þetta hlutfall sé 80-90%.
Síðan þarf að bæta rekstrarkostn-
aði við tjónakostnað og draga fjár-
magnstekjur frá, áður en afkoma
bílatrygginganna fæst. Þessir liðir
jafna oft hvor annan út.
Lífleg samkeppni
Samkeppni milli tryggingafé-
laga í viðkomandi löndum og frá
erlendum tryggingafélögum getur
haft áhrif á iðgjöldin. Það getur
einnig haft áhrif hvernig styrk-
leikajafnvægið er milli samtaka
tryggingafélaga annars vegar og
neytendasamtaka bíleigenda hins
vegar. Ákveðinn hluti trygging-
anna er lögboðinn og því skiptir
máli hvor þrýstihópurinn nær betri
árangri.
Samkeppnin er lífleg ________
víða í Evrópu og opnun
evrópska markaðarins
hefur glætt hana enn
frekar. Mörg dæmi eru
um að samkeppnin hafi
takmarkað möguleika félaga á að
hækka iðgjöld í einstökum áhættu-
flokkum til að mæta auknum
tjónakostnaði.
Sölufyrirkomulag breytist
hratt. Tryggingafélög sem selja
þjónustu sína beint, án milligöngu
verðbréfamiðlara, sækja stöðugt
á, til dæmis í Bretlandi, og sums
staðar hafa bankar farið út í sölu
trygginga. Samkeppnin knýr stóru
tryggingafélögin til að reyna fyrir
sér með beinni sölu.
í fjölmennari ríkjum álfunnar
eru á annað hundrað tryggingafé-
lög að bítast um viðskiptin á bíla-
tryggingamarkaðnum. Sjaldnast
eru fimm stærstu félögin í hveiju
landi með yfir þriðjung markaðar-
ins. Verðkannanir sem birst hafa
í blöðum sýna oft mikinn verðmun
milli félaga og þó einkum milli
áhættuhópa. Sum félög skilgreina
markhópa sína vel og verðleggja
sig eftir því. Þannig geta ungir
eigendur kraftmikilla sportbíla
þurft að greiða margföld iðgjöld
meðaljónanna. Fólk getur haft
gott tímakaup við að fara milli
miðlara og tryggingafélaga til að
leita að ódýrustu iðgjöldunum
enda eru dæmi um að hægt sé að
lækka iðgjöldin um helming með
svolítilli vinnu.
Hér á landi eru 6 tryggingafélög
á bílamarkaðnum og tvö þeirra
stærstu með 70% markaðshlut-
Öll iðgjöldin
ganga til
greiðslu bóta
I LONDON slær hjarta tryggingastarfseminnar. Þar er áhættu-
dreifingin þróaðri en víðast hvar og erfitt með verðsamanburð
við önnur lönd, hvað þá ísland.
deild. Markaðurinn einkennist af
fákeppni, eins og fram hefur kom-
ið. Tryggingamenn virðast taka
mikið tillit hver til annars í sam-
keppninni og ekkert félag hefur
þorað að hleypa markaðnum upp
því það veit að hin myndu strax
fylgja í kjölfarið. í sumum Evrópu-
löndum höfðu tryggingafélög
mjög náið samstarf um tjónaupp-
gjör og iðgjaldaákvarðanir en
smám saman hefur slitnað upp úr
þessu. Hér gerðist það seinna en
_______ til dæmis í Svíþjóð og
getur verið að markaður-
inn beri þess enn merki.
Vandasamur
samanburður
Það er niðurstaða þessarar
greinar að samanburður á nokkr-
um dæmum sem birtur er með
þessari grein staðfestir það sem
áður hefur komið fram, að iðgjöld
bílatrygginga eru yfirleitt há hér
miðað við nágrannalöndin. Jafn-
framt kemur það fram að hafa
þarf ákveðinn fyrirvara við skoðun
þessara staðreynda vegna þess
hvað iðgjalda- og bónuskerfi geta
verið mismunandi. Vandinn við
samanburð milli landa lýsir sér ef
til vill best í því að tryggingafélög
sem starfa í fleiri en einu landi
bjóða ekki sömu iðgjöldin alls stað-
ar, heldur verðleggja sig eftir að-
stæðum á hveiju áhættusvæði.
