Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Norrænir
verzlunar-
menn
UM síöustu helgi var haldinn í
Rcykjavík undirbúningsfundur
fyrir höfuðborgarráðstefnu
verzlunarmannafélaga á Norður-
löndum, en ráðstefnan verður
haldin í Reykjavík á næsta ári. A
þessum fundi voru einnig lögð
drög að kjarasamanburði milli
VR og systurfélagsins í Dan-
mörku. Frá vinstri: Pétur A. Ma-
áck varaformaður VR, Ib Sörens-
en formaður HK í Kaupmanna-
höfn, Maria Bosdotter formaður
HF í Stokkhólmi, Erki Rimpiala-
inen formaður LA í Helsinki, Per
Klausen formaður HK í Osló, Eva
Arnhild varaformaður HK í
Kaupmannahöfn óg Björn Sjö-
blom framkvæmdasljóri HF.
Morgunblaðið/Ásdis
Lögreglan í Reykjavík telur fíkniefnavandaiin vera að aukast, ekki síst vegna ecstasy
Aldur fíkniefna-
neytenda að lækka
KARL Steinar Valsson afbrotafræð-
ingur segir í skýrsiu, sem hann vann
fyrir lögregluna í Reykjavík, að ald-
ur fíkniefnaneytenda hafi lækkað
og að þeim sem noti sprautur fari
fjölgandi. Aukningin sé ekki síst í
ecstasy, en dreifíng efnisins hafi
verið mjög markviss og skipulögð.
Auðvelt virðist vera fyrir fólk að
útvega sér efnið.
Lögreglan hefur lagt hald á fíkni-
efni fyrir andvirði rúmlega 30 millj-
óna það sem af er á þessu ári og
fyrir rúmar 300 milljónir á síðustu
10 árum.
Á fyrri hluta þessa árs var lagður
spurningalisti fyrir þá sem voru
handteknir vegna fíkniefnamála hjá
lögreglunni í Reykjavík á tímabilinu
15. janúar til 30. apríl 1995. 50 ein-
staklingar svöruðu, en það eru um
20% þeirra sem áriega eru kærðir
eða grunaðir í fíkniefnamálum á ís-
iandi. Karl Steinar segir í skýrslunni
að svörin gefi vísbendingar um við-
horf og atferli þeirra sem neyta
fíkniefna.
79% byrja á hassi
Um 90% hópsins hafði annaðhvort
ekki lokið grunnskólaprófi eða hafði
enga aðra menntun að baki en
grunnskólapróf. Hjá 79% svarenda
var hass það fíkniefni sem fyrst var
neytt, hjá 10% amfetamin og hjá
8% marijúana. í 73% tilvika nálgast
fólkið efnin í gegnum vinahóp. Dæmi
eru um að fíkniefnaneysla hafí bytj-
að við 11 ára aldur. 18 af þessum
50 manna hóp höfðu prófað hass
14 ára, 12 marijuana, 8 amfetamín,
3 LSD og 2 kókaín.
Yfír 60% hópsins sögðust auðveld-
lega geta útvegað sér landa, sterkt
áfengi, hass og amfetamín. Meira
en þriðjungur sagðist geta útvegað
sér LSD og ecstacy. Karl Steinar
segir að ecstasy hafi náð fótfestu í
dreifingu á mjög skömmum tíma,
en fyrst var lagt hald á slíkt efni
hér á landi árið 1992. Ráðandi efni
á fíkniefnamarkaðinum séu hins
vegar hass og amfetamín.
Þriðjungur í öðrum afbrotum
Aðeins 20% svarenda stunduðu
vinnu reglulega, en aðrir stunduðu
óreglulega vinnu eða höfðu ekki
vinnu. Alls fengu 42% svarenda
bætur frá hinu opinbera, atvinnu-
leysisbætur, örorkubætur eða bætur
frá félagsmálastofnun.
