Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Mótmæla í Grozní TSJETS JENSKUR sjálfstæðis- sinni veifar grænum fána múslima á rústum forsetahall- arinnar við mótmælaaðgerðir í Grozní. Lögreglumenn hlið- hollir yfirvöldum brutu mót- mælin á bak aftur með því að skjóta á mannfjöldann. Rushdie óáreittur Vín. Reuter. ÍRANAR lýstu yfir því yfír á mánudag að þeir myndu ekki senda leigumorðingja til höf- uðs rithöfundinum Salman Rushdie, sem Ayatollah Kho- meini, fyrrum leiðtogi írans, kvað réttdræpan fyrir sex árum, en myndu hins vegar aldrei gefa út skriflega yfir- lýsingu þar að lútandi vegna þess að það myndi sverta heiður landsins. Reuter Mandela ætlar ekkí að stöðva réttarhöld Jóhannesarborg. Reuter. NELSON Mandela, forseti Suður- Afríku, sagðist ekki ætla að koma í veg fyrir að réttarhöld færu fram yfir Magnus Malan, fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og 10 háttsettum foringjum í her landsins, sem taldir eru bera ábyrgð á drápi 13 blökkumanna fyrir átta árum. „Ég mun örugglega ekki stöðva framgang málsins," sagði Mandela í samtali við breska útvarpið BBC í gær. Til stendur að handtaka Malan og foringjana 10 í dag vegna réttarhalda út af morðunum 1987 og aðgerðum svonefndra Þriðju- sveita gegn andstæðingum aðskiln- aðarstefnu minnihlutastjómar hvítra manna í Suður-Afríku. „Þegar menn slátra saklausu fólki, þar á meðal sjö börnum sem ekki eru í neinum stjórnmálasam- tökum, presti og safnaðarbörnum hans, vil ég komast að því hvort það var stefna Þjóðarflokksins,“ sagði Mandela. Þjóðarflokkurinn, sem fór með völd í Suður-Afríku og lýtur for- ystu F.W.de Klerk fyrrverandi for- seta, vill að herforingjunum verði veitt bráðabirgða friðhelgi til að komast hjá handtöku. Að sögn Mandela leyfa lög landsins að mönnum verði veitt sakaruppgjöf vegna glæpa sem framdir voru í pólitískum tilgangi. „Hver er pólit- ískur tilgangur þess að myrða sak- laus böm og gamalmenni? Var það stefna Þjóðarflokksins að skjóta á fólk í farþegalestum án þess að menn vissu hverjir þar voru á ferð. Þeir hafa frá ýmsu að segja og það er eðlilegt að réttlætið nái fram að ganga,“ sagði Mandela forseti. Constand Viljoen leiðtogi Frelsisflokksins, samtaka hægri- manna, hætti í gær við áform um að fá hæstaréttinn i Pietermaritz- burg til að setja lögbann til að koma í veg fyrir handtöku Malans og herforingjanna fyrrverandi. Lögðu þeir að honum að hætta við það svo þeir fengju tækifæri til að hreinsa sig af ákæm sem fyrst. Roh kveðst iðrast ROH Tae-woo, forseti Suður- Kóreu á árunum 1988-93, sagð- ist í gær fullur iðrunar yfir því að hafa sankað að sér jafnvirði 654 milljóna dollara í kosn- ingasjóð. I gær kom hann fyrir rannsóknardómara sem munu freista þess að draga stað- reyndir málsins fram í dags- ljósið, hvaðan peningarnir korau, hveijir aðstoðuðu hann við að fela þá og koma þeim undan, og hvar sjóðurinn væri nú niðurkominn. Hefur Roh sagt að jafnvirði 242 milljóna dollara væru enn í hans vörslu en brigður eru bornar á þá tölu. Talið er að hluti sjóðsins sé falinn á leynilegum banka- reikningum í Sviss og hafa suður-kóresk stjórnvöld snúið sér til yfirvalda þar í landi í þeim tilgangi að komast yfir féð. Lubbers og Ellemann- Jensen til Washington Amsterdam, Kaupmannahöfn. Reuter. UFFE Ellemann-Jensen fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur hætti í gær við að hætta við framboð til framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins (NATO) og er á leið til Bandaríkjanna og Kanada vegna málsins í boði þarlendra yfirvalda. Bandaríkjamenn hafa ekki tekið afstöðu til eftirmanns Willy Claes en þó er