Morgunblaðið - 19.10.1995, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 29
f íge, Sweethea
chmeckt wie 'ne Krö
■ BÖRN eru viðkvæmari fyrir áhrifum
tóbaksreyks en fullorðið fólk. Það kem-
ur m.a. fram í þvi að sjúkdómar eins
og berkju- og lungnabólga eru miklu
algengari hjá börnum, einkum korna-
börnum, sem alast upp hjá foreldrum
sem reykja, en börnum á reyklausum
heimilum.
■ BÖRNUM á reykingaheimilum er
hættara við að fá hálsbólgu og algeng-
ara er að taka þurfi úr þeim háls- og
nefkirtla. Tóbaksreykur hefur slæm
áhrif á astma og getur komið af stað
astmaköstum.
■ SÉ BARN á heimilinu ætti helst ekki
að reykja þar innan dyra og alls ekki í
návist barnsins eða þar sem það sefur
og leikur sér. Einnig ætti að forðast að
reykja í fjölskyldubílnum vegna þess hve
mengunin verður mikil í svo litlu rými
og reykingalyktin loðir lengi við. Með
því að reykja ekki í bílnum er verið að
stuðla áð vellíðan barnsins.
■ EF MÓÐIR reykir á meðan hún gegn-
ur með barn sitt fara ýmis skaðlegustu
efni tóbaksreyksins úr blóði hennar
gegnum fylgjuna til fóstursins, þar á
meðal nikótín, kolsýrlingur og sum
þeirra efna sem geta valdið krabba-
meini. Kolsýrlingurinn verður enn meiri
í blóði fóstursins en móðurinnar.
■ BÖRNkvenna sem reykja eru til jafn-
aðar 200 grömmum léttari við fæðingu,
en börn þeirra sem reykja ekki, því reyk-
ingarnar draga úr þroska fóstursins.
Þá éykst hætta á fósturláti, fæðingu
fyrir tímann og fylgjulosi ef móðirin
reykir á meðgöngutíma.
■ J/ÆTT/kona að reykja, eðadragi
stórlega úr reykingum áður en fjórir
mánuðir eru liðnir af meðgöngutíman-
um minnkar hættan á að barnið verði
fyrir skaða vegna reykinganna.
■ SYNT hefur verið fram á að reyking-
ar móður á meðgöngutíma tengjast
minni vexti og þroska barna á æskuárun-
um og minni og hægari framförum í
lestri, skrift og öðrum lærdómi. Ýmis
vandamál, sem koma fram í bernsku
má þannig rekja til skaðlegra efna í
tóbaksreyk, sem börnin fengu í sig á
meðan móðirin bar þau undir belti.
■ REYKINGAR á meðgöngutíma eru
barninu hættulegar, en ekki síður reyk-
ingar mæðra eftir fæðinguna. Hafi móð-
irin barnið á bijósti fær það eiturefni
með mjólkinni. Athugun hefur sýnt að
nikótín er í blóði og þvagi þessara bijóst-
mylkinga jafnvel þegar enginn tóbaks-
reykur er í andrúmslofti þeirra.
■ REYKI báðir foreldrar andar barnið
að sér sem svarar reyk úr 150 sígarett-
um á ári, eða 7 'A pakka af sígarettum.
■ MIKLU meiri líkur eru til að börn á
reykingaheimilum byrji að reykja en
börn á heimilum þar sem enginn reykir.
Þessi hætta er a.m.k. tvöföíd ef foreldr-
Auglýst beint
og óbeint
AUGLYSINGAR á tóbaki eru
bannaðar lögum samkvæmt hér á
landi. Hingað berst þó fjöldi aug-
lýsinga, til dæmis í erlendum tíma-
ritum og óbeinar auglýsingar í
kvikmyndum færast í vöxt.
í lögum um tóbaksvarnir segir,
að hvers konar auglýsingar á tób-
aki og reykfærum séu bannaðar
hér á landi. Þetta nái þó ekki til
auglýsinga í ritum, sem -------
út séu gefin utanlands
af erlendum aðilum á
erlendum tungumálum,
enda sé megintilgangur
þeirra ekki að auglýsa
slíkar vörur. Lögin segja einnig,
að bannað sé að sýna neyslu eða
hvers konar meðferð tóbaks eða
reykfæra í auglýsingum eða upp-
lýsingum um annars konar vöru
eða þjónustu. Þá segir: „Með aug-
lýsingum er í lögum þessum m.a.
átt við hvers konar tilkynningar
til almennings, eftirlíkingar af tób-
aksvarningi, skilti og svipaðan
búnað, útstillingar og notkun tób-
aksvöruheita og auðkenna.“
Vegna síðastnefnda atriðisins
var mótmælt notkun orðsins Cam-
el í auglýsingum á úrum og skóm,
sem seld eru hér á landi. Hrund
Sigurbjörnsdóttir, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Krabbameins-
félagsins, segir nauðsynlegt að fá
skýr ákvæði í ný lög um tóbaks-
varnir, þar sem kveðið verði á um
að notkun tóbaksvöruheita á
óskyldan varning sé bönnuð. Nú-
verandi ákvæði sé ekki nógu skýrt.
Breyttar reglur
um merkingar
Þorvarður Örnólfsson, fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfélags-
ins, segir að hann óttist aukningu
á óbeinum auglýsingum þegar
bandaríska fyrirtækið Philip Morr-
is sæki inn á íslenskan markað
með Marlboro-sígarettur sínar.
