Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 16
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
MORGUNBLAÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
á Kaupgarði!
- gilda til 23. okt.
Lambaframhryggs-
sneiðar.... 798 kr./kg
•.'
Lúxus nauta-
pottréttur .598 kr./kg
Svína-
kótilettur •• 798 kr./kg
r
Kjúklingar. 549 kr./kg
Kartöflur
-rauðar.........69 kr./kg
Kim's Rio snakk Snakk2oog_185 kr
Kim's Chip-o-hoj snakk 200 g_ 185 kr
Toblerone uppskriftir fylgja 100 g ti 29 kr.
Freyju karamellur grænar 200 g 165 kr.
Candelia Shack konfekt 300 g 269 kr
Haustkex__________________99 kr
Albal álpappír 10 m ____49 kr
Albal plastfilma 30 m__49 kr
llncle Ben s Bolognese-sósa og
Barilla-spaghetti (saman í pakka)
500 g ______________________ 1 99 kr.
4 pk. af Libero bleium
(6 litlar handbrúður fylgja!) 3-290 kr.
Krakus jarðarber i/idós_179kr
Ullesson grænmetisolía 1.421 219kr.
UVfesson kornolía 1.421_____219 kr
SWÍSS MÍSS m/marshmallows737g298 kr.
SWÍSS MÍSS original567g_____298 kr.
Brink kex súkkulaði og vanillu
3 pakkar á verði 2__________22@ kr.
Munið heita matinn
í hádeginu alla daga og
á föstudagskvöldum!
Opið:
Mánud. - fimmtud. kl. 9-19,
föstudaga kl. 9-20
og laugardaga kl. 10-18
Ostakynning
um helgina!
NEYTENDUR
Ferskur kjúklingur
í búðir á ný
FERSKUR kjúklingur er kominn á
markað í Reykjavík. Það er nýjung
því ekki hefur verið heimilt að selja
hann í búðum undanfarin 18 ár.
Sala á kjúklingum hófst í búðum
Hagkaupa í Reykjavík í gær.
Sláturhúsin geta nú unnið fersk-
an kjúkling eftir ströngum reglum
og undir eftirliti og hefur þeim
nýlega verið heimilað að setja hann
á markað. Kjúklingarnir sem nú eru
til sölu í Hagkaupum heita Holta-
kjúklingar og eru framleiddir af
Reykjagarði hf. Mosfellsbæ.
Holtakjúklingi er pakkað á tvo
vegu, annars vegar sem heilum og
hins vegar skomum í 9 hluta. Síðar
verður úrvalið fljölbreyttara. Kílóið
af heilum ferskum kjúklingi kostar
725 krónur, til samanburðar kostar
heill frosinn 667 krónur. Kílóið af
skornum ferskum kjúkling kostar
749 krónur _en frosnum 698 krónur.
Að sögn Árna Ingvarssonar,í inn-
kaupadeild Hagkaupa, mun úrvalið
SALA á ferskum kjúklingi hófst í búðum Hagkaupa
í Reykjavík í gær.
á ferskum kjúklingi aukast í næstu ingi og er af þeim sökum ekki enn
viku, til dæmis með krydduðu kjöti. seldur í verslunum Hagkaupa utan
Kjúklingurinn er viðkvæmur í flutn- Reykjavíkur.
Reynslusögur neytenda
Fiskabúr sem lekur
ÞEGAR timinn hefur máð geðs-
hræringu í tengslum við sérkenni-
lega lífsreynslu situr oft eftir
skemmtileg saga í minningunni.
Maður nokkuð rifjaði upp eina
slíka fyrir skömmu, sem tengist
samskiptum hans við tryggingafé-
lag:
Morgun einn þegar hann, ný-
vaknaður, gekk yfir fína, þykka
ullarteppið í stofu sinni fannst
honum hann heyra undarleg hljóð.
Honum fannst teppið furðulegt við-
komu, næstum eins og svampur
og eftir að hafa svipast um í stof-
unni sá hann að nánast ekkert
vatn var eftir í 80 lítra fiskabúrinu.
