Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ ■j Breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarpið Utgjöld á fjárlögiim hækkaum 187 milljónir BREYTINGARTILLÖGUR meiri- hluta íjárlaganefndar við fjárlaga- frumvarpið voru lagðar fram á Al- þingi í gær en önnur umræða um frumvarpið hefst á þinginu í dag. Meirihluti nefndarinnar leggur til fjölmargar breytingar til hækkunar og lækkunar á einstökum liðum frá því sem gert var ráð fyrir þegar frumvarpið var lagt fram, en sam- tals leiða breytingamar til 187.200 þús. kr. hækkunar á útgjöldum fjár- laga næsta árs. Umfjöllun um ráðstafanir í heil- brigðis- og tryggingamálum og fjárhagsvanda sjúkrahúsa á höfuð- borgarsvæðinu er ekki lokið og bíð- ur þriðju umræðu. Á það einnig við um afgreiðslu á tekjuhlið fram- varpsins eins og venja er, skv. upp- lýsingum Jóns Kristjánssonar, for- manns fjárlaganefndar. Nefndin á einnig eftir að Ijúka umljöllun um B-hluta stofnanir. Markmiðið um fjögurra milljarða kr. halla er enn óbreytt að sögn Umfjöllun vegna fjárhagsvanda sjúkrahúsa ólokið Jóns en hann sagði að útlit væri fyrir að tekjur ríkissjóðs myndu aukast á næsta ári frá þvi sem áætlað var þegar framvarpið var l'agt fram. Framlög til vegamála lækka um 250 millj. kr. Meirihluti fjárlaganefndar leggur til enn frekari niðurskurð á við- halds- og stofnkostnaði og til vega- mála frá því sem íjárlagafrumvarp- ið gerði upphaflega ráð fyrir þegar það var lagt fram. Framlag til vega- gerðar lækkar samtals um 250 millj. kr. Framkvæmdaátak vegna atvinnumála lækkar um 350 millj. og verður 650 millj. Fjárlagaliður- inn yfirstjórn hækkar um 49 millj. kr. og þjónustuviðhald vegagerðar hækkar um 50 millj. kr. Einnig aukast framlög til nýframkvæmda um 3 millj. kr. Byggingarframlög til skóla og menningarstofnana lækka um 100 millj. Framlög til framkvæmda vegna viðhalds og stofnkostnaður nokk- urra framhaldsskóla lækka um 15 millj. kr. og stofnkostnaður vegna nokkurra menningarstofnana lækk- ar um 85 millj. kr. skv. tillögum nefndarinnar. Byggingarkostnaður sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og læknisbústaða hækkar aftur á móti um 48,8 millj. kr. skv. tillögum meirihluta íjárlaganefndar. Greiðslur vegna sauðfjárfram- leiðslu hækka um 217 millj. kr. vegna nýgerðs búvörasamnings. Framlag til Lánasjóðs íslenskra námsmanna hækkar um 50 millj. kr. vegna endurmats á framlagi ríkisins sem hlutfall af veittum lán- um og vegna verðlagsútreikninga. Meðal atmarra breytingartillagna er hækkun á framlagi til Ólympíu- nefndar íslands um 5 millj. vegna Ólympíuleikanna í Atlanta. Fram- lög til Húsfriðunarsjóðs og List- skreytingasjóðs hækka. samtals um 9 millj. Aðstoð íslands á svæðum Palestínumanna í ísrael lækkar um 5.4 millj. kr. Þá eru framlög til yfirdýralæknis hækkuð vegna rann- sókna á útbreiðslu salmónellu í sauðfé um 3,2 millj. Mannréttinda- skrifstofa íslands fær 3 millj. kr. framlag. Framlög til Veðurstofu hækka um 13 millj. vegna breytinga á lög- um um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Þá er gerð tillaga um 2.4 millj. kr. hækkun framlags til embættis forseta íslands vegna bið- launa á næsta ári þegar núverandi forseti lætur af embætti. Húsið stækkað Morgunblaðið/RAX ÞAR sem björgunarbátar Slysavamafélagsins vom fulltrúa félagsins er langt síðan björgunarbáturinn áður geymdir hangandi í gálga sjávarmegin við var hafður á gálganum, þar sem þeir eru nú mun hús félagsins við Grandagarð, eru hafnar fram- stærri og fullkomnari og bundnir við flotbryggju kvæmdir við að stækka húsið. Að sögn upplýsinga- neðan við húsið. Ekki hægt að framkvæma taugatengingu á Hrafnhildi í gær Tengt verði við taug- ar frá brjóstkassa MORGUNBLAÐINU í dag fylgir sérblað um Akureyri, sem gefíð er út vegna tíu ára afmælis Akureyrarskrifstofu blaðsins. í tilefni dagsins er Morgunblaðið borið í öll hús á Akureyri í dag. MEÐ Morgunblaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýs- ingablað frá Bónus, IKEA og Rúmfatalagemum. Mál SFR í Félagsdómi MÁL ríkisins gegn Starfsmannafé- lagi ríkisstofnana, sem höfðað er tii ógildingar á uppsögn kjara- samninga, var þingfest í Félags- dómi í gær. Fram kom við þingfestinguna að útilokað er að dómur gangi í málinu fyrir jól vegna anna dóms- ins. EKKI fundust taugar úr mænuenda Hrafnhildar Thoroddsen til að hægt væri að festa heilbrigðar taugar þar í og þræða framhjá áverkastaðnum í gær. Dr. Halldór Jónsson jr., yfir- læknir bæklunardeildar Landspít- ala, og dr. Zhang Shaocheng, kín- verskur