ísland virðist vera í hópi þeirra
ríkja sem leggja mesta skaðabóta-
skyldu á tryggingafélög en sums
staðar er hámark vátryggingafjár-
hæðar vegna líkamstjóna enn
hærra en hér eða jafnvel ótak-
mörkuð íjárhæðr
Þannig virkar
bónuskerfið
ÞAÐ vefst fyrir mörgum að
skilja bónuskerfi íslensku trygg-
ingafélaganna. Þau eru flest
svipuð í grunninn, þar sem fólk
fær sífellt aukinn afslátt eftir
því sem það ekur lengur Ijón-
laust, en afslátturinn er svo
minnkaður ef menn keyra á og
getur breytst í álag á iðgjaldið.
Utfærslurnar geta verið mis-
munandi hjá félögunum. Hér á
eftir er greint frá stærstu drátt-
unum í bónuskerfi Sjóvá-
Almennra trygginga, til fróð-
leiks um það hvernig bónusinn
virkar.
Ungmenni sem kaupir bíl og
byrjar að aka strax eftir bílpróf-
ið fær frá upphafi 10% bónus í
ábyrgðartryggingu bilsins, það
er 10% afslátt frá iðgjaldinu. Ef
grunniðgjaldið hefur verið til
dæmis 100 þúsund kr., greiðir
hann 90 þúsund á fyrsta ári.
Bónusinn hækkar um 10% á ári,
þar til hann nær 50% á fimmta
tjónlausa ári. Eftir það hækkar
hann um 5% á ári þar til afsláttur-
inn er orðinn 70% á níunda ári.
Iðgjaldið er þá komið niður í 30
þúsund og lækkar ekki eftir það.
50% hámarksbónus í upphafi
Ef ungmennið kaupir bíl 20
ára og hefur aldrei keyrt á, byrj-
ar það strax í 40% bónus, eins
og jafnaldrinn sem átt hefur bíl
frá sautján ára aldri. Menn eiga
þó aldrei að geta byrjað ofar en
í 50% bónus. Tekið skal fram að
iðgjaldaupphæðirnar eru tilbún-
ar, og hér einungis til skýringar
á því hvernig bónuskerfið er.
Ef sautján ára unglingurinn
fær sér einnig húftryggingu
(kaskó) fær hann 10% bónus í
upphafi og bætir svo 10% við þar
til hann nær 40% afslætti á
fjórða tjónlausa ári. Ef grunnið-
gjaldið er t.d. 50 þúsund greiðir
viðkomandi 45 þúsund kr. á
fyrsta ári en ekki nema 30 þús-
und eftir fjögur ár. Bónusinn
getur hækkað í 50% eftir tíu
óhappalaus ár.
Refsað fyrir að keyra á
Ef ungmennið okkar keyrir á
og er í órétti lækkar bónusaf-
slátturinn. Fellur það mismikið
í bónus, allt eftir því hvað bónus-
inn var orðinn hár. Ef tjónið sem
ábyrgðartrygging bílsins á að
bæta, það er tjón sem hún hefur
valdið öðrum, verður fyrstu þijú
árin fellur viðkomandi niður um
fimm bónusflokka. Okkar maður
myndi missa allan sinn bónus og
gæti í staðinn þurft að greiða
álag á iðgjaldið. Hann þyrfti því
að minnsta kosti að greiða fullt
iðgjald, 100 þúsund krónur, jafn-
vel einhverja tugi þúsunda þar
yfir. Síðan fer refsingin stig-
lækkandi, eftir því hvað menn
eru búnir að vera tjónlausir
lengi. Þeir sem búnir eru að aka
tjónlausir í 10-12 ár falla aðeins
um tvo bónusflokka og þeir sem
búnir eru að aka í yfir 16 ár
falla ekki í bónus við fyrsta tjón.
Sama gildir um þá sem hafa
fleiri tryggingar hjá Sjóvá-
Almennum og eru í svokölluðum
Stofni.
Fyrir hvert tjón sem trygg-
ingafélagið þarf að bera út á
kaskótrygginguna, það er tjón á
eigin ökutæki, fellur bónusinn
niður um þrjá flokka. Myndi
maðurinn í þessu tilbúna dæmi
missa allan sinn bónus ef hann
lenti í árekstri einhvern tímann
á fyrstu þremur árunum og
þurfa þá að greiða 50 þúsund
kr. fyrir húftrygginguna. Ekki
er beitt álagi á iðgjöld í húf-
tryggingum.
LANCÖME
Glæsilegur kaupaukil
Ókeypis lögfræðiþjónusta
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator,
félag laganema.