Morgunblaðið - 02.11.1995, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 55
0^-0
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 587 8900
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 587 8900
ÍSLENSKI f
TAL t H/ f
Bíóhöllin: Sýnd kl. 5.
Bíóborgin: Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð innan 16 ára
Frébærlega
skemmtlleg myni
lyrlr alla fjðlskyl
luna. full at grln
MADISON
COUNTY
★ ★★
Bíóhöllin: Sýnd kl. 5.
Dagsljós
Forsýnd föstudag kl. 9 og 11.15 í
Bíóborginni og Nýjabíói í Keflavík kl. 9
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX.
SAGA-BÍÓ: Sýnd kl. 9.
BÍÓBORGIN: Sýnd kl. 4.50,7.10 og 9.30.
SAMBM
SAMm
EVROPUFRUMSYNING
EVROPUFRUMSYNING:
liPPff I Englendingurinn
FRUMSYNING: NETIÐ
Flótti er
óhugsandi
gómaöur í
BÞeir Paul Verhoeven
og Joe Esterhaz, sem
gerðu „Basit
Instinct" koma hér
með umtöluðustu
mynd seinni ára.
Þeir Paul Verhoeven
og Joe Esterhaz, sem
gerðu „Basic
Instinct" koma hér
með umtöluðustu
mynd seinni ára.
rtMnitiiiiiimi
Umtalaðasta kvikmynd seinni ára er komin til Islands,
fyrst allra landa utan Bandaríkjanna. Þeir Paul
Verhoeven og Joe Esterhaz, sem gerdu „Basic Instinct'
ganga enn lengra aö þessu sinni. Raunsönn lýsing á
mögnuöu næturlífi Las Vegasborgar og ekkert er
dregið undan.
Aðalhlutverk: Elizabeth Berkley, Gina Gershon og
Kyle MacLachlan.
Raunsönn lýsing á mögnuðu næturlifi Las
Vegasborgar og ekkert er dregið undan.
Aðalhlutverk: Elizabeth Berkley,
Gina Gershon og Kyle MacLachlan.
TAKTU ÞÁTT í SHOWGIRLS LEIKNUM Á
SAMBlÓLlNUNNI l SlMA 904-1900.
IENGEANCE
Nei er ekkert svar
mad
amin
SantaClauÆ
BKjL*
1 ^»1 [ili B
ll»T»T Æ
sem fór upp
hæðina en kom
niður fjallið
Fallkonan er fimmtán mánaða
eða svo og skipuð sama
mannskap frá upphafi,
nema söngkona söng með sveitinni
framan af. Jón Ólafsson smalaði
saman í Fjallkonuna á sínum tíma
og hann segir að ætlunin hafi verið
að koma saman, semja tónlist og
taka síðan upp. Þá barst sveitinni
boð um að spila í Þjóðleikhúskjallar-
anum einn vetur og Jón segist hafa
verið svo viðloðandi leikhúsið á þeim
tíma að þau hafi ákveðið að láta
slag standa. „Síðan kom „Súper-
star“,“ segir hann og kímir, og þá
varð að fresta öllu aftur, þannig
að það var ekki fyrr en í haust sem
við höfðum tíma til að taka upp
plötu.“
Þurfti að fá útrás
Jón segir að þrátt fyrir tíma-
skort hafi þeir félagar verið lengi
að velta fyrir sér plötunni, gert
prufuupptökur af 25 lögum og síð-
an valið úr. „Ég á flest laganna á
plötunni, kannski vegna þess að
ég kom úr hljómsveit með svo
mörgum lagasmiðum og þurfti að
fá útrás,“ segir hann og hlær við.
