Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
AÐALHEIÐUR
HÓLM SPANS
ÓÐUR til þín Heiða.
Kæra vinkona, þeg-
ar ég hugsa til þín,
hugsa ég um öll þau
kvöld og nætur sem
við tvær höfum átt
saman, stundum yfir
guðaveigum og alltaf
í skemmtilegu en oft
gagnrýnu spjalli.
Spjalli um lífið, ástina
sem alltaf verður, póli-
tík og hvað það eina
sem okkur liggur á
hjarta. Ég hugsa með
tilhlökkun til þess er
við hittumst næst í
eldhúsinu hjá þér í Utrecht í Hol-
landi eða í mosató á íslandi. Ég
sakna þín hérna á íslandi. Þú sem
ert og verður fjarlægur hluti af
íslensku landslagi. Allt frá því að
við kynntumst hefur okkur komið
vel saman. Ég ung leitandi stúlku-
kind nýkomin til Hollands og þú
búandi í mörg ár fjarri íslandi með
mikla lífsreynslu. Gefandi bæði
visku og hlýindi en líka þátttak-
andi í umhverfínu. Þátttakandi í
liútímanum. Mér finnst ég vera ein
af fjölskyldunni. Finnst ég þekkja
ykkur Holla jafnvel og mína eigin
fjölskyldu. í þessi ár sem við höfum
þekkst hefur þú sagt mér hægt og
sígandi af þeim tímum sem þú
hefur átt. Þegar bókin sem Þor-
valdur Kristinsson skrifaði um þig
kom út kannaðist ég við svo margt.
Ég fann lífsviðhorf þín speglast í
gegnum bókina. Sá samhengi hlut-
anna sem þú hefur ósjaldan bent
mér á. Upplifði þessi tvö mismun-
andi lönd sem ég einnig þekki svo
vel á annan hátt. Skemmtilegt að
geta fylgt þér skref frá skrefi í
áttina að þessum tímum sem við
lifum í núna. Ótrú-
legar breytingar. Að
finna sama persónu-
leikann sem fæddist
í firði fyrir vestan og
þann sem núna held-
ur upp á áttræðisaf-
mælið sitt hinum
megin við hafið.
Heiða, fyrir mér ertu
myndlist, tónlist,
dans, hlátur, fjalls-
tindur, lækur og
steinn í hvítlöðri öld-
unnar við ströndina.
Ég skála fýrir þér og
öllum þeim árum sem
þú hefur skilið eftir þig hist og
her. Skála fyrir þér í íslensku
söngvatni í grænni mosató og ég
hugsa til þín. Stend á fætur og
syng þér til heilla.
Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(MJoeh.)
Heiða, við sendum þér og Holla
og ykkar fjölskyldu hamingjuóskir.
Allir steinar á ströndinni senda
kveðju til ykkar handan hafsins.
Sólveig.
- kjarni málsins!
✓
\
lÍMamannamiðstöð Þrændalaga
auglýsir hugmyndasamkeppnina
„Þrándheimur í BYRJUN NÝRRAR aldar“
Heildar listræn úrvinnsla á stærri svæðum miðbæjar Þrándheims.
Um er að ræða tvær samkeppnir
Samkeppni A: 1. verðlaun nkr. 100.000
Samkeppni B: 1. verðlaun nkr. 50.000
Skilafrestur: 15. apríl 1996.
Samkeppnisgögn fást frá ó.oktober hjá
Kunstnersentret, Sverres gt. 7, 7013
Trondheim, Norge
Sími 00 47 73 524910, símbréf 00 47 73 515610.
SVÍFUR AÐ HAUSTI
DR. EINAR I. Siggeirsson hefur
tekið saman eftirfarandi pistil
um hauststörf í görðum:
Haustið er komið og veturnæt-
ur framundan. Trjágróður fellir
laufið og grasið sölnar. Laufið á
tijánum skiptir um lit frá því að
vera grænt allt sumarið þar til
það verður gult, rautt eða brúnt.
Laufinu sem fellur
af tijánum þarf að
raka saman og setja
í safnhauginn, láta
það rotna þar og
verða að mold. Þá
má og safna falleg-
um laufblöðum,
þurrka þau milli
dagblaða og nota til
skreytingar.
Hauststarf, sem
margir sinna lítið,
en er þó bráðnauð-
synlegt, er það að
þrífa vel garðyrkju-
verkfærin, þvo þau
rækilega svo moldin
skolist vel af og til
að koma í veg fyrir að þau ryðgi
yfir veturinn og verði óásjáleg
þegar þau eru tekin í notkun að
vori. Sjálfsagt er að mála hand-
verkfæri og hengja upp á vegg,
einnig þarf að hreinsa sláttuvélar
og sláttuorf upp úr terpentínu.
Gróðursetning haustlauka er
eitt aðalstarfið á haustin. Raða
skal saman réttum litum svo
laukabeðin njóti sín sem best á
komandi vori. Yfirleitt þarf að
hafa laukholur það djúpar að
2-3 sm af mold verði ofaná oddi
lauksins. Á góðum haustdögum,
þegar moldin hitnar, taka lauk-
arnir við sér, rótarmyndun hefst
og laukurinn fer að spíra. Því
heldur hann áfram allan veturinn
þótt hægt fari meðan frost og
bylur nauðar. Strax og sól hækk-
ar á lofti og dregur úr frosti
byija laukarnir að spretta og
stönglar teygja sig upp úr snjón-
um, sérstaklega eru snæklukkur
og ýmsar krókusategundir dug-
legar að blómstra þótt snjór sé
yfir öllu - og boða komu
vorsins.
