Morgunblaðið - 12.11.1995, Qupperneq 38
38 C SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Skoda Felicía Combi Ib 959.000 kr. Volvo 850 2.0i 20v Ib 2.578.000 kr. VWGolfCLVariant 1400 Ib 1.386.000 kr.
140 km/klst 19 sek 17,77 kg/ha 7,11
SKODA Felicia kom fyrst á markað 1995 og leysti af
hólmi Favorit. Skoda verksmiðjurnar eru í stórum hluta
í eigu VW og sést þess stað í gjörbreyttri og mun vand-
aðri framleiðslu tékkneska framleiðandans. Yfirbygging
bílsins hefur verið styrkt og vélin er smíðuð af VW.
Felicia varð í fjórða sæti í vali á bíl ársins í Danmörku.
Hleðslurýmið í langbaknum er 447 lítrar. Með vökva-
stýri kostar hann 999.000 kr.
• Vél: 1,3 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 54 hö við 5.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 94 Nm við 3.250 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 420/163/142 sm. 960 kg.
• Eyðsla: 7,1 I f blönduðum akstri.
• Eldsneytiskerfi: Bosch-Monotronic innsprautun.
• Umboð: Jöfur hf., Reykjavík.
?? ?? ?? ??
VOLVO 850 langbakur er fáanlegur með þremur vélar-
gerðum, 2.0 I, 2,0 I með forþjöppu og 2,5 I dísil með
forþjöppu. Vélarnar eru allar fimm strokka og 20 ventla.
850 kom fyrst á markað 1991 og var breytt nokkuð
1994. Þetta er eini bíllinn á markaði hérlendis sem er
með 2 hliðarlíknarbelgi. Minnsta vélin, 2,0, skilar 143
hestöflum. Sjálfskiptur kostar hann 2.728.000 kr.
• Vél: 2,0 lítrar, 5 strokkar, 20 ventlar.
• Afl: 143 hö.
• Tog: ??
• Mál og þyngd: ??
• Hleðslurými: Minnst: ?? Mest: ??
• Eyðsla: ??
• Eldsneytiskerfi: Bein fjölinnspýting.
• Umboð: Brimborg hf., Reykjavík.
154 km/klst I7sek 19,33 kg/ha 6,51
VW Golf var fyrst fáanlegur sem langbakur um áramót-
in 1993-1994. Þetta er sannkallaður langbakur því hann
er í raun venjulegur Golf, aðeins 32 sm lengri. Allt innan-
rými er ríflegt í Variant og 1400 vélin stendur alveg
fyrir sínu. Fjöðrun bílsins er slaglöng og tekur vel á
móti á slæmum vegum. Bíllinn er hljóðlátur og lipur.
• Vél: 1,4 Iftrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 60 hö við 5.200 snúninga á mínútu.
• Tog: 116 Nm við 2.800 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 434/169/143 sm. 1.160 kg.
• Hleðslurými: Minnst 466 lítrar, mest 1.425 lítrar.
• Eyðsla: 5,4 I miðað við jafnan 90 km hraða og 8,2
I innanbæjar.
• Eldsneytiskerfi: Rafstýrð innsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
{Toyota Carina E Catchy GLi Ib 2,0 1.924.000 kr. Volvo 960 2.5i langbakur 2.998.000 kr. VW Passat GL 2000 Ib 1.948.000 kr.
200 km/klst 9,0 sek
9,7 kg/ha 7,7 I
210 km/klst 9,9 sek
9,41 kg/he 10,51
190 km/klst 12 sek
ll,60 kg/ha 8,4 I
VW Passat kom gjörbreyttur á síðasta ári sem 3ja kyn-
slóð. Undirvagninn er nýr og Passat hefur fengið nýja
yfirbyggingu með nýju grilli og niðursveigðri vélarhlíf.
Þetta er stærsti bíllinn í fólksbílaflokki frá VW. Passat
var rúmgóður, þægilegur og með góða aksturseigin-
leika en þó aldrei fyrr sem nú. Vélin er kraftmikil, 115
hestöfl, og skemmtileg og hestafladreifing miðað við
þyngd ákjósanleg. Sjálfskipting í Passat langbak kostar
158.000 kr.
• Vél: 2,0 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 115 hö við 5.400 snúninga á mínútu.
• Tog: 166 Nm við 3.200 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 460/172/144 sm. 1.335 kg.
• Hleðslurými: Minnst 465 lítrar. Mest 1.500 lítrar.
• Eyðsla: 6,3 I miðað við jafnan 90 km hraða og 11 I
innanbæjar.
• Eldsneytiskerfi: Rafstýrð innsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.
Vantar eftirlit með
bifreiðaskoðun
BÍLGREINASAMBANDIÐ telur að með aukinni
samkeppni í bifreiðaskoðun þurfi að koma til eftir-
lit með því hvernig þessi samkeppni fer fram
hvað varðar tækniiega þáttinn, þ.e. sjálfa skoðun-
ina, en eftirlit með því hvemig bílar eru skoðaðir
er ekki fyrir hendi.
