Morgunblaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjögurra bama móðir sló í gegn í torfærukeppni FJÖGURRA barna móðir frá Selfossi, Sæunn Lúðvíksdóttir sló rækilega í gegn í torfæru- keppni í Jósepsdal á laugardag- inn. Hún vann kvennakeppni, þar sem konur torfæruöku- manna kepptu og var rétt búinn að leggja karlkyns keppendur að velli skömmu síðar. Ok hún gegn körlunum og hafði forystu fyrir lokaþrautina. „Mér fannst meira krefjandi að keppa gegn körlunum, en klúðraði forystunni í lokaþraut- inni fyrir klaufaskap. En ég verð að bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og gera betur næst“, sagði Sæunn í samtali við Morg- unblaðið. Hún er eiginkona Gunnars Egilssonar torfæru- kappa og ók jeppanum, sem hann hefur keppt á til þessa. „Bónda mínum fannst ég ekki nógu fljót á bensíngjöfina og of lengi á bremsuna. Eg þarf að hrekja það næst. Fjöl- skyldan er öll í torfærunni, við eigum sex, átta, tíu og sautján ára börn, sem mæta á hverja keppni. Yngstu strákarnir eiga eftirlíkingar af torfærujeppun- um, sem þeir leika sér með og halda mót hér á Selfossi.“ Óhrædd að fljúgajeppanum „Ég var óhrædd að takast á við torfærurnar og fljúga á jeppanum. Ég hef gaman af hraða og spennu, er bara hrædd við kóngulær. Kallinn minn var miklu stressaðri en ég í keppninni, enda báru að- stoðarmenn mínir hann upp á áhorfendasvæði í miðri keppni og sögðu honum að skipta sér ekki af akstursmátanum. Ég slapp ekki óhappalaust, velti í kvennakeppninni, en tókst samt að vinna. Það er ekki prenthæft sem ég hugsaði þegar jeppinn lagðist á hliðina hjá sandhól. Það var klúður, en gerði mig bara grimmari þegar ég mætti körlunum,“ sagði Sæunn. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson SÆUNN ók keppnistæki eiginmanns síns Gunnars Egilssonar og fær hér leiðbeiningar frá honum. Skömmu síðar báru aðstoð- armenn hennar hann upp á áhorfendasvæði og sögðu honum að skipta sér ekki af akstursmáta hennar. Reykjavík Óskað eftir viðræðum við forsætis- nefnd og umboðsmann BORGARRÁÐ hefur samþykkt að fela borgarritara og skrifstofustjóra borgarstjómar að hafa samráð við Samband ísl. sveitarfélaga og óska eftir viðræðum við forsætisnefnd Alþingis og umboðsmann Alþingis um hvort rýmkun á verksviði um- boðsmanns Alþingis geti tryggt réttaröryggi borgara Reykjavíkur og annarra með sambærilegum hætti og áformað hefur verið í hugmynd um umboðsniann Reykjavíkur. Tillagan er fram komin í fram- haldi nýútkominnar skýrslu umboðs- manns Alþingis, en þar kemur fram að hann telji eðilegt að Alþingi taki afstöðu til þess, hvort rétt sé að rýmka heimildir embættis umboðs- manns, þannig að einnig megi bera undir það þær stjórnvaldsákvarðanir sveitarstjóma, sem ekki eru kæran- legar til stjórnvalda ríkisins. Auka virkt eftirlit Borgarstjóm samþykkti í febrúar sl. að undirbúa stofnun embættis umboðsmanns Reykjavíkur, sem heyrði undir borgarstjóm. Hlutverk hans yrði að auka virkt eftirlit ög lýðræði í stjómsýslu borgarinnar og gæta þess að jafnfræði sé í heiðri haft og að stjórnsýsla fari í öllu fram í samræmi við lög og vandaða stjóm- sýsluhætti. Undirbúningurinn átti að miða við að hægt yrði að koma emb- ættinu á um mitt þetta ár og var áætlaður kostnaður 2,1 millj. á árinu eðajafngildi 1,5 stöðugildis frá 1. júní. Valdajafnvægið á landsfundi Alþýðubandalagsins raskaðist í miðstjórnarkjöri TRAUSTUM heimildum innan flokksins ber saman um að niður- staðan úr miðstjórnarkjöri sýni að af 32 miðstjórnarmönnum séu 20 úr hópi stuðningsmanna Margrétar í formannskosningunum en 12 komi úr röðum stuðningsmanna Steingríms J. Sigfússonar. Af tíu efstu mönnum í miðstjómarkjöri megi finna átta stuðningsmenn Margrétar. Þessi niðurstaða er nokkuð óvænt eftir málamiðlanir sem áttu sér stað við kjör í flokksstjórn og níu manna framkvæmdastjórn. Þar þurfti að fínstilla valdajafn- vægi milli fylkinga og gæta jafn- framt sjónarmiða einstakra kjör- dæma. Það voru fyrst og fremst hófstillt viðbrögð Steingríms J. Sigfússonar við ósigrinum á föstu- dagskvöldið sem réðu því að allt kapp var lagt á að ná samkomu- lagi um varaformann, ritara og gjaldkera og við uppstillingu í framkvæmdastjórn. í raun reyndi ekki á styrk fylk- inga í kosningum fyrr en undir lok iandsfundar þegar kosið var í mið- stjóm. Þá var sáttaumleitunum varpað fyrir róða. Kjörnefnd lagði fram uppstiJlingarlista m'eð 32 nöfnum en fleiri tillögur bárust úr sal og var gengið til kosninga síð- degis á sunnudag. Alls voru 70 alþýðubandalagsmenn í Niðurstöðurnar lágu svo mánudag. Efstur varð Óskarsson, varaþing- maður Margrétar Frí- mannsdóttur af Suður- landi, með 220 atkvæði, Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, varð í öðru sæti með 213 ....... atkvæði, Ari Skúlason fékk 211, Lúðvík Geirsson 205, Björn Guð- brandur Jónsson 199, Smári Geirs- son 196, Guðbjartur Hannesson 182, Þuríður Bachmann 179, Lára Sveinsdóttir 173 og Sigurður 20 af 32 fulltrúum sagðir stuðningsmenn Margrétar Stuðningsmenn Mar- grétar Frímannsdóttur, formanns Alþýðubanda- lagsins, hrósa sigri að afloknu miðstjórnar- kjöri. í grein Ómars Friðrikssonar kemur fram að 20 af 32 mið- stjórnarmönnum eru taldir hafa stutt Mar- gréti í formannskjöri. kjöri. fyrir á Ragnar ír 1 Hófstillt við- brögð Stein- gríms skiptu sköpum Morgunblaðið/Árni Sæberg KOSIÐ í miðstjórn Alþýðubandalagsins á landsfundi. Bessason og Guðrún Helgadóttir urðu jöfn í 10-11 sæti með 172 atkvæði. Einnig voru 16 varamenn kjörn- miðstjórn, og er talið að tíu ___ þeirra hafi stutt Margréti en sex Steingrím, 22 náðu ekki kosningu, þar af voru 15 taldir stuðn- ingsmenn Steingríms og sjö stuðningsmenn Margrétar. Skv. lögum flokksins stýrir mið- stjórn málefnum Alþýðubanda- lagsins í umboði landsfundar og mótar pólitíska stefnu flokksins þegar ekki liggja fyrir stefnuyfir- iýsingar landsfundar. Fram- kvæmdastjórn mótar pólitíska af- stöðu Alþýðubandalagsins til ein- stakra mála í samræmi við stefnu- skrá flokksins og samþykktir landsfundar og miðstjórnar. Athygli vekur að Reykvíkingar eiga engan fulltrúa í flokksstjórn Alþýðubandalagsins og aðeins þrjá menn í framkvæmdastjórn, eða tveimur færri en Reyknesingar, sem koma mjög sterkir út af lands- fundinum. Varaformaður og gjald- keri flokksins eru af Reykjanesi og fimm framkvæmdastjómar- menn af níu alls. í formannskosningunum var gert bandalag stuðningsmanna Margrétar á milli Reykjavíkurfé- laganna, Birtingar og Framsýnar, og meirihluta fulltrúa á Suður- landi, Reykjanesi og í Norðurlands- kjördæmi vestra. Athygli vakti á landsfundinum að fulltrúar stærsta Reykjavíkurfélagsins ' __________ ABR, sem eru taldir hafa undantekningarlítið stutt kjör Steingríms, skiluðu sér illa til lands- fundar en félagið átti rétt á að senda rúmlega —— 70 fulltrúa. Færri en 50 ABR- félagsmenn tóku þátt í atkvæða- greiðslum. ABR fékk sex aðalmenn kjörna í miðstjórn en af 22 fram- bjóðendum sem ekki náðu kjöri sem aðal- eða varamenn í mið- Fuiltrúar ABR skiluðu sér illatil lands- fundar stjórn voru 10 félagar í ABR. Hins vegar náðu átta af níu frambjóð- endum Birtingar og Framsýnar kjöri en þessi félög áttu samtals 29 fulltrúa’ á Jandsfundi. Enda þótt margir alþýðubanda- lagsmenn telji að ekki hafi verið skýr málefnaágreiningur milli Margrétar og Steingríms í for- mannskjörinu sé til staðar gjá á milli fylkinga hörðustu stuðnings- manna þeirra, einkum í Reykja- víkurfélögunum, sem hafi endur- speglast í kosningum landsfund- arins. Staðan eftir landsfundinn sé því sú, að Margrét standi uppi sem sigurvegari með 53,5% atkvæða flokksmanna að baki sér og afger- andi meirihluta í miðstjórn. Flokks- stjórninni hafi verið skipt til helm- inga milli stuðningsmannahópanna en Margrét er talin eiga nauman meirihluta í framkvæmdastjórn, þótt það sé engan veginn öruggt. Af níu fulltrúum eru fjórir yfirlýst- ir stuðningsmenn hennar og þrír stuðningsmenn Steingríms. Ekki er hins vegar vitað hvorn frambjóð- andann Jóhann Ársælsson og Sig- ríður Jóhannesdóttir studdu en þau hlutu flest atkvæði í framkvæmda- stjórnarkosningunum. Er beðið með eftirvæntingu hver kjörinn verður formaður framkvæmda- stjórnar. Meiri óvissa er hins vegar um hvaða stuðnings Margrét nýtur í ________ þingflokknum. Fyrir liggur að Ólafur Ragnar Grímsson og Bryndís Hiöðversdóttir studdu Margréti í formanns- kjöri og Kristinn H. Gunnarsson Steingrím J. Sigfússon. Allar líkur eru taldar á að Svavar Gestsson þingflokks- formaður og Hjörleifur Guttorms- son hafi stutt Steingrím. Ekki er vitað um afstöðu Ragnars Arnalds en Ögmundur Jónasson er óháður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.