Morgunblaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Innbrot í
sendiherra-
bústaðinn
í Brussel
SETT hefur verið upp öryggiskerfi
í sendiherrabústaðnum í Brussel
eftir að brotist var inn í hann fyrir
skömmu. Hannes Hafstein sendi-
herra segir að gluggi á jarðhæð
hafi verið spenntur upp á meðan
íbúar brugðu sér frá skamma stund.
Hringum, armböndum o.fl. smá-
gerðum verðmætum var stolið.
Engar alvarlegar skemmdir voru
unnar á bústaðnum og þyngri hlut-
ir látnir óáreittir, en í bústaðnum
er umtalsverð verðmæti að finna.
Hannes segir innbrot af þessu tagi
alvanaleg í borginni og hafi þeim
fjölgað seinustu misseri. Helst liggi
eiturlyfjaneytendur undir grun sem
steli öllu steini léttara til að fjár-
magna fíkniefnakaup sín.
„Þjófurinn eða þjófarnir gengu
vel um og við sluppum vel í þetta
skipti. Þeir sem að innbrotinu stóðu
hafa þó varla haft ráðrúm til að
hafa stærri hluti á brott með sér,
því að við vorum svo stutta stund
í burtu. Við létum strax setja upp
þjófavamir sem ég geri ráð fyrir
að þjóni sínum tilgangi," segir
Hannes.
ISSSi
- • ‘ .1
ÍWM
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Tryggingabgeturnar hækkuðu minna en launin
Fulltrúar ASÍ stað-
festu útreikningana
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA . segir
að fulltrúar Alþýðusambands íslands
hafi staðfest útreikninga á hækkun
tryggingabóta eftir kjarasamning-
ana í vor. Þessar bætur hækkuðu
um 4,8% í mars sl. en það náði ekki
þeirri 2.700-3.700 króna hækkun á
mánuði sem samið var um í samn-
ingunum.
Svavar Gestsson, þingmaður Al-
þýðubandalags, spurði heilbrigðis-
ráðherra um málið á Alþingi í gær.
Hann sagði að samkvæmt almanna-
tryggingalögum ættu bætur að
hækka í samræmi við hækkanir sem
verði á vikukaupi, en hækkun trygg-
ingabóta í vor hefði ekki náð þess-
ari upphæð sem samið var um í
samningunum í febrúar.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði að í mars hefðu fjár-
málaráðherra og fyrrverandi heil-
brigðisráðherra skrifað undir samn-
ing um að hækka tryggingabætur
vegna áhrifa kjarasamninga frá 21.
febrúar. Sú hækkun hefði verið
reiknuð 4,8% í samráði við hagfræð-
inga Alþýðusambands Islands og
greidd þannig út.
„Þessi hækkun hafði ekki fengið
formlega afgreiðslu í ríkisstjórn þeg-
ar ég tók við embætti. En þar sem
þá var þegar búið að greiða út bæt-
ur samkvæmt þessum útreikningi
sá ég ekki fært að breyta honum
og ríkisstjórn samþykkti að hækkun
bóta vegna kjarasamninga yrði
framkvæmd á þennan hátt,“ sagði
Ingibjörg.
2.300 króna hækkun
Ingibjörg sagði að meðalhækkun
launa hefði af aðilum vinnumarkaðar
verið metin 4,1-4,7% á þessu ári en
6,9% á samningstímabilinu. „ASÍ
samþykkti 4,8% hækkun trygginga-
bóta með hliðsjón af efni kjarasamn-
ings,“ sagði Ingibjörg.
Bætur þeirra sem hafa fullan
tryggingalífeyri hækkuðu um 1.711
kr. á mánuði. Örorkulífeyrir er nú
12.921 kr. á mánuði og tekjutrygg-
ing 24.439 alls 37.360 krónur á
mánuði.
Tekjur þeirra sem hafa fullan ör-
orkulífeyri, tekjutryggingu, heimilis-
uppbót og sérstaka heimilisuppbót
hækkuðu um 2.336 krónur á mán-
uði, í 51.000 krónur á mánuði.
Ekki mikil reisn
Svavar Gestsson sagði mönnum
hefði greinilega þótt það óf hátt hlut-
fall fyrir örorku- og ellilífeyrisþega
að hækka lægstu launataxtana, sem
væru 48 þúsund krónur á mánuði,
um 2.700 krónur. „Hvað gerðu menn
þá? Menn miðuðu við almenna viku-
kaupið sem er 70 þúsund krónur á
mánuði og píndu þannig niður pró-
sentuhækkunina sero öryrkjar og
aldraðir fengu. Þetta er nú reisnin
yfir þessu liði,“ sagði Svavar.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður Þjóðvaka, benti á að með-
an lægstu laun hefðu hækkað um
42% frá febrúar 1989 hefðu bætur
til lífeyrisþega hækkað um 34,9%.
