Morgunblaðið - 02.11.1995, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti byggir fjölbýlishús á Höepfnersvæði
Verði fokhelt fyrir áramót
HÚSNÆÐISSAMVINNUFÉLAGIÐ Búseti hef-
ur fengið vilyrði fyrir lóð undir sex íbúða fjölbýl-
ishús að Hafnarstræti 24, á svokölluðu Höepfn-
ersvæði. Heimir Ingimarsson, framkvæmdastjóri
Búseta, segist ekki eiga von á öðru en að stað-
ið verði við þau fyrirheit og vonast til að hægt
verði að hefja framkvæmdir bráðlega.
„Við munum óska eftir endanlegri úthlutun
lóðarinnar á næsta byggingarnefndarfundi og
jafnframt leggja fram fullbúnar teikningar að
þessu húsi. Húsið sem er á tveimur hæðum,
verður byggt úr einangrunarkubbum og við
stefnum að því að gera það fokheit fyrir ára-
mót,“ segir Heimir.
Margar fyrirspurnir
íbúðir í Búsetakerfinu eru ekki seldar heldur
leigðar en þeir sem fá úhlutað íbúðum greiða
10% af byggingarverðinu og hljóta þannig bú-
seturétt. Sú upphæð er svo endurgreidd með
fullum verðbótum, kjósi viðkomandi að fara úr
íbúðinni og ganga út úr þessu kerfi.
„Við höfum ekki kynnt þessar nýju íbúðir sem
valkost ennþá og ætlum að bíða aðeins með
það. Okkur berast hins vegar margar fyrirspurn-
Ödýrasti kosturinn í fé-
lagslega kerfinu að mati
framkvæmdastj órans
ir og það er langur biðlisti frá fyrri úthlutunum
á árinu. Þær umsóknir þurfa félagsmenn að
endurnýja en einnig eiga nýir félagar rétt á að
sækja um þegar þar að kemur.“
Félagið byggir sjálft
I þessu húsi verða 2 tveggja herbergja íbúðir,
2 þriggja herbergja íbúðir og 2 fjögurra her-
bergja íbúðir og segist Heimir ekki í nokkrum
vafa um mikinn áhuga félagsmanna á þeim.
Framkvæmdir verða ekki boðnar út, heldur mun
félagið standa sjálft að byggingu hússins og er
stefnt er því að íbúðirnar verði fullbúnar haust-
ið 1996.
Lánsheimildin liggnr fyrir
„Við erum nokkuð óhress með að þama var
auglýst aðalskipulagsbreyting en ekki deiliskipu-
lagsbreyting en það tafði málið talsvert. Sótt var
um lóðina í maí í vor en það er ekki fyrr en eftir
25. október sl. að það liggur ljóst fyrir að heim-
ilt verður að byggja hús af þessu tagi þama.
Við eram með lánsheimildina í höndunum og vild-
um koma þessu í gang rniklu fyrr. Þarna er ver-
ið að tala um framkvæmd upp á 40-50 milljónir
króna, sem hlýtur að skipta máli fyrir byggingar-
iðnaðinn í bænum. Við reynum að vinna upp
þann tíma sem við höfum misst og ég vona að
húsið verði komið upp áður en veturinn skellur
á okkur af fullum þunga,“ segir Heimir.
Ódýrasti húsnæðiskosturinn
Félagsnúmer í Búseta era í kringum 330 en
fullgildir félagsmenn eru rétt í kringum 300 og
þar af situr 31 í Búsetaíbúðum nú þegar. Þegar
kemur að úthlutun íbúðar ræður félagsnúmer
fyrst og fremst, í öðru lagi tekju- og eignastaða
og þá þarf fjölskyldustærð-að falla að íbúðar-
stærð, samkvæmt reglum Húsnæðisstofnunar.
„Þetta kerfi er að ryðja sér til rúms og við
teljum þetta besta húsnæðiskostinn í dag. Við
erum að bjóða ódýrasta kostinn í félagslega
kerfinu þrátt fyrir að Akureyrarbær borgi ekki
húsaleigubætur," segir Heimir Ingimarsson.