vitað að þeir hafi ekkert á móti ráðningu Ruuds Lubbers fyrrverandi forsætisráðherra Hol- lands, sem Bretar, Frakkar, ítalir og Þjóðjverjar hafa lýst stuðningi við._ Ólíkt Ellemann-Jensen hefur ekki verið stungið upp á Lubbers i starf framkvæmdastjóra NATO. Hann hélt einnig í gær áleiðis tii Washington til viðræðna við Warren Christopher utanríkisráðherra Bandaríkjanna „um framtíð NATO og samskipti Bandaríkjanna og Evrópuríkjanna." Rússlandsforseti fundar með ráðgjafa Jabloko áfrýjar framboðsbanni til hæstaréttar Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti fékk leyfi til að eiga fund með aðalráð- gjafa sínum, Viktor Iljúshín, í gær en forsetinn verður rúmfastur út vikuna og má ekki fara til vinnu sinnar næstu fimm vikurnar. Umbótaflokkurinn Jabloko áfrýjaði í gær ákvörðun kjörnefndar um að meina honum þátttöku í þingkosn- ingunum í desember til hæstaréttar. Niðurstöðu er að vænta innan þriggja daga. Að sögn Itar-Tass-fréttastofunn- ar ræddu Jeltsín og ráðgjafi hans í klukkustund um innan- og utanríkis- mál og hvernig samskiptum forset- ans og ráðgjafa hans yrði háttað á meðan sjúkrahúsdvöl hans stæði. Heimildarmaður innan Kremlar- múra sagði fund þennan sönnun þess að forsetinn væri nú tekinn til starfa. Iljúshín er fyrsti embættismaður- inn sem fær að hitta Jelteín frá því að forsetinn fékk hjartaáfall sl. fimmtudag. Engar myndir hafa birst af forsetanum, hvorki í blöðum né sjónvarpi. Frestur útrunninn Frestur til að skrá framboð rann út í gær. Alls hafa 35 flokkar verið skráðir fyrir kosningarnar 17. des- ember en flestar kannanir benda til þess að hinn endurreisti kommún- istaflokkur og þjóðernissinnar auki mjög fylgi sitt og fái samanlagt traustan meirihluta á þingi. Ýmsir benda þó á að vegna þess hve völd forsetans séu mikil séu það í reynd forsetakosningarnar á næsta ári sem skipti öllu máli. Leiðtogi Jabloko, umbótasinninn Grígorí Javlínskí, nýtur meira fylgis í skoðanakönnunum en Jeltsín og sama er að segja um þjóðernis- sinnann Alexander Lebed, fyrrver- andi hershöfðingja. Lebed og Viktor Tsjernomýrdín forsætisráðherra, enn einn líklegur forsetaframbjóð- andi, hafa allir fordæmt bannið á Jabloko sem var sakað um tæknilegt brot á lögum.um framboð. Flokki Alexanders Rútskojs, fyrrverandi varaforseta, var einnig meinað að bjóða fram. Þekktur kaupsýslumaður og fyrr- verandi ráðherra á Sovétskeiðinu, Vladímír Sérbakov, hvatti í gær flokkana til að fara að dæmi sam- taka sinna og afsala sér réttinum til þinghelgi. Hann sagði að væntan- legt þing gæti orðið „þjófabæli" ef ekki yrði öllum ráðum beitt til að hindra misindismenn í að komast á þing til að sleppa undan réttvísinni. Sérbakov vitnaði í kjörriefnd sem segði að alls hefðu 80 einstaklingar á sakaskrá verið á framboðslistunum sem lagðir voru fram. Amnesty ásakar yfirvöld í Túnis London. Reuter. SAMTÖKIN Amnesty Intemational skýrðu frá því í gær, að mannrétt- indabrot af hálfu hins opinbera færu vaxandi í Túnis. Amnesty hvatti til þess að pólitísk- ir fangar yrðu látnir lausir í Túnis og handahófskenndum handtökum og pyntingum yrði hætt. Samtökin halda því fram, að of- sóknarherferð stjórnvalda hafí færst í aukana og meðlimir öryggissveita landsins séu friðhelgir gagnvart hegningarlögum. „Beitt er gerræðislegum handtök- um, fangelsunum, pyntingum, illr meðferð og margs konar áreiti í þeim tilgangi að refsa eða þagga niður í pólitískum andstæðingum, fólki sem vogar sér að gagnrýna stjómina og ættingjum þeirra, mannréttindafröm- uðum, blaðamönnum og öðrum,“ sagði í yfirlýsingu Amnesty í gær. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.