Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og hlýjum kveðjum á 80 ára afmœli mínu 28. október. Guð blessi ykkur öll. Óskar Hraundal. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig, 23. október sl., með hlýjum kveðjum og gjöfum. Guð blessi ykkur öll. Sverrir Ormsson, Lyngmóum 20, Garðabæ. Innilegar þakkir fœrum við öllum œttingjum og vinum fyrir ógleymanlegan dag í tilefni af 90 ára afmœlum okkar 14. september og 20. október. Blessun Guðs fylgi ykkur. Helgi Bjarnason og Málfríður Kristjánsdóttir, Boðahlein 6, Garðabæ. Okeypis lögfræðiþjónusta í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, félag laganema. Ábendingar á mjólkuriimbúðum, nr. 13 af 60. Á að sletta úr klaufunum? Það er gaman að velta fyrir sér merkingu og uppruna orðatiltækja. Orðatiltækið „að sletta úr klaufunum" merkir að skemmta sér ærlega og hömlulaust. Líkingin er dregin af þvi þegar nautgripum er sleppt fyrst út á vorin. Þeir verða frelsinu fegnir, hlaupa og stökkva svo að óhreinindi slettast úr klaufunum. MJÓLKURSAMSALAN íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samslarfsverkefni Mjólkursamsölunnar, íslenskrar málnefndar og Málrxktarsjóðs. ÍDAG Með morgunkaffinu ÞETTA er skírnargjöfin frá pabba. Hann er svo mikill sjómaður í sér. Farsi SKAK Umsjón Margeir Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur Staðan kom upp í fyrstu umferð þýsku Bundesligunn- ar í haust. Stórmeistarinn Artúr Júsupov (2.680), Porz, var með hvítt og átti leik, en alþjóðlegi meistarinn H. Teske (2.500), Dresder Sc 18. Rxf7! - Kxf7 19. Hxe6 (Meginhótun hvíts er nú 20. Bxh7. }9. - g6 yrði svarað með 20. d5! - Rc5 21. Hxf6+! og vinnur. Svarta staðan er því töpuð, en Teske flýtti nú fyrir endinum:) 19. - Hb8? 20. Hxf6+! og svartur gafst upp því næsti leikur hvíts verður De6+. Það var mikið skarð höggvið í raðir þýskra skákfélaga þegar meistaralið Bayem Múnchen dró sig út úr Bund- esligunni. Öflugustu félögin nú eru Porz, Solingen og Empor Berlin. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Gæludýr Kettlingur fæst gefins VEGNA kattarofnæmis fæst þriggja mánaða ljúfur fressköttur gefins. Upplýsingar gefur Rósa í síma 554-5305. Týnd kisa ÞRÍLIT læða, hvít, gul og svört, hvarf frá heim- ili sínu, Vallarbraut 23, Seltjamamesi, 15. októ- ber sl. Er ekki með háls- band, en eymamerkt. Þeir sem- vita eitthvað um kisu eru vinsamlega beðnir að láta vita í síma 561-5526 eða hafa sam- band við Kattholt. Kettlingur fæst gefins FJÖGURRA mánaða svartur og hvítur fress- kettlingur, kassavanur og mjög þrifinn, fæst gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 552-5599 frá 9-17. Tapað/fundið Gullúr tapaðist GULLÚR tapaðist sl. sunnudag, líklega við Flyðrugranda eða annars staðar í Vesturbænum. Gyllingin var farin af trekkjaranum. Finnandi vihsamlega hringi í síma 562-0508. Hanskar töpuðust SVARTIR, ullarfóðraðir skinnhanskar töpuðust fyrir tæpum hálfum mánuði. Mögulegir staðir eru bílastæðið við Kringl- una, frá Grímsbæ að Bústaðavegi, niður Grensásveg og niður undir Miklubraut. Finnandi vinsamlega hringi í síma 554-0418. Hjól tapaðist RAUÐBLEIKT og gult 18 gíra, 24 tommu fjalla- hjól tapaðist úr læstri geymslu í Arahólum 4 einhvern tíma síðastliðn- ar tvær vikur. Kannist einhver við að hafa séð þetta hjól er hann vin- samlega beðinn að láta vita í síma 557-7636. ÞESSI börn hafa tekið virkan þátt í hjálparstarfi Aðventista og gengið í