Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 35
 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 35 AÐSENDAR GREINAR F ótaaðgerð ogjiróun fótaaðgerða á Islandi FÓTAAÐGERÐ er meðhöndlun á ýmis konar fótameinum sem orsakast af með- fæddum eða áunnum þáttum. Fótaaðgerða- fræðingar meðhöndla fótamein og veita fyrirbyggjandi hlífð- armeðferð með utan- að komandi efnum, m.a. silikoni, spöng- um og filtefnum og gefa faglega ráðgjöf. Fáir njóta eldanna Fótaðgerðafræð- ingar eru dæmigerð kvennastétt _hér á norðurhveli. í Suður-Evrópu eru karlmenn í miklum meirihluta í stéttinni og í sumum löndum nær eingöngu. Gera má samlíkingu við fótaaðgerðakonu fyrri áratuga, fram á þennan dag, og konuna í ljóði Davíðs Stefánssonar, „Konan sem kyndir ofninn minn“, því ekki hafa störf fótaaðgerðafræðinga verið metin sem skyldi. í öðru er- indi ljóðsins segir: „Hún fer að engu óð, er öllum mönnum góð og vinnur verk sín hljóð“. Nú á þessum tíma er stéttin risin upp úr þögninni. Hún hefur barist fyr- ir tilverurétti sínum síðustu ár. Árangurinn er að koma í ljós sem komandi kynslóðir munu njóta. Þá koma aftur upp í hugann síðustu tvær ljóðlínur Davíðs í sama ljóði sem eiga við fótaaðgerðastéttina eins og svo margar aðrar stéttir sem barist hafa fyrir tilverurétti sínum. „Fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá“. Hver er saga þessarar hljóðlátu stéttar? Árið 1929 var hér apótekari að nafni Thorsteinn Scheving Thor- Eygló Þorgeirsdóttir steinsson sem skildi þörfína. Tók hann það til ráðs að senda stúlk- ur sem unnu hjá hon- um í apótekinu til Danmerkur í skóla á vegum dr. Scholls. Fyrsta stúlkan sem kom heim með þá menntun var Þóra Borg. Fleiri fylgdu í kjölfarið. Þessar stúlkur störfuðu við fótaðgerð í hliðarher- bergi í apótekinu. Á nóttunni var það notað sem svefnpláss fyrir lækna. Upp frá því komu þó nokkuð margar stúlkur úr námi frá Norðurlöndunum sem var á þessum tíma ólögbundið. Fljótlega fóru þessar konur að taka nema hérlendis og kenna með líku sniði og þær höfðu numið. Danir fengu löggildingu ’72 en Norðmenn ’78. Á þessum árum voru ýmsar hefð- bundnar kvennastéttir að fá viður- kenningu og löggildingu hér á landi, t.d. sjúkraliðar, meinatækn- ar og fleiri. Fótaaðgerðafræðingar hérlend- is vakna ekki fyrr en löngu seinna er nokkrir fótaaðgerðafræðingar komu reglulega saman um vetur- inn ’85 og unnu að gerð félagslaga fyrir fótaaðgerðafræðinga. Datt þessi þróun upp fyrir. Ári seinna voru bréf send til allra Norðurland- anna til að fá upplýsingar um stöðu mála í þeim löndum. Aðeins barst svar frá Noregi. í gömlu söluskattslögunum seg- ir að fótaaðgerð sé „eiginleg læknisþjónusta" Þar stendur að fótaaðgerðir skuli ekki bera sölu- skatt þar sem þjónustan sé hlið- stæð læknisþjónustu. Þannig að í tíð söluskattslaganna bar þjónust- Heilbrigðisráð- herra á villigötum NÚ, þegar heil- brigðis- og trygginga- ráðherra hefur lagt það til við Alþingi að gildistöku ákvæða nýrra lyfjalaga verði frestað, verður athygl- isvert að sjá í hvaða farveg málið mun fara í þinginu. Ljóst er að þingmenn og ráðherr- ar Sjálfstæðisflokksins bera mikla ábyrgð í þessum efnum. Hagsmunir neytenda Már Másson