Morgunblaðið - 12.10.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 43
FRETTIR
Sambandsstjórnarfundur Sjálfsbjargar
FUNDARMENN á sambandsstjórnarfundi Sjálsfbjargar.
Gegndarlausar
árásir á kjör og af-
komuöryggi öryrkja
FUNDUR sambandsstjórnar
Sjálfsbjargar landssambands
fatlaðra var haldinn í Hátúni
12 dagana 6.-7. október 1995.
Fundurinn mótmælir harðlega
þeim „árásum ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks á lgör og lífs-
hætti hreyfihamlaðra sem
komið hafa fram með ýmsum
hætti undanfarin".
í fréttatilkynningu frá
Sjálfsbjörg ségir: „Þrátt fyrir
kröftug mótmæli Sjálfsbjargar
og fleiri samtaka öryrkja
ákvað Tryggingaráð á fundi
sínum föstudaginn 6. október
að hætta að veita lán til bíla-
kaupa fatlaðra. Bifreiðar eru
ekki munaðarvara fyrir
hreyfihamlaða heldur nauð-
synleg tæki til að komast leið-
ar sinnar líkt og hjólastólar,
stafir eða hækjur. Með ákvörð-
un sinni hefur Tryggingaráð
stigið stórt skref í átt til meiri
ójafnaðar í samfélaginu og
skert möguleika hreyfihaml-
aðra til að geta hreyft sig og
ferðast um á eigin vegum.
Þegar haft er í huga að
styrkir til bifreiðakaupa hafa
staðið í stað frá árinu 1993
þrátt fyrir 19,5% hækkun bif-
reiða á þessum tíma, verður
ekki betur séð en yfirvöld séu
að gefa hreyfihömluðum langt
nef o g sýni algjört skilnings-
leysi á högum þeirra. í fjár-
lagafrumvarpi ríkisstjórnar-
innar fyrir árið 1996 er áætluð
sama upphæð til þessara mála-
flokks og síðasta ári.
í fjárlagafrumvarpinu er
einnig að finna harðar árásir
á kjör og afkomuöryggi ör-
yrkja. I stað þess að lífeyris-
þegar fái sömu kjarabætur og
samið er um á almennum
vinnumarkaði er gert ráð fyrir
að stjórnvöld ákveði með geð-
þóttaákvörðun hveiju sinni
kjarabætur til þessa hóps. Þótt
alþingismönnum sé treystandi
til að tryggja eigin kjör sýnir
reynslan að réttlætistilfinning-
in er lítil eða engin þegar líf-
eyrisþegar eru annars vegar.
Þannig er gert ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpinu að lífeyris-
bætur verði skornar niður um
450 milljónir á næsta ári.
Sömuleiðis mótmælir sam-
bandsstjórnarfundur Sjálfs-
bjargar því harðlega að fyrir-
hugað er að taka upp sér-
stakan fjármagnstekjuskatt á
lífeyrisþega, án þess að al-
mennur fjármagnstekjuskatt-
ur verði innleiddur. Fundurinn
lýsir einnig furðu sinni á þeirri
fyrirætlun að taka upp innrit-
unargjald á sjúkrahús þar sem
fötlun fylgja iðulega stöðugar
innlagnir á sjúkrahús og þar
sem lífeyrisbætur falla niður
eftir vissan tíma á sjúkrastofn-
unum.
Með vísan til yfirlýsinga
Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokks um málefni fatlaðra
fyrir kosningar verður það að
teljast í hæsta máta undarlegt
hvaða stefnu ríkisstjórnin
hyggst taka í þessum málum
og lýsir sambandsstjórnin yfir
þungum áhyggjum og undrun
sinni á þeirri andúð sem sljórn-
völd sýna fötluðum borgurum
þessa Iands.“
Vetrarstarfið
að hefjast hjá
Ulfaldanum
og Mýflug-
unni
100 ára af-
mæli kvik-
myndar-
innar
í ÁR er haldið upp á aldarafmæli
kvikmyndasýninga í heiminum
eins og alkunna er.
