Morgunblaðið - 19.10.1995, Qupperneq 61
morgunblaðið
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 61
TJALDIÐ MEÐ
* rculiit
AKI ItFAKI
APP0L0(
[hefu^fírbugaö^íST
þannig að eina starfið
lum býðst nú er að þjál
ip vandræða drengja.
gamanmynd um
■kll&jið Major Payne.
!HE5»hlutverk
layans
■ (The Last Boy Scout).
SIMI SS3 - 2075
Stærsta mynd ársins er komin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Einn mesti hasar allra tíma.
Hann er ákærandinn,
dómarinn og böðullinn.
Hann er réttlætið. Sylvester
Stallone er Dredd dómari.
Myndin er að hluta til tekin
hér á íslandi.
- kjarni málsins!
!5r Baltasar
sími 551 9000
ROCKY HORROR
SÝNDKL 50G11.
SÝNDKL.7.
„Birth of a
nation" er
með allra
frægustu
stórmynd-
um þögla
tímabilsins
sem braut
blaði
kvikmynda-
sögunni.
Vegna
mikillar
aðsóknar
verður
„Körkarlen"
eftir Viktor
Sjöstrom
endursýnd.
Þetta er
stórkostleg
mynd sem
enginn
kvikmynda-
unnandi
lætur fram
hjásér fara.
FÆÐING ÞJÓÐAR
1915
KERRUKARLINN
1921
Skemmtanir
■ INGÓLFSCAFÉí tilefni af 4ra
ára afmæli staðarins verður boðið
upp á eftirfarandi dagskrá um helg-
ina. Á föstudagskvöld leikur DJ
Zippo á neðri hæðinni en hann leik-
ur á öllum helstu diskótekum Ítalíu.
Á efri hæðinni sér Gulli Helga um
diskóstemmninguna. Erótísk tísku-
sýning verður í tilefni af frumsýn-
ingu Sam-bíóanna á „Showgirls.
Frítt á barnum frá kl. 12-12.30. Á
laugardagksvöld leika DJ Zippo og
Gulli Helga og tískusýning verður
frá Levis og Kókó um kvöldið. Frítt
á bamum frá kl. 12-12.30.
■ LEIKHÚSKJALLARINN
Hljómsveitin Stjórnin hefur verið
ráðin til starfa í vetur fyrst um sinn
á föstudagskvöldum. Hún mun
leggja höfuðáherslu á diskó tónlist,
gömul og góð dægurlög í sinni út-
færslu ásamt því allra besta úr eigin
smiðju. Stjómin er um þessar mund-
ir að senda frá sér geisladisk með
diskósmellum. Stjórnina skipa Grét-
ar Orvarsson, Friðrik Karlsson,
Halldór Hauksson, Jóhann Ás-
mundsson og Sigríður Beinteins-
dóttir. Á laugardagskvöldum sér
Sigurður Hlöðversson um diskó-
búrið.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtu-
dagskvöld leikur BP og þegiðu
Ingibjörg. Á föstudagskvöld verður
haldin Útgáfuhátíð Skífunnar hf.
þar sem fram koma Vinir vors og
blóma, Hunang, Tamlasveitin,
Bubbi Morthens, Björgvin Hall-
dórsson, Svala Björgvinsdóttir,
Cigarette og Sól Dögg. Á laugar-
dagskvöld verður sjóðheit nótt með
DJ Nökkva og Kúló Grande á barn-
um. Hljómsveitin Kirsuber leikur á
sunnudagskvöld og á mánudags- og
þriðjudagskvöld hljóðritar Tríó Jóns
Leifssonar læf á Gauknum. Á mið-
vikudags- og fimmtudagskvöld leik-
ur Sól Dögg.
■ CAFÉ ROYALE heldur upp á
2ja ára afmæli sitt á föstudags- og
iaugardagskvöld. Boðið verður upp
á ýmsar kynningar á matar- og
drykkjarföngum og kynntar breyt-
ingar á staðnum. A föstudagskvöld
skemmtir hljómsveitin Fánar og á
laugardagskvöld fær hljómsveitin til
liðs við sig Hafnfirðinginn Björgvin
Halldórsson. Hljómsveitina Fána
skipa: Haraldur Þorsteinsson,
Þorsteinn Magnússon, Ásgeir
Óskarsson og Ágúst Ragnarsson.
■ MAMMA RÓSA Á fimmtudags-
kvöld leikur Jazzkvartett Sigurðar
Hafsteinssonar frá kl. 22. A föstu-
dags- og laugardagskvöld verður
kántrý með Viðari Jónssyni og co.
■ SÓL DÖGG leikur laugardags-
kvöld á Þórshöfn. Á föstudagskvöld
verður hljómsveitin á útgáfuhátíð
Skífunnar á Gauknum en hljómsveit-
in leikur þar einnig á mánudags- og
þriðjudagskvöld.
■ HÓTEL ÍSLAND Á fimmtu-
dagskvöld verður halidð konukvöld
með fjölda skemmtiatriða. Húsið
opnar kl. 21.30. Eyfirðingakvöld
verður haldið í aðalsal á föstudags-
kvöld þar sem Karlakór Akur-
eyrar, hagyrðingar, Leikhús-
kvartettinn, flutningur kattadú-
ettsins, einsöngur Mikaels J.
