Morgunblaðið - 12.10.1995, Síða 45

Morgunblaðið - 12.10.1995, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 45 BRÉF TIL BLAÐSI1MS Orgel í Laug- arneskirkju Frá Guðmundi E. Pálssyni: SÓKNARNEFND Langholtskirkju hefur nú ákveðið að festa kaup á orgeli frá Noack orgelverksmiðj- unni í Bandaríkjunum. Þetta er 33 radda orgel í barr- okkstíi sem verður staðsett við aust- urgafl kirkjunnar og hefur radd- skipan og gerð orgelsins fengið mjög lofsamlega dóma frá orgel- nefnd þjóðkirkjunnar og segir með- al annars í dómi hennar: „Að öðru leyti viljum við í orgelnefndinni lýsa ánægju okkar með að veglegt orgel muni koma í kirkjuna, því hljóm- burður er þannig að litríkt orgel mun geta hljómað þar mjög vel. Þar að auki erum við sérstaklega ánægðir með þann orgelsmið sem fyrir valinu hefur orðið, sem er mikil trygging þess að orgelið verði öllum til ánægju.“ Nú hafa safnast um 15 milljónir og því má líta svo á, að það sé fyrsti áfangi af þremur en áætlaður kostnaður er um 42 milljónir með virðisaukaskatti. En ijórðung verðs þarf að borga við undirritun samn- ings og eftirstöðvarnar á næstu þremur árum. Það er sá tími sem það tekur orgelsmiðjuna að afhenda orgelið uppkomið í kirkjunni. Dagana 15. og 18. október verða hinir árlegu orgelstyrktartónleikar, en það eru tónleikar sem haldnir eru fyrir styrktaraðila orgelsöfnun- ar. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa komið þar fram og gefið vinnu sína, enda er Lang- holtskirkja eitt fjölsóttast tónleika- hús landsins og því mikið kappsmál tónlistaráhugafólks almennt að þar komi veglegt hljóðfæri. Á þessum tónleikum koma fram, auk Kórs Langholtskirkju, Karlakór Reykja- víkur undir stjórn Friðriks D. Krist- inssonar og Sigrún Hjálmtýsdóttir, ásamt Önnu Guðnýju Guðmunds- dóttur. Með þessum tónleikum viljum við blása til sóknar að upphafi annars áfanga orgelsöfnunar. Hér með er skorað á alla velunn- Hvít og svört skattsvik Eiríki Einari Viggóssyni: EG undirritaður hef gagnrýnt und- anfarin 20 ár á opinberum vett- vangi að skattalög þessa lands ná aðeins til hluta landsmanna, þeirra sem gefa öll laun sín upp til skatts, en það ættu að vera hin óskráðu lög í þessu landi. í september 1993 kom út skýrsla um svört skattsvik, sem gætu numið 16 milljörðum króna árlega, sem eru ekki neinir smápeningar þegar haft er í huga að allur tekju- skattur nemur um 14 milljörðum króna að frátöldum frádráttarlið- um. Útsvar allra bæjarfélaga árið 1994 var um 18,3 milljarðar króna. Eg hef haldið því fram að hin hvítu skattsvik geti numið 20 millj- örðum króna árlega, þá á ég við þá sem geta skammtað sér laun að eigin geðþótta en samt borist mikið á og komið sér undan að greiða útsvar að mestu leyti og greiða jafnframt engum tekju- skatt. Svona ástand á tölvuöld og mikilli tækniþekkingu á skatta- málasviðum er alveg forkastanleg vinnubrögð. Skora ég því á yður að þér beit- ið yður fyrir því að óréttlætið í skattamálum verði stöðvað þegar í stað þannig að allir þjóðfélags- þegnar sitji við sama borð þegar skattar til sveitarfélaga og ríkis- sjóðs eiga í hlut. Vænti ég þess að umbeðið mál verði tekið til al- varlegrar umræðu innan ríkis- stjórnarinnar, og