Þegar Bifreiðaskoðun íslands hóf starfsemi var
gert ráð fyrir því að jafnan yrðu tveir bílar í
vegaeftirliti. Það eftirlit komst á laggirnar að
hluta til en var síðan aflagt, og raunverulega
hefur allt vegaeftirlit eða skyndiskoðanir bíla
hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða úti á
landi verið aflagt.
Bílgreinasambandið telur að í dag sé auðvelt
að koma því við að vera með nauðsynleg tæki
og búnað til eftirlits á vegum úti, og jafnvel
tæki til hemlaskoðunar stórra bifreiða þar sem
þau séu orðin mun auðveldari í meðferð og flutn-
ingi. Stórir hlutar landsbyggðarinnar eru án eftir-
lits með hemlabúnaði hvað varðar vörubíla og
aðra stóra bíla, og ekki útlit fyrir að hið almenna
skoðunarkerfi sem byggt hefur verið upp muni
leysa þann vanda.
TOYOTA Carina E Catchy GLi langbakur er eins og
aðrar útgáfur á þessari undirgerð Toyota hannaður
með mestan styrk yfirbyggingar miðað við lágmark-
þyngd í huga. Eru hástyrktar stálplötur í 41 % yfirbygg-
ingarinnar miðað við þyngd. Sjálfskiptur kostar bíllinn
2.084.000kr.
• Vél: 2,0 lítrar, 4 strokkar, 16 ventlar.
• Afl: 133 hö við 5.800 snúninga á mínútu.
• Tog: 183 Nm við 4.600 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 453/169/142 sm. 1.185 kg.
• Eyðsla: 7,7 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Tölvustýrð innsprautun.
• Umboð: P. Samúelsson hf., Kópavogur.
Toyota Corolla Wagon XLi 1,3 1.459.000 kr.
GERÐ var andlitslyfting á Volvo 960 í fyrra en þá hafði
hann verið óbreyttur á markaði frá 1990. Þá var einnig
boðið upp á beinskiptingu og 2,5 I vél en áður hafði
hann aðeins fengist V6 og sjálfskiptur. Sjálfskiptur kost-
ar hann 3.098.000 kr. Langbakurinn fæst einnig með
3.0 I vélinni og kostar þá 3.748.000 kr.
• Vél: 2,5 Ii'trar, 6 strokkar, 24 ventlar.
• Afl: 170 hö við 5.700 snúninga á mínútu.
• Tog: 230 Nm við 4.400 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 486/175/143 sm. 1.600 kg.
• Hleðslurými: Minnst: 491 I. Mest: 1.702 I.
• Eyðsla: 10,5 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein fjölinnspýting.
• Umboð: Brimborg hf., Reykjavík.
VW Golf GL1800 Variant Ib 1.610.000 kr.
170 km/klst 12,8 sek
14,0 kg/ha 6,71
175 km/klst 12,8 sek
13,22 kg/ha 7,91
TOYOTA Corolla Wagon XLi fæst eingöngu beinskipt-
ur, en búnaður bílsins er sá sami og í Corolla Sedan
XLi. Öryggisbúnaður í Corolla hefur verið aukinn frá
því sem áður var og eru höfuðpúðar á aftursætum,
forstrekkjarar á bílbeltum framsæta og bremsuljós í
afturrúðu nú staðalbúnaður. Þá eru styrktarbitar í öllum
hurðum og hástyrktarstál í stórum hluta burðarvirkis
bílsins.
• Vél: 1,3 lítrar, 4 strokkar, 16 ventlar.
• Afl: 75 hö við 5.400 snúninga á mínútu.
• Tog: 115 Nm við 4.100 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 426/168/138 sm. 1.020 kg.
• Eyðsla: 6,7 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Tölvustýrð innsprautun.
• Umboð: P. Samúelsson hf., Kópavogur.
VW Golf GL 1800 langbakurinn kom á markað áramót-
in 1993-1994 og er hann fimm dyra eins og 1400 bíll-
inn og með sömu mál. Vélin er hins vegar töluvert kraft-
meiri, 90 hestöfl á móti 60. Verðmunurinn milli 1400
og 1800 bílsins er 224.000 kr. Bíllinn fæst einnig sjálf-
skiptur og kostar þá 1.720.000 kr.
• Vél: 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 90 hö við 5.500 snúninga á mínútu.
• Tog: 145 Nm við 2.500 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 434/169/143 sm. 1.160 kg.
• Hleðslurými: Minnst 466 lítrar, mest 1.425 lítrar.
• Eyðsla: 5,6 I miðað við jafnan 90 km hraða og 9,7
I innanbæjar.
• Eldsneytiskerfi: Rafstýrð innsprautun.
• Umboð: Hekla hf., Reykjavík.