Þriðjungur sagðist fjármagna
fíkniefnaneyslu sína með öðrum af-
brotum. Neysla einstaklinganna sem
svöruðu í könnunni var mjög mis-
munandi. Mesta neysla á hassi var
15 grömm á viku, en neysla á amfet-
amíni var mest 10 grömm á yiku.
Götuverð á einu grammi af hassi
var 1.500 krónur í haust, en 4-5.000
krónur fyrir gramm af amfetamíni.
Aðili sem neytir svo mikils magns
af hassi borgar fyrir það 22.500
krónur á viku og 40-50.000 krónur
fyrir vikuskammt af amfetamíni.
Karl Steinar bendir á að há-
marksrefsing fyrir fíkniefnabrot sé
10 ár. Aldrei hafi fallið dómur í fíkni-
efnamáli sem hafi falið í sér slíka
refsingu. Sé mið tekið af þeim dóm-
um sem fallið hafi að undanförnu
megi maður sem flytur inn eitt kíló
af hassi vænta 3 mánaða dóms, en
verðmæti fíkniefnanna sem hann
flytur inn sé 1,5 milljónir. Fyrir inn-
flutning á 200 grömmum af amfet-
amíni megi viðkomandi vænta 5
mánaða dóms, en verðmæti þess sé
um 1 milijón króna.
Allt síma-
kerfið
óvirkt
ísafirði. Morgunblaðid.
ALLT símakerfi ísfirðinga varð
óvirkt um klukkustundarskeið, milli
kl. 18.30-19.30 á mánudag vegna
bilunar í sjálfvirku símstöðinni á
ísafírði. Almannavarnir á ísafirði
sendu út tilkynningu vegna þessa,
enda mjög óvenjulegt að allt síma-
kerfí svæðisins verði óvirkt á sama
tíma.
„Við misstum allt samband að
og frá stöðinni. Það var verið að
skipta um hleðslubúnað í stöðinni
og því þurftum við að víxla á milli
geymasetta, en það sem gerðist var
að við lentum í biluðu geymasétti
og því fór sem fór. Það tók síðan
sinn tíma að keyra upp öll forritin
aftur.
Það urðu öll símanúmer á ísafirði
óvirk í eina klukkustund, auk þess
sem miklar truflanir urðu á síma-
sambandi á svæðinu frá ísafírði til
Þingeyrar. Þetta hefur aldrei gerst
áður enda er sjaldan unnið við þetta
verk. Þetta var vægast sagt óheppi-
leg bilun,“ sagði Erling Sörensen,
umdæmisstjóri Pósts og síma á
Isafirði.
-------♦ ♦ ♦------
Lítið af kjöti
fiutt inn
LÍTIÐ hefur verið um innflutning
á unnum kjötvörum eftir að það
varð heimilt samkvæmt GATT-
samningnum. Að sögn Brynjólfs
Sandholt yfirdýralæknis hefur aðal-
lega verið um að ræða niðursoðinn
mat.
Þar er aðallega um að ræða
blandaða rétti eins og past'arétti,
paté og þess háttar. Þá hefur
McDonalds flutt inn forsteikta
kjúklingabita og Hagkaup hefur
sótt um innflutning á tilbúnum
kjúklingaréttum.
Davíð leikur
fyrsta leikinn
ÍSLENSKU ólympíumeistararnir í flokki 15 ára og yngri.
SKAK
íþrðttahúsiö við
Strandgötu í
llafnarfiröi
EINVÍGIÐ UM ÍSLANDS-
MEISTARATITILINN
GUÐMUNDAR ARASON-
AR MÓTIÐ
14.-22. desember. Teflt frá kl. 17
daglega. Aðgangur ókeypis.
ALLAR leiðir skákmanna
munu liggja um Hafnarfjörð fram
að jólum. Þar tefla stórmeistar-
arnir Jóhann Hjartarson og Hann-
es Hiífar Stefánsson einvígi um
íslandsmeistaratitilinn sem vafa-
laust verður æsispennandi. Þar fer
einnig fram alþjóðlega Guðmund-
ar Arasonar mótið sem haldið er
fyrir unga og upprennandi ís-
lenska skákmenn. Mótinu var sér-
staklega komið á vegna sigurs
íslenskra unglinga á Ólympíumóti
15 ára og yngri á Kanaríeyjum í
vor.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, mun leika fyrsta leiknum
á mótinu. Það má ekki gera of
miklar kröfur til ungu skákmann-
anna, sem eiga nú í höggi við níu
þrautreynda titilhafa. Þátttakan
verður a.m.k. dýrmæt reynsla fyr-
ir opna Reykjavíkurskákmótið í
mars næstkomandi.
í fyrstu umferð tefia saman:
Borge, Danmörku - Jón G. Viðarsson
Guðm. Halldórsson - Þröstur Þórhalls-
son
Blees, Hollandi - Kristján Eðvarðsson
Sigurbjöm Bjömsson - Martin, Eng-
landi
Riemersma, Hollandi - Bragi Þorfinns-
son
Ólafur B. Þórsson - Christensen, Danm.
Björgvin Jónsson - Noisoe, Færeyjum
Bjöm Þorfinnsson - Bern, Noregi
Gullaksen, Noregi - Ágúst S. Karlsson
Einar Hjalti Jensson - Sævar Bjarna-
son
Nilssen, Færeyjum - Torfi Leósson
Jón V. Gunnarsson - Magnús Ö. Úlfars-
son
Burden, Bandar. - Amar E. Gunnarsson
Aðalfundur TR
Kosningu um formann í
Taflfélagi Reykjavíkur var afstýrt
á síðustu stundu fyrir aðalfund
félagsins á þriðjudagskvöldið.
Samkomulag náðist á milli þeirra
sem lýst höfðu yfir framboði á
þá leið að Ólafur H. Ólafsson
verður áfram formaður en Daði
Örn Jónsson varaformaður.
Jafnframt var samið um að næsti
aðalfundur TR verði haldinn á
réttum tíma, þ.e. næsta vor.
Núverandi fyrirkomulag á því
aðeins að standa í 4-5 mánuði.
Fyrirspurnir um Internetið
Skákþættinum hefur borist
Qöldi fyrirspurna um það hvernig
hefja megi taflmennsku á Inter-
netinu. Leitað var til Björns Jóns-
sonar, Garðabæjarmeistara, sem
þakkar skjótar framfarir sínar
taflmennsku á netinu. Björn brást
vel við og hefur ritað stuttar og
greinargóðar leiðbeiningar sem
hér fylgja á eftir. Rétt er að taka
fram að auðvitað þurfa menn að
vera tengdir við Intemetið tíl að
geta teflt á því. Enn einu sinni
er líka minnt á íslenska skáksíðu
Daða Arnar Jónssonar fyrir þá
sem vilja fylgjast með í skákheim-
inum. Slóðin þangað er:
http://www.vks.is/skak/.
Næstu daga verður þar hægt að
fylgjast með skákviðburðunum í
Hafnarfirði.
Teflt á Internetinu
eftir Björn Jónsson
Til að tefla á Internetinu er
nauðsyn að hafa forrit þar sem
hægt er að tefla á taflborði á
skjánum í stað þess að þurfa að
slá leikina inn. Eitt slíkt forrit
fyrir Windows (bæði 95 og 3.1)
er SLICS og er þetta forrit sk.
deilihugbúnaður (shareware).
Hægt er að nálgast það gegnum
veraldarvefinn á
http://chess.onenet.net/chess.
Þar er smellt á „files for your
type of machine, OS, and/or
windows environment“ og síðan á-
„MS Windows“. Þá birtist skráa-
listi og er forritið í skránni SLICS-
22F.EXE. Hana þarf að sækja og
setja í viðeigandi skráasafn
(directory), t.d. C:SLICS og keyra
svo SLICS22F.EXE. Þá afpakkast
allar skrár sem tilheyra forritinu,
m.a. CHESSBD.EXE sem er sjálft
forritