Morgunblaðið - 19.10.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
FRÁ hátíðarguðsþjónustunni í Hvanneyrarkirkju.
SKÓLASTJÓRAHJÓNIN Magnús B. Jónsson og Steinunn Ing-
ólfsdóttir fluttu yfirgripsmikið erindi um Hvanneyrarkirkju.
Grund, Skorradal - Hvanneyrar-
kirkja varð 90 ára 15- október sl.
og í tilefni afmælisins var hátíðar-
guðsþjónusta í kirkjunni og safnað-
arstjórnin bauð til myndarlegs
kirkjukaffis í matsal Bændaskólans
að lokinni guðsþjónustu.
Hvanneyrarkirkja var þéttsetin í
hátíðarmessunni en auk sóknar-
prestsins, sr. Sigríðar Guðmunds-
dóttur, voru eftirtaldir prestar
mættir: Sr. Sigurður Sigurðarson,
vígslubiskup, sem flutti predikun,
sr. Björn Jónsson, prófastur, sr.
Geir Waage, sr. Brynjólfur Gíslason
og sr. Gísli Kolbeins. Kirkjukór
Hvanneyrarkirkju söng undir kór-
stjórn og undirleik Steinunnar
Árnadóttur. Einsöngvarar voz-u
Dagný Sigurðardóttir, Ólöf Erla
Bjarnadóttir og Snorri Hjálmars-
son.
Hvanneyrarkirkja 90 ára
í kaffisamsætinu bauð safnaðar-
stjórnin upp á fjölbreytta dagskrá.
Veislustjóri var Magnús B. Jónsson,
skólastjóri, en formaður sóknar-
nefndar, Bjarni Vilmundarson á
Mófellstöðum, flutti ávarp í upphafi
dagskrár. Steinunn Ingólfsdóttir,
skólastjórafrú og Magnús B. Jóns-
son, skólastjóri, flutt.u yfirgripsmik-
ið erindi um Hvanneyrarkirkju 90
ára. Þar segir í inngangi:
„Kirkju er getið á Hvenneyri þegar
snemma á miðöldum og tilheyrði
Hestþingum. Hvenneyrarkirkja er
helguð Maríu guðsmóður, Pétri
postula, Tómasi erkibiskupi og
Marteini biskupi. Hvanneyri varð
snemma stórbýli og sátu jörðina
ýmsir stórbændur og héraðshöfð-
ingjar.
Smám saman söfnuðust að
Hvanneyrarkirkju allmiklar eignir
og átti hún margar jarðir í Andakíl
og Skorradal. Auk þess átti hún
ítök og hlunnindi nokkuð víða þar
á meðal alla veiði í Andakílsá ofan
Hrafnagils og reka fyrir landi Smá-
hamra í Steingrímsfirði.
Árið 1882 kaupir Björn Bjama-
son, þá bóndi í Vatnshorni í Skorra-
dal, kirkjujörðina Hvanneyri ásamt
afbýlum, hjáleigum og kirkjujörðum
til að stofna þar búnaðarskóla..
Gekk í allmiklu stímabraki að gera
þau áform að veruleika en í árslok
1888 keypti Suðuramtið Hvanneyr-
aijörðina af Birni Bjarnasyni með
öllum gögnum hennar pg göllum,
þ.m.t. kirkju og kirkjueignir, og var
búnaðarskóli stofnaður þar árið eft-
ir.
Þá var á Hvanneyri gömul kirkja
er stóð í miðjum kirkjugarði, að
falli komin og var rifin 1896. Ámt-
ið reisti kirkju árið 1893 á hól sunn-
an kirkjugarðsins austan íbúðar-
húsa, svonefnduin Kirkjuhól. í nóv-
ember 1902 fauk kirkja sú í miklu
ofsaveðri. Krikja þessi þótti illa
byggð svo sem fram kemur í úttekt-
arlýsingu og stóð hún aðeins í 9 ár.
Það var því ekki fyrr en á árinu
1905 að kirkjan var endurbyggð
og þá af amtinu eins og verið hafði
um þá kirkju er byggð var 1893.
Kirkjuna teiknaði Rögnvaldur Ól-
afsson, síðar fyrsti húsameistari
ríkisins, og kostuðu teikningarnar
80 kr. Kirkjan var svo vígð 15.
október 1905 af sr. Jóni Sveins-
syni, prófasti í Görðum. Kirkjan
kostaði tæpar 5.000 kr. án skrúða
og áhalda.“
Á milli þess að flutt voru erindi
og ávörp sungu einsöngvararnir
Dagný Sigurðardóttir og Snorri
Hjálmarsson nokkur lög við undir-
leik Jerry Tosik Warfzawiak auk
þess söng kór Hvanneyrarkirkju en
stjórnandi hans er organistinn
Steinunn Árnadóttir. Að lokum
sungu allir samkomugestir ísland
ögrum skorið en lokaorðið hafði
formaður sóknarnefndar Bjami Vil-
mundarson sem sleit vel heppnaðri
dagskrá.
Margar hendur
vinna létt verk
Hellu - Að taka slátur er góður
siður og margri húsmóðurinn
finnst miklu aflokið þegar slátr-
ið er komið ofan í frystikistuna
og súrtunnuna.
Á Dvalarheimilinu Lundi á
Hellu búa 32 eldri borgarar og
kunna þeir vel að meta lifr-
arpylsu og blóðmör eins og þeir
hafa snætt alla sína tíð. Nú í
sláturtíðinni komu fimmtán
konur úr sex kvenfélögum í
vestanverðri Rangárvallasýslu
saman til þess að úbúa slátrið
fyrir heimilismenn. Að sögn
Kjartans Erlingssonar, yfirmat-
reiðslumanns á Lundi, fékk
hann þessa hugdettu í fyrra að
fá kvenfélögin til að aðstoðar
við verkið. „Því var ljómandi
vel tekið og nú eru þær komnar
í annað sinn en ekki dugar
minna en að taka sextíu slátur
fyrir veturinn."
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
KVENFÉLAGSKONUR úr Rangárþingi voru ekki nema
4-5 tíma að hespa af sláturgerðinni fyrir Dvalarheimilið
Lund á Hellu.
Atskákmót
á Húsavík
í TILEFNI70 ára afmælis Taflfélags
Húsavíkur og áttræðisafmælis
Hjálmars Theodórssonar skákmeist-
ara verður efnt til atskákmóts á
Húsavík dagana 27,- 29. október.
Til mótsins er boðið 17 atskák-
meisturum, flestum af yngri kynslóð-
inni, og eru þeir með á þilinu frá
1.738 til 2.135 atskákstig. Tefldar
verða ellefu umferðir í Keldunni, fé-
lagsmiðstöðinni á Húsavík.
Styrktaraðilar mótsins eru Húsa-
víkurbær, Landsbanki íslands, Kaup-
félag Þingeyinga og Mjólkursamlag
KÞ.
Verkamannafélagið Dagsbrún
Mætid á fundinn á Bíóborg í dag kl. 13.15 og látid ekki hindra
ykkur í ad sýna afstödu ykkar til uppsagnar kjarasamninga.
Stjórn Dagsbrúnar.