Morgunblaðið - 10.12.1995, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 B 27
ATVINNU í YSINGAR
Tölvusalan he
Við leitum að duglegum starfskrafti til að
starfa við sölu og þjónustu á iðnstýribúnaði,
skynjurum o.fl. Viðkomandi verður að hafa
þekkingu og reynslu á þessu sviði.
Umsónir sendist í pósthólf 8960,128 Reykjavík.
Hjúkrunarfræðingar!
Það bráðvantar tvo hjúkrunarfræðinga til
starfa á lyflækningadeild Sjúkrahúss Akra-
ness frá 1. janúar nk.
Á deildinni er mjög fjölbreytt starfsemi með
yfir 600 innlagnir á ári. Skemmtilegt starf
fyrir áhugasama hjúkrunarfræðinga!
Hringið og fáið nánari upplýsingar hjá
Jóhönnu Jóhannesdóttur, deildarstjóra, eða
Steinunni Sigurðardóttur, hjúkrunarforstjóra,
í síma 431 2311.
IIIIICIIIIIII eRilllCRgfelB iBiimmUi | Líiilliunr, líiiimmm
Frá Háskóla Islands
Rannsóknaþjónusta Háskóla íslands auglýsir
eftir deildarstjóra til starfa við gagnamiðstöð
fyrir námsráðgjafa. Starfið felst í þjónustu
við starfandi náms- og starfsráðgjafa á öllum
skólastigum, en sérstök áhersla verður lögð
á þá, sem sinna ráðgjöf varðandi starfs-
menntun. Evrópsk samskipti eru mikilvægur
hluti starfsins og felur í sér upplýsingamiðlun
til annarra gagnamiðstöðva og frumkvæði
að þátttöku íslenskra aðila í evrópskum sam-
starfsverkefnum sem, lúta að námsráðgjöf.
Háskólapróf á sviði námsráðgjafar er skilyrði
sem og mjög góð enskukunnátta.
Starfsreynsla á sviði námsráðgjafar er æski-
leg. Þá er reynsla af tölvunotkun æskileg og
frönsku- eða þýskukunnátta er kostur.
Um er að ræða verkefnabundna ráðningu til
eins árs í senn, frá 1. janúar eða þeim tíma
sem um semst.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra. Umsækjendur
skili umsóknum til starfsmannasviðs Háskóla
íslands í síðasta lagi 18. desember 1995.
Framkvæmdastjóri
Prenttæknistofnun óskar að ráða fram-
kvæmdastjóra í fullt starf og þarf hann helst
að taka til starfa um næstu áramót.
Prenttæknistofnun er í eigu Samtaka iðnað-
arins og Félags bókagerðarmanna. Helsta
hlutverk hennar er að halda uppi eftirmennt-
un í útgáfu- og prentiðnaði, en einnig að
stuðla að umbótum á grunnmenntun í starfs-
greininni.
Eftirfarandi hæfnikröfur eru gerðar
til framkvæmdastjórans:
• Hafi ítarlega þekkingu og reynslu á sviði
útgáfu- og prentiðnaðar.
• Eigi auðvelt með að tjá sig í rituðu og
mæltu máli og hafi gott vald á íslensku.
• Hafi vald á ensku og helst einnig einu
Norðurlandamáli.
• Hafi gott vald á tölvunotkun.
• Hafi þekkingu og/eða reynslu af rekstri
fyrirtækja.
• Eigi auðvelt með að vinna í samstarfi með
ólíkum hópum og einstaklingum.
Nánari upplýsingar veitir Guðbrandur Magn-
ússon, fráfarandi framkvæmdastjóri,
í síma 568 0740.
Umsóknir sendist stjórn Prenttæknistofnun-
ar, pósthólf 8676, 128 Reykjavík; í síðasta
lagi 12. desember nk.
Starfsfólk óskast
Hvassaleitisskóli í Reykjavík óskar eftir
starfsmanni í gangbrautarvörslu og starfs-
manni í eldhús frá og með 1. janúar 1996.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri eða
aðstoðarskólastjóri í síma 568 5666.
Skólastjóri.
VINNU- OG DVALARHEiMILI
SJÁLFSBJARGAR
Dagvist Sjálfsbjargar
Forstöðumaður
Staða forstöðumanns Dagvistar Sjálfsbjarg-
ar er auglýst laus til umsóknar.
Leitað er eftir starfsmanni með stjórnunar-
og félagsmálareynslu.
Umsóknum, með upplýsingum um m.a.
menntun, fyrri störf og félagsmálaþátttöku,
skal skila fyrir 30. desember 1995.
