Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 45 Sterkasta bridsmót Norðurlanda að hefjast Jón ogSævar full- trúar íslendinga Morgunblaðið/GSH JON og Sævar standa í ströngu í Kaupmannahöfn um helg- ina. A myndinni spila þeir gegn ítölsku Evrópumeisturunum Sementa og Pataccini á Evrópumótinu í Portúgal í sumar. Brids Phocnix Hotcl, Kaupmannahöfn POLITIKEN CUP Mót á vegum Bridssambands Danmerkur og Politiken 2.-5. nóvember STERKSTA bridsmót, sem haldið hefur verið á Norðurlöndum, hefst í dag á Phoenix Hotel í Kaup- mannahöfn. Þetta er 16 para tvímenningur og eru Jón Baldursson og Sævar Þorbjörnsson meðal þátt- takenda. Mótið er kennt við danska dagblaðið Politiken sem stendur fyrir því ásamt danska bridssambandinu. Aðrir þátttakendur eru Omar Sharif og José Damiani frá Frakklandi, Zia Mahmood, Peter Weichsel, Larry Cohen og Dave Berkowitz frá Bandaríkjunum, George Mittelman og Fred Gitelman frá Kanada, Sahtmantu Gose og Jaggy Shivdasani frá Indlandi, Tony Sowter og Dave Kendrik frá Bretlandi, Massimo Lanzarotti og Andrea Buratti frá Ítalíu, Wubbo de Bauer og Bauke Muller frá Hollandi, Geir Helgemo og Tor Helness frá Noregi, Björn Fallenius og Mats Nilsland frá Svíþjóð, Zabina Auken og Daniele von Armin frá Danmörku og Þýskalandi og Jens Auken, Denis Kock-Palmlund, Dorte og Peter Schaltz, H.C. Gravesen, Torben Stetkær, Torvald Aagaard og Morten Jepsen frá Danmörku. Danir héldu um daginn sér- stakt 16 para mót þar sem tvö efstu pörin fengu keppnisrétt á Politiken Cup. Mótið unnu Grav- ersen og Stetkær og þetta var eitt af góðu spilunu þeirra: Vestur Norður Austur Suður Graves. Stetkær 1 lauf pass 1 spaði pass 3 lauf pass 3 hjörtu pass 4 spaðar pass 4 grönd pass 5 hjörtu pass 6 lauf/// Norður ♦ K106 ¥10 ♦ K72 ♦ ÁKD852 Vestur Austur ' ♦ 32 ♦ D75 ¥65 ¥ G8742 ♦ ÁG98543 ♦ 106 ♦ G6 ♦ 973 Suður ♦ ÁG984 ¥ ÁKD93 ♦ D ♦ 104 6 lauf vinnast í svefni en mörg pör spiluðu spaðaslemmu og þar þurfti að finna drottning- una, sem reyndist víða hál. Mótið hefst í dag, fimmtudag og lýkur á sunnudag. Spiluð verða 10 spil á milli para og útreikningurinn er eftir butler- sniði. Jafntefli í viðureign er 50-50 en ef annað parið vinnur leikinn með t.d. 6 impa mun fer viðureignin 56-44. Brids ólympíuíþrótt? Alþjóða Ólympíunefndin ákvað í sumar samþykkti í sum- ar að veita Alþjóðabridssam- bandinu aðild að Olympíuhreyf- ingunni. Þetta var staðfest í bréfi frá Juan Antonio Samar- anch forseta Ólympíunefnd- arinnar til Josés Damianis for- seta Alþjóðabridssambandsins. Þó þetta þýði ekki að keppt verði í brids á Ólympíuleikum í náinni framtíð er um að ræða mikið framfaraskref fyrir brids- hreyfinguna. Og forustumenn Alþjóðabridssambandsins telja líklegt að brids geti orðið sýn- ingaríþrótt á Ölympíuleikum innan fárra ára, en það er for- senda þess að spilið verði síðar viðurkennd keppnisgrein á leik- unum. Þá er Alþjóðabridssambandið að vinna að því að fá brids- kennslu í grunnskólum opinber- lega viðurkennda af UNESCO. Guðm. Sv. Hermannsson FRÉTTIR Ný verslun með vefn- aðar- og gjafavöru HEILDVERSLUNIN Vefur, sem hef- ur verið starfrækt í 8 ár, hefur opnað sérverslun með vefnaðar- og gjafa- vöru í gamla Tofthúsinu á Skóla- vörðustíg 25. Fyrirtækið sérhæfír sig í húsbúnaði fyrir hótel og heimili. Verslunin er á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er áhersla lögð á hús- búnað til heimilisprýði. Þar fást m.a. handofm silkigluggatjaldaefni og bó- mullargluggatjaldaefni frá Frakk- landi, Bandaríkjunum og Bretlandi, góbelín gluggatjaldaefni og púðar, gjafavara, handunnir speglar, lampar og munir úr smíðajámi, ennfremur veggfóður frá breska fyrirtækinu Zoffany. Veggfóðrið er handprentað, en fæst líka vélunnið með áferð sem svigar til handprents. Á efri hæð eru vörur sem henta fyrir stofnanir, t.d. eldvarin glugga- tjaldaefni og áklæði, ennfremur hótel- húsgögn og stólar fyrir aldraða og lasburða. NOKKRIR skartgripa Láru sem verða á sýningunni. Tísku- og skart- ffripasýninff á Hótel Borg MARÍA Lovísa fatahönnuður sýnir sérhannaðan fatnað og Lára gull- smiður kynnir nýja skartgripalínu í Gyllta salnum á Hótel Borg fimmtu- daginn 2. nóvember og hefst sýning- in kl. 21. Hárgreiðslustofan Valhöll sér um hárgreiðslu sýningarstúlknanna, snyrtistofan Guerlain um förðun og blómabúðin Alexandra skreytir svið- ið. Kynnir kvöldsins er Bryndís Schram. Auk- sýningarinnar er boðið upp á létta rétti fyrir sýninguna á 1.690 kr. og vínkynning verður á drykknum blátt áfram. ATRIÐI úr kvikmyndinni Leikreglurnar. Leikreglurnar í Regnboganum í TILEFNI af aldarafmæli kvik- myndasýninga í heiminum eru sýn- ingar á klassískum myndum á hverj- um fimmtudegi í Regnboganum. í kvöld kl. 19 og 21 verða sýningar á Leikreglunum eftir Jean Renoir frá 1939. Þessi samfélagskómedía Renoirs var upphaflegá bönnuð þar sem hún var talin hafa „siðspillandi og mann- skemmandi áhrif“ og var ekki sýnd aftur fyrr en árið 1956. Eins og bestu myndir Renoirs frá franska tímabil- inu eru heimpekilegar hugleiðingar um framtíð mannkynsins teknar fyr- ir í hnotskurn. Leikreglurnar gerast á frönsku óðalssetri þar sem mikil veisla stend- ur yfir. Allar stéttir í frönsku þjóðfé- lagi, frá yfirstétt til betlara, koma fram í veislunni og eru miskunnar- laust krufnar á báeði átakanlegan og bráfyndinn hátt. Ástarflækjur, afbrýðssemi, öfund og undirferli, auk annars mannlegs breyskleika, ei'"' skoðað af hispursleysi og fordóma- leysi til að varpa ljósi á stéttarskipt- ingu í Frakklandi samtímans. ______Brids________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sigríður Möller og Freyja Sveinsdóttir unnu íslandsmót kvenna í tvímenningi 23 pör spiluðu í Islandsmóti kvenna í tvímenningi, sem fram fór um sl. helgi en það er töluverð fækkun frá fyrri árum. Spilaður var barómeter 4 spil á milli para. Mótið var skemmtilegt og spennandi allan tím- ann og pörin sem enduðu í 4 efstu sætunum voru að skiptast á efstu sætunum allan tímann en íslands- meistarar kvenna í tvímenningi 1995 urðu Sigríður Möller og Freyja Sveinsdóttir, Bridsfélagi Kópavogs og voru þær efstar næstum allan seinni hluta keppninnar, þær enduðu með 150 stig. Fast á hæla þeirra komu Gunnlaug Einarsdóttir, Brids- félagi Reykjavíkur og Stefanía Skarphéðinsdóttir, Bridsfélagi Ey- fellinga með 137 stig og í þriðja sæti voru Stefanía Sigurbjörnsdóttir, Bridsfélagi Siglufjarðar og Soffía Guðmundsdóttir, Bridsfélagi Akur- eyrar með 110 stig. í fjórða sæti voru Guðrún Óskarsdóttir, Bridsfé- lagi Breiðfirðinga og Urm Árnadótt- ir, Bridsfélagi Breiðholts með 94 stig. Mótið fór mjög vel fram undir stjórn Jakobs Kristinssonar og Elín Bjarnadóttir, _ framkvæmdastjóri Bridssambands íslands afhenti verð- laun í mótslok. Bridsfélag Reykjavíkur Annað kvöldið í fjögurra kvölda hraðsveitakepgni félagsins var spilað miðvikudaginn 25. október. Meðalskor kvölds er 504 stig. Efstu sveitir voru: A-riðill: Ljósbrá Baldursdóttir 544 Landsbréf 540 BangSímon 532 Björn Eysteinsson 532 VÍB 532 B-riðill: Potomac 592 Jón Stefánsson 560 American Style 544 Héðrnn Schindler hf. 540 Efstu sveitir í mótinu eru: Hjólbarðahöllin 1132 Björn Eysteinsson 1102 VÍB 1092 Búlki hf. 1090 Potomac 1079 Ljósbrá Baldursdóttir 1071 BangSímon 1070 Bridsfélag Sauðárkróks Mánudaginn 30. október lauk fjögurra kvölda barómeter. Spiluð voru forgefin spil með tölvuútreikn- ingi með þátttöku 16 para. Úrslit voru sem hér segir: Jón Örn Bemdsen - Ásgrimur Sigurbjömsson 180 Kristján Blöndal — Birkir Jónsson 153 Eyjólfur Sigurðsson — Skúli Jónsson 84 Halldór Jónsson - Sigurgeir Þórarinsson 55 Norðurlandsmót í sveitakeppni verður haldið á Sauðárkróki dagana 10.