það að vera sjálfsögð krafa að almenningur geti treyst því að ákvarðanir Alþingis standi. Það er mjög eðlilegt að einstakling- ar og fyrirtæki geri sínar áætlanir á grund- velli lagaákvæða er löggjafinn setur. Al- þingi má því aldrei láta stjórnast af geðþótta- ákvörðunum einstakra ráðherra. Ábyrgð sjálfstæðismanna Þær breytingar sem frumvarpið hefur að geyma eru mjög í frjálsræðisátt, þær ýta undir bætta þjónustu og lægra vöruverð og eru því neytendum mikið hags- munamál. Auk þess má gera ráð Þetta mál, segir Már Másson, er mikil próf- raun fyrir þingmenn og ráðherra Sj álfstæðisflokksins. fyrir að töluverður sparnaður verði í ly^aútgjöldum ríkisins. Geðþóttaákvörðun ráðherra Auk þess að vera brýnt hags- munamál fyrir neytendur, hlýtur sem íslenskir fótaaðgerða- fræðingar, segir Eygló Þorgeirsdóttir, hafa náð ótrúlega langt á örfáum árum. an ekki söluskatt þrátt fyrir að í lagalegum skilningi væri stéttin ekki til. Hveijir eru slq" ólstæðingarnir? Eldra fólk, heilsuskert fólk, svo sem gigtarsjúklingar, soriasis- sjúklingar, sjónskertir, bakveikir, lamaðir, hreyfíhamlaðir og aðrir sem þannig fótamein hafa að það heyrir undir starfsvið fótaaðgerða- fræðinga. Aðdagandi að stofun fagfélags Árið 1986 talar undirrituð við nokkra fótaðgerðafræðinga hvort áhugi væri fyrir námskeiðum eða fyrirlestrum hjá húð- og bækl- unarlæknum. Voru boð látin ber- ast manna á milli þar til álitlegur hópur var kominn. Héldu síðan læknar og aðrir sérhæfðir aðilar fyrirlestra fyrir hópinn næstu árin. Á þessum fyrirlestrum efldust kynnin og kom þá tillaga um að stofna félag. Nefnd tók að sér að gera drög að félagsmyndun. Fram að þessum tíma hafði engin sam- staða verið en ákveðinn staðall hafði þó myndast í menntun fótaaðgerðafræðinga sem fór ein- göngu fram á stofunum. Þannig höfðu ómarkviss samtök starfað í nokkur ár. Félag fótaaðgerða- fræðinga, FFF var svo stofnað 11. október 1989. Fyrsta verk félagsins var að setja á laggirnar skóla til endurmenntunar sem stóð yfir í 5 mánuði og 95% fé- lagskvenna sótti. Félagið fær löggildingu Fyrsta stjórnin hóf viðræður við heilbrigðisráðuneytið með það markmið að fá fótaaðgerðafræð- inga viðurkennda sem heilbrigðis- stétt. í framhaldi af því stofnaði þáverandi heilbrigðisráðherra nefnd sem vinna skyldi í málinu. í nefndinni sátu Dögg Pálsdóttir, lögfr. í heilbr.ráðuneytinu, Jón Hjaltalín, húðlæknir, Vilborg Ing- ólfsdóttir frá landlæknisembætt- inu ásamt tveim fótaaðgerðafræð- ingum, undirritaðrj og Kristínu Steingrímsdóttur. Fyrsti nefndarfundurinn var haldinn 28. ágúst 1990. Urðu þeir 11 talsins. Löggilding á starfi fóta- aðgerðafræðinga gekk í gildi 17. apríl 1991 með bráðbirgðaákvæði. Fengu þær löggildingu sem það ákvæði uppfylltu. Alþjóðleg félagssamtök í janúar 1991 fóru þáverandi formaður og varformaður FFF, til Noregs. Þar voru skólar skoðaðir og rætt við kennara og yfirmenn skólanna. Þar fer námið fram í fjöl- brautaskóla á framhaldsskólastigi. Meðal annara hittum við formann og gjaldkera norska félagsins sem upplýstu okkur um að til væru al- þjóðleg félassamtök fótaaðgerða- fræðinga og ætluðu Norðmenn að ganga í þann félagsskap þá um haustið. Þessa vitneskju