hús með bauka og safnað samtals 133.000 krónum. Þau heita Hjörtur Már Helgason, Berglind Rós Davíðsdóttir, Viliijálmur Svansson, Marinó Þorbjarnarson, Arnar Bjarki Kristinsson, Aðalheiður Erla Davíðsdóttir, Berglind Dögg Helgadóttir og Andri Þór Kristinsson. Á myndina vantar Aron Axel Cortes, Jóhannes Geir Krisljánsson og Rebekku Bjarnadóttur. Yíkveiji skrifar... MIKIÐ hefur verið skrifað um reykingar að undanfömu og bent á hinar margvíslegu hættur sem þeim fylgja. Þessi skrif leiddu hugann að smámáli í þessu sam- bandi, sem þó fer mjög í taugar skrifara. Á öðrum enda vindlinga með síu, öðm nafni filter-sígaretta, eru sem sé þessir brúnu tappar, sem ekki eyðast í náttúrunni, eins og þó tób- akið gerir, og eru til mikillar óprýði. _ í raun er það ekkert annað en sóða- skapur að henda hálfbrunnum vindlingum hvar sem er og hvenær sem er. Tyggiggúmí fær iðulega sömu meðferð hjá neytendum og er reyndar mun verra. Þessar gúmmí- klessur lenda síðan undir skóm manna og geta borist inn á gólf og teppi. í besta falli fletjast þær út til dæmis á gangstéttum til lítils sóma fyrir þá sem nota tyggjóið. Oft hefur skrifari séð fólk kasta frá sér sígarettustubbum eða spýta út úr sér tyggjóklessum jafnvel þótt þar til gerðar hirslur, svokall- aðir öskubakkar, séu innan seiling- ar. Og ef ekki, þá eru til sérstakir stubbabaukar, sem eru handhægir og duga undir hvoru tveggja, tóbak og tyggigúmí. Er full ástæða til að hvetja þá sem reykja og tyggja til að verða sér úti um stubbabauka og hafa þá jafnan við höndina. Og nota þá! xxx LESANDI sem skrifari ræddi við í vikunni sagði honum sögu af samskiptum sínum við Póst og síma. Sagðist hún hafa hringt í stofnunina til að kvarta yfir því hve seint póstur væri borinn út í ónefnda götu í miðborginni. Maður- inn sem varð fyrir svörum hjá Póst- inum var vægast sagt önugur er hann heyrði erindið, spurði hvort pósturinn bærist ekki, hvort það væri ekki aðalatriðið. Síðan talaði hann um veikindi starfsmanna að undanförnu og er viðmælandinn spurði hvort ekki væri hægt að gera ráðstafanir vegna veikinda eins og annars stað- ar, varð maðurinn enn styggari. Samtalið endaði á því að hinn opin- beri starfsmaður sagði við neytand- ann að hann skyldi bara snúa sér til ráðherra með kvörtunina. Konan sagðist velta því fyrir sér hvort þetta væru svör sem væru við hæfí. KUNNINGI skrifara gerði sér dagamun á vetrardaginn fyrsta og brá sér á villibráðarkvöld á Hótel Loftleiðum. Hinir fjöl- breyttú réttir sem bornir voru fram voru gómsætir, einnig var boðið upp á góða skemmtikrafta; Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg skemmtu með hugljúfum söng. Það sem hins vegar setti skugga á kvöldstundina var hópur fólks, sem kunni ekki mannasiði. Skvaldur frá fólkinu var óþolandi og þá sér- staklega þegar Anna og Aðalsteinn gengu á milli borða, til að syngja fyrir gesti. Er þau nálguðust borðið þar sem hávaðaseggirnir voru, hækkaði fólkið róminn til að yfir- gnæfa söngvarana, þannig að erfitt var að hlusta á góðan söng þeirra og boðskap. Áðurnefndur hópur sýndi skemmtikröftunum og öðrum gestum fádæma ókurteisi. Væri ekki tilvalið fyrir hótelið að vera með sérherbergi, ekki borð, fyrir gesti sem virðast halda að þeir séu einir í heiminum, þannig að fólk sem ætlar að gera sér ánægjulega kvöldstund, fái að vera í friði fyrir óþolandi skvaldri og yfirgangi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.