-12. nóvember næstkomandi. Spilamennska hefst kl. 17.15 föstu- daginn 10. nóvember og er áætlað að mótinu ljúki kl. 17 sunnudaginn 1H2. nóvember. Spii verða forgefin 9g er reiknað með að árangur para verði reiknaður út skv. Butler- útreikningi. Skráningu þarf að vera lokið fyrir 8. nóvember og skal þátt- töku tilkynna til Kristjáns Blöndal, hs. 453-6146, vs. 453-5630. Ás- gríms Sigurbjörnssonar, hs. 453-5030, vs. 453-5353. Birgis R. Rafnssonar, hs. 453-5032, vs. 453-5300 sem jafnframt veita allar nánari upplýsingar. Keppnisstjóri verður Jakob Kristinsson. Bridsdeild Barðstrendinga Úrsiit í aðaltvímenningi deildarinn- ar: Valdimar Sveinsson - Friðjón Margeirsson 1.558 Jón Stefánsson—Þórir Leifsson 1.478 Ragnar Björnsson - Leifur Jóhannesson 1.477 Óskar Karlsson - Ólafur Bergþórsson 1.45G Stefanía Sigurbjömsd. - Sólveig Róarsd. 1.449 Gísli Víglundsson - Þórarinn Ámason 1.443 Eðvarð Hallgrimss. - Jóhannes Guðmannsson 1.417 Erlingur Arnarson - Pétur Sigurðsson 1.404 Bestu skor í N/S 30. október sl. Óli Björn Gunnarsson - Valdimar Sveinsson 364 Óskar Karlsson - Ólafur Bergþórsson 322 Helgi Sæmundsson - Ólafur A. Jónsson 313 Bestu skor í A/V 30. október sl. Erlingur Amarson - Pétur Sigurðsson 343 Jónína Pálsdóttir - Sigurbjörn Þorgeirsson 310 Jón Stefánsson - Þórir Leifsson 295 Mánudaginn 6. nóvember hefst fimm kvölda hraðsveitakeppni. Spil- að er í Þönglabaþka 1 á mánudags- kvöldum kl. 19.30. Spilastjóri er ísak Örn Sigurðsson. Skráning og upplýsingar hjá BSÍ í síma 587-9360 og hjá Ólafi í s. 557-1374. Þá er hægt að skrá sig á staðnum ef mætt er tímanlega. Bridsdeild Húnvetningafélagsins Þar sem mjög dræm þátttaka hefur verið í vetur hefur deildin ákveðið að hætta starfsemi. Það verður því ekki spilað oftar á mið- vikudagskvöldum hjá deildinni. Vilj- um við bara að endingu þakka öllum samverúna og spilamennskuna á liðnum árum. Stjórn Bridsdeildar Húnvetningafélagsins. Herðir og Malarvinnslan í úrslit bikarkeppni BSA 1995 Eftirtaldar fjórar sveitir spiluðu saman í undanúrslitum Bikarkeppni Bridssambands Austurlands og úr- slit urðu sem hér segir: Árni Hannesson, Homafirði - Malarvinnslan, Egilsstöðum 91:167 Herðir, Egilsstöðum . - Lífeyrissjóður Austurlands, Neskaupstað 163:78 í úrslitum keppa því tvær sveitir af Fljótsdalshéraði; Herðir hf. og Malarvinnslan hf. Úrslitaleikurinn verður háður fyrir lok nóvember og mun hann líklega fara fram á Egils- stöðum eða í Fellahreppi. Bridsfélag Suðurnesja JGP-minningarmótið hófst sl. mánudagskvöld með þátttöku 10 sveita. Spilaðir eru tveir 14 spila leikir á kvöldi og eftir fyrsta kvöld- ið er staða efstu sveita þessi: Guðfinnur KE 39 Arnór Rganarsson 38 Gísli ísleifsson 36 Svala Pálsdóttir 35 Næstu tveir leikir verða nk. mánudagskvöld. Spilað er í Hótel Kristínu í Njarðvíkum og hefst spilamennskan kl. 19.45 stundvís- lega. Bridsfélag Fljótsdalsliéraðs Aðaltvímenningur er hafínn. Staða eftir fyrsta kvöld: Siguijón Stefánsson - Þórarinn V. Sigurðsson 201 Sveinn Herjólfsson - Þorsteinn Bergsson 182 Hallgrimur Bergsson - Oddur Hannesson 175 Guttormur Kristmannss. - Pálmi Kristmannss. 167 Kristján Bjömsson - Þorvaldur Hjarðar 162 Spilað er á mánudagskvöldum ki. 8 í Hótel Valaskjálf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.