Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
L
FRÉTTIR
Þjófarnir
kortlögðu
bílaeignina
TVEIR menn, sem lögðu í þjófnað-
arieiðangur frá Reykjavík til Suður-
nesja í fyrrinótt, höfðu með sér lista
yfir bílnúmer, heimilisföng eigend-
anna og götukort, til að auðvelda sér
að fínna bílana.
Lögreglan í Keflavík handtók tvo
menn kl. rúmlega 4 í fyrrinótt, þar
sem þeir voru að bijótast inn í bfla.
Mennimir voru með lista yfír bflnúm-
er og heimilisföng og var greinilegt
að þeir höfðu kynnt sér hvaða Suður-
nesjamenn ættu dýrustu og fínustu
bflana. I slíkum bflum eru meiri líkur
til að fínna dýran aukabúnað, s.s.
hljómflutningstæki, sem þjófamir
vom að sækjast eftir.
Til að tryggja góðan árangur úr
leiðangrinum höfðu mennimir Ijósrit-
að götukort úr símaskrá og merkt inn
á hvar eigendur dýrustu bflanna búa.
Það eina, sem þjófamir virðast hafa
gleymt að gera ráð fyrir, er árvekni
lögreglunnar í Keflavík.
Þjófnaðir úr bflum hafa aukist mjög
á þessu ári og til marks um það má
nefna, að lögreglunni í Reykjavík
hafa borist um 600 tilkynningar um
innbrot í bfla það sem af er árinu.
Sumir þjófanna virðast hafa sérhæft
sig í slíkum innbrotum. Fyrir skömmu
var maður handtekinn og í tösku
hans fundust áhöld, sem greinilega
vora ætluð til innbrota í bfla.
FYRSTU loðnunni í langan tíma
á Siglufirði var landað úr Al-
berti GK í gærkvöldi. „Síðast
fengum við loðnu 14. júlí,“ sagði
Þórhallur Jónasson gæðastjóri
SR-Mjöls hf. í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Það eru þvi að
verða 3'/2 mánuður síðan.“ Hann
sagði að menn hefðu verið orðnir
langeygðir eftir loðnu og því
væri léttirinn mikill.
„Landað verður um leið og
Albert kemur og ef að líkum
lætur tekur forseti bæjarstjórnar
á móti áhöfninni með tertu,“
Loðnan
veiðist
áný
sagði hann.
Þórhallur sagðist vona að loðn
an veiðist lengur, helst fram til
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
jóla. Hann segir að ekki sé búið
að gefa út verð á loðnunni. Fyrst
þurfi að rannsaka fitu- og þurr-
efnisinnihald hennar. Þegar það
liggi fyrir verði gefið út verð.
Þess má geta að 20 starfsmenn
hjá SR-mjöli fengu í gær upp-
sagnarbréf vegna verkefna-
skorts hjá fyrirtækinu. Bréfin
voru send í fyrradag, áður en
loðnan fannst, en nú er væntan-
lega næg þörf fyrir starfskrafta
þeirra.
Höfundur
Rocky Hoiror
hingað
RICHARD O'Brien, höfundur
rokkóperunnar Rocky Horr-
or, er væntanlegur hingað til
lands til þess að sjá hina ís-
lenzku uppfærslu verksins.
Richard O’Brien samdi
bæði lög og texta söngleiks-
ins, sem fyrst var settur á
fjalirnar fyrir 20 árum. Hann
lék einnig hlutverk Riff Raff
í kvikmynd, sem gerð var
eftir söngleiknum.
Flugfélagið Loftur sýnir
Rocky Horror í Loftkastal-
anum í Héðinshúsinu. Sýn-
ingar eru orðnar 33 og hefur
verið uppselt á þær allar.
Richard O’Brien mun sjá mið-
nætursýningu laugardaginn
18. nóvember. Hann mun
dvelja hér á landi í tvo daga.
RICHARD O’Brien í hlut-
verki Riff Raff.
■ Það verðakannskijól/18
Ráðherra segir brýna nauðsyn á að hefja hvalveiðar að nýju til að viðhalda jafnvægi
ATHUGANIR Hafrannsóknastofn-
unar benda til þess að ef hvalastofn-
ar hér við land ná aftur upphaf-
legri stærð geti afrakstur þorsk-
stofnsins minnkað um allt að 10%.
Sjávarútvegsráðherra stefnir að því
að leggja þingsályktunartillögu
fram á yfírstandandi þingi svo að
Alþingi geti tekið afstöðu til þess
hvort hefja eigi hvalveiðar á ný.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði á Alþingi í gær að
nauðsyn þess að hefja hvalveiðar á
ný væri mjög brýn, ekki aðeins
vegna þeirra tekna sem þær sköp-
uðu heldur til að tryggja eðlilegt
jafnvægi í lífríki hafsins.
