Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
J
FRÉTTIR
Tvö fágæt skildingabréf á uppboði hjá Northland Auctions í Bandaríkjunum
Lágmarksboð 2
milljónir á bréf
'yt f
/é'S?'-sr
/.V' T, /i
\ • • u - ;
.v/
'5 \
/.
. ' />
.y' ■
x /■ ,
Z7 ,// *
^ j s
SKILDINGABRÉFIN tvö frá 1874, sem seld verða á uppboði í
Bandaríkjunum, eru í nyög góðu ásigkomulagi og sérstaklega
þykir efra bréfið á myndinni eftirsóknarvert.
TVÖ skildingabréf verða seld á
uppboði hjá Northland Auctions
uppboðsfyrirtækinu í New York-
fylki 18. nóv-
ember næst-
komandi, og er
hvort þeirra
metið á um
tvær milljónir
króna sem lág-
marksboð. Inn-
an við 20 skild-
ingabréf eru á
Roger A. frjálsum mark-
.wanson aði í heiminum
og er afar sjaldgæft að þau séu
boðin til kaups að sögn Magna
R. Magnússonar kaupmanns.
Skildingabréfin eru frá árinu
1874 og er annað þeirra stílað á
Lefolii í Kaupmannahöfn en hitt
á Einar Hálfdánarson snikkara á
Hvítanesi í ísafjarðarsýslu. Á
öðru bréfinu er rautt fjögurra
skildinga póstfrímerki en brúnt
átta skildinga merki á hinu.
Mikil verðmæti
Bréfin koma úr dánarbúi Ro-
gers A. Swansons sem sýndi hér
á samnorrænum frímerkjasýn-
ingurn, meðal annars i Laugar-
dalshöll árið 1983, ogfékk fjór-
um sinnum gullverðlaun fyrir
safn sitt, meðal annars í Stokk-
hólmi 1986. Swanson keypti ann-
að bréfið á uppboði hjá Postiljon-
en í Svíþjóð fyrir um áratug.
Swanson lést árið 1988, á sex-
tugasta og áttunda aldursári.
Hann var einn stofnenda Nor-
ræna safnafélagsins (Scandina-
vian Collectors Club) í Bandaríly-
unum og var fyrsti formaður
þess frá 1960-62. Swanson safn-
aði ennfremur íslenskum landa-
kortum og heimsótti ísland
nokkrum sinnum.
Swanson átti gott safn ís-
lenskra frímerkja og auk skild-
ingabréfanna verður selt á upp-
boðinu meira en tugur sk. aura-
bréfa sem tóku við af skildinga-
bréfunum og mikið af öðrum frí-
merkjum íslenskum, mörg hver
einstök í sinni röð, t.a.m. fíntökk-
uð fjórblokk með grænum fjög-
urra skildinga þjónustufrímerkj-
um frá 1873, en aðeins er vitað
um tvö eintök í heiminum.
Lágmarksboð fyrir blokkina
er um 650 þúsund krónur, en
algeng lágmarksboð á uppboðinu
fyrir íslensku frímerkin eru á
milli 130 þúsund krónur og 450
þúsund krónur.
í uppboðsskrá Northland
Auctions, sem er litprentuð og
yfir 100 blaðsíður að lengd, þar
af um helmingur helgaður ís-
lenskum frímerkjum Swansons,
kemur fram að fyrirtækið hefur
á síðastliðnum tveimur árum selt
hluta af safni Swansons fyrir
metfé, en nú sé á boðstólum há
tindur safnsins; islensk frímerki
frá 1873-1897. Skildingabréfin
tvö eru merkt sérstaklega í upp-
boðsskránni, auk þess sem birt
er heilsíðumynd af þeim, og er
annað sagt einstaklega sjaldgæft
og í afbragðs ásigkomulagi en
hitt afar fágætt.
„Það er mjög sjaldgæft að
skildingabréf komi á markaðinn.
Eitt var selt í Sviss fyrir um
tveimur árum á 3,5 milljónir
króna. Innan við 20 bréf eru á
frjálsum markaði í heiminum, en
einhverjir tugir eru til í Þjóð-
skjalasafninu, Þjóðminjasafninu
og Póstminjasafninu," segir
Magni. Hann kveðst telja annað
skildingabréfið mjög vel farið og
fallegt ásýndum. Hitt sé lakara,
en þrátt fyrir það telji hann ásett
lágmarksboð afar sanngjörn.
Sigurður R. Pétursson, for-
maður Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara, segir að dýr-
asta einstaka skildingabréf sem
boðið hafi verið til kaups, sé svo
kallað biblíubréf, skildingabréf
sem sett var á uppboð í Sviss
árið 1983. Lágmarksboð var 300
þúsund svissneskir frankar, en
það seldist ekki á því uppboði.
Hins vegar hafi verið getgátur
um að bréfið hafi verið selt eftir
uppboðið án þess að það kæmi
opinberlega fram.
Áhugi hérlendis
Magni segir hugsanlegt að til
séu nægilega fjársterkir kaup-
endur hérlendis til að festa kaup
á bréfunum, að minnsta kosti sé
ljóst að ríkur áhugi sé fyrir
hendi. „Ekkja Swansons hefur
áður selt nokkra hluti úr safni
hans á uppboðum, en nú eru rús-
ínurnar í pylsuendanum að koma
fram,“ segir Magni.
Flugnmferðar-
stjórar hjá ríkis-
sáttasemjara
Farið
yfir stöðu
mála
EFNT var til fundar í gær á
milli Félags íslenskra flugum-
ferðarstjóra og viðsemjenda
þeirra hjá ríkinu í gær í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara. Þor-
leifur Bjömsson formaður FÍF
segir að á fundinum hafí verið
farið yfír stöðu mála, en ekki
hafí þokast í samkomulagsátt.
Ákveðið var að næsti fundur
deiluaðila verði haldinn næsta
mánudag.
Þorleifur segir að mikið beri
á milli aðila en menn séu að
þreifa fyrir sér. Boðað var til
fundarins á mánudag, sama dag
og spurðist út að 80 íslenskir
flugumferðarstjórar auglýstu
eftir starfí í fagtímaritinu Flight.
Þorleifur kveðst ekki vilja tengja
fundarboðið rið auglýsinguna,
en ljóst sé að tveir mánuðir séu
eftir af uppsagnarfresti flugum-
ferðarstjóra og vel geti verið að
viðsemjendur þeirra ætli að nýta
þann tíma vel til að ganga frá
málum þannig að niðurstaða
náist.
Ein fyrirspurn komin
Hann segir að ein fyrirspum
hafi borist í gær vegna auglýs-
ingarinnar í Flight og hann eigi
von á fleirum miðað við að svo
skjótt var brugðist við auglýs-
ingunni. „Ég veit að skortur er
á flugumferðarstjórum víða um
heim og er bjartsýnn á árang-
ur, þótt of snemmt sé að segja
til um hvað gerist," segir hann.
Hann kveðst vart búast við
að lagt verði fram tilboð á
næsta fundi, en þar verði reynt
að búa til vinnuáætlun fyrir
áframhaldandi samningavið-
ræður.
Sameining sveitarfélaga á Vestfjörðum
Óvissa um at-
kvæðagreiðslu
ísafirði. Morgunblaðið.
SAMSTARFSNEFND um sameiningu sveitarfélága á Vestfjörðum kem-
ur að öllum líkindum saman til fundar um helgina. Hugsanlegt er að
tekin verði ákvörðun á fundinum um að fresta atkvæðagreiðslu um
sameiningu sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum, en fyrirhugað
var að hún færi fram 11. nóvember nk.
Áformað hafði verið að kynna
fyrirliggjandi tillögur um samein-
ingu sveitarfélaganna fyrir íbúum
um síðustu helgi, en kynningin
féll niður vegna veðurs og náttúru-
hamfaranna á Flateyri..
Þorsteinn Jóhannesson, formað-
ur samstarfsnefndarinnar, sagðist
líta svo á að það væri fyrst og
fremst undir Flateyringum komið
hvort atkvæðagreiðslunni yrði
frestað eða ekki. Ef fresta þyrfti
atkvæðagreiðslunni gæti hún lík-
lega ekki farið fram fyrr en eftir
áramót.
Frumvarp um
sérreglur í kosningunni
Félagsmálaráðherra hefur lagt
fram lagafrumvarp á Alþingi um
að sérstakar reglur gildi um al-
menna atkvæðagreiðslu um sam-
einingu sex sveitarfélaga á Vest-
fjörðum, sem halda á 11. nóvem-
ber.