Clark og norðlenskt jazztrió kem-
ur fram. Kynnir kvöldins er Þráinn
Karlsson leikari. Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar léikur á dans-
leik. í Ásbyrgi (austursal) er sýn-
ingin Laddi kl. 22. Á laugardags-
kvöld er sýning Björgvins Halldórs-
sonar Þó líði ár og öld. Magnús
og Jóhann leika fyrir matargesti
og hljómsveitin Karma á dansleik
að lokinní sýningu. í Ásbyrgi er
sýningin Laddi og Magnús, Jóhann
og Pétur Hjaltested leika að lok-
inni sýningu. Á sunnudagskvöld leik-
ur Hljómsveit Hjördísar Geirs
gömlu og nýju dansana. Húsið opnar
kl. 22-1. Ath. engin aðgangseyrir á
dansleiki.
■ BYLTING leikur föstudagskvöld
í Sæluhúsinu Dalvík og á laugar-
dagskvöld á Hótel Mælifelli,
HLJÓMSVEITIN Bylting leikur föstudagskvöld á Dalvík og á Sauð-
árkróki á laugardagskvöld.
GULLIHELGA er plötusnúður
á efri hæðinni á Ingólfscafé
föstudags- og laugardags-
kvöld.
Sauðárkróki. Um mánaðamótin er
væntanlegur geisladiskur hljóm-
sveitarinnar sem ber heitið Ekta.
■ NÆTURGALINN Hljómsveitin
Tónskrattar leikur föstudags- og
laugardagskvöld en hana skipa þeir
Hafsteinn Hafsteinsson, Ólafur
Karlsson og Jón Friðrik Birgis-
son.
■ BUBBI MORTHENS er á sínu
árlega tónleikaferðalagi um landið.
Með honum í för er bassaleikarinn
Þorleifur Guðjónsson. Bubbi leikur
fimmtudagskvöld í Oddvitanum,
Akureyri, og hefst leikurinn kl. 23.
Á laugardagskvöld er Bubbi á
Langasandi, Akranesi og Hótel
Borgarnesi sunnudagskvöld,
■ NUNO MIGUEL OG MILLJ-
ÓNAMÆRINGARNIR leika á
laugardagskvöld í Gjánni Selfossi.
■ KAFFI REYKJAVÍK Á fimmtu-
dagskvöld leikur hljómsveitin Útlag-
ar en á föstudags- og laugardags-
kvöld er það hljómsveitin Hunang
sem leikur. Sigga Beinteins og
Grétar leika sunnudagskvöld.
■ HÓTEL SAGA Á Mímisbar
leika Ragnar Bjarnason og Stefán
Jökulsson föstudags- og laugar-
dagskvöld. í Súlnasal á laugardags-
kvöldið verður fyrsta sýning hausts-
ins á Ríósögu sem er skemmtidag-
skrá með Ríó Tríó. Á eftir sýningu
er svo dansleikur með hljómsveitinni
Saga Klass. Húsið verður opnað kl.
19 fyrir matargesti og kl. 23.30 fyr-
ir þá sem ætla að koma á dansleik.
■ GARÐAKRÁIN, GARÐABÆ Á
föstudags- og laugardagskvöld leik-
ur hljómsveitin Klappað og klárt
með þeim Garðari Karlssyni og
Önnu Vilhjálmsdóttur.
■ FEITI DVERGURINN Á
fimmtudagskvöld kemur Laddi í
heimsókn með létt grín og gaman.
Á föstudags- og laugardagskvöld
skemmta Gleðigjafarnir André
Bachman og Carl Möller.
■ JAZZBARINN Á fímmtudags-
kvöld leikur hljómsveit Eddu Borg.
Á föstudagskvöld er ,jammsession“
með Sigurði Flosasyni þar sem Sig-
urður fær í heimsókn vini og kunn-
inga. Á laugardags- og sunnudags-
kvöld leikur Kvartett Leifs Thoms-
en. Talsvert er um liðið síðan þessi
færeyski gítarleikari heimsótti ís-
land síðast en hann var á fyrstu
jazzhátíð RúReks 1990. Með honum
leika Magnús Jóhanesson á píanó,
Regvi á Regvu á trommur og Jó-
hannes á Regvu á bassa. Auk þeirra
verður slagverksleikari og mögulega
íslenskir gestir s.s. Björn Thorodd-
sen.
■ 1929 AKUREYRI Á fimmtu-
dagskvöld verða sýnd myndbönd
með Rolling Stones og á föstudags-
kvöld kynnir 1929 nokkrar helstu
rokksveitir írlands í tilefni írskra
daga á Akureyri. Má þar nefna The
Pogues, Boomtown Rats og U2. Á
laugardagskvöld er svo sérstakt
Anti-sportistakvöld. Þá eru allir vel-
komnír sem ekki nenna að rífa sig
á fæstur á ókristilegum tíma til að
æða í ræktina.
■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld
leikur trúbadorinn Haraldur
Reynisson og flytur hann ný og
gömul lög. Á föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur trúbadorinn Jón
Ingólfsson. Á sunnudagskvöld leik-
ur svo Guðmundur Rúnar.
■ CAFÉ AMSTERDAM á fimmtu-
dags-, föstudags- og laugardags-
kvöld leika Arnar og Þórir.
■ VITINN SANDGERÐI Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
E.T. Bandið.
■ RÓSENBERGKJALLARINN
Hljómsveitin Kirsuber leikur
laugardagskvöld. Hljómsveitina
skipa Örlygur Smári, Bergþór
Smári, Ingi S. Skúlason og Friðrik
Júlíusson.
■ BLÚSBARINN Hljómsveitin
Speedwell Blue leikur fimmtu-
dags-, föstudags- og laugardags-
kvöld en þetta mun vera í síðsta
skipti sem hljómsveitin kemur fram
hér á landi því hún hyggur á utan-
för innan skamms.
■ RÚNAR ÞÓR leikur í Kjallaran-
um, Akureyri, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld.