Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýjar bækur
Hestarog
samferðarmenn
KOMIN er út bókin
Kóngur um stund eftir
Örnólf Árnason.
í kynningu segir:
„Bókin hefur að geyma
opinskáa frásögn af
stormasamri ævi Gunn-
ars Bjamasonar, fmm-
kvöðuls í ræktun ís-
lenska reiðhestakyns-
ins og útbreiðslu hans
um heiminn. Nú er svo
komið að þúsundir fjöl-
skyldna í tuttugu lönd-
um eiga íslenska hesta
og helga þeim tóm-
stundir sínar.“
Sagt er frá æsku
Gunnars á Húsavík, menntaskóla-
árunum á Akureyri, búnaðamámi á
Hvanneyri og í Kaupmannahöfn.
„Þá greinir Gunnar frá því hvernig
tókst að forða hestinum og hesta-
mennskunni frá því að deyja út
eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar
þegar sveitamenn flykktust í þétt-
býlið. Frásögn Gunn-
ars af lífshlaupi sínu
er hispurslaus og lýs-
ingar hans á samferð-
armönnum næmar og
skemmtilegar," segir
ennfremur í kynningu.
Höfundur bókarinn-
ar, Örnólfur Árnason,
hefur fengist við rit-
störf af margvíslegu
tagi. Hann hefur skrif-
að Qölda leikrita fyrir
svið, útvarp og sjón-
varp, kvikmyndahand-
rit, óperutexta, ævi-
sögur, ferðabækur og
skáldverk, auk þess að
vera um langt árabil afkastamikill
þýðandi. Útgefandi er Orm-
stunga. Gísli B. Björnsson hannaði
kápu og útlit. Umbrot og filmu-
vinnsla fór fram í Prentþjónustunni
hf. Bókin er prentuð hjá G. Ben
prentstofu hf., og er 341 bls., prýdd
fjölda Ijósmynda og kostar 3.490 kr.
Gunnar Bjarnason
• TÍMARIT Máls og menningar,
4. hefti, er komiðút.
Það er að hluta til helgað því að
hundrað ár era liðin frá því fyrsta
kvikmyndin var sýnd opinberlega.
Þorvarður Arna-
son ritar ítarlega
grein um eðli
kvikmyndarinn-
ar og spyr m.a.
hvort sú kvik-
myndamenning
sem við erum
vön sé að líða
undir lok með til-
komu yfirstand-
andi tæknibylt-
ingar. Þá setur
Sigurjón B. Hafsteinsson íslenskar
heimildamyndir undir smásjá, spyr
hvort þær eigi meira skylt við áróð-
ursmyndir eins og tíðkuðust í
austantjaldslöndunum en nútíma
heimildamyndir.
Skáldskapurinn kemur víða við
að þessu sinni: Ljóð eftir Vaclav
Þorvarður
Árnason
í/ave/forseta Tékklands, og Stefán
Gíslason sveitarstjóra á Hólmavík
og smásögur eftir frönsku höfund-
ana Michel Tournierog Pascal
Quignard, auk sögu eftir Anton
Tsjekhov.
Flutningur bundins máls nefnist
grein efitr Helga Hálfdanarson.
Norræn fornmenning í Banda-
ríkjunum og Rússlandi er viðfangs-
efni tveggja greina í tímaritinu. Jón
Karl Helgason skrifar um það
hvernig Njála var kynnt Banda-
ríkjamönnum á ofanverðri síðustu
öld og Árni Bergmann fjallar um
tilraun Maxims Gorkíjs til að skrifa
víkingaleikrit um það bil sem rúss-
neska byltingin stóð sem hæst.
Loks má nefna yfírlitsgrein eftir
Kristján B. Jónasson um íslenskar
skáldsögur sem komu út 1994.
Tímarit Máls og menningar, 4
hefti 1995, er 128 bls. TMM kemur
út fjórum sinnum á ári ogkostar
áskrift 3.300 kr. Ritstjóri erFríðrik
Rafnsson.
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands
Hátíðarforleikur
eftir Sjostakovich
Á JÓLATÓNLEIKUM
Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói á
laugardag kl. 14.30
koma fram Graduale-
kór Langholtskirkju,
stjórnandi Jón Stef-
ánsson; Kór Öldutúns-
skóla, stjórnandi Egill
Friðleifsson; Skólakór
Garðabæjar, stjórn-
andi Guðfinna Dóra
Ólafsdóttir og Skóla-
kór Kársness, stjórn-
andi Þórunn Björns-
dóttir. Einleikari á
tónleikunum er Ástríð-
ur A. Sigurðardóttir.
Einsöngvarar Árný _
Ingvarsdóttir, Guðrún Árný Karls-
dóttir, María Marteinsdóttir og
Rúrik Fannar Jónsson.
Tónleikarnir eru
eins og endranær ætl-
aðir allri fjölskyldunni.
Mikið af listafólki tek-
ur þátt í tónleikunum,
þar á meðal 180
manna barnakór, 15
ára gamall píanóleik-
ari og fjórir ungir ein-
söngvarar.
Tónleikarnir hefjast
á Hátíðarforleik eftir
rússneska tónskáldið
Dmitri Shostakovich.
Þannig vill til að tón-
leikana ber upp á af-
mælisdag Beethovens
en hann var fæddur
16. desember 1770 og
einnig era 200 ár frá því að Beet-
hoven samdi sinn fyrsta píanókon-
sert. Því var ákveððið að fá ungan
píanóleikara til þess að leika loka-
þátt konsertsins. Fyrir valinu varð
Ástríður Sigurðardóttir sem er
nemandi í Tónlistarskólanum í
Reykjavík.
Að loknum píanókonsert verður
leikið „Haustið“ úr Árstíðunum
eftir Glazunov.
Seinni hluti tónleikanna verður
helgaður jólunum en þá munu fjór-
ir einsöngvarar og 180 manna
bamakór flytja helgileikinn
„Hljóðu jólaklukkurnar" eftir hjón-
in Walter & Carol Noona. Að lokum
syngja kórarnir jólalög og jóla-
sálma.
Kynnir og sögumaður er Lovísa
Árnadóttir, sem er félagi í Gradu-
alekór Langholtskirkju. Hljóm-
sveitarstjóri er Bernharður Wilkin-
son.
Bernharður
Wilkinson
Þekkt fölsun
á uppboð
MÁLVERK eftir falsarann
sem tókst á sínum tíma að
leika á Herman Göring verður
boðið upp á næstu dögum. „La
Céne“, sem sýnir síðustu
kvöldmáltíðina, er sú síðasta
í röð átta Vermeer-falsana
sem gerðu hollenska falsar-
ann Hans Van Meegeren millj-
ónamæring á árunum 1938-
1943. í stríðslok uppgötvuðu
bandamenn eina af fölsunum
hans hjá háttsettum nasista
og Van Meegeren var sakaður
um „efnahagslega samvinnu"
við Þjóðveija. Van Meegeren
svaraði því til að hann hefði
narrað Göring til að kaupa
fölsun og sannaði mál sitt með
því að mála enn eitt „Verme-
er“-verk á kvöldstund í fang-
elsinu sem honum hafði verið
stungið í. Núverandi eigandi
verksins, Frakkinn Jacques
Tajan, segist ekki hafa hug-
mynd um hvað verkið muni
seljast á, enda séu engin for-
dæmi fyrir sölu á þekktum
fölsunum. Hann vonast þó til
þess að fá um 5 milljónir fyrir.
Upplestur
í Skruggu-
steini
UPPLESTUR verður í Skruggu-
steini, Hamraborg 20a, fimmtu-
daginn 14. desember kl. 20.30.
Kynntar verða meðal annars
nýútkomnar bækur sjálfsútgáfu-
forlagsins Andblæs - og nýjasta
hefti bókmenntatímaritsins And-
blæs.
Þeir sem lesa úr verkum sínum
eru: Andri Már Magnason, Birgir
Svan Símonarson, Gunnar Rand-
versson, Gunnhildur Siguijóns-
dottir, Hrafn Andrés Harðarson,
Magnúx Gezzon, Þórarinn Torfa-
son og Þórann Helgadóttir.
Allir velkomnir.
-----♦ ♦ ♦----
„VerGangiu“
HELGI Þorgils Friðjónsson heldur á mynd eftir Karin Kneffel,
en hún er ein af þeim 19 erlendu listamönnum sem verk eiga á
sýningunni VerGangur í Gerðubergi.
MYNDLIST
Gerðuberg
MYNDVERK
19 alþjóðlegir myndlistarmenn
Opnunartimi menningar-
miðstöðvarinnar til 8. janúar.
Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ VAR orðið fulllangt síðan
ég hafði heimsótt menningarmið-
stöðina í Gerðubergi, er ég leit þar
inn á dögunum. Það er einfaldlega
töluvert mál að fara þangað í al-
menningsvögnum, sem taka á sig
firna marga króka, og sýningarnar
hafa ekki alltaf haft það vægi að
þær réttlættu slíkt ferðalag. Að auk
hefur rýmið verið mjög illa fallið
til myndlistarsýninga, eins og ég
hef endurtekið vakið athygli á. En
nú hafa orðið þar nokkrar breyting-
ar, og staðurinn mun vistlegri að-
komu og þá einkum kaffistofan, en
veggina prýðir mikill fjöldi ljós-
mynda af tónlistarfólki sem troðið
hefur upp á staðnum. Með ýmsum
tilfæringum hefur verið reynt að
búa betur að myndlistinni og þar
hafa orðið umskipti tii batnaðar.
Er mig bar að garði voru þar í
gangi tvær sýningar. Hlynur Helga-
son leikur sér með innsetningu í
tilfallandi rými, sem er afar al-
menns æðlis nú um stundir, auk
þess að hinn margræði tími er vafa-
lítið með í leiknum, en þar eru ekki
merkjanleg mikil átök við efnivið-
inn. Hin sýningin hefur hiotið nafn-
ið VerGangur, og hefur með fram-
kvæmdagleði Helga Þorgils Frið-
jónssonar á sýningarvettvangi áð
gera sl fímmtán ár. Hann hefur
eins og margur veit rekið eins kon-
ar heimalisthús, fyrst á Laufásvegi
71, í stórri forstofu í stigagangi,
svo í löngum þröngum stigagangi
í Mávahlíð, þá forstofu á Freyju-
götu, og loks í ganginum að Reka-
granda, þar sem það er enn til húsa.
Aðallega hefur starfsemin verið
fyrir vini, nemendur og skoðana-
bræður Helga, sem hafa reglulega
mætt á staðinn og rætt um stöðuna
á listavettvangi, og rétt er það sem
stendur í kynningu að ýmsum hafi
þótt þetta skondin tiltekt. Það er
hins vegar mjög virðingarvert að
efna til umræðu um listir eins og
hér á ser stað, en eitt gott listtíma-
rit spannar þó meiri víddir en örfá-
ar myndir sem sendar hafa verið í
umslagi langan veg. Hversu fræg
sem nöfn sýnenda eru, segir slík
einangruð framkvæmd manni lítið
meira en myndir þeirra í tímaritum.
Þá eram við ekki svo skelfilega ein-
angraðir og forpokaðir að upptendr-
ast í hvert skipti sem einhver snifsi
eftir þá eru hengd upp í heimahús-
um, en beram hins vegar virðingu
fyrir viðkomandi.
Auðvitað eigum við að vera í
sambandi við umheiminn og helst
kynna sem flest sem er á döfinni á
listavettvangi, en síður gerast áróð-
ursmeistarar fyrir eina stefnu eða
nokkur alþjóðleg listhús, sem hugsa
vel um sína menn. Að þetta hafi
verið nokkrir bógar á listavettvangi
er sýningin í Gerðubergi til vitnis
um, og það er allt annar handlegg-
ur að sjá þá saman á alvöru sýn-
ingu en einni sértækri upphengingu
úti í bæ. Og það er um leið alveg
víst að maður hefur misst af nokkra
með því að vera ekki reglulegur
gestur á fyrrnefndum stöðum, en
ekki verður á allt kosið.
Margir listainannanna standa
fullkomlega fyrir sínu og hafði ég
drjúgan fróðleik og ánægju af að
ganga um sali, ekki síst fyrir marg-
ræð myndverk Karin Kneffel, sem
vekur upp spurn um framlag okkar
sjálfra til heimslistarinnar, og stöðu
sauðkindarinnar í íslenzkum núlist-
um. Með hliðsjón af þeim 19 alþjóð-
legu listabógum á vettvangi, er um
mikilsverða framkvæmd að ræða,
og er dijúg ástæða fyrir myndlistar-
menn sem áhugafólk að fjölmenna
á staðinn. Skiptir mestu að vekja
athygli á því, sem hér er að ske,
og um leið geta menn gengið í skóla
hjá framkvæmdaraðila, því að sýn-
ingar í Mokka og á Gerðubergi era
kynningarlega séð samstiga því
sem best gerist á alþjóðavettvangi
og á sér naumast fordæmi hérlend-
is.
Bragi Ásgeirsson
Nýjar hljómpiötur
• MEÐ söngvaseið á vörum er
nafnið á nýútkominni geislaplötu
og hljóðsnældu með Karlakórnum
Stefni í Mosfellsbæ.
Efni plötunnar má samkvæmt
kynningu skipta niður í íjóra
flokka: Kraftmikil, sívinsæl karla-
kóralög, rússneska þjóðlagasyrpu
með harmonikkuundirleik, hægari
lög og óperakóra.
Stjórnandi kórsins er Láras
Sveinsson, en kórfélagar eru lið-
lega 50 talsins. Einsöngvarar eru
Ásgeir Eiríksson, Þorgeir J. Andr-
ésson og Elín Ósk Óskarsdóttir.
Platan ogsnældan er til sölu í
hljómplötuverslunum, en kórfélag-
ar hafa einnig milligöngu.
------♦ ♦ ♦------
ELDHEITUR aðdáandi söng-
leiksins „Óperudraugsins“ hef-
ur enn einu sinni látið til sin
taka en hann keypti upp öll
sæti á þriðjudagssýningu á verk-
inu á Broadway. Aðdáandinn,
milljónamæringurinn Daniel
Lehner, afhenti líknarfélögum
miðana og bauð þeim að selja
þá. Andvirði þeirra er rúmar
70 milljónir ísl. kr. Ástæðuna
segir Lehner þá að 12. desember
sé ánægjulegasti dagur lífs síns.
„Ég kynntist konunni minni,
Remy, á sýningu á „Óperu-
draugnum" 12. desember 1988,
bað hennar 12. desember 1992
og við giftum okkur réttu ári
síðar.“