Upplýsingar um starfið veitir Katrín S. Óla-
dóttir, ráðningarstjóri Hagvangs.
<Q>nýherji
Vegna nýrra verkefna og aukinnar þjónustu við viðskiptavini
sína óskar Nýherji hf eftir að bæta við starfsmanni.
► ÞJONUSTUFULLTRÚI
tæknisviðs
Krefjandi og umfangsmikið starf hjá traustu og góðu
fyrirtæki með góðum starfsmannahóp.
Hclstu verkefni:
*- hjónusturáðgjöf til fyrirtækja og stofnana.
Útfærsla og sala þjónustusamninga.
»- Kaup, sala og leiga á notuðum búnaði.
► Þátttaka í verkefnahópum um gæðastjórnun.
Við leitum að kraftmiklum og
drífandi starfsmanni með:
Þjónustulund og mikla samskiptahæfileika.
Góða tölvu- og viðskiptamenntun eða
reynslu af þeim vettvangi.
*- Reynslu af sölustörfum.
Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði og metnað til að
taka þátt í uppbyggingu og þróun hjá öflugu
þjónustufyrirtæki í örum vexti.
Nínari upplýsingar aðeins veittar hjá Benjamin Axel
Árnasyni ráðningastjóra Ábendis.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem
trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um sem fyrst, en í síðasta lagi fyrii
Itádegi 18. desember nk. á eyðublöðum sem liggja
frammi á skrifstoíu okkar.
A 3<c r^J>l
Á B E N D I
R Á Ð C | ö f &
RÁÐNINGAR
LAUCAVEGUR 178
SÍMI: 568 90 99
fAX: 568 90 96
m
Olís er elsta olíufélag landsins, stofnað árið
1927, og er f dag framsækið og öflugt þjón-
ustufyrirtæki sem býður upp á góðar vinnu-
aðstæður við krefjandi og spennandi við-
fangsefni. Starfsmenn eru um 300 og starf-
ar félagið á 65 stöðum á landinu.
Um næstkomandi áramót verður tekið í notkun nýtt upplýs-
ingakerfi fyrir félagið með tengingum við sölustaði og útibú
og er það markmið félagsins að vera í fremstu röð hvað
varðar upplýsingatækni og þjónustu.
Tölvudeild
Við leitum að metnaðarfullum tölvumanni til
starfa á upplýsingasviði Olís.
Háskólamennntun í tölvunarfræði eða sam-
bærileg menntun æskileg.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á
NT og UNIX, rekstri staðar- og víðneta, upp-
lýsingakerfinu Fjölni eða sambærilegum
kerfum og helstu Windows forritum.
Hér er á ferðinni áhugavert tækifæri til að
taka þátt í uppbyggingu á nýju upplýsinga-
kerfi hjá traustu og framsæknu fyrirtæki.
Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið
sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
hjá Ráðgarði í síma 533-1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: Olís-upplýsingasvið“,
fyrir 18. desember nk.
RÁÐGARÐURhf
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK 533 1800
Ljósmóðir
Staða Ijósmóður við mæðradeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur er laus til um-
sóknar. Staðan veitist frá 1. febrúar 1996.
Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri
eða hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
552 2400.
Umsóknir sendist til starfsmannastjóra á þar
til gerðum eyðublöðum sem fást hjá starfs-
mánnahaldi Heilsugæslunnar í Reykjavík,
Barónsstíg 47.
5. desember 1995.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur,
Barónsstíg 47,
101 Reykjavík.
3
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Rafmagns-
eftirlitsmaður
Laust er til umsóknar starf rafmagnseftirlits-
manns.
Megin verkefni: Starf rafmagnseftirlits-
manns felst í spennusetningu heimtauga og
úttekt nýrra raflagna vegna tengingu hús-
veitna við dreifikerfi Rafmagnsveitunnar,
þjónusta og ráðgjöf við orkukaupendur
vegna raflagna og rafmagnstækja og önnur
sérhæfð verkefni, er tengjast raforkusölu.
Kröfur til umsækjenda: Viðkomandi þarf að
hafa sveinspróf í rafvirkjun og vera rafiðnfræð-
ingur. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
reynslu í vinnu við lágspennulagnir. Gerð er
krafa um þægilegt viðmót og sveigjanleika í
mannlegum samskiptum, þar sem vinna raf-
magnseftirlitsmanns er í mjög nánum tengsl-
um við viðskiptavini Rafmagnsveitunnar.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra
fyrir 30. desember 1995.
Allar nánari upplýsingar um starfið gefa
starfsmannastjóri og forstöðumaður mark-
aðsmála.
Rafmagnsveita Reykjavíkur.