Morgunblaðið - 19.10.1995, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 27
LISTIR
ANTONIO Hervás Amezcua: Jökuljaðar. 1992.
Túristalist
MYNPLIST
List gallcrí — Listhúsinu
Laugardal
MÁLVERK OG
HÖGGMYNDIR
Antonio Hervás Amezcua. Opið kl. 13-18 virka
daga, kl. 12-16 laugard. og kl. 13-16 sunnud.
til 30. okt. Aðgangur ókeypis.
SUMIR erlendir listamenn sem hingað
sækja gera lítið vart við sig og það kann
að vera aðeins seint og um síðir sem lands-
menn fá að vita af heimsóknum þeirra. Aðr-
ir eru duglegri við sýningarhald og hlýtur
Antonio Hervás Amezcua að teljast í þeirra
hópi; hann hefur komið hingað þijú ár í röð
og sýndi síðast um svipað leyti fyrir ári í
Portinu í Hafnarfirði.
A sýningunni getur að líta nær fimmtíu
verk af ýmsu tagi - málverk, grafíkmynd-
ir, höggmyndir. Hér er ekki aðeins um að
ræða verk sem Antonio hefur unnið meðan
hann hefur dvalið á íslandi, heldur sitt lítið
af hveiju: Gamlar grafíkmyndir, málverk
sem unnin voru á Spáni áður en listamaður-
inn kom fyrst hingað upp, skissur frá ferð-
um um landið, málverk unnin í minningu
landsins og nokkur ijöldi höggmynda, sem
eru helguð ýmsum minnum, sem m.a. má
tengja kynnum hans af íslensku landslagi.
Þessi mikla blanda ólíkra hiuta gerir sýn-
inguna hins vegar nokkuð ósamstæða, líkari
samsýningu eða flóamarkaði en einkasýn-
ingu. Bestu verkin standa fyrir sínu, en falla
gjarnan í skuggann af því sem síðra er; eink-
um verða höggmyndirnar til að trufla að
þessu sinni.
Litaval listamannsins er sem fyrr mótað
af hita Miðjarðarhafsins fremur en kulda
norðursins, og tengslin við súrrealíska mynd-
sýn Salvadors Dalis eru enn skýrari en á
sýningunni fyrir ári. Þetta draumkennda lita-
spjald er í litlum tengslum við ísland, eins
og sést best á verkum eins og „Svífur yfir
Esjunni" (nr, 9), „ímynd íslands" (nr. 17)
og „Geysir“ (nr. 19) sem eru fyrst og fremst
fantasíur úr órólegum litadraumum sem Is-
lendingar geta engan veginn fallist á. Því
kemur skemmtilega á óvart, hve þessar sömu
fantasíur hafa leitt listamanninn á rétta
braut í verki eins og „Jökuljaðar" (nr. 24),
sem mun málað áður en hann kom hingað
í fyrsta sinn.
Eins og oft vill verða ber einfaldleikinn
með sér mesta listfengið, og hér eru skissur
merktar nr. 27 og 28 ef til vill besti kjarni
þeirrar myndsýnar sem listamaðurinn heill-
ast af. Við hlið þessara mynda verða hinar
stærri sem ofhlæði, ætlað það eitt hlutverk
að ganga í augun á túristum.
Hið sama má raunar segja um höggmynd-
irnar sem hér getur að líta. Þar er skreytnin
í fyrirrúmi, þannig að inntakið er nær hulið
í þeim krúsidúllum sem teygja sig í allar
áttir; þessi verk eru helst í samræmi við lak-
ari hluta málverkanna og hefði betur mátt
sleppa þeim alfarið af sýningunni.
Að öllu athuguðu er um mun síðri sýningu
að ræða en Antonio Hervás Amezeua hélt
hér á síðasta ári; þó áhugaverðustu verkin
sýni glögglega að hann kann vel til verka
og hefur gott auga fyrir litum umhverfisins,
virðist hann láta of auðveldlega undan freist-
ingum ofhlæðisins, sem verður til þess að
úr verður dæmigerð „túristalist" - litfögur
á yfirborðinu en innihaldsrýr, þegar betur
er að gáð.
