Morgunblaðið - 19.10.1995, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Leynist pláneta
1^1 ••• X / /
lik jorðu í ny-
fundnu sólkerfí?
Getgátur um að líf sé þar að finna
VÍSINDAMENN segjast hafa
uppgötvað sólkerfí svipað okkar
og leiða nú að því getum að þar
gæti verið líf að fínna eða plán-
etu, þar sem væru lífsskilyrði
fyrir menn.
Að sögn blaðsins Sunday
Times snýst sólkerfi þetta um
stjörnuna 51Peg, sem sést ber-
um augum frá jörðu. Hún er í
þeirri samstæðu fastastjarna,
sem néfnist Pegasus. 51Peg er
í 40 ljósára fjarlægð frá jörðu,
eða um 380 billjóna km, og á
mælikvarða stjörnufræðinnar
telst það ekki stjarnfræðileg
vegalengd.
Er þar líf að fiima?
„Þetta er fyrsta sólkerfið, sem
hefur fundist og hægt er að bera
saman við okkar,“ sagði dr. Paul
Murdin, vísindamaður við Rann-
sóknarráðið í öreinda- og
stjörnufræði i Swindon á Eng-
landi. „Sú spurning hlýtur að
blasa við hvort þar sé líf að
finna.“
Tveir vísindamenn í Genf,
Svisslendingarnir Michel Mayor
og Didier Queloz, fundu sólkerfið
og þeir segjast þegar hafa fund-
ið stóra plánetu, sem líkist Júpit-
er, skammt frá 51Peg. Vonir
standa til að brátt finnist fleiri
plánetur.
Aðeins er vitað um eitt annað
sólkerfi fyrir utan okkar. Banda-
rískur vísindamaður fanii það á
síðasta ári. Sól þess kerfis var
hins vegar tifstjarna og gaf frá
sér geislun, sem útilokaði líf eins
og við eigum að venjast.
Vísindamönnum
hvatning
Talið er að niðurstöður Sviss-
lendinganna muni verða mörg
hundruð vísindamönnum hvatn-
ing til að leggja harðar að sér í
leitinni að lífi í geimnum. Banda-
ríska geimvísindastofnunin,
NASA, hefur það meginmarkmið
á næstu öld að leita geimvera.
Margir vísindamenn eru sann-
færðir um að líf sé að finna í
geimnum og benda þar á rök
Franks Drakes, bandarísks
stjörnufræðings, sem gerði
fyrstu alvöruleitina að lífi á öðr-
um plánetum fyrir 30 árum. Að
hans hyggju eru 40 milljónir
stjarna í Vetrarbrautinni, sem
líkjast sólinni, og plánetur eru á
braut um flestar þeirra.
Ef aðeins 10% af þessum
stjömum, eða fjórir milljarðar,
eru hvorki of kaldar né heitar,
þá er harla ólíklegt að jörðin sé
eina plánetan, þar sem líf er að
finna.
Hins vegar búa vísindamenn
enn ekki yfir þeirri tækni, sem
þarf til að hafa uppi á litlum
plánetum. Plánetan, sem talin
er líkjast Júpiter, fannst með
sérstakri tækni, sem mældi veltu
51Peg, er rekja mátti til aðdrátt-
arafls plánetu á braut umhverfís
stjömuna.
FLUGÞING '95
FLUGSAMGÖNGURÁ ÍSLANDI
SCANDIC HÓTEL LOFTLEIÐUM
FIMMTUDAGINN 19. OKTÓBER1995
FRÁ KL. 9 TIL KL. 17
Flugþing eru nýjung í starfsemi Flugmálastjórnar.
Markmiðið með þeim er að efla faglega umfjöllun
um íslensk og alþjóðleg flugmál. Flugþing verða
opinn vettvangur til að skiptast á skoðunum
og miðla nýjustu straumum og stefnum í flugi.
