Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
%
Kælismiðjan Frost hf.
Smíðar frystikerfi í
frystihús í Namibíu
Umsvif fyrirtækisins hafa aukist jafnt og þétt
Frystivélarými ígámi
HJÁ Kælismiðjunni Frost hf. á Akureyri er verið að smíða frys-
tivélarými fyrir frystihús í Namibíu og er það byggt inni í 40
feta gámi. Á myndinni eru starfsmenn smiðjunnar, þeir Stefán
Hallgrímsson og Lúðvik Jóhannsson, við vinnu sína inni í gámnum.
KÆLISMIÐJAN Frost hf. var
stofnuð fyrir tæpum tveimur
árum. í byrjun störfuðu hjá fyrir-
tækinu 19 starfsmenn og var
áætlað að velta þess yrði um 200
milljónir króna. Umsvif fyrirtækis-
ins hafa aukist jafnt og þétt og
fyrsta starfsárið fjölgaði starfs-
mönnum úr 19 í 30 og þá varð
velta þess um 260 milljónir. í dag
starfa þar rúmlega 50 starfsmenn
og er gert ráð fyrir að velta fyrir-
tækisins verði tæpar 400 milljónir
króna á þessu ári.
Kælismiðjan Frost sérhæfir sig
í hönnun, nýsmíði, aðlögun og við-
haldi frysti- og kælikerfa og er
fyrirtækið með starfsemi bæði á
Ákureyri og í Reykjavík. Á Akur-
eyri er framleiðslu- og þjónustu-
deild og þar starfa um 20 manns.
I Reykjavík er meiri áhersla lögð
á tækni- og markaðsmál, auk þess
sem þar er einnig rekin þjónustu-
deild og er verkefnastaðan góð.
„Við erum góðir í því sem við
erum að gera og erum því ekkert
að skipta okkur af öðru. Við höfum
verið að byggja upp aðstöðu á
Akureyri og höfum fjárfest bæði
í mannskap og tækjum þar,“ segir
Jónatan S. Svavarsson fram-
kvæmdastjóri.
Kælismiðjan Frost hefur nú í
ár fengið viðurkenningu á alla sína
suðumenn hjá Lloyd’s og einnig á
hönnun fyrirtækisins á frystikerf-
um. Að auki er fyrirtækið með
viðurkenningu á sína suðumenn
hjá Iðntæknistofnun.
Verkefni erlendis
Fyrirtækið hefur verið að hasla
sér völl á erlendri grundu og verð-
ur útflutningur þess um 5-6% af
veltu í ár. „Stærsta verkefni okkar
erlendis er smíði og uppsetning á
frysti- og kælikerfi fyrir frystihús
í Namibíu og er unnið við það
verk bæði heima og erlendis. Á
Akureyri er verið að byggja frysti-
vélarými í 40 feta gámi, sem flutt
verður fullbúið til Namibíu. Það
hefur ákveðna kosti að smíða kerf-
ið inn í gámnum og auðveldar
mjög flutning á því milli staða.
Ef einhveijar breytingar verða á
rekstrinum, er hægt að flytja um
70% af kæli- og frystikerfinu í
gámnum,“ segir Jónatan.
Þá hefur fyrirtækið verið með
fjölmörg verkefni hér á landi, sem
lúta m.a. að smíði og uppsetningu
á frysti- og kælikerfum fyrir
frystihús, sláturhús, mjólkuriðnað-
inn og marga fleiri. Þá er mikið
unnið fyrir útgerðaraðila víðs veg-
ar um land.
Flutt í stærra húsnæði
Kælismiðjan Frost er til húsa
við Draupnisgötu á Akureyri en
fyrir dyrum stendur að flytja starf-
semi þess í stærra húsnæði. „Við
erum að flytja í eigið húsnæði víð
Fjölnisgötu í svokallaða Iðngarða
en þar hefur ekki verið rekinn iðn-
aður fyrr en þá nú þegar við flytj-
um.“
Jónatan segir að það hafi ekki
verið á stefnuskrá fyrirtækisins
að fjárfesta í húsnæði en þar sem
ekki var ásættanlegt leiguhúsnæði
í boði á Akureyri, hafi verið farið
í þessa fjárfestingu. Hins vegar
erum við selja húsnæði okkar í
Reykjavík og fara í leiguhúsnæði
á Fiskislóð 125, sem er hluti af
hafnarsvæðinu þar,“ segir Jónat-
an.
Þörf þjónusta byggð upp
Hann segir að fyrirtækið sé með
verkefni fram yfir áramót og auk
þess sé mikið í pípunum, sem geti
orðið að verkefnum á næsta ári.
„Fram að áramótum erum við
með röð af námskeiðum sem munu
styrkja starfsmenn okkar í að veita
betri þjónustu og auka þar með
möguleika á að gera þessa þekk-
ingu að útflutningsvöru um leið
og við byggjum upp þarfa þjón-
ustu fyrir íslenskt atvinnulíf, sem
er í sókn.“
Innan veggja heimilisins
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 29. okóber nk., fylgir blaðauki sem heitir
Innan veggja heimilisins. í blaðaukanum verður komið víða við og
heimilið skoðað í krók og kring. Eldhúsinu og unglingaherberginu verða
gerð góð skil ásamt allri þeirri nútíma tækni sem heimilið er búið. Ibúar
nýrra og gamalla húsa verða heimsóttir og teknir tali. Rætt verður við
innanhússráðgjafa, fjallað um gólfefni, val á rúmdýnum, gluggatjöld skoðuð
og sýnt hvernig lífga megi upp á heimilið með blómum og forvitnast um
uppáhaldshúsgagnið.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka, er bent á
ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn
23. október.
Nánari upplýsingar veita Rakel Sveinsdóttir og Dóra Gubný
Sigurbardóttir, sölufulltrúar í auglýsingadeild, í síma 569 1171
eba meb símbréfi 569 1110.
RtagmiHifcifc
- kjarni málsins!
Öformleg tilboð í
Krossanesverksmiðjima
TVÖ tilboð hafa borist í loðnuverk-
smiðjuna Krossanes sem er í eigu Akur-
eyrarbæjar.
TVÖ óformleg tilboð hafa
borist í loðnuverksmiðjuna
Krossanes' á Akureyri og
hefur bæjarstjóri, Jakob
Björnsson, átt viðræður við
þá aðila sem , sýnt hafa
verksmiðjunni áhuga. Þeir
sem vilja kaupa verksmiðj-
una eru annars vegar fóð-
urverksmiðjan Laxá og
hins vegar hópur manna
sem Þórarinn Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Gúmmí-
vinnslunnar á Akureyri, er
í forsvari fyrir.
Akureyrarbær á Krossa-
nesverksmiðjuna, en hún var endur-
byggð nánast frá grunni eftir bruna
sem þar varð fyrir nokkrum árum.
Framleiðslugeta verksmiðjunnar er
liðlega 500 tonn á sólarhring og
hefur velta verksmiðjunnar verið um
400 til 500 milljónir króna á ári síð-
ustu ár.
Vilji til að selja eignir
Ríkur viiji er til þess innan meiri-
hluta bæjarstjórnar Akureyrar að
selja eitthvað af eignum og er sala
á hlutabréfum bæjarins í Skinnaiðn-
aði þegar hafin.
Verið er að afla ýmissa upplýsinga
um málefni Krossaness áður en
lengra er haldið og þess vænst að
línur skýrist í lok vikunnar. Meðal
annars hefur verið leitað eftir áliti
verðbréfafyrirtækja á hvers virði
hlutabréf Ákureyrarbæjar í Krossa-
nesi eru og þá skipta ábyrgðir sem
bærinn er í vegna fyrirtækisins
miklu máli varðandi hugsanlega
sölu. Samkvæmt ársreikningi er
bærinn í hátt í 300 milljón króna
ábyrgð vegna Krossaness.
írskar bókmenntir
BÓKMENNTADAGUR verður í
Deiglunni í Grófargili næstkom-
írskir tónar
í 1929
MYNDBÖND með hljómsveitinni
Rolling Stones verða sýnd á tjaldi í
skemmtistaðnum 1929 í kvöld,
fimmtudagskvöld.
Nokkrar helstu rokkhljómsveitir
írlands verða kynntar á skemmti-
staðnum annaðkvöld í tilefni af írsk-
um dögum sem nú standa yfir á
Akureyri, m.a. The Pogues, Boom-
town Rats og U2.
Á laugardagskvöld verður svo-
nefnt anti-sportistakvöld í 1929.
andi laugardag, 21. október, en
hann er hluti af írskri menningar-
hátíð sem stendur nú yfir á Akur-
eyri.
Sigurður A. Magnússon les upp
úr þýðingu sinni á Ódysseyfi og
ræðir einnig um James Joyce og
verkið sjálft. Þá ræðir Karl Guð-
mundsson leikari um nýbakaðan
nóbelsverðlaunahöfund Seamus
Heanay, en Karl hefur um árabil
fylgst með höfundinum og þýtt
ljóð hans. Bókmenntadagurinn
hefst kl. 14.00.
Á sunnudag kynnir Bókaútgáf-
an Fjölvi nýja bók um Dyflinni og
írland eftir Sigurð A. Magnússon.
Sigurður ræðir um bókina og sýn-
ir skyggnur. Dagskráin hefst kl.
14.00.
■