KFUM og K
Kristni-
boði frá
Kenýa
KJARTAN Jónsson kristni-
boði verður á Akureyri á veg-
um KFUM og K um helgina.
Af því tilefni verður sam-
komuátak í Sunnuhh'ð og
verða samkomur með honum
á föstudag, laugardag og
sunnudag og hefjast þær allar
kl. 20.30. Kjartan hefur und-
anfarin ár starfað sem
kristniboði í Kenýa og hefur
hann frá mörgu að segja.
Allir eru velkomnir að taka
þátt í samkomunum.
■40A,
Morgunblaðið/Kristján
FJÓRIR af togurum Mecklenburger Hochseefischerei verða bundnir við bryggju á Akureyri fram
yfir áramót. Þeir eru enginn smásmíði eða um 62 metrar að lengd. Togarinn Fornax er þegar
kominn til Akureyrar en von er á hinum þremur seinni partinn í nóvember.
nninaarverði!
Vib bjóbum nú þessar glæsilegu og vöndubu ryksugur
frá einum stærsta og virtasta framleibanda Þýskalands
á sérstöku kynningarverbi.
EIO ryksugurnar eru
tæknilega fullkomnar,
lágveerar, með
stillanlegum sogkrafti
og mikrófilterkerfi.
sem hreinsar burt
smæstu rykagnir.
| • ■ ■ ItTllllllluwi »VI u >»>• w • • -m
Glæsilegar ryksugur » ' ’ *
glæsilegum litum. \ ega fcr- 9.405 stgr.
meb 6 földu míkrófilterkerfi.
Kynningarverb kr. 14.700
eba kr. 13.965_ stgr.
Soghausinn er á hjólum, svo
þab er leikandi létt ab
ryksuga!
PREMIER 1300W
meb 5 földu míkrófilterkerfi.
Kynningarverb kr. 9.900
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28 -Er 562 2901 og 562 2900
Sjö togarar bundnir
við bryggju
FLEST bendir til þess að sjö stór-
ir togarar verði bundnir við
bryggju á Akureyri fram eftir
vetri, fjórir togarar Mecklenbur-
ger Hochseefischerei, tveir tog-
arar ÚA og Hágangur I.
í framhaldi af beiðni frá Meck-
lenburger um viðlegu fyrir fjóra
af togurum félagsins, hefur hafn-
arstjórn Akureyrar samþykkt að
fara í umtalsverðar framkvæmdir
í rafmagnsmálum á Torfunefs-
bryggju og verður það verk boðið
út á næstunni. A móti fær höfnin
tekjur af togurunum meðan þeir
Iiggja við bryggju.
Togarar Mecklenburger munu
liggja við slippkantinn og Torfu-
nefsbryggju en reiknað er með
að unnið verði við endurbætur á
þeim hjá Slippstöðinni/Odda hf. í
vetur.
Fyrsti Mecklenburgertogarinn
er þegar kominn til Akureyrar og
liggur hann við Iandfestar í Fiski-
höfninni. Von er á hinum þremur
seinni partinn í nóvember. Þá er
gert ráð fyrir að fyrsti togarinn
fari aftur frá Akureyri í janúar
og hinir þrír eitthvað seinna.
Svalbakur EA, togari ÚA, ligg-
ur við Torfunefsbryggju og á
næstunni er reiknað með að Hrím-
bakur EA leggist við hlið hans
þar. Hrímbakur er í sínum síðasta
túr fyrir ÚA en báðir togararnir
eru til sölu.
Hágangur I, sem er eigu Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf. og
Úthafs hf.á Vopnafirði og skráður
í Belize, hefur legið lengi í Fiski-
höfninni og er ekki annað vitað
en að togarinn verði áfram bund-
inn við bryggju á Akureyri.
Þriðja tilboðið á leiðinni
ÞRIÐJA tilboðið í loðnuverksmiðj-
una Krcssanes á Akureyri verður
að líkindum lagt fram eftir helgi.