Eiríkur Þorláksson
Djúpavíkurævin-
týrið í hringferð
NYLEGA var haldinn árlegur for-
mannafundur Bandalags íslenskra
leikfélaga á Hólmavík. Leikfélag
Hólmavíkur sýndi „Djúpavíkur-
ævintýrið" eftir Vilborgu Trausta-
dóttur og Sigurð Atlason í leik-
stjórn hins síðarnefnda í tengslum
við fundinn, en Djúpavíkurævin-
týrið er klukkustundar langur ein-
þáttungur og fjallar um uppgang
og hrun byggða í Djúpavík á „síld-
arárunum", gullaldartíma íslend-
inga, og lýsir vel hvað lítil byggðar-
lög og þá líf fólks getur verið við-
kvæmt fyrir allskyns holskeflum
sem geta skollið á þjóðfélagið þeg-
ar minnst varir. Þrátt fyrir alvar-
legan undirtón í verkinu bregður
fyrir skemmtilegum og fyndnum
og stundum grátbroslegum atvik-
um og tónlist skipar stóran sess í
sýningunni.
Eftir sýninguna á formanna-
fundinum komu upp háværar radd-
ir frá leikfélögum víðs vegar um
landið að fá sýninguna í hérað og
hefur því Leikfélag Hólmavíkur
skipulagt leikferð um landið í sam-
starfi við önnur áhugaleikfélög á
landinu sem mun standa yfir dag-
ana 20. október til 5. nóvember.
Ferðin hefst á Norðurlandi og
fyrsta sýning verður á Hvamms-
tanga og svo koll af kolli, á Sauðár-
króki verða tvær sýningar, sömu-
leiðis á Dalvík, Freyvangi, Húsa-
vík, Borgarfjörður eystri, Egils-
staðir, Höfn, Kirkjubæjarklaustur,
Selfoss eru meðal sýningarstaða
og Reykjavík, en þar verða sýning-
ar tvær í húsnæði sem Hugleikur
hefur til umráða á Vatnsstíg 1,
þar sem áður var Púlsinn til húsa.
Þetta er í fyrsta skipti svo vitað
sé að áhugaleikhús taki sér á hend-
ur hringferð um landið, en það
hefur náðst breið samstaða um það
hjá aðilarfélögum BÍL að svo megi
vera í fyrsta skipti, en vonandi
ekki síðasta. Þrír leikarar leika
fimm hlutverk í leikritinu: Sigurður
Atlason, Arnar S. Jónsson og Ár-
dís Jónsdóttir, en auk þeirra verður
einn tæknimaður með í för.
Jólamarkaður
Kolaportsins
-spennandi möguleikar
á jólamarkaSi Kolaportsins
Opinn alla daga 2. -23. desember
Kolaportið efnir nú í annað sinn til sérstaks
jólamarkaðar sem opinn verður alla daga í
desember. Þetta er fjórði sérstaki
markaðurinn sem Kolaportið stepdur fyrir og
opinn er alla daga. Reynslan hefur sýnt að
seljendur með spennandi vörur geta ótt von ó
mjög góðri sölu - og í KoJaportinu er hœgt að
selja nónast allt milli himins og jarðar.
JólamarkaÖur Kolaportsins er spennandi
vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtœki
Fyrir þó sem vilja flytja inn vörur
sérstaklega og/eða eiga birgðir
sem henta i jólasöluna.
Fyrir verslanir sem vilja auka söluna
með útibúi ó Jólamarkaði Kolaportsins,
en reiknað er með að allt að
250.000 gestir komi ó jólamarkaðinn.
Fjölmargir möguleikar eru i boöi og viö hvetjum
alla óhugasama aöila til að hafa samband
við skrifstofu Kolaportsins sem fyrsf
- því fœrri komast að en vilja!
Síminn er 562 5030, virka daga kl. 9-17.
KCHAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
ARMÚLA 13
SÍMl: 568 1200
BEINN SÍMI; 553 1236
949.000
KR. ÁGÖTUNA
HYunpni
... til framtiðar
Hyundai Accent,
84 hestöfl, með beinni
innspýtingu,samlæsingum
og vönduSum
hljómflutningstækjum.
Fallegur, rúmgóður
og nýtískulegur bíll,
hannaður með (oaS
aS leiSarl jósi aS gera
aksturinn ónægjulegan
ó öruggan hótt.