Bláönd í Laugardal
UNGUR bláandarsteggur hefur
haldið sig með stokköndum í
Laugardalnum í Reykjavík und-
anfarna daga og glatt gesti hús-
dýra- og grasagarðanna. Bláönd-
in er amerisk að uppruna og
sárasjaldgæf hér á landi. Hún er
smávaxin, á stærð við urtönd, og
einkennandi eru heiðbláir væng-
reitir bryddaðir hvítum jaðri.
Miðstjórn BHMR um samningamál
Siðferðilegur rétt-
ur á endurskoðun
MIÐSTJÓRN Bandalags há-
skólamanna hefur sent frá sér
ályktun þess efnis að verði
breyting á kjarasamningum ASÍ
og vinnuveitenda eigi aðildarfé-
lög BHMR siðferðilegan rétt á
að samningar þeirra við ríkið
verði endurskoðaðir.
Páll Halldórsson, formaður
BHMR, sagði að forsendur
kjarasamninga aðildarfélaga
BHMR við fjármálaráðherra
hafi byggst á yfirlýsingum
landssambanda ASÍ og samn-
inganefndar ríkisins um efni
kjarasamninga þessara aðila.
Til viðbótar var Þjóðhagsstofn-
un kölluð til vitnis um innihald
samninganna. í fjárlagafrum-
varpinu sjáist hvað þessir samn-
ingar kosta í raun og þá komi
í ljós allt aðrar tölur._ Páll benti
á að aðilar innan ASI, til dæm-
is Samiðn, hafi þannig fengið
allt að 20% launahækkun meðan
BHMR-félögin sömdu um 8,9%
launahækkun.
„Við höfum ekki lagt til við
okkar félög að þau segi upp
samningum núna,“ sagði Páll.
„En ef þetta fer hins vegar allt
á flot þá teljum við aðildarfélög
BHMR ekki bundin af sínum
samningum."
Lífeyrisgreiðslur til endurhæfingar
Rúmlega 100 milljónir í niðurgreiðslur
Þörf sögð a laga-
breytingu strax
HVATT var til þess á Alþingi í gær
að taka af allan vafa varðandi end-
urhæfingarlífeyri með því að breyta
lögum um félagslega þjónustu áður
en vikan væri liðin.
Heilbrigðisráðherra hefur gefið
Tryggingastofnun fyrirmæli um að
greiða umræddum bótaþegum einn-
ig tengdar bætur þó lögfræðingar
heilbrigðisráðuneytisins hafi úr-
skurðað að það samræmist ekki
gildandi lögum.
Ögmundur Jónasson vakti at-
hygli á því utan dagskrár á Alþingi
í gær að ákvörðun ráðherTans
styddist ekki við lög, samkvæmt
túlkun heilbrigðisráðuneytisins.
Mæltist Ögmundur til þess við for-
seta Alþingis að lagabreyting nái
fram að ganga fyrir vikulok og
sagði að það ætti að reynast auð-
velt því um málið ríki málefnaleg
samstaða í þinginu.
Frumvarp um breytingu á lögun-
um liggur nú fyrir heilbrigðis- og
trygginganefnd Alþingis. Össur
Skarphéðinsson, formaður nefndar-
innar, sagði að hann væri tilbúinn
til að halda sérstakan fund um
málið ef þörf krefði.
25-30% lækkun á árs gömlu
kindakjöti í hálfum skrokkum
BÚIST er við að verðlækkun á
árs gömlu kindakjöti verði
25-30%, en kjötið verður sett á
markað eftir helgina. Reiknað er
með að ríkið vetji rúmlega 100
milljónum til þessara niður-
greiðslna á verði kjötsins. Það
verður selt í sérpakkningum í
hálfum skrokkum.
Útsala eftir helgi
Ekki hefur tekist samkomulag
um framkvæmd kjötútsölunnar i
öllum atriðum og þess vegna hefst
hún ekki fyrr en eftir helgi. Bænd-
ur, sláturleyfishafar og ríkið þurfa
að ná samkomulagi um málið. í
gær áttu forystumenn Bændasam-
takanna fund með formönnum
búgreinafélaganna, en meða!
þeirra er andstaða við kjötútsöl-
una. Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna, sagðist ekki
eiga von á að kindakjötsútsalan
myndi leiða til verðlækkunar á
öðru kjöti. Hann útilokaði það þó
ekki.
Talið er víst að a.m.k. 600 tonn
af kindakjöti verði sett á útsölu.
Ari sagði ékki endanlega ljóst hve
mikið magn yrði sett á útsölu. Það
kæmi m.a. til með að ráðast af
viðtökunum.
Sérmerkingar
krafist
Bændur hafa lagt mikla áherslu
á að kjötið verði pakkað sérstak-
lega og merkt þannig að tryggt
verði að niðurgreiðslan fari öll í
vasa neytenda. Kjötið verður selt
í hálfum skrokkum, annars vegar
ósnyrt og hins vegar snyrt. Stefnt
er að því að bjóða kjötið til sölu
úti um allt land.