FLUGÞING '95 VERÐUR SÉRSTAKLEGA HELGAÐ
MÁLEFNUM INNANLANDSFLUGSINS,
f NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ. í TILEFNI AF
50 ÁRA AFMÆLI FLUGMÁLASTJÓRNAR.
Áhugafólk um flug, ferðaþjónustu og samgöngumál velkomið.
Frekari upplýsingar um dagskrá og skráning þátttöku.
Símar: 569 4113 • 569 4100 • 569 4128.
FLUGMÁLASTJÓRN
ERLENT
T
Reuter
BRYNDREKI og skriðdreki á þjóðveginum milli Seoul og landamæraþorpsins Panmunjom á hlut-
lausa svæðinu milli Kóreuríkjanna. Suður-kóreski herinn er í viðbragðsstöðu eftir að norður-kóresk-
ur hermaður var skotinn til bana innan landamæra Suður-Kóreu.
Norður-Kóreumenn sakaðir um brot á vopnahléssamningi
Stj’órnin í Seoul býst
við frekari ögrunum
Seoul. Reuter.
YFIRMENN herliðs Sameinuðu
þjóðanna í Suður-Kóreu sögðu í gær
að Norður-Kóreumenn hefðu gerst
brotlegir við vopnahléssamning kór-
esku ríkjanna með því að senda tvo
vopnaða hermenn yfír iandamærin
á þriðjudag. Lee Hong-koo, forsætis-
ráðherra Suður-Kóreu, sagði að bú-
ast mætti við frekari ögrunum af
hálfu Norður-Kóreumanna.
Suður-kóreskir hermenn skutu
annan Norður-Kóreumannanna til
bana en hinn komst aftur yfir landa-
mærin. Tálmar voru enn á vegum
við landamærin í gær og herinn
hélt áfram viðamikilli leit að hugsan-
legum útsendurum.
„Ekki er hægt að útiloka mögu-
leikann á djörfum hernaðarlegum
ögrunum ef menn hafa í huga
ástandið í Norður-Kóreu, örvænting-
una vegna efnahagsþrenginga og
óvissuna um hver tekur við völdun-
um,“ sagði Lee á fundi með suður-
kóreskum hershöfðingjum. Enn hef-
ur ekki verið tilkynnt formlega að
Kim Jong-il taki við embætti forseta
og flokksleiðtoga í Norður-Kóreu af
föður sínum, Kim Il-sung, sem lést
í júlí í fyrra. „Tímabært er að efla
varnir okkar meira en nokkru sinni
fyrr,“ sagði Lee.
Neita að taka við niótmælum
Yfírmenn herliðs Sameinuðu þjóð-
anna sögðust hafa reynt að afhenda
norður-kóreskum herforingjum í
landamæraþorpinu Panmunjom
mótmælabréf frá suður-kóreska
hershöfðingjanum Le Suk-bok, sem
á sæti í nefnd sem stofnuð var árið
1953 til að fylgjast með því að
vopnahlé ríkjanna yrði virt. Herfor-
ingjarnir neituðu að taka við bréfinu
og sögðust hafa fengið fyrirmæli um
að taka ekki við neinum skilaboðum
varðandi vopnahléið. Norður-Kóreu-
menn ákváðu í fyrra að draga sig
úr vopnahlésnefndinni. Þeir hafa
krafist þess að vopnahléssamningur-
inn, sem batt -enda á Kóreustríðið
1950-53, víki fyrir friðarsamningi
Norður-Kóreu og Bandaríkjanna, en
án aðildar Suður-Kóreu. Bandaríkja-
stjórn styður hins vegar þá afstöðu
Suður-Kóreumanna að Kóreuríkin
sjálf geri með sér friðarsamning.
Engin hætta á
kviksetningu
Róni. The Daily Telegraph.
NÝ tegund af líkkistum, fyrir
fólk sem óttast að vera jarðsett
lifandi, hefur verið sett á markað
á Italíu, landi þar sem líf eftir
dauðann er mönnum afar hug-
leikið.
