Morgunblaðið - 02.11.1995, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
ás lbscs r/L\
At> þO F/fX/fi
p/G, e&A és
FÆfZ/ þ/G
SJALFUIZ-1
M.
Grettir
( EttpAÞ.Vk? Þu\
-1 ÓG HVAOA tíMS- /--
\Ia
Tommi og Jenni
Ferdinand
Moldvörpur hafa mjög daufa sjón . .. þær bora
göng rétt undir yfirborði jarðar, og veiða orma
og skordýr
hefur rétt fyrir þér . . . þetta er hörð lífsbar-
átta...
~RI6HT..|T‘S ATDUGíA
3 MAKE A UVlN6^y
MOLES HAVE VERY LJEAKETE5..
THET DIG TUNNEL5 JUST UNDER THE )
GROUND, AND HUNT W0RM5 AND IN5ECTW
BRÉF
TÍL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Mamma brýtur lög!
Athugasemd við yfirlýsingu Sivjar Frið-
leifsdóttur um útivistartíma barna
sem verra er: Hún talar eins og
hún sé fulltrúi flestra foreldra!
Það er sitthvað að hafa skoðun
á lögum eða brjóta þau. Það má
ræða endurskoðun laga en á með-
an þeim hefur ekki verið breytt
þá eru þau í gildi!
Mikið er rætt um agaleysi með-
al æsku þessa lands. Rætt er um
að hækka sjálfræðisaldur þar sem
við ráðum ekkert við blessuð ung-
mennin. Hvernig í veröldinni get-
um við ætlgst til þess að börnin
virði lög og reglur ef við gerum
það ekki sjálf?
Lokaorðin í bréfi borgarstjóra
til foreldra eru: „Ég beini þeirri
eindregnu hvatningu til foreldra
að við tökum öll höndum saman
og leggjum metnað okkar í það
að það heyri til algerra undantekn-
inga að börn og unglingar séu
eftirlitslaus úti á kvöldin og um
helgar. Það er þeirra hagur.“
Förum eftir reglunum og mun-
um að „hvað ungur nemur, gamall
temur“.
ÁSDÍS EMILSDÓTTIR PEDERSEN,
kynningarstjóri.
Frá Ásdísi Emilsdóttur Pederserr.
TÍU ára strákur: „Ég má vera úti
til hálf-tíu, ligga, ligga lá“!
Tíu ára stelpa: „En það má
bara vera útí'til átta á veturna"!
Tíu ára strákur: „Iss, mamma
segir að lögin
séu úrelt svo við
förum bara ekk-
ert eftir þeim“.
Er það þann-
ig sem við vilj-
um að farið sé
eftir lögum og
reglum í land-
inu? Þingkona
og móðir lýsir því yfir í aðalfrétta-
tíma Sjónvarps að henni detti ekki
í hug að fara eftir lögum um úti-
vistartíma barna. Þau séu úrelt
og_því brjóti hún lögin.
A sama tíma og bréf eru send
frá Borgarstjóranum í Reykjavík
til foreldra grunnskólabarna um
að virða útivistartíma barna geng-
ur þingkona fram og segist ekki
fara eftir lögunum. Hún notar af-
sökunina: „Hinir mega vera úti
lengur"! Hvers konar fyrirmynd
er slík móðir og þingkona? Og það
Heimsferðir
Frá Óla Má Guðmundssyni:
OFT hefur maður hoyrt neikvætt
umtal um ferðaskrifstofurnar í
landinu og hefur mér heyrst í
umræðunni undanfarið oftast talað
um Heimsferðir. Maður smitast
ósjálfrátt af þessu, og fer að trúa
því. En ég átti eftir að komast að
öðru og finnst mér sjálfsagt að það
komi fram. Við fórum hjónin til
Kanaríeyja með Heimsferðum 23.
okt., en eftir tvo daga þurftum við
að fara að huga að heimferð vegna
andláts. Við höfðum samband við
fararstjóra að kvöldi og þá tjáði
hann okkur að það gæti orðið erf-
itt að finna ferð, og þar að auki
gæti þetta orðið mjög dýrt. Við
báðum hann þá að kanna fyrir
okkur, þar sem við höfðum tekið
okkur Farkort (Visa) áður en við
fórum, hvort við værum ekki
tryggð fyrir þessu. Fararstjórar
sögðust setja allt í gang og hafa
samband við okkur daginn eftir.
Um hádegi daginn eftir kemur
Lárus Páll fararstjóri og segir við
okkur ég hef vondar fréttir, þið
eruð ekki tryggð fyrir þessu, vegna
þess að ef sá sem deyr er eldri en
75 ára, ekkert. En líka góðar frétt-
ir við erum búin að útvega ykkur
far í kvöld til London á frímiðum,
og þar liggja tveir farmiðar fyrir
ykkur heim á morgun. Þetta kalla
ég framúrskarandi viðbrögð og ég
geri ráð fyrir að ekki sé fararstjór-
um einum að þakka, þeir hafa sjálf-
sagt þurft að hafa samband við
skrifstofuna heima á íslandi útaf
þessum málum. Ég vil loks hvetja
fólk sem fer utan að huga vel að
tryggingarmálum og lesa vel hvað
er innifalið í þeim.
ÓU MÁR GUÐMUNDSSON,
Hrísrima 8, Reykjavík.
Kveðja frá Suður-Afríku
Frá Erlu Boiladóttur:
HÉR í Suður-Afríku er hópur ís-
lendinga verulega sleginn yfir
hörmungarfréttunum af snjóflóðinu
á Flateyri. Það er sárt að vera svo
íjarri og þurfa að finna sig svo
vanmáttugan frammi fyrir þvílíkri
sorg landans.
Hópur íslendinga í Suður-Afríku
hugsar ákaft heim til þeirra sem
nú þola þunga raun af völdum snjó-
flóðsins á Flateyri. Þessum hópi er
tilhugsunin um sára sorg landa
sinna þungbær mjög og þykir vont
að vera svo ijarri á slíkum tíma.
Hópurinn vill þess végna senda sín-
ar innilegustu samúðarkveðjur til
allra þeirra, sem eiga um sárt að
binda og biður þess að í sorg þeirra
og mótlæti megi Guð mæta þeim
með huggun sinni og lausn.
ERLA BOLLADÓTTIR,
Bromhof 2154, Suður-Afríku.
Allt efni sem birtist ( Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.