„Fyrirtækið vildi ekki selja vöru
sína hér vegna viðvörunarmerk-
Óttast aukn-
ingu óbeinna
auglýsinga
inganna, sem skylt er að h'afa á
sígarettupökkunum. Nú verður
reglum um þessar merkingar
breytt, þannig að hægt verður að
velja hvort hinar hefðbundnu
merkingar verða á pökkunum, eða
merkingar sem notaðar eru annars
staðar í Evrópu. Þær eru bæði
minni og ekki myndskreyttar.
Vegna þessa ákvæðis óttast ég
-------- mjög að slagurinn
harðni. Philip Morris er
einhver fjársterkasti
tóbaksframleiðandi
heims og það má ekki
“““ slaka á kröfum um bann
við auglýsingum, beinum sem
óbeinum. Þær raddir, sem oft
heyrast, að það eigi að hafa allt
frjálst, þær eru að biðja um frelsi
til að drepa með sígarettum.“
Hrund segir það skjóta skökku
við, að á sama tíma og Clint-
on Bandaríkjaforseti beij
ist við að fá nikótín við-
urkennt sem lífs-
hættulegt efni og
að dregið verði
úr tóbaksaug-
lýsingum skuli
íslenskt forvarn-
arstarf þurfa að
þola upphrópanir um
„frelsi“.
Erlendar auglýsingar og
íslensk ungnienni
NBA-körfuboltinn í Banda-
ríkjunum á miklum vinsældum
að fagna hér og tímarit, sem
fjalla um boltann, eru uppfull
af tóbaksauglýsingum. Sem
dæmi má nefna auglýsingu úr
bandaríska íþróttatímaritinu
Sports Illustrated, þar _______
sem auglýstar eru
Basic sígarettur.
Myndin sýnir snjáðar
gallabuxur, strigaskó
og hvítan stutterma bol, þar sem
sígarettupakki gægist upp úr
brjóstvasanum. Þessari auglýs-
SUMAR auglýs-
ingar gefa í skyn
að lausn feit-
lögnu konunnar
, sé „léttar“
sígarettur. Oðr-
um er greinilega
beint að ungu
kynslóðinni. Þá
selja framleiðendur
tóbaks gjarnan merki
sitt á óskyldar vörur,
Iíkt og þennan postu-
línsplatta hér fyrir
neðan.
your basic 3-piece surr
lt Tastes
It Costs Lgss
ingu er greinilega ætlað að höfða
til ungs fólks.
Fleiri dæmi er að finna um slík-
ar auglýsingar. Þannig er gjarnan
höfðað til ungra stúlkna með því
að koma þeim skilaboðum á fram-
færi, að betrar sé að reykja en
borða sælgæti. Dæmi um slíka
auglýsingu er mynd af feitlaginni
konu, sem er að borða ijómaís.
Myndarlegur og grannur maður
býður henni „létta“ sígarettu í
staðinn og reykingarnar virðast
þannig augljós kostur. Reykingum
er því ætlað að vera eins konar
grenningarlyf ungu stúlkunnar.
Sígaretturnar heita „slim“ þetta
og „slim“ hitt og tággrannar fyrir-
sætur auglýsa þær.
Auknar óbeinar
tóbaksauglýsingar
Óbeinar tóbaksauglýsingar eru
fremur að aukast en hitt, að mati
starfsmanna Krabbameinsfélags-
ins. „Það hefur verið staðfest að
tóbaksframleiðendur greiða fram-
leiðendum kvikmynda og leikurum
fyrir að sýna sígarettureykingar í
jákvæðu ljósi og upphefja þær,“
segir Þorvarður.
„Aður fyrr voru það helst vafa-
samar persónur kvikmyndanna
sem reyktu, en nú reykja hetjurn-
ar líka. í nýlegri kvikmynd er
augljós auglýsing af þessu tagi,
þegar aðalhetjan biður um þijá
Marlboro-pakka. Tóbaksframleið-
endur ganga æ harðar fram á
þessu sviði, eftir því sem þrengt
er að þeim á öðrum.“
Það þarf ekki að leita í erlend-
ar kvikmyndir til að finna dæmi
þess að reykingar séu sýndar í
jákvæðu ljósi.
„íslensk blöð sýna ungt, fallegt
fólk úti að skemmta sér og marg-
ir eru meö sígarettu," segir Ingi-
leif Ólafsdóttir, fræðslufull-
trúi. „Og þegar vöru-
merki tóbaksframleið-
anda er komið á skó
og úr þá er það í
raun auglýsing fyr-
ir tóbaksvörurnar.
Ég veit líka dæmi
þess hér, að á
golfmóti fram-
haldsskóla í
Reykjavík fengu
unglingarnir penna
með Winston merki.
Það er aðeins eitt dæmi
af fjölmörgum."
ar reykja og þreföld ef systkini reykja.
Ein af ástæðunum getur verið sú, að
börnin eru send eftir tóbaki og venjast
við að kaupa það og handfjatla.
■ MARGT fólk sem Iátist hefur af völd-
um reykinga hefði getað lifað 10, 20 eða
jafnvel 30 árum lengur. Þeir sem deyja
af völdum reykinga hafa að jafnaði tap-
að tíu til fimmtán árum af ævi sinni.
■ SÉlitið til framtíðar 1000 ungmenna
sem reykja má samkvæmt breskri áætl-
un gera ráð fyrir að 6 farist í umferðar-
slysum, en um 250 deyi fyrir aldur fram
vegna reykinganna.
■ HÆTTIR þú að reykja áður en þú
hefur fengið af því krabbamein, þjarta-
sjúkdóm eða lungnasjúkdóm sleppur þú
að mestu við þá hættu að deyja eða verða
örkumla af völdum reykinga.
Myndskreytingar eru eftir Garðar Pétursson, úr
bæklingnum Börn og óbeinar reykingar og eru
birtar með góðfúslegu leyfi Auk hf.