Samkvæmt frumvarpinu er gert
ráð fyrir að ef tillaga samstarfs-
nefndar um sameiningu sveitarfé-
laganna sex hljóti ekki samþykki
í þeim öllum en fái þó meirihluta
greiddra atkvæða í að minnsta
kosti þeirra, og í þeim sveitarfé-
lögum búi a.m.k. % íbúa á svæð-
inu, sé viðkomandi sveitarstjórnum
heimilt að ákveða sameiningu
þeirra sveitarfélaga sem samþykkt
hafa sameininguna.
Um er að ræða ísafjarðarkaup-
stað, Flateyrarhrepp, Mosvalla-
hrepp, Mýrahrepp, Suðureyrar-
hrepp og Þingeyrarhrepp. Fram
kemur að frumvarpið sé flutt að
frumkvæði samstarfsnefndarinnar
um sameiningu hreppanna.
Nefndin er sammála um nauðsyn
þess að sameina þessi sveitarfélög
en telur að sá möguleiki sé fyrir
hendi að Mar eins eða tveggja
sveitarfélaga geti fellt tillögu
nefndarinnar. Að óbreyttum lögum
verði þá að hefja nýja tillögugerð
og efna til nýrra kosninga.
Frumvarpið snýst um að bæta
við sveitarstjómarlög bráðabirgða-
ákvæði sem gildi aðeins um um-
rædda kosningu.
Klippt af o g
kippt í lag
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
staðið I ströngu nú í vikunni við
að hafa uppi á bifreiðum, sem
ekki hafa verið skoðaðar, eða eig-
endur þeirratrassað mál á annan
hátt. Frá hádegi á þriðjudag fram
á hádegi í gær fuku númer af um
200 bílum. Eigendur höfðu
„gleymt“ að færa þá til aðalskoð-
unar, eða látið endurskoðun drag-
ast of lengi, bifreiðágjöldin höfðu
ekki verið greidd eða iðgjald lög-
boðinna trygginga. Því máttu
þeir sjá á eftir númerunum og
var nóg að gera þjá bifreiðaskoð-
unarmönnum, þegar fólk flykkt-
ist til þeirra að kippa málum í lag.
Morgunblaðið/Kristinn
Framkvæmdir á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflug-velli
Ný matvörubúð byggð
FYRIRHUGAÐAR framkvæmdir á
vegum vamarliðsins á næsta ári em
fyrst og fremst fólgnar í viðhaldi,
en að auki er gert ráð fyrir að byggð
verði ný verslun við matvörumarkað
á Keílavíkurflugvelli og verður varið
til þess 10 milljónum bandaríkjadala
á næsta ári eða tæplega 650 milljón-
um íslenskra króna, samkvæmt upp-
lýsingum vamarmálaskrifstofu ut-
anríkisráðuneytisins.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir á vegum vamarliðsins á
árinu 1996 nemi 48 milljónum
bandaríkjadala, sem er um 5% sam-
dráttur frá árinu í ár, en meiri fram-
kvæmdiren bæði árin 1993 og 1994.
Að auki er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir á vegum Mannvirkjasjóðs
Atlantshafsbandalagsins hér á landi
á næsta ári nemi 20-25 milljónum
bandaríkjadala, þannig að saman-
lagt verða framkvæmdir hér á landi
talsvert meiri á næsta ári en verið
hefur.
Fimm verkefni á vegum
Mannvirkjasjóðsins
Verkefni á vegum Mannvirkja-
sjóðsins eru fímm talsins. Stærst
þeirra er viðgerð á flugskýli fyrir
Orion P-3 kafbátaleitarflugvélamar.
Reiknað er með kostnaður sé á bil-
inu 20-25 milljónir bandaríkjadala
og um helmingur verkefnanna komi
til framkvæmda á næsta ári. Þá er
einnig fyrirhugað að skipta um yfír-
borð á biðhlöðum tveggja flugbrauta
og viðgerð á bryggju í Hvalfírði.
Samanlagt er áætlað að útgjöld
vegna þessara verkefna séu á bilinu
2,5-4,5 milljónir bandaríkjadala.
Efnt verður til útboðs vegna verk-
efna á vegum Mannvirkjasjóðsins
en af 23 verkefnum á vegum vam-
arliðsins munu Aðalverktakar vinna
14 og Keflavíkurverktakar 9.
)
I
i
\
i
i
i
l
i
i
I
I
I
t
í
I
I
I
I
I
.
.