nýtti FFF sér og eftir miklar bréfaskriftir og símtöl við stjómarformann FIP (Federation Intemational Des Po- dologues) Robert van Lith, var FFF formlega tekið í alþjóðasamtökin á ráðstefnu í Nice í Frakklandi. Ráðstefnuna sóttu 6 konur frá íslandi. Á ráðstefnunni kynntumst við meðal annars Bent Nielsen for- manni danska félagsins sem bauð okkur alla þá hjálp sem hann gæti veitt íslenska félaginu. í desember ’91 sendi stjóm FFF tvo fulltrúa á Norðurlandaráð- stefnu í Danmörku, þar sem skipst var á upplýsingum á stöðu Norður- landanna. Þar kom fram að í Dan- mörku em fótaaðgerðafræðingar löggild heilbrigðisstétt, sama gildir um Noreg, í Svíþjóð og Finnlandi er hvorki starfsheitið né starfið lögvemdað sem heilbrigðisstétt. Námskeið Árið 1992 voru haldin löggild- ingarnámskeið á vegum heil- brigðisráðuneytisins fyrir þá fóta- aðgerðafræðinga sem það þurftu, þ.e.a.s. þær sem ekki uppfylltu skilyrði samkvæmt bráðabirgða- ákvæði í reglugerð um fótaað- gerðafræðinga frá 1991. Bent Nielsen var einn af kenn- urunum en hann hefur síðan hald- ið ijölda námskeiða hér á landi. Forseti alþjóðafélagsins, Ro- bert A. van Lith heldur um þessar mundir námskeið meðal annars í Silicone- hlífðarmeðferð fyrir fótaaðgerðafræðinga. Robert A. van Lith nýtur mikillar virðingar meðal fagmanna beggja vegna Atlantshafsins og er eftirsóttur kennari víða um heim. Þróun námsins íslenskir fótaaðgerðafræðingar hafa náð ótrúlega langt á örfáum árum. Stefnt hefur verið að því að menntun geti hafist hér á landi. FFF miðar sig við þau lönd sem mestri þróun hafa náð. Félagið hefur látið þýða meðal annars franska námsstaðalinn, en námið þar er 3 ár á háskólastigi. Sviþuð þróun hefur átt sér stað í Hol- landi og á Spáni en í þessum lönd- um er fótaaðgerðanám sérdeild innan menntakerfisins. í nokkrum löndum, m.a. Eng- landi og Bandaríkjunum er þróun- in komin út í læknisfræðilegri hluti, þ.e.a.s., smáaðgerðir á lið- um, á fæti fyrir neðan hælbein. Það er þó ekiri sú stefna sem ís- lenskir fótaðgerðafræðingar vinna að. Margt hefur áunnist á stuttum tíma félagsins en mörgu er ólok- ið. Markmið félagsins er að efla þekkingu og færni fótaðgerða- fræðinga. Það er mikilvægt, því þannig verður til sterk og öflug heilbrigðisstétt. Að lokum þakka ég Grétu Óskarsdóttur formanni og hennar stjórn vel unnin störf og óska nýrri stjórn og félaginu velfarnaðar í því starfí. Höfundur er fótaaðgerðafræding- ur, og fyrsti formaður FFF. En svo virðist heilbrigðisráðherra skelli skolleyrum við hagsmunum og réttindum al- mennings, enda ganga þeir vafa- laust þvert á sjónarmið ráðuneytis- ins. Slíkur valdhroki er auðvitað dæmalaus og má alls ekki viðgang- ast._ Ábyrgð þingmanna Sjálfstæðis- flokksins er mikil í þessu máli. Það er yfírlýst stefna Sjálfstæðisflokks- ins að auka frelsi í lyfjaviðskiptum sem og annarri kaupsýslu. Þetta mál verður því mikil prófraun fyrir þingmenn og ráðherra Sjálfstæðis- flokksins. Það er skylda þeirra gagnvart kjósendum að sýna póli- tískan kjark og hafna vafasömum afturhaldsaðgerðum heilbrigðisráð- herra. Höfundur er formaður Hugias f.u.s. í Garðabæ. ■il Viljirðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.