í tilefni af því verður áhugahóp-
ur, sem samanstendur af fulltrú-
um flestra sendiráða á íslandi,
ásamt Kvikmyndasafni íslands
með sýningar á klassískum mynd-
um á hverjum fímmtudegi í Regn-
boganum.
Fimmtudaginn 12. október
verður sýnd sænska kvikmyndin
Kerrukarlinn, „Körkarlen", gerð
í Svíþjóð 1921 af Victor Sjöstörm.
Kerrukarlinn, byggð á skáldverki
Selmu Lagerlöf, er talin ber af
kvikmyndum Sjöström frá sænska
tímabilinu. Myndin segir frá
David Holm, leikinn af Sjöström
sjálfum, sem er myrtur í kirkju-
garði á miðnætti á gamlárskvöldi.
Hann er endurlífgaður af Dauðan-
um sjálfum í líki kerrukarls, í
þeim tilgangi að endurlifa krísur
fortíðarinnar sem eru sýndar í
innskotum. Styrkur myndarinnar
liggur í lýrískum, mögnuðum útis-
enum sem var aðalsmerki sænsku
gullaldarinnar, eins og í kirkju-
garðinum þegar Holm er vakinn
upp svífandi yfir hafið líkt og
draugaleg skuggamynd sem ber
við rökkuhimininn.
Útivist stofn-
ar jeppadciid
ÚTIVIST hefur ákveðið að stofna
jeppadeild innan félagsins. Stofn-
fundur deildarinnar verður hald-
inn fimmtudagskvöldið 12. októ-
ber í Háskóla íslands, stofu 101
í Odda, og hefst kl. 20.30.
í byrjun september var farið í
fyrstu jeppaferð Útivistar. Farið
var um Fjallabaksveg syðrij gist
tvær nætur í Hvannagili og Álfta-
vatni. Farið var í Hrafntinnusker,
Slysaöldu á Mælifellssandi og ekin
Krakatindsleið. í ferðinni voru
112 manns á 43 jeppum.
Á dagskrá stofnfundar jeppa-
deildar Útivistar verður starfsemi
félagsins kynnt. Fjallað verður um
þátt jeppaferða í ferðaáætlun Úti-
vistar fyrir árið 1996. Reynir
Jónsson, deildarstjóri aukahluta-
verslunar Toyota, og Þorgrímur
St. Árnason, jeppa- og fjallamað-
ur, munu flytja erindi í máli og
myndum um jeppaferðir, þróun
þeirra og breytingar á jeppum.
Einnig munu Sigurður Sigurðar-
son, fararstjóri hjá Útivist, ræða
um útbúnað í gönguferðir.
Ráðstefna um
jafna þátt-
töku fatlaðra
ÖRYRKJABANDALAG íslands
hefur ráðstefnu föstudaginn 13.
október á Grand Hótel Reykjavík
um grunnreglur Sameinuðu þjóð-
anna um jafna þátttöku fatlaðra.
Ráðstefnan stendur frá kl. 13-17.
Þetta er fyrsta almenna kynn-
ingin á þessum grunnreglum hér
á landi. Að loknu ávarpi félags-
málaráðherra, Páls Péturssonar,
hefst kynningin. Ólöf Ríkarðs-
dóttir, formaður Öryrkjabanda-
lags Islands, fjallar um aðdrag-
anda og áhersluatriði; Margrét
Margeirsdóttir, deildarstjóri um
hlutverk félagsmálaráðuneytisins,
Anna Grethe Hansen, iðjuþjálfi
um aðgengi; Guðrún Hannesdótt-
ir, forstöðumaður um menntun;
Þorsteinn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri um ativnnu og Ásta
R. Jóhannesdóttir, alþingismaður
um tryggingu tekna og almanna-
trygginga.
Að loknum framsöguerindum
verða almennar umræður og fyrir-
spurnir.
