Morgunblaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 53 BRÉF TIL BLAÐSINS Leið út úr einangruninni Frá Áslaugu Einarsdóttur: FLEST okkar verða veik einhvern tímann á lífsleiðinni, þessi veik- indi eru af ýmsum toga, líkamleg eða andleg. Líkamlegu veikindin eru þess eðlis að við eigum oftast auðvelt með að ræða þau við aðra en þau andlegu læsum við oftar en ekki niðri og ræðum þau ekki, bæði vegna ótta við fordóma og ekki síst vegna þess að innst inni skömmumst við okkar kannske fyrir að geta ekki „rifið okkur upp úr þessu“ með eigin viljastyrk. Nú langar mig að lýsa aðdrag- andanum að mínum veikindum, „þunglyndinu“, og hvernig það stöðugt versnaði þangað til ég lét tilleiðast að leita mér lækninga, en það voru ekki létt spor. Fyrir 8-10 árum fór mér að líða illa við árstíðaskipti. Þegar skammdegið kom varð ég sveiflu- kennd í skapi, þurfti mikinn svefn, var samt sem áður alltaf þreytt og leið í alla staði mjög illa. Fyrir sex árum varð ég ófrísk og fékk á seinni hluta með- göngunnar fóstureitrun, sem varð til þess að ég eignaðist barnið sex vikum fyrir tímann. Þann tíma sem ég lá á fæðingardeildinni grét ég mikið og mér leið illa. Tveim vikum síðar fór ég heim með barnið og þá tók ekki betra við, því barnið grét stöðugt í fleiri mánuði og ég var mikið ein með hann. Þann tíma átti ég líka mjög erfitt, ég var svefnvana og þreytt. Eftir að barnið fór að róast leið mér ekkert betur, þvert á móti fór ástandið versnandi. Ég var ekkert að tala um það út á við, reyndi að vera með „góða fram- hlið“ en inni á heimilinu sýndi ég á mér allt aðra hlið, þar lét ég líðan mín í ljós með því að ég var önug, eirðarlaus, gat ekki fest hugann við neitt sem leiddi til þess að ég varð stöðugt að hafa eitthvað fyrir stafni. Húsþrif urðu mín uppáhalds iðja, kannski vegna þess að frá umhverfinu fékk ég þá viðurkenningu að ég væri góð húsmóðir. Ég hafði ekki ánægju af að gera neitt með fjölskyldunni og lokaði á alla umræðu sem tengd- ist vandamálum mínum en var kannski um leið með óbein skila- boð um hjálp en túlkaði allt á versta veg. í sumar sem leið var líðanin orðin óbærileg. Ég var búin að missa einbeitinguna, sat t.d. og reyndi að horfa á sjónvarpið en náði samt ekki þræðinum í því sem ég var að horfa á. Ég reyndi að lesa en gleymdi jafnóðum því sem ég las, ég einangraði mig. Ég fór helst ekki út úr húsi, kveið því að síminn hringdi, fannst orð- ið óbærilegt að umgangast fólk. Ég fann líka að ég var kannski að segja sama hlutinn oft og minnið var farið að svíkja mig. Svefninn brenglaðist, ég átti ág- ætt með að sofna á kvöldin en vaknaði síðan kl. 4-5 á morgnana með dynjandi hjartslátt, kvíðatil- finningu og alveg löðursveitt. Þessi líðan var orðin einn víta- hringur og öllum á heimilinu leið orðið illa. Það er ekki bara sá sem þunglyndið hrjáir sem líður illa, heldur smitar hann út frá sér og fjölskyldumynstrið fer úr skorð- um. Ég átti erfitt með að leita mér hjálpar og hefði sennilega seint átt frumkvæðið að því sjálf og frænku minni sem þar átti hlut að máli fæ ég seint fullþakkað. En hvers vegna, lesandi góður, er ég að segja þessa sjúkrasögu mína? Jú, því er auðsvarað, vegna þess að ég leitaði mér lækninga og vil með sögu minni hvetja aðra sem svipað er ástatt fyrir að láta verða af því að gera það líka. Þegar ég loksins leitaði mér hjálpar á geðdeild, kom mjög