Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýtt listagallerí opnað í Reykjavík Morgunblaðið/Árni Sæberg HREINN Friðfinnsson ásamt tveimur verka sinna í Galleríi Ingólfsstræti 8. Ingólfsstræti 8 í DAG hefur nýr sýningarsalur fyrir myndlist starfsemi í Ingólfs- stræti 8 í Reykjavík; Gallerí Ing- ólfsstræti 8. Svanur Kristbergsson mun sjá um rekstur hans ásamt Eddu Jónsdóttur eiganda hans og skipa þau, ásamt Berki Arnarsyni, sýningarnefnd sem hefur yfirum- sjón með vali á sýnendum. Einnig mun verða leitað til sýningarstjóra til að setja upp einstaka sýningar í framtíðinni. Blaðamaður hitti Svan að máli og ræddi við hann um tilurð og hlutverk salarins. „Þetta er nokkuð sem Eddu er búið að dreyma lengi um að.gera. Það var drifið í þessu núna með frekar litlum fyrirvara eftir að við fréttum af þessu húsnæði hér í Ingólfsstræti 8. Þar var allt í niður- níðslu og við þurftum að leggja mikla vinnu í endurbætur. Þetta hefur allt gerst mjög hratt,“ sagði Svanur. Hann sagði að Edda hefði sótt það fast að hafa hann með sér í framkvæmdinni, ekki hvað síst vegna þess að hann væri í betri tengslum við það sem væri að ger- ast hjá yngri kynslóð listamanna en hún er sjálf vel kunnug kynslóð- inni þar á undan, en hún er mynd- listarmaður sjálf. „Mitt hlutverk verður meira að leita að ungum listamönnum auk þess sem ég mun líta út fyrir landsteinana en við höfum í hyggju að sýna verk er- lendra listamanna í biand við ís- lenska," sagði Svanur. 11-12 sýningar á ári Myndlistarmaðurinn Hreinn Friðfinnsson ríður á vaðið en hann er vel kunnur hér á Iandi sem og víða erlendis en hann hefur mikið að gera við sýningarhald á megin- landi Evrópu og í Skandinavíu að sögn Svans. Hann sagði að þau hefðu ákveðið að byrja á að sýna verk þekktra listamanna til að staðurinn fengi góða athygli strax í upphafi en á eftir Hreini sýnir Ásgerður Búadóttir. Einnig er í deiglunni sýning Ingólfs Arnarson- ar. Búið er að ganga frá sýningu Rögnu Róbertsdóttur næsta sumar sem verður framlag gallerísins til Listahátíðar í Reykjavík. Eins er frágengið að Finninn Pekka Ni- skanen komi hingað til lands í sept- ember á næsta ári og sýni í gallerí- inu. Svanur segir að stefnt sé að u.þ.b. 11-12 sýningum á ári bæði einkasýningum og jafnvel litlum samsýningum. Hann segir að eng- ar línur hafi verið dregnar og allt sé opið á meðan galleríið er að mótast og þau gefi sér rúmt ár í reynslutíma. Þurfa að vinna traust fólks Einkareknir sýningarsalir á höf- uðborgarsvæðinu hafa átt undir högg að sækja. Margir hafa gefist upp á endanum, ekki síst vegna skorts á fjármagni til reksturs. Því liggur beint við að spytja hvort þau séu ekki smeyk um að þetta eigi eftir að reynast erfitt í fram- kvæmd. „Við ætlum að eyða góðum tíma í að búa til einhvern fjárhagslegan grunn. Við þurfum að vinna traust og áhuga fólks, myndlistarmanna og fyrirtækja sem gætu hugsað sér að styrkja starfsemina. Við viljum geta rekið heilt starfsár með einhverskonar bakhjarla sem myndu styrkja okkur og við gerum okkur fullkomlega grein fyrir að við verðum þá eitthvað að hafa til að gefa á móti. Við erum bjartsýn og förum í rauninni ekki af stað með neitt nema bjartsýnina. Draumurinn er sá að fá t.d. 11-12 aðila sem myndu styrkja starfsár- ið, kannski einn á hveija sýningu. Þetta myndi gefa okkur ákveðið öryggisnet og við gætum einbeitt okkur að því að skipuleggja gott starfsár. Þetta er kannski barnsleg bjartsýni en það kemur þá bara í ljós hvemig til tekst.