Nú er tími til að
klippa stöngla af
fjölærum blómum
og leggja yfir beðin,
einkum þó viðkæm-
ar plöntur. Til þess
má einnig nota
mosa, sem fjarlægja
skal þegar plönturn-
ar fara að spíra og
blómstra. Sama
hátt þarf að hafa á,
komi næturfrost
snemma vors, og
fari frostið niður
fyrir -50°, er gott
að skýla gróðrinum
með striga.
Blómaunnendur, sem ætla sér
að fá blómstrandi hýasintur um
jól eða nýár, þurfa að koma
þeim fyrir nú þegar í pottum
með mold í. Laukana þarf að
setja það djúpt í pottana að
broddurinn gæist rétt upp úr
moldinni. Þeir ræktendur sem
ætla sér að nota laukaglös,
verða að fylla þau með vatni og
setja laukinn efst í glasið og
hjálm yfir. Potta og glös þarf
að geyma á svölum, dimmum
stað þar til stöngullinn er orðinn
5 sm á hæð. Þá eru þau látin í
glugga við stofuhita.
Eitt er það hauststarf, sem
margur garðeigandi hummar
fram af sér að vinna, en það er
að reyta illgresi úr görðum sín-
um. I góðum haustum er mikill
vöxtur í illgresi og myndar það
þá rótarsprota, sem verða að
nýjum plöntum á vorin. Þær
illgresistegundir sem þroska fræ
ná margar hveijar kynþroska á
ótrúlega stuttum tíma og mynda
sumar hveijar fullþroska fræ frá
miðju sumri og langt fram á
haust.
Á það einkum við einært illgr-
esi. Við þetta bætist að fræfjöld-
inn, sem hver einstaklingur gef-
ur af sér, getur verið óhemju
mikill, skipt tugum þúsunda.
Af algengu illgresi í görðum hér
á landi má t.d. nefna: haugarfa,
hjartaarfa, krossgras (krossfíf-
il), gullbrá, skurfu og varpa-
sveifgras. Auk þess eru hjálm-
grös sumstaðar áleitin, en þau
eru sjaldgæfari nema þá helst á
jarðhitasvæðum. Þessar tegund-
ir eru einærar, að varpasveif-
grasi undanskildu, en það er oft
tvíært. Rótarillgresi er nær und-
antekningarlaust fjölærar plönt-
ur og fjölgar sér með fræi, rótar-
sprotum, jarðstönglum eða of-
anjarðarrenglum. Algengustu
tegundirnar hér eru húsapuntur,
njóli, skriðsóley, tágamura og
elfting.
Á stöku stað er hófsóley, þist-
ill og brennisóley. Illgresi getur
orðið hin mesta plága ef ekki
er höfð fyllsta gát á að uppræta
það strax í byijun og þar með
koma í veg fyrir fræþroska og
dreifingu þess. Notið góða
haustdaga til þess að fjarlægja
allt illgresi úr garðinum, setjið
það í safnhauginn, sé það ekki
með fræ, þar rotnar það og verð-
ur að góðri gróðurmold.
E.I.S.
BLOM
VIKUNNAR
322. þáttur
Umsjón Ágústa
Björnsdóttir
ÞÚ GETUR TREYST FAGOR
FAGOR ^
ÞVOTTAVÉLAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
OG ELDUNARTÆKI
Á EINSTÖKU VERÐI
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 568 5868
FAGOR S-23N
Kællr: 2121 - Frystlr: 161
HxBxD: 122x55x57 cm
Innbyggt frystihólf
38.800
FAGOR D-32R
Kællr: 2821 ■ Frystir: 781
HxBxD: 171x60x57 cm
54.800
7
FAGOR C31R - 2 pressur
Kælir: 270 I ■ Frystir: 110 I
HxBxD: 170x60x57 cm
Tvöfalt kælikerfi
67.800
Ættfræði
þjónustan
með nám-
skeið
ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN, sem
nú er flutt í nýtt húsnæði í Austur-
stræti lOa, fer bráðlega af stað
með ný ættfræðinámskeið, 10.
starfsárið í röð.
Grunnnámskeið í Reykjavík hefj-
ast upp úr 10. október, framhalds-
námskeið heldur síðar, og grunnn-
ámskeið verður í Hornafirði og e.t.v.
á fleiri stöðum úti á landi. A nám-
skeiðunum læra menn til verka við
ættarrannsóknir, fræðast um ís-
lenskar ættfræðiheimildir, leitarað-
ferðir og úrvinnslu í ættarskrám
af ýmsu tagi. Auk þjálfunar í vinnu-
brögðum fá þátttakendur aðstöðu
til að rekja eigin ættir með notkun
frumheimilda og prentaðra bóka.
Leiðbeinandi er sem fyrr Jón Valur
Jensson, guðfræðingur. Innritun er
hafin.