taugaskurðlæknir, eru til- búnir til að láta reyna á hvort hægt sé að tengja taugar frá brjóstkassa niður í vinstri fót hennar seinna. Hrafnhildur varð fyrir alvarlegu slysi árið 1989. Mænutagl hennar slitnaði með þeim afleiðingum að hún missti allan mátt í hægri fæti og nær allan mátt í vinstri fæti. Með aðgerðinni var ætlunin að tengja heilbrigðar húðtaugar úr fæti hennar framhjá áverkastaðnum til að freista þess að hún fengi meiri mátt í mjaðmimar og vinstri fótinn. Halldór segir að læknarnir hafi framkvæmt öll stig aðgerðarinnar nema síðasta stigið, taugatenging- una á milli mænutaglsins og taug- anna fyrir neðan áverkastaðinn. „Við gátum ekki framkvæmt tauga- tenginguna því að þegar við komum inn í mænusekkinn fundum við enga taugaþræði frá mænuendanum,“ sagði Halldór og tók fram að lækn- amir vissu ekki hvað því ylli. „Við vitum ekki alveg hvort taugataglið hefur slitnað algjörlega frá mænunni og dregist niður í end- ann á mænugöngunum eða hvort mænan hefur farið í sundur í siysinu og endarnir dregist hvor í sína átt- ina.“ Halldór sagði að þó auðvitað ylli það vonbrigðum að ekki hefði verið hægt að framkvæma taugatenging- una væri út af fyrir sig sigur að hafa komist svona langt. „Við vitum nú hvernig ástandið er og sam- kvæmt kínverska lækninum er mögulegt að fara aðra leið. Sú leið er að nota taugar frá bijóstkassan- um og flytja niður á við utan við mænugöngin,“ segir hann. Hann sagði að hægt yrði að reyna þennan möguleikaþegar Hrafnhildur hefði algjörlega jafnað sig, eftir þtjá mánuði eða svo. Læknamir væru báðir tilbúnir til að framkvæma að- gerðina hér heima eða í Kína. Norræni heilbrigðis- háskólinn Guðjóni boðið rekt- orsembætti STJÓRN Norræna heilbrigðishá- ■ skólans í Gautaborg hefur boðið l Guðjóni Magnússyni, skrifstofu- stjóra í heilbrigð- is- og trygginga- málaráðuneytinu, að taka við rekt- orsembætti við skólann 1. janúar næstkomandi. Norræni heil- * brigðisháskólinn er ein af stofnun- um norrænu ráð- j herranefndarinnar. Hann annast kennslu fyrir lækna, hjúkrunarfræð- inga, framkvæmdastjóra sjúkra- húsa, tannlækna og fleiri heilbrigð- isstéttir. Er þetta framhaldsnám sem leiðir til meistara- eða doktors- prófs. Námið fer fram á námskeið- um, ailt frá tveimur vikum og upp í tvo mánuði. Geta allt að 100 nem- i endur stundað nám í einu. Tíu ís- lendingar hafa komist að á ári en mun fleiri sótt um. Starfsmenn skól- ) ans eru fímmtíu. Heilbrigðisháskólinn er auk þess með víðtæka samvinnu við alþjóð- legar stofnanir og tekur m.a. þátt í stóru verkefni um uppbyggingu menntunar fyrir stjórnendur heil- brigðisstofnana í Eystrasaltslöndun- um. Guðjón Magnússon hefur verið stundakennari við Norræna heil- brigðisháskólann allt frá árinu 1981 og var settur prófessor í eitt ár fyr- ) ir fjórum áram. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins hefur aðdrag- andinn að ráðningu Guðjóns verið stuttur. Hann hófst með því að starfsmenn skólans óskuðu eftir því að hann yrði ráðinn og varð stjórn skólans við ósk þeirra. Gengið verð- ur frá ráðningunni á skrifstofu nor- rænu ráðherranefndarinnar í Kaup- mannahöfn. ^ I Hlutáféí Kambi auk- ið um 63% HLUTAFÉ í sjávarútvegsfyrirtæk- inu Kambi hf. á Flateyri hefur verið aukið um 50 milljónir króna að nafn- virði, en söluverðmæti hlutafjárins ' nemur 120 milljónum króna og er gengi bréfanna því 2,4 að jafnaði. Að sögn Hinriks Kristjánssonar, framkvæmdastjóra Kambs, er þessi hlutaijáraukning liður í fjármögnun á þeim fjárfestingum sem fyrirtækið hefur ráðist f að undanförnu, en Kambur keypti nýlega tvo línubáta auk þess sem frystihús fyrirtækisins hefur verið endurbætt, m.a. til að uppfylla kröfur Evrópusambands- ins. 1 Með þessari hlutafjáraukningu er heiidarhlutafé í Kambi orðið 130 milljónir króna að nafnvirði og fimm nýir aðilar koma nú inn í rekstur- inn. Isnes hf., sem seldi Kambi bát- ana tvo á sínum tíma, á nú 15% hlut í fyrirtækinu, en aðrir nýir hluthafar eru Tryggingamiðstöðin, Skeljung- ur, Burðarás og Jöklar hf. með sam- tals 23% hlut. Aðrir hluthafar í fyrir- tækinu eru Hjálmur hf. með 28% hlut og Hinrik Kristjánsson og fjöl- skylda, sem á afgang hlutafjárins eða 34%. Bjartsýnn á framhaldið Hinrik segist vera mjög bjartsýnn á framhaldið hjá fyrirtækinu. Með kaupunum á nýju bátunum hafí kvóti fyrirtækisins svo gott sem tvöfald- ast, auk þess sem allar þorskveiðar fari fram á línu, sem leiði til tvöföld- unar á þorskafia. Aflabrögð hafi verið ágæt að undanfömu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.