Aður hafa forsvarsmenn fóðurverk-
smiðjunnar Laxár á Akureyri og
Þórarinn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar,
auk fleiri aðila lýst yflr áhuga á að
kaupa hlut Akureyrarbæjar í verk-
smiðjunní og átt óformlegar viðræð-
ur um málið við bæjarstjóra,
Oddur H. Halldórsson, sem ásamt
hópi manna úr atvinnulífinu á Akur-
eyri og einnig utan bæjarins, sem
reynslu hafa á þessu sviði, hafa síð-
ustu daga verið að skoða möguleika
á að bjóða í hlutabréf bæjarins og
sagði hann miklar líkur á að tilboð
yrði Iagt fram strax eftir helgi. „Það
kæmi á óvart ef við myndum ekki
bjóða í verksmiðjuna," sagði Oddur.
„Við höfum verið að skoða fjármögn-
un síðustu daga og búumst við að
þeirri vinnu ljúki fljótlega."
Skertum
kjörum
mótmælt
Á STJÓRNARFUNDi Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra á Ákur-
eyri og nágrenni, sem haldinn
var á fímmtudag, var harðlega
mótmælt „áframhaldandi
gengdarlausum árásum ríkis-
valdsins á kjör og afkomuöryggi
örorku- og’ellilífeyrisþega," eins
og þær birtast í ijárlagafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar.
Því er mótmælt að ákvæði
um að fötluðum beri sömu kjara-
bætur og samið er um hjá lág-
launafólki sé afnumið, en þess
í stað teknar upp bætur sem
byggjast á geðþóttaákvörðunum
stjómvalda við gerð ijárlaga.
Mótmælt er að lífeyrisbætur
verði skomar niður um 450
milljónir með aftengingu frí-
tekjumarks og einnig að farið
hafí verið eftir lögum og bætur
hækkaðar í samræmi við ai-
mennar launahækkanir, hún
hafí aðeins gefíð 2.306 krónur
af þeim 3.700 sem samið var
um hjá láglaunafólki.
Gjaldtöku mótmælt
Einnig mótmælir Sjálfsbjörg
því að fjármagnstekjur skerði
tekjutengdar lífeyrisbætur,
þannig sé tekinn upp fjármagns-
tekjuskattur á lífeyrisþega án
þess að slíkur skattur hafí verið
innleiddur. Auknum lyfjakostn-
aði öryrkja er mótmælt og einn-
ig að tekið verði upp innritunar-
gjald á sjúkrahús þar sem fötlun
fylgi oftast mikill sjúkrakostnað-
ur.
Ráðstefna um
byggingu og
rekstur
íþróttamann-
virkja
íþróttamannvirkjaráðstefna
verður haldin á Ákureyri dagana
24.-26. nóvember nk. Það eru
íþróttasamband íslands, Sam-
band íslenskra sveitarfélaga og
Menntamálaráðaneytið sem að
ráðstefnunni standa. Þeim til
aðstoðar eru Félag forstöðu-
manna í sundlaugarmannvirkj-
um og forstöðumenn skíðá-
mannvirkja.
Sérstök áhersla verður lögð á
byggingu og rekstur íþrótta-
mannvirkja og verða fengir
þekktir fyrirlesarar erlendis frá
á ráðstefnuna. Á meðal þeirra
er Teije Rörby, arkitekt sem var
einn af arkitektum Víkinga-
skipsins í Hamar í Noregi og
1 forsvarsmaður breytinga á
Ullevál leikvanginum í Osló.
Ráðstefnan verður sett á Hót-
el KEA föstudaginn 24. nóvem-
ber kl. 17.30 en síðan verður
opnuð sýning á líkönum, ljós-
myndum og teikningum af
íþróttamannvirkjum. Formaður
mannvirkjanefndar ÍSÍ er Her-
mann Sigtryggsson, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi á Ákureyri.
Fjórir fjörug-
ir í Deiglunni
DANSTÓNLEIKAR með hljóm-
sveitinni „4 ljörugir á Týróla-
buxum“ verður á „Heitum
fímmtudegi“ í Deiglunni í kvöld,
fímmtudagskvöldið 2. nóvem-
ber, og hefjast þeir kl. 21.30.
Hljómsveitina skipa Daníel
Þorsteinsson á harmonikku, Jón
Rafnsson á kontrabassa, Kari
Petersen á slagverk og Ármann
Einarsson á klarinet. Gestaspil-
ari verður fiðluleikarinn Szymon
Kuran.