Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Endurskoð- endur Lloyd’s dæmdir ábyrgir Viðræðurnar um frið í Bosníu hafnar í Bandaríkjunum Reuter LEIÐTOGAR samninganefnda deiluaðila í Bosníu komu í gær til Dayton í Ohio. Á vinstri mynd- inni er Haris Silajdzic forsætisráðherra stjórnarinnar í Sarajevo og til hægri Slobodan Milosevic forseti Serbíu. Hafa ferðafrelsi inn- an herstöðvarinnar Dayton. Reuter. VIÐRÆÐURNAR um frið í Bosníu fara fram í Wright-Patterson-her- stöðinni í Dayton í Ohio, stærstu bækistöð bandaríska flughersins. Munu samningamenn þjóðanna, sem borist háfa á banaspjót í Bosníu, koma saman á Hope Hotel og þar munu þeir reyna að friðmælast í herbergi, sem heitir eftir risaflug- virkinu B-29. Þeir geta farið um alla herstöðina að vild en heldur ekki lengra. „Það má alls ekki skilja það svo, að þeir verði í einhveiju stofufang- elsi,“ sagði bandarískur embættis- maður en herstöðin var valin með það í huga, að þar mætti „endur- skapa stemmninguna", sem ríkti í Camp David þegar fyrstu samning- amir um frið í Miðausturlöndum voru undirritaðir. Þar er heldur eng- in hætta á átroðningi óviðkomandi manna og fréttamönnum verður ekki hleypt inn fyrir hliðið fyrr en frá einhverju verður að segja. Wright-Patterson-herstöðin er rúmlega 3.600 hektarar og samn- ingamennimir geta notfært sér alla þá aðstöðu, sem þar er að finna, tvo golfveili, veitingahús og fleira. Þeim verður hins vegar ekki leyft að yfir- gefa herstöðina nema alfamir. Þrír túlkar fyrir sömu tunguna Þegar Warren Christopher setti viðræðumar með ræðu í gær var hún samstundis þýdd yfir á frönsku og rússnesku og auk þess vom þrír aðrir túlkar að störfum. Þýddi einn yfir á bosnísku, annar á króatísku og sá þriðji á serbnesku. Gefur þetta nokkra innsýn í deilumar í Júgóslav- íu því að í raun er um eitt og sama málið að ræða, serbó-króatísku. Eins o g margoft hefur komið fram ber mikið á milli deiluaðilja og þess vegna hefur verið ákveðið, að samn- inganefndimar hittist ekki augliti til auglitis til að byija með. Þess í stað munu þeir Richard Holbrooke, sátta- semjari Bandaríkjastjórnar, og Carl Bildt, starfsbróðir hans hjá Evrópu- sambandinu, bera orð á milli og reyna að fá menn til að binda enda á mesta blóðbað í Evrópu frá lokum siðari heimsstyijaldar. Óljóst er hversu langan tíma viðræðurnar geta varað en búist er við að þær standi a.m.k. í nokkrar vikur. Ætl- unin er að reyna til þrautar að leysa Bosníu-deiluna. Holbrooke sagði að Christopher myndi leggja 10 kafla friðaráætlun fyrir samninganefnd- imar en útskýrði ekki nánar í hveiju tillögumar væru fólgnar. Megin viðfangsefni samningavið- ræðnanna er að draga svæðamörk svo svarnir óvinir, múslimar annars vegar og Bosníu-Serbar hins vegar, geti lifað í sátt í sambandsríki. Ann- að deiluefni sem reynt verður að leysa við samningaborðið er hvort hægt verður að sameina Austur-Sla- voníu Króatíu með friðsamlegum hætti. Hafa Króatar hótað að gera það með hervaldi takist samningar ekki. Leiðtogar margra kirkjudeilda og annarra safnaða hafa einnig skorað á fólk í Dayton og öðrum bæjum í nágrenni herstöðvarinnar að biðjast fyrir og fasta í von um viðræðurnar beri góðan árangur. London. Reuter. STÓRUM hópi fjárfesta á trygg- ingamarkaði fyrirtækisins Lloyd’s í London voru á mánudag dæmdar háar skaðabætur vegna vanrækslu endurskoðenda tryggingasamtaka 'innan Lloyd’s, sem rekin voru með tapi. Dómurinn gæti haft í för með sér að fjárfestarnir, eða ábyrgðamenn- irnir, sem kaliaðir eru „nöfnin", gætu fengið allt að 300 milljónir sterlingspunda (30 milljarða ísl. kr.) í skaðabætur. Fé fjárfestanna var veitt í Merrett tryggingasamtök 418, en ábyrgðaraðili og endurskoðandi þeirra var fyrirtækið Ernst & Whinn- ey, sem nú heitir Ernst & Young. Fyrirtækið hyggst áfrýja þessum skaðabótaúrskurði. Fundnir sekir um vanrækslu Ýmsir aðrir hópar fjárfesta hafa íhugað að leita réttar síns gegn end- urskoðendum hjá Lloyd’s, en þetta er fyrsta stórmálið þar sem endur- skoðendur hafa verið fundnir sekir um vanrækslu og má líta á það sem prófmál. „Þetta er sláandi sigur. Ég held að við hefðum ekki fengið betri nið- urstöðu, þótt við hefðum skrifað dóminn sjálfír,” sagði John Mays, formaður félags fjárfesta í Merrett tryggingasamtökum 418, á blaða- mannafundi. Um tvö þúsund manns London. Reuter. ÁRIÐ, sem nú er að líða, er það hlýj- asta í Bretlandi frá því mælingar hófust fyrir 300 árum. Telja sumir vísindamenn það vera ákveðna vís- bendingu um gróðurhúsaáhrifin svo- kölluðu og að veður fari hlýnandi. Á tólf mánaða tímabili frá 1. nóv- ember á síðasta ári hefur meðalhitinn verið 11,2 gráður á celsíus og hefur aldrei verið meiri frá því mælingar hófust árið 1659. „Ég tel, að þetta fari langt með eru í félagi fjárfesta í Merrett. Fjár- festarnir ieggja til fé og meðan allt leikur í lyndi fá þeir ríflegar rentur. En fjárfestarnir bera einnig ábyrgð og hafa í raun lagt allar sínar eigur að veði fyrir fjárfestingu sinni þann- ig að kröfum á hendur trygginga- samtökunum er vísað til þeirra. Oft geta fjárfestar tapað fé árum saman vegna langtímakrafna um skaða- bætur. Helsta ástæðan fyrir tapinu, sem málaferlin gegn endurskoðendum Merrett tryggingasamtaka 418 snú- ast um, var kröfur um skaðabætur vegna asbest-eitrunar og mengunar- mála í Bandaríkjunum. Þessar kröf- ur eru ein af meginástæðunum fyrir átta milljarða punda (808 milljarða ísl. kr.) tapi Lloyd’s frá árinu 1988. Um 30 þúsund fjárfestar eru hjá Lloyd’s og helmingur þeirra hefur leitað réttar síns til að ná aftur féj sem hefur tapast á undanförnum árum vegna bæði skaðabótamála og meintrar óstjórnar. Lloyd’s er að reyna að binda enda á málaferlin með samningum og hyggjast öngla saman 2,8 milljörð- um punda (283 milljörðum ísl. kr.) til að bæta fjárfestunum tap þeirra. Urskurðurinn í gær mun auka þrýst- inginn á endurskoðendur um að leggja sitt af mörkum til þeirrar upphæðar. að sanna kenninguna um gróður- húsaáhrifin," segir David Llewellyn- Jones, prófessor við háskólann í Leic- ester, og Malcolm Brooks, sem starf- ar við Hadley-rannsóknastöðina í loftslagsfræðum, segir niðurstöðuna styðja spár um, að þetta ár, 1995, verði þáð hlýjasta um heim allan frá því athuganir hófust. „Flestir sérfræðingar eru sammála um, að lofthiti fari hækkandi um alla jörð,“ sagði hann. Bretland Mestu hlýindi í 300 ár Millifært á reikninga. ® Peningaúttektir. - Fengið yfirlit. Þú getur lagt inn á innlánsreikninga í sparisjóðnum. NYJUNG Ql^yjlSSiU&fiulÍEuU jNYJI Nú getur þú lagt inn og greitt reikninga • Ag» SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR Reykjavxkurvegi 66 Strandgötu 8-10 $ SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK Tjarnargötu 12, Keflavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.