Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 15
Morgunblaðið/Einar M. Guðmundsson
N E YÐ ARDKÝLIÐ klætt. Þórð-
ur Guðmundsson, Guðmundur
Agústsson, _ Ragnar Hlöðvers-
son og Ivar Þórðarson.
Yiðgerð á
SVFI-skýli á
Mýrnatanga
Vogum - Nýlega fór fram viðgerð
á neyðarskýli Slysavarnafélags Is-
lands á Mýrnatanga á Mýrdals-
sandi. Það er björgunarsveitin
Skyggnir í Vogum sem hefur með
viðhald og rekstur skýlisins að
gera, en sveitinni var úthlutað
þessu verkefni fljótlega eftir stofn-
un hennar 1992.
Neyðarskýlið á Mýrnatanga er
með eldri neyðarskýlum og er mið-
að við að fara einu sinni á ári til
laga það sem þarf, mála og end-
urnýja neyðarbirgðir. I haust voru
endurnýjaðar klæðningar á tveim-
ur hliðum og skýlið málað að utan
og ný talstöð sett upp.
LANDIÐ
Reglulegar veðurathuganir í Stykkishólmi í eina og hálfa öld
Gömlum upplýs-
ingum komið í
tölvutækt form
Stykkishólmi - Þess var minnst
við hátiðlegga athöfn í Stykkis-
hólmi nýlega að 1. nóvember voru
150 ár liðin síðan Árni Thorlacius
sem hér var kaupmaður hóf
reglubundið að gera veðurmæl-
ingar í Stykkishólmi. Síðan þá
hafa veðurathuganir farið fram
samfellt í Stykkishólmi. Unnið er
að því að koma upplýsingum sem
Arni aflaði í veðurmælingum sín-
um í tölvutækt form.
Samkoman var haldin í Norska
húsinu, en það hús byggði ein-
mitt Árni Thorlacius um 1832.
Trausti Jónsson veðurfræðing-
ur sagði fráfyrstu veðurat-
hugunum á íslandi á 18. og 19.
öld. Má segja að veðurathuganir
séu til allt frá 1779 en ekki sam-
fellt fyrr en Árni hóf sínar mæl-
ingar. Fyrstu tæki til veðurat-
hugana voru n\jög misjöfn og
mismunandi mælikvarðar notað-
ir og því erfitt að gera saman-
burð á veðri frá þessum tíma.
Páll Bergþórsson fyrrum veð-
urstofustjóri gerði grein fyrir
störfum Árna, sem fæddist árið
1802 og leitaði sér menntunar í
Danmörku. Hann stundaði sigl-
ingar á seglskútum milli Noregs
og Danmerkur. Með þessa þekk-
ingu kom hann heim og hafði
mikinn áhuga á að mennta ís-
lenska sjómenn. Hann taldi að
kunnátta á þessu sviði stuðlaði
að auknu öryggi á sjó.
Nákvæmar mælingar og
mikilvægar heimildir
Árni skrifaði kennslubók fyrir
sjómenn en aldrei varð af því að
hún væri gefin út. Þessi áhugi
Árna hefur örugglega orðið til
þess að hann hóf veðurmælingar.
Allar athuganir hans voru ná-
kvæmar og eru mikilvægustu
heimildir um veður á þessum
tíma. Nú er verið að koma þess-
um upplýsingum í tölvutækt
form, sem mun auðvelda allan
aðgang að þeim.
Á samkomunni las Þórhildur
Pálsdóttir úr Ijóðum Sigurðar
Breiðfjörð, en Árni var vinur
hans og velgjörðarmaður. Lárus
Pétursson og Lana Betts léku
saman á gítar og flautu. Sam-
koman var vel sótt og tókst vel.
Eftir að hafa hlustað á þennan
fróðleik geta menn betur gert
sér grein fyrir hversu stórhuga
og framfarasinnaður Árni
Thorlacius var og afrek hans
snerta alla landsmenn enn í dag
og halda á lofti fornri frægð
Stykkishólms.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
NORSKA húsið í Stykkishólmi sem
Árni Thorlacius byggði árið 1832.
TRAUSTI Jónsson fjallaði um veður-
athuganir á íslandi á 18. og 19. öld.
PÁLL Bergþórsson
rakti æviferil Árna.
Til styrktar átakinu höfum við ákveðið að leita til bifreiða-
eigenda með útgáfu á happdrættismiðum þar sem höfðað
er til bílnúmers yðar, og hefur hvert bílnúmer sitt ákveðna
lukkunúmer. Lukkunúmer þetta getur fært yður veglegan
vinning. Með þátttöku og stuðningi yðar getur það leitt til
fækkunar slysa á börnum í umferðinni. Það er vinningurinn
sem við sækumst öll eftir.
Ágæti bifreiðaeigandi, sýnið varúð í akstri. Skólar hafa byrjað
starfsemi sína og ungir vegfarendur eru á ferö í rökkri.
Endurskinsborði er einfalt öryggistæki, hjálpið okkur að láta
Ijós barnanna skína.
Landsátak um velferð barna í umferðinni!
Ágæti bifreiðaeigandi!
„Látum Ijós okkar skína" er landsátak
skátahreyfingarinnar til þess að stulða
að bættri umferðarmenningu. Öll sex ára
börn fá að gjöf veglegan endurskinsborða,
sem þau geta borið yfir öxlina. Sömuleiðir sendum
við fjölskyldum sex ára barna ítalegt rit sem fjallar um
allar helstu hættur sem börn þurfa sérstaklega að varast í
umferðinni, ekki síst í skammdeginu. Tryggjum öryggi barna
í umferðinni.
| ..\ i | i i i \ /.*
Heildarverðmæti vinninga 16.962.000 kr., m.a. :
BMW 520'i/A, 2,0 I DOHC 24 ventla - 6 strokka, 150 DIN hestöfl.
ABS hemlakerfi, hraðatengt vökvastýri, innbyggð þjónustutölva,
fjarstýrðar samlæsingar, 5 þrepa sjálfskipting m/tölvuvali,
rafdrifnar rúður, hiti í sætum og ýmis annar lúxus aukabúðnaður,
40 skíðapakkar frá Skátabúðinni,
20 pakkar frá Japis,
20 myndbandstæki frá Japis,
20 ferðavinningar frá Samvinnuferðum - Landsýn
o.m.fl. - Allir vinningarnir eru skattfrjálsir.
þandsbanki
Islands
Banki nllrn landsmnnna
JAPISS Póst
giro
IVIIÐAVERÐ 789 KR.
789 VinilUIIUGAR