síðan lögum breytt á Alþingi þannig að allir þjóðfélagsþegnar taki þátt í rekstri samfélagsins í samræmi við sann- anleg laun en ekki eins og nú er að ótrúlega fjölmennur hópur manna geti farið í gegnum allt líf- ið án þess að taka þátt í samneysl- unni og þar með íþyngt öðrum landsmönnum þegar skattgreið- endur eru annars vegar. Ég undirritaður hef fengið mikil viðbrögð frá fólki sem hefur þakk- að mér fyrir að koma á framfæri hve mikil skattsvik eru látin átölu- laus í þjóðfélaginu af ráðamönnum þessarar þjóðar, á sama. tíma er gengið svo hart að öllu launafólki, öryrkjum og eldra fólki að það er til skammar fyrir eina ríkustu þjóð veraldar. Réttlát skattalög eru lykill að bættu þjóðfélagi. EIRÍKUR EINAR VIGGÓSSON, matreiðslumaður, Fögrubrekku 43, Kópavogi. FRUMHU GM YND að útliti orgelsins. ara Langholtskirkju að taka hönd- um saman og ljúka byggingu kirkj- unnar með því að kaupa veglegt hljóðfæri í hana. GUÐMUNDUR E. PÁLSSON, formaður sóknamefndar. Bréf til heilbrigðis- ráðherra Frá Gísla Helgasyni: Kæra Ingibjörg. MÁLEFNI glasafijóvgunar- deildarinnar á Landspítalanum hafa verið í brennidepli. Mér skilst að hækka eigi aðgerðir allt að helmingi, þótt þú og aðrir segi að í rauninni eigi ekki að hækka þær, eða þannig skil ég þessar umræður, enda í tregara lagi sam- kvæmt einkunnum úr skólum. Eftir því sem mér skilst þá kostar slík aðgerð vel á þriðja hundrað þúsund króna. Mér er spum: Hvers vegna fá konur ókeypis fóstureyðingu, en fólk, sem þráir að fjölga mannkyn- inu og þarf hjálp til, þarf að greiða það svo dýru verði? Með bestu kveðju og von um velgengni í starfi. GÍSLI HELGASON, blokkflautuleikari, Reynimel 22, Reykjavík. innn URTE PENSIL - GRÆNA VÖRNIN - er eitt mest selda jurtaheilsuefnið í Danmörku. V&M 13 vítamín — 10 steinefni og 18 amínósýrur með SPIRULINA. Mjög vinsælt fjölvítamín, ekki síst vegna spírulína, sem er steinefnaríkt og grennandi. ESTER-C VÍTAMÍNIÐ er alveg í sérflokki. Fæst í 200 mg„ 500 mg. og sem ESTER C-PLUS. Græna vömin Sólhattur og propolis virkni þeirra þekkja flestir. Auk þess fjórar þekktar jurtir, sem hafa göð áhrif á efnaskipti líkamans. Frábær ijölvítamín með Spirulina. Ester C fer sérstaklega vel í maga og nýtist því mun betur. BÍO-SELEN UMBOÐIÐ S£mi 557-6610. %% Ol- og vínsett Lagið ykkar eigið öl og vín Ótrúlega einfalt en gott Góð búbút í skammdeginu Verð á ölflösku frá 22 kr. Verð á vínflösku frá 90 kr. HEIGAfí bað besta frá Danmörku bað besta frá Englandi Öll áltöld og aukaefni á góðu verði Armúla 5320 40 Sfml 553 l/erslunin| AI4R ///M BlACKSi DECKER KYJA GRÆNA LINAN 199 5 HJOLSAGIR Verð fró kr. 12.950.- STINGSAGIR Verð frá kr. 5.450.- GEIRUNGSSAGIR Verð frá kr. 27.298.- HEFLAR Verð frá kr. 12.950.- FRÆSARAR Verð frá kr. 19.780.- HITABYSSUR Verð frá kr. 4.850.- HEFTIBYSSUR Verð frá kr. 9.300.- HLEÐSLUSKRUFJARN Verð fró kr. 3.750.- HLEÐSLUBORVÉLAR Verð frá kr. 6.950.- BORVELAR Verð frá kr. 5.950.- BELTAVEL Verð frá kr. 12.899.- SLIPIROKKAR Verð frá kr. 10.221.- jfai......... RAFÞJALIR Verð frá kr. 8.901.- SölustaðiT um land a SINDRA •— búðin y BORGARTÚNI31 SÍMI562 7222

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.