„Nýjar athuganir sérfræðinga
Hafrannsóknastofnunar benda til
þess, að verði hvalastofnar hér við
land látnir vaxa upp í þá stærð, sem
þeir Voru í áður en skipulagðar veið-
ar hófust, má reikna með því að
langtímaafrakstur þorskstofnsins
minnki marktækt, og jafnvel um
allt að 10%,“ sagði Þorsteinn.
Þolir enga bið
Guðjón Guðmundsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, spurði sjáv-
Afrakstur þorskstofns
gæti minnkað um 10%
arútvégsráðherra um stefnu ríkis-
stjórnarinnar í hvalamálum, m.a. í
ljósi þess að þingmannanefnd hefði
á síðasta ári komist að þeirri niður-
stöðu að eðlilegt væri að heíja at-
vinnuhvalveiðar á ný, þó þannig að
farið væri að öllu með gát og tekið
yrði tillit til heildarhagsmuna ís-
lands.
Guðjón vitnaði m.a. í upplýsingar
Hafrannsóknastofnunar um að
hvalir hér við land ætu að öllum
líkindum 4-5 milljónir tonna af
krabbasvifdýrum, smokkfíski og
físki. Um 1 milljón gæti verið físk-
ur af ýmsu tagi. „Allar snúa þessar
upplýsingar í sömu átt. Takmarka-
laus fjölgun hvala mun leiða til
mikilla vandræða fyrir þær þjóðir
sem byggja afkomu sína á fískveið-
um. Þess vegna verður að hefja
hvalveiðar að nýju og það þolir
enga bið,“ sagði Guðjón.
Pólitískir erfiðleikar
Þorsteinn Pálsson sagði stefnuna
þá að nýta allar auðlindir sjávar á
grundvelli sjálfbærrar þróunar, þar
á meðal hvali. Hins vegar væru
pólitískir erfiðleikar því samfara.
Hann sagði að á síðasta vetri
hefði verið rætt hvort ísland ætti
að ganga aftur inn í Alþjóðahval-
veiðiráðið með fyrirvara um hval-
veiðibannið. Engar fastmótaðar
reglur, að þjóðarétti, væru fyrir
hendi um lögfræðilega stöðu þeirra
ríkja sem gerðu slíka fyrirvara.
Alþjóðalaganefnd Sameinuðu þjóð-
anna væri hins vegar að hefja könn-
un á þessu álitaefni. Því væri ekki
hægt að fullyrða að innganga í ráð-
ið væri fýsilegur kostur, enda óljóst
hvort hægt yrði að fá fram pólitískt
viðunandi niðurstöðu innan ráðsins.
Þá sagði Þorsteinn að ekki væri
að sjá, að aðild að hvalveiðiráðinu
væri skilyrði fyrir sölu afurða til
annarra ríkja. Hins vegar væri þar
um pólitískar frekar en lögfræðileg-
ar hindranir að ræða og íslendingar
yrðu að tryggja pólitíska stöðu sína
gagnvart möguleikum til sölu af-
urðanna eins og gagnvart hvalveið-
unum sjálfum.
Þorsteinn sagði efalaust að með
starfí innan N-Atlantshafssjávar-
spendýraráðsins, (NAMMCO) væri
skapaður nægilega sterkur þjóð-
réttarlegur grundvöllur undir hval-
veiðar. Hins vegar hefði hann orðið
fyrir vonbrigðum með afstöðu
Norðmanna að því er varðaði störf
innan NAMMCO, sem hefðu að sínu
mati ekki veitt ráðinu nægilegan
pólitískan styrk.
Meiri skilningur
Þeir þingmenn sem tóku til máls
hvöttu til þess að Alþingi gæti sem
fyrst tekið ákvarðanir í þessu máli.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, benti á að póli-
tískar aðstæður í Bandaríkjunum
hefðu breyst mjög og öfl sem beittu
sér gegn hvalveiðum hefðu verið
að láta undan síga.
Þorsteinn tók undir að vart hefði
orðið breyttra viðhorfa í Bandaríkj-
unum. Einnig væri að koma fram
gleggri skilningur í Evrópu á þess-
um málum. Á nýafstöðnum fundi
sjávarútvegsráðherra Norður-Atl-
antshafsríkja hefði verið sérstak-
lega fjallað um nýtingu selastofna,
sem hefði verið bannorð á þeim
vettvangi um langt skeið. Á næsta
fundi ráðherranna væri fyrirhugað
að fjalla um hvalveiðar. „Þróunin
er í rétta átt þótt okkur hafí fund-
ist að hægt hafí miðað,” sagði Þor-
steinn.
I
\
\
I
I
Einn greinst
með inflúensu
INFLÚENSA af A-stofni hefur
greinst hjá einu barni á Akureyri,
samkvæmt upplýsingum frá Rann-
sóknarstofu í veirufræði, og senni-
lega er hún farin að stinga sér nið-
ur þar og trúlega einnig í Reykja-
vík, að sögn Helga Guðbergssonar,
læknis á Heilsuverndarstöðinni.