„Eg áttaði mig á að leki hafði
komið í búrið yfir nóttina og flætt
hafði yfir gólfið. Ég hófst þegar
handa við að þerra mestu bleytuna
upp úr ullarteppinu og tók meira
að segja á leigu vatnssugu til að
þerra teppið,“ segir maðurinn og
kveðst síðar um daginn hafa haft
samband við tryggingafélag sitt.
„Ég spurði hvort tjón af völdum
vatns væri bætt og var þá spurður
á móti hvaðan vatnið hefði komið.
Ég sagði manninum sem var, að
það hefði lekið úr fiskabúri og
svaraði hann því þá til að í smáa
letri tryggingasamningsins kæmi
fram að aðeins væri bætt tjón
vegna vatns sem kæmi úr pípu-
lögnum hússins. Ég sagðist þess
fullviss að vatnið hefði komið úr
pípulögnum á sínum tíma, en
starfsmaðurinn áréttaði að vatn,
sem ylli tjóni, mætti ekki hafa við-
dvöl í fiskabúri. Mér þótti þetta
bráðfyndið og gerði mikið grín
að þessu.“
Málinu lyktaði þannig að trygg-
ingafélagið samþykkti að greiða
fyrir hreinsun á þykka ullartepp-
inu. Litaskilin hurfu, fjölskyldan
endurnýjaði heimilistryggingu
sína að ári og fiskarnir fengu
nýtt og gerðarlegra búr.
Skólaskyr
fyrir yngstu
kynslóðina
SKÓLASKYR er ný vörutegund
sem Mjólkursamsalan er að setja
á markað þessa dagana. Skóla-
skyrið er framleitt hjá Mjólkur-
búi Flóamanna og fæst með
þremur mismunandi bragðteg-
undum; jarðarbeija, vanillu og
ananas.
Hjá Mjólkursamsölunni ætla
menn með umbúðaskreytingum,
bragðefnum og samsetningu að
höfða til yngstú kynslóðarinnar.
„Við vonumst til að þessi æva-
forna, holla og þjóðlega mjólkur-
afurð „skyr“ nái í ríkari mæli til
ungra neytenda í þessum nýja
búningi," segir í fréttatilkynn-
ingu frá Mjólkursamsölunni.
Ullarföt
semmá
BUXUR og vesti úr 100% ull, sem
má þvo í þvottavél, fást í Herrun-
um í Austurstræti.
Hvoru tveggja má
þvo á 40 gráðu hita
og Iéttvinda, en ekki
setja í þurrkara
að sögn Sigur-
jóns Þórssonar,
annars eiganda
verslunarinn-
ar.
Buxurnar
fást í nokkrum
sniðum og
kosta frá
6.950. Einnig
eru nýkomnar
straufríar,
sænskar bó-
mullarskyrtur,
sem fengið hafa
alþjóðlega viður-
kenningu fyrir
straufría áferð.
Kremtil
yngingar
FLESTUM konum bregður ögn í
brún þegar þær finna fyrstu hrukk-
urnar á andlitinu. Þeim bjóðast hins
vegar ýmsar aðferðir til að tefja fyr-
ir þessu eðlilega öldrunarferli náttúr-
unnar og er ein þeirra sú að nota
„galdra“ ávaxtasýra en þær örva
myndun nýrra húðfruma.
í versluninni Mitt í náttúrunni, í
Reykjavík, eru fáanlegar vörur frá
fyrirtækinu Allison en menn þar á
bæ hafa meira en aldarfjórðungs
reynslu á notkun náttúrulegra hrá-
efna. Þar eru meðal annars fram-
leiddar vörur sem innihalda ávaxta-
sýrur, unnar úr ástríðu- og ananas-
ávöxtum, vínbeijum og sítrónum. Þá
innihalda vörumar einnig þykkni sem
framleitt er úr sjávarþörungum en
það hleypir raka inn í húðina og örv-
ar frumuframleiðslu hennar. Fyrir-
tækið hefur einkaleyfi á þykkninu.