„Eg réð reyndar mestu um livað
færi á plötuna," bætir hann við,
„en ég er enginn einræðisherra.“
Jón segir að þeir Fjallmenn hafi
fengið til liðs við sig ýmsa texta-
smiði, þar á meðal Þorstein Egg-
ertsson, en tvo/þrjá texta eiga þeir
sjálfir. „Platan heitir Partí og það
er til að undirstrika ábyrgðar- og
kæruleysið," segir Jón og bætir við
að þeir félagar taki sjálfa sig ekk-
ert of alvarlega. „Fyrir mig er þetta
ákveðin spennulosun; ég kem úr
hljómsveit sem var með ákveðna
ímynd og varð að halda sér innan
ákveðins ramma. Mig langaði því
til að sleppa fram af mér beislinu
og hvernig sem fer þá er gaman
að hafa gert að minnsta kosti eina
slíka plötu. Við leggjum upp með
góð lög og ef platan er skemmtileg
þá er ég mjög ánægður þó hún
*
Abyrgðar- og
kæruleysi
Nýjar hljómplötur
Hljómsveitin Fjallkonan sendir frá sér sína
fyrstu breiðskífu í dag. Jón Ólafsson, leið-
togi sveitarinnar, segir að slík útgáfa hafi
staðið til í meira en ár, en hljómsveitin hafi
haft svo mikið að gera að ekki gafst færi fyrr.
Morgunblaðið/Kristinn
JÓN Ólafsson Fjallmaður.
vinni kannski engin menningar-
verðlaun.
Óvenju lítið er um að tónlistar-
menn sendi frá sér plötur með
frumsaminni tónlist fyrir þessi jól
og Jón segir að sér líði hálfein-
kennilega: „Ég held að ég hafi aldr-
ei komist jafn nálægt því að vera
neðanjarðar og núna,“ segir hann
og hlær, „ég er allt í einu orðinn
einn af þeim fáu sem eru að semja
og senda frá sér nýja tónlist. Eg
vil skrifa það að einhverju leyti á
íslenska plötuútgefendur," segir
Jón, en þess má geta að Fjallkonan
gefur sjálf út.
Engin böll
Þó mikið sé að gera segir Jón
að sveitin hafi góðan tíma til að
fylgja plötunni eftir og sé búin að
setja stefnuna á félagsmiðstöðvar
og skóla, aukinheldur sem tón-
leikahald stendur til. Á tónleikum,
þar sem platan verður kynnt, „eng-
in böll“, segir Jón ákveðinn, troða
Emiliana Torrini og Páll Óskar
einnig upp með undirleik Fjallkon-
unnar; Émiliana syngur eitt lag
með Fjallkonunni og síðan lög af
væntanlegri plötu sem hún gefur
sjálf út á næstunni, og Páll Oskar
syngur lög af sinni plötu, sem kem-
ur út í dag. Jón segir að það stefni
í skemmtilegt haust; þetta verði
það sem Bandaríkjamenn kalli
„variety show“, þar sem öllu ægi
saman öllum til gleði. „Ég er búin
að vera mikið í leikhúsvinnu und-
anfarin ár og sakna þess að leika
á tónleikum," segir hann, „ég
sakna reyndar ekki rútunnar," seg-
ir hann og hlær, „en þess að spila.
Það hjálpar mikið til að hafa Pál
og Emiliönu með okkur, það er svo
mikil vinna að bera uppi heila tón-
leika einir. Við erum líka að reyna
bijóta tónleika- og skemmtanahald
upp; það er svo mikið dansæði í
gangi að krakkarnir éru farnir að
flyta inn útlenda plötusnúða og
borga þeim jafnvel meira en þeir
borga íslenskum hljómsveitum. Við
erum ekki að bóka einhver böll,
sem er óllkt því sem ég hef gert
áður, heldur höldum við tónleika
þar sem við kynnum plötuna okk-
ar, aðalatriðið er að hafa gaman
af að spila,“ segir Jón ákveðinn
að lokum.
Gætir
barna
► NICOLE Kidman fylgir eig-
inmanni sínum, Tom Cruise,
gjarnan á tökustað þegar hann
leikur í kvikmynd. Það gerði
hún þegar hann var nýlega að
leika í myndinni „Mission: Im-
possible“ í London.
Hérna sést hún halda á syni
þeirra, Connor, við það tæki-
færi. Nicole og Tom eiga tvö
börn. Auk Connors, sem er eins
árs, eiga þau Isabellu, þriggja
ára. Fjölskyldan hyggst flytjast
til Astralíu í vor.