margt mér á óvart. Á geðdeild- inni er fólk eins og t.d. þú sem líður illa en hefur ekki enn haft kjark til þess að leita sér hjálpar. Starfsemi deildar 32C á Land- spítalanum byggist upp á við- tölum við lækni, hjúkrunarfræð- inga og starfsmenn deildarinnar. Við mætum þar þeirri hjálp og skilningi sem við þurfum á að halda. Einnig byggist meðferðin á lyfjagjöf og iðjuþjálfun er einn- ig mikilvægur þáttur í meðferð okkar sjúklinganna, því þar reyn- ir á einbeitingu, getu og sam- skipti okkar hvert við annað. Fjölskyldu minni þakka ég umburðarlyndið og stuðninginn í gegnum veikindi mín. í dag lít ég björtum augum til framtíðar- innar og ef mér hrakar þá veit ég að ég á von um lækningu. Starfsfólk deildar 32C á Land- spítalanum, ég þakka ykkur fyrir allt sem þið gerðuð fyrir mig. ÁSLAUG EINARSDÓTTIR, húsmóðir. HI' 5L kr. 54.900 rvfn HP 5P kr. 115.500 HP 4Plus ki*. 169.900 HP4MPlus kr. 234.000 I® HEWLETT PACKARD Viðurkenndur söluaðili Þjónusta og ábyrgö Viltn hafa það svart/hvftt eða í lit? HP Desk Jet bleksprautuprentarar BGÐEIND Við erum í Mörkinni 6 • Sími 588 2061 • Fax 588 2062 HP 850C kr. 58.900 IIP 1200C kr. 97.000 HP 1600C kr. 149.900 Utvarpsstjóri krafinn um afsökunarbeiðni Frá Önundi Ásgeirssyni: ALLT frá því núverandi útvarps- stjóri tók við stjórn, hefir hann skákað í því skjólinu. að hann væri ábyrgðarlaus af dagskrárefni bæði í sjónvarpi og útvarpi. Hann hefir nú nýlega birt langlokur í dagblöð- um um hlutverk og ábyrgð Ríkisút- varpsins á menningu samfélagsins. Allir vita þó, að uppistaðan í dag- skrá Sjónvarpsins er kynferðismál, klám, opinberar samfarir, hvers- konar glæpaverk og kennsla í slík- um málum og morð, með margvís- legum hætti. Þá má ekki heldur gleyma dömubindaauglýsingunum, sem þykja einstaklega fróðlegt og hugljúft efni til að senda inn á heim- ili manna, mánuðum og árum sam- an. Þetta er menningarhlutverkið í framkvæmd. í Dagsljósi í gær, 11.10., þótti það einkar skemmti- legt að láta sundmann elta uppi mannaskít í sundlaug, fara úr skýl- unni og setja_ „kúkinn" í henni upp. á bakkann. í dag eru landsmenn fræddir á því, að íslenzkar konur noti skrúfganginn á ljósaperum til að fróa sér. Ef við hefðum ekki svona útvarpsstjóra, myndi þetta starfsfólk, sem þarna var að verki, hafa verið rekið á stundinni. Eg geri kröfu til þess, að útvarpsstjóri reki þetta starfsfólk vegná siðleys- is, og rétt væri að hann segði sjálf- ur af sér á eftir, því að hann er auðvitað ábyrgur fyrir öllu siðleys- inu, sem yfir fólk er látið ganga í gegnum stofnunina og inn á heimil- in í landinu. Hér sem oftar er Alþingi ábyrgt fyrir ósómanum í gegn um einhveij- ar liðleysur, sem sitja í Útvarpsráði og leggja blessun sína yfir hann. Eg skora á þá, sem vilja fá fram breytingu, að hætta að greiða áskriftargjaldið, þar til ráðin verður bót á efni til útsendingar. Þetta er eina leiðin til að knýja fram umbæt- ur, og hún er tiltölulega fljótvirk. Ríkisútvarpið fær 200 milljön krón- ur á mánuði frá áskrifendum, og á ekkert svar nema umbætur. Með kveðju frá Gregory. ÖNUNDUR ÁSGEIRSSON, Kleifarvegi 12, Reykjavík. Ráðstefna tan íslenskar kvemarannsóknir 20.-22. október 1995 Háskóla íslands - Odda - stofum 101 og 201 Föstudagur 20. október kl. 20.30 Ráðstefnan sett Setning: Helga Kress Ný norræn stofnun ura kvennarannsóknir: Fride Eeg-Henriksen, forstöðuraaður Nordisk institutt for kvinne- og kjönnsforskning. Staða kvennafræða við Háskóla íslands: Bannveig Traustadóttir Káðstefnugögn afhent Auður Eir Vilhjálmsdóttir: Inga Dóra Björnsdóttir: Inga Huld Hákonardóttir: Sigríður Th. Erlendsdóttir: Herdís Helgadóttir: Auður Styrkársdóttir: Laugardagur 21. október. KI. 9.00 til 10.30 Kvennakirkjan. Brottfdrin heira. Gagnrýni og gróska. Om hlut gagnrýni í þróun kvennafræða. Að opna augun. Vangaveltur um aðferðir á vettvangi hefðbundinnar sagnfræði. Hlutur Kvenréttindafélags íslands í kjarabaráttu kvenna. Rauðsokbhreyfingin á íslandi. Mæðrahyggja: Frelsunarafl eða kúgunartæki? Guðrún Ingólfsdóttir: Guðni Ehsson: Dagný Kristjánsdóttir: Yrsa Þórðardóttir: Kristín Bjömsdóttir: Rannveig Traustadóttir: KI. lt.OO -12.30 „var eg ein um látin“. Orðræða kvenna í Laxdæla sögu. Irónía sera femínísk orðræða. Hungur sálar og líkama. Om mat og bókmenntir. Komdu til sjálfrar þín - farðu burt. Kvennaguðfræði og sálgreining. Orðræða um þarfir: Umönnun í heiraahúsum. Kvenleiki og fötlun. KI. 14.00-15.30 Gerður G. Óskarsdóttir: Störf og aðstæður ungra kvenna í atvinnulífinu. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir: Valkyrjur eða ambáttir? Sjálfsbjargarviðleitni íslenskra kvenna. Drífa Hrönn Kristjánsdóttir: Starfsmat - leið í jafnlaunabaráttu kvenna? ísa Guðraundsdóttir. Tdfinningaleg vandamál kvenna í áfengismeðferð. Guðrún Jónsdóttir: Kvenfrelsi og kynferðislegt ofbeldi. Ingólfur Gíslason: Karlar gegn ofbcldi. Kl. 16.00 -18.00 Guðný Guðbjömsdóttir: Guðrún Bjamadóttir: Guðrún Helgadóttir: Stefanía Traustadóttir: Ólína Þorvarðardóttir: Sigurrós Erlingsdóttir: Soffía Auður Birgisdóttir: Kynferði og stjómun raenntamála í kvennafræðilegu ljósi. Stelpur og strákar. llvenær fá þau sérkcnnsiu? Samkennsla kynjanna í hannyrðum og smíði: Skref í átt til jafnréttis? Ríkisfeminismi - er hann mögulegur? Eru þá til femókratar? Stórar konur, Ilvatir og viðhorf til kvenna í íslenskum tröllasögum. Dalalíf - móðurlíf. Um mæður og syni í sögu Guðrúnar frá Lundi. Ólétta í íslenskum bókmenntum. Sunnudagur 22. október Kvennaráðstcfna Sameinuðu þjóðanna í Peking Pallborð I kl. 9.00-9.50 Um opinberu ráðstefnuna Sigríður Lillý Baldursdóttir Sigríður Anna Þórðardóttir Inga Jóna Þórðardóttir Elín Líndal Pallborð II kl. 10.00 -10.50 Um óopinbcru ráðstefnuna Þórenn Magnúsdóttir Bryndís Hlöðversdótlir Sigríður Lóa Jónsdóttir Drífa Hjartardóttir Guðrún Jónsdóttir Kl. 13.30-15.00 Pallborð III kl. 11.10-12.00 Hvað ávannst í Kína? Vigdís Finnbogadóttir Margrét Heinreksdóttir Sigríður Liliý Baldursdóttir Unnur Dís Skaptadóttir: Sigrún Júlíusdóttir: Guðrún Ágústsdóttir: Þóra Björk Hjartardóttir: Gísli Ágúst Gunnlaugsson og Ólöf Garðarsdóttir: Erla Hulda Halldórsdóttir: Birting margbreytilúkuns í íslenskri sjávarbyggð. Foreldrahlutverk og réttur barna. Kvennaathvarfið. Framburður, viðhorf og kynferði. Ekkjur á (slandi um síðustu aldamót. „Illt er að vera fæddur kona“. Um sjálfsmyrtd kvenna í sveitasamfélagi 19. aldar. Kl. 15.30-17.00 llelga Kress: Líf og Ljóð. Guðný Jónsdóttir frá Klömbrunt. Sigríður Dúna Kristmundsd.: Um ævi konu og sannleikann í fræðunum. Annadís Rúdólfsdóttir: „Aldrei þú á aðra skyggðir." Orðræðugreining á minningargreinum og viðtölum. - Ráðstcfnuslit - Ráðstefnan er öllum opin - aðgangur ókeypls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.