Fyrir rúmar 300.000 kr. ísl.
er tryggt að hinn látni njóti allra
mögulegra þæginda í kistu sem
Fabrizio Caselli hefur hannað en
hann er úrsmiður í Lucca í Tosc-
ana-héraði. Reynist lífsmark með
„hinum látna“ eftir að í kistuna
er komið, hefur Caseili komið
fyrir rafeinda- og skyndihjálpar-
búnaði í kistunni. Öryggishnapp-
ur sem ýlir hátt ef þrýst er á
hann, hefur verið settur í kist-
una, auk hljóðnema og hátalara,
svo að sá sem í kistunni er geti
rætt við þá sem eru fyrir utan.
Þá eru í kistunni súrefnistankur,
ljóstýra, hjarsláttarnemi og
hjartalyf. Caselli hefur fulla
ástæðu til að vænta þess að kist-
an muni slá í gegn í heimaland-
inu. Jarðarfarir eru ríkur þáttur
í þjóðlífinu og Italir eru ólatir
við að heimsækja grafir ástvina
sinna. Er þröngin raunar svo
mikil í kirkjugörðum höfuðborg-
arinnar um helgar að kalla þarf
til umferðarlögreglu til að af-
stýra umferðaröngþveiti.
Saksóknari rann-
sakar mál Sahlin
Hugsanlega ákærð fyrir fjársvik
Stokkhólmi. Reuter.
SKRIFSTOFA ríkissak-
sóknara Svíþjóðar
greindi í gær frá því að
hafin yrði bráðabirgða-
rannsókn á misnotkun
Monu Sahlin aðstoðar-
forsætisráðherra á opin-
beru greiðslukorti. Er
hugsanlegt að hún verði
ákærð fyrir fjársvik.
Solveig Riberdahl að-
stoðarríkissaksóknari
sagði grunsemdirnar
nægilega miklar til að láta rann-
sókn fara fram og að ganga mætti
út frá því að hún myndi taka að
minnsta kosti mánuð. Sú upphæð
sem um er að ræða er sögð svara
til rúmlega 400.000 íslenskra
króna en hana hefur Sahlin endur-
greitt.
Sahlin hefur verið talin líkleg-
asti eftirmaður Ingvars Carlssons
forsætisráðherra og formanns
jafnaðarmanna en hann lætur af
embætti á næsta ári. Á mánudag
greindi Sahlin hins vegar frá því
að hún hygðist ekki gefa kost á
sér sem eftirmaður Carlssons á
meðan mál hennar væri í rann-
sókn. Sagðist hún vilja fara fram
á „leikhlé" á meðan á rannsókn
málsins stæði.
Síðar ítrekaði hún þó að með
þessu væri hún ekki að útiloka
| framboð endanlega þó að hún liti
svo á að hún væri ekki
lengur frambjóðandi.
„Ég vil taka það skýrt
fram að ég er ekki leng-
ur frambjóðandi. Ég vil
að jafnt ég sem flokkur-
inn fái það sem við þurf-
um mest á að halda nú,
það er tækifæri til að
fara yfir allt frá upp-
hafi,“ sagði Sahlin í sam-
tali við sænska sjónvarp-
ið.
Carlson styður
Sahlin
Ingfvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, sagði í gær að
hann bæri enn óskorað pólitískt
traust til Sahlin og að hann myndi
ekki endurskoða þá ákvörðun sína
að láta af störfum í mars næst-
komandi.
„Ég tel Monu Sahlin vera
óvenjulegan og hæfileikaríkan
stjórnmálamann. Hún býr yfír
mikilli kunnáttu, er hæf, öflug og
hugrökk,“ sagði Carlsson á blaða-
mannafundi.
Carlsson sagði að Sahlin myndi
áfram gegna embætti aðstoðarfor-
sætisráðherra þrátt fýrir ákvörðun
ríkissaksóknara.
Nýr formaður Jafnaðarmanna-
flokksins verður kjörinn á þingi
jafnaðarmanna í marsmánuði.
Mona
Sahlin