Samþykktum
NAFO mót-
mælt
BÆJARRÁÐ Vesturbyggðar
skorar á sjávarútvegsráðherra að
mótmæla samþykkt NAFO fund-
arins hvað varðar stjórnun fisk-
veiða á „Flæmska hattinum“ svo-
kallaða:
í áskoruninni segir að hug-
myndir að stjórnun fiskveiða á
„Flæmska hattinum“ samrýmist
ekki stefnu íslenskra stjórnvalda
hvað varðar stjórnun fiskveiða.
Rétt sé að minna á að á fyrstu
átta mánuðum þessa árs hafa ís-
lendingar veitt 4.300’tonn þ.e. um
20% af rækjuaflanum á þessum
miðum að verðmæti um eittþús-
und og fimmhundruð milljónir
króna.
Hagsmunir fjölda íslenskra sjó-
manna, útgerða og útgerðastaða,
eru þeir að haldið sé þannig á
málum af hálfu íslenskra stjórn-
valda, úr því sem komið er, að
skapa íslenska úthafsveiðiflotan-
um nægjanlegt svigrúm til að
ávínna sér þá fiskveiðireynslu á
úthöfunum sem tryggir sem mest-
an og bestan aðgang Íslendinga
að hinum fjölmörgu fískistofnum
sem veiðanlegir eru í Atlantshaf-
inu.“
Spænsk og
suður-amer-
ísk hátíð
FÉLAG spænskumælandi á ís-
landi og Ræðismannsskrifstofa
Spánar standa fyrir spænskri og
suður-amerískri hátíð föstudaginn
13. október nk. undir nafninu Fi-
esta Hispana.
Hátíð þessi er haldin í tilefni
af þjóðhátíðardegi Spánar, 12.
október, sem einnig hefur verið
nefndur Kólumbusardagurinn.
Hátíðin er haldin í Gullhömrum,
Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigar-
stíg 1 og hefst kl. 21. Dagskráin
samanstendur af tónlist, upplestri
og dansi og verður boðið upp á
fordrykk og smárétti meðan á
dagskrá stendur.
FÉLAGSSTARFSEMI SÁÁ í Úlf-
aldanum og Mýflugunni við Ár-
múla 17a hófst þann 1. október.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á kaffístofunni Mýflugunni
og hresst upp á húsnæðið.
Nýir umsjónarmenn hafa tekið
við félagsstarfínu og verða nokkr-
ar áherslubreytingar við það. Til
dæmis verður meira um námskeið
en áður og nú í október verður
dansnámskeið og golfnámskeið.
Fastir liðir halda sér hins vegar
í Úlfaldanum. Þar á meðal er fé-
Iagsvist á laugardagskvöldum,
brids á þriðjudagskvöldum og
skák á laugardögum.
Félagsstarfsemin í Úlfaldanum
og Mýflugunni er öllum opin sem
vilja hitta annað fólk í vímuefna-
lausu umhverfi. Kaffistofan Mý-
flugan er alltaf opin og uppákom-
ur í félagsstarfinu eru auglýstar
á staðnum og í AA-deildum.
Opið er alla virka daga og
sunnudaga frá kl. 17-23.30 og á
laugardögum frá kl. 14-1.
*
Astarsaga úr
fjöllunum í
Ævintýra-
Kringlunni
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir í Ævin-
týra-Kringlunni í dag, fímmtu-
daginn 12. október, kl. 17 Ástar-
sögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu
Helgadóttur.
Leikstjóri er Stefán Sturla Sig-
uijónsson og hann er einnig höf-
undur leikgerðarinnar í samvinnu
við leikhópinn. Hlín Gunnarsdóttir
hannar leikmynd og búninga,
Björn Viðarsson er höfundur tón-
listar og Pétur Eggerz semur
söngtexta. Leikarar eru Alda Arn-
ardóttir og Pétur Eggerz. Miða-
verð á sýningunni er 500 kr.