“ sagði Svan- ur að lokum. Sýning Hreins Friðfinnssonar i Galleríi Ingólfsstræti 8 verður opn- uð kl. 17.30 í dag og verður opin frá kl. 14-18 alla daga nema mánu- daga til 26. nóvember. Svanasöngvar Schuberts Morgunblaðið/Ámi Sæberg FRA tónleikunum. TONLtST Borgarleikhúsið LJÓÐATÓNLEIKAR Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson fluttu Schwanenge- sang, ljóðaflokk Schuberts við kvæði eftir Rellstab, Heine og Seidl. Þriðjudagurinn 31. október 1995. SVANASÖNVAR Schuberts voru gefnir út 1829 ári eftir að hann lést. Útgefandinn var Hasling- er, er naut aðstoðar Ferdinands, bróður tónskáldsins, við röðun og val söngvanna. Líklegt er talið að Ferdinand hafi ráðið nafninu á þessu lagasafni. Kristinn og Jónas hafa bætt við einu ljóði eftir Rellstab, Herbst, og þykir þetta fallega lag minna á söngva Mend- elssohns, hvað snertir tærleika en er ef til vill einum of tilfínninga- þrungið fyrir Mendelssohn. Þetta haustljóð var samið í apríl 1828 en ekki gefið út fyrr en 1895, fyrir 100 árum, og þó það eigi vel heima meðal svanasöngva Schuberts og hann sjálfur hafi haft í huga að gefa úr safn söngva við ljóð eftir Rellstab og ætlað haustljóðinu að vera í því safni, þekkja flestir laga- flokkinn án þessa lags. í þessum lagaflokki er að finna lög sem í safni Schuberts teljast ekki með þeim merkari en einnig listaverk, eins og Tvífarinn, sem er líklega eitt magnaðasta söngtónverk sem samið hefur verið og var þetta meistaraverk glæsilega sungið af Kristni. Sama má segja um annað kyrrlátt verk, Myndin hennar, sem er nánast tónles og þeir félagar fluttu af sérstökum innileik. Borgin var glæsilega flutt af Jónasi og í söng Kristins gat að heyra sáran söknuð þess sem hefur glatað því sem honum var kærast. Þau lög sem hér hafa verið talin upp, svo og Atlas og Við hafið, sem bæði eru söngdrama og einnig það yndislega lag Fiskistúlkan, eru öll samin við kvæði eftir Heine og saman mynda þau heisteypta röð söngverka, sem öll eru meistaraverk, er voru öll snilldarlega flutt af Kristni og'Jón- asi. Rellstab söngvarnir, sem með haustljóðinu eru átta að tölu, þykja nokkuð misjafnir að gæðum en frægastir eru Stándchen og Aufent- halt, Standhcen hugljúft sönglag og Aufenthalt glæsilegt söngverk. Þau söngverk er standa næst þess- um tveimur meistaraverkum eru Kriegers Ahnung og In der Ferne. Bókmenntafræðingar telja að Rellstab væri fyrir löngu gleymdur sem ljóðskáld ef Schubert hefði ekki tónsett ljóð hans og benda á til samanburðar, að það er ekki til- viljun að öll söngverk Schuberts við kvæði eftir Heine eru meistaraverk. Flutningur Kristins Sigmunds- sonar á Svanasöng Schuberts er listviðburður og náði hann hámarki í Heine-lögunum, sérstaklega Tvíf- aranum. Jónas Ingimundarson lék af listfengi og er minnisstæður leik- ur hans í Die Stadt. Það er í raun aukaatriði að taka til eitthvað sér- stakt, því samleikur Kristins og Jónasar hefur fengið þá slípun, er byggir á listfengi, löngu samstarfi og samvirkri tilfinningu þeirra fyrir viðfangsefnunum. Sem ljóðasöngv- ari hefur Kristinn Sigmundsson kveðið okkur íslendingum söngva Schuberts af miklum glæsibrag, auk þess að vera eftirsóttur söngv- ari við öll helstu óperuhús heims- ins. Það er því vel við hæfi, að nefna hann listamann og þá er orðið skil- ið sem hástig þess er það merkir. Jón Ásgeirsson „Afangastaður Island“ ___MYNDLIST Norræna húsid LJÓSMYNDIR FRÁ ÍSLANDI Tove Kurtzweil. Opið daglega frá 14-19. Til 12. nóvember. Aðgangur ókeypis. NORRÆNA listabandalagið hef- ur verið með ýmsar framkvæmdir i gangi í tilefni þess, að 50 ár eru liðin frá stofnun samtakanna. Er þetta eins konar uppstokkun og yfirlit yfir stöðuna í norrænni sam- tímalist, en aðalsýningin verður í nýju safni núlista í Kaupmannahöfn í desember á næsta ári. Einn liður framkvæmdanna er sýning á ljósmyndum dönsku lista- konunnar Tove Kúrtzweil í Nor- ræna húsinu, en hún hefur rekið ljósmyndastofu í Kaupmannahöfn frá 1966, jafnframt því að ferðast mikið og gera listrænar myndraðir frá þeim löndum sem hún heimsæk- ir. Það sem fyrir listakonunni vakir, er að draga fram einkenni hvers lands fyrir sig á svart-hvítum Ijós- myndum, þar sem hún leitast við að tengja fortíð við nútíð, tíma og rými, og öfugt. Og þó fortíðin sé ekki sýnileg í mörgum myndanna skynjar skoðandinn hana í hinni sérstöku ljósmyndatækni, sem lista- konan hefur tileinkað sér. Sömu- leiðis er eins og skoðandinn skynji nútíðina þótt myndefnið sé af forn- gildum menjum einvörðungu, því að þá dregur hún fram fyllingu tímans ásamt eyðingunni, sem telst höfuðeinkenni okkar mengaða hnattar. er svo er komið. Halda má fram, að þessar myndir séu tímalausar, og þegar Kurtzweil tekur myndir af Islandi, sem hún hefur einungis flogið yfir áður, er líkast sem maður sé að skoða myndir frá því löngu fyrr á öld- inni, gott ef ekki síðustu öld. Mað- ur skynjar, að landslagið er æva- gamalt og þó er eins og skoðandinn horfi úr nútíð inn í fortíð og með- tekur um leið, að þetta er fersk og sértæk sýn á landið. Enn eitt dæmi þess, að myndlistarmenn hafa stöð- ugt verið að nálgast fortíð- ina í vinnubrögðum sínum undanfarna áratugi, þessa sömu fortíð og fyrrum var úthrópuð en nýtæknin hef- ur gert svo ljóslifandi. Þetta eru snöggtum annars konar myndir en við erum vön að útlendir taki af landinu, og því er ástæða til að skoða þær vandlega, því hér rýnir gerandinn á form, og feg- urð þess í sjálfum sér. Þannig eru sumar mynd- anna ekkert annað en hrein og klár form, sem undirstrikar að hið hlut- vakta hefur óhlutbundnar sjónvísanir, og er hin form- hreina mynd nr 7 vafalítið gleggsta dæmið. Einnig skara hinar byggingar- fræðilegu, konstrúktívu, myndir af rafmagnsmöstr- um nr 9 og 10 þessa myndsýn. Þá hafa myndir nr 11 og 39 furðulegt austurlenzkt svipmót. Þannig voru það formskýrar myndir auk nokk- urra með dulúðugu svipmóti, sem rýninum fannst hafa sterkustu skírskotanirnar til landsins og umhverfisins, jafnframt rýmisins og tímans. Einkum þótti honum kletturinn á gullbrúna grunninum (23), mögnuð og yfirmáta falleg mynd. Bragi Ásgeirssoh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.