Helgi sagði að enn hefði ekki
greinst inflúensutilfelli á lækna-
vaktinni í Reykjavík en aðrir öndun-
arfærasjúkdómar væru að ganga
og auðvelt væri að ruglast á þeim
og telja að um inflúensu væri að
ræða.
Bólusetning langt komin
„Bólusetning við inflúensu er
hafin og sennilega iangt komin,”
sagði hann en landlæknir mælir
með því að fólk yfír sextugu og
fólk með langvinna sjúkdóma, sér-
staklega lungna- og hjartasjúk-
dóma, fái bólusetningu við inflú-
ensu. Þá er einnig farið að bólu-
setja á nokkrum vinnustöðum.
Utfarir
Flateyringanna
FIMMTÁN af tuttugu fórn-
arlömbum snjóflóðsins á Flat-
eyri verða jarðsungin í Reykja-
vík og Hafnarfirði. Tveir hinna
látnu verða bornir til grafar á
Stokkseyri, tveir á ísafirði og
einn á Flateyri.
Kristinn Jónsson verður jarð-
sunginn frá Háteigskirkju kl.
13.30 í dag. Þau Sólrún Ása
Gunnarsdóttir, Svana Eiríks-
dóttir og Halldór Svavar Ólafs-
son verða jarðsungin frá Hall-
grímskirkju kl. 15 í dag.
Útför Þórðar Júlíussonar fer
fram frá Fella- og Hólakirkju
kl. 13.30 á föstudag. Þorleifur
Ingvason og Lilja Osk Ásgeirs-
dóttir verða borin til grafar á
Stokkseyri kl. 14 á laugardag.
Magnús E. Karlsson, Fjóla Aðal-
steinsdóttir, eiginkona hans, og
Linda Björk Magnúsdóttir, dótt-
ir hjónanna, verða jarðsungin
frá Víðistaðakirkju kl. 13.30 á
mánudag. Feðgarnir Sigurður
Þorsteinsson og Þorsteinn Sig-
urðsson verða jarðsungnir frá
Hallgrimskirkju kl. 15 þann
sama dag. Útför Haralds Egg-
ertssonar, Svanhildar Hlöðvers-
dóttur, eiginkonu hans, og
þriggja barna, Haralds Jóns 4
ára, Ástrósar Birnu 3 ára og
Rebekku Rutar, 1 árs, fer fram
frá Hallgrímskirkju kl. 15 á
þriðjudag.
Benjamin Oddsson verður
jarðsunginn frá Flateyrarkirlgu
kl. 14 á föstudag. Útför hjón-
anna Gunnlaugs P. Kristjáns-
sonar og Geirþrúðar Friðriks-
dóttur fer fram frá ísafjarðar-
kirkju kl. 14 á laugardag.
Forseti Islands verður við-
stödd þær útfarir, sem hún fær
viðkomið vegna tímasetninga.
Mörg hundruð hringdu í Stöð 3
Margir vildu j
móttökubúnað
verið lögð áhersla á að setja örbylgju-
loftnet á fjöleignahús þar sem eru 7
íbúðir eða fleiri. í sumum tilvikum
eru allt að 70 íbúðir um hvert loftnet.
■ FjöImiðlar/34-5
■ Dagskrá Stöðvar 3/C12
-----» » ♦----
Óheppnir í
Víkingalottói
ENGINN ísiendingur var svo Ián-
samur að hreppa fyrsta vinning í i
Víkingalottóinu í gær, en þá var
dregið tvívegis um samtals tæpar
200 milljónir króna. Heildarupphæð
vinninga á íslandi var hins vegar
rúmar 4,5 milljónir króna.
FJÖLGA þurfti starfsmönnum við
símsvörun hjá Stöð 3 í gær vegna
mikilla fyrirspuma um móttökubún-
að stöðvarinnar. Mörg hundruð
manna höfðu samband við stöðina
og vildu fá búnað sem auglýstur var
í gær, jafnt þótt hvorki sé búið að
auglýsa áskriftarverð né dagskrá.
Að sögn Úlfars Steindórssonar
sjónvarpsstjóra var auglýsingin
einkum ætluð til að kynna tækjabún-
aðinn. Honum kom á óvart hve mik-
il viðbrögð fólks urðu. Áskriftarher-
ferðin hefst þegar áskriftarverð ligg-
ur fyrir. Reiknað er með að áskrif-
endur verði orðnir um 10 þúsund í
byrjun næsta árs. Ætlunin er að
hefja útsendingar eftir miðjan mán-
uðinn og er búið að leggja iínur um
dagskrá.
I markaðssetningu Stöðvar 3 hefur