Á hverjum fimmtudegi kl. 17
eru leiksýningar fyrir börn í Æv-
intýra-Kringlunni. Ævintýra-
Kringlan er á 3. hæð í Kringlunni
og er opin frá kl. 14-18.30 virka
daga og laugardaga frá kl. 10-16.
■ ÁHUGAHÓPUR um hjól-
reiðar um höfuðborgarsvæðið
stendur fyrir hjólreiðaferð á
fimmtudagskvöld 12. október.
Farið verður frá Fákshúsinu við
Reyjanesbraut kl. 20 og hjólað
upp Elliðaárdalinn og um Árbæj-
arhverfi yfir í Grafarvogsbotn síð-
an með sjónum til baka. Hægt
verður að komast í ferðina við
Árbæjarlaugina kl. 20.20. Allir
velkomnir.
Safnað
fyrir
flog’aveika
LAUF, landssamtök áhugafólks
um flogaveiki, verður með lands-
söfnun á Rás 2 föstudaginn 13.
október. Tilgangur söfnunarinnar
er tvíþættur, annars vegar til að
safna fyrir aflestratæki við heilasí-
rita á taugalækningadeild Land-
spítalans sem safnað var fyrir árið
1991.
í fréttatilkynningu segir að mik-
il og löng bið sé í síritann og muni
þetta afiestrartæki auka afköst
hans. Hins vegar er von samtak-
anna að söfnunin gangi það vel
að hægt sé að efla og styrkja félag-
ið og skapa góða félagsaðstöðu. Á
hveiju ári eru um 50 nýgreiningar
á flogaveiki hér á landi og eru um
30 þeirra börn.
Landssöfnunin á föstudaginn mun
standa frá kl. 9-19. Heilbrigðis-
ráðherra, frú Ingibjörg Pálmadótt-
ir, Ólöf Ríkharðsdóttir, formaður
ÖBÍ, og Sverrir Bergmann, tauga-
sjúkdómalæknir og formaður
læknafélagsins opna söfnunin kl.
8.30. Alla daginn verður stanslaust
skemmtidagskrá á Rás 2 og munu
margir skemmtikraftar leggja
söfnuninni lið og má þar nefna
Diddú, Bergþór Pálsson, Emelíana
Torrini, söngvarar úr Rocky Horr-
or, Megas o.fl. Nokkrar vinsælar
hljómsveitir leika s.s. Kolrassa
krókríðandi, Vinir vors og blóma,
Papar frá Vestmannaeyjum svo
eitthvað sé nefnt. Landslið leikara
kemur fram með upplestur, ljóð,
söng og gamanmál. Einnig hefur
fjöldinn allur af fyrirtækjum styrkt
söfnunina og verða vinningar
dregnir út allan daginn og geta
allir þeir sem gefa í söfnunina átt
von á vinningi. Aðalvinningurinn
verður utanlandsferð fyrir tvo til
Newcastle í þijár nætur með ferða-
skrifstofunni Alís.
■ SNÆDÍS Anna Hafsteinsdótt-
ir, snyrtifræðingur, hefur tekið yfír
reksturinn á snyrtistofunni Gres-
iku á Suður-
götu 7 í Reykja-
vík. Snædís mun
bjóða upp á alla
almenna snyrti-
þjónustu, s.s.
andlitsbað, cat-
hio rafmagns-
meðferð fyrir
andlit, vaxmeð-
ferð, handsnyrt-
ingu, gervineglur, litun og förðun.
Snædís vinnur aðallega uppúr hin-
um vönduðu Guinot snyrtivörum.
Tekið er við tímapöntunum í síma.
KÍH
-leikur að læra!
Vinningstölur 11. okt. 1995
1 •4*8*10*16*26*29
Eldri úrslit á simsvara 568 1511
Barnaskórfrá Bopy
Góðir fyrstu skór i st. 18-23.
Margar gerðir.
Ath.: Smáskór er með
DÓ-RE-MÍvið Fákafen
i einu af bláu húsunum.
smáskór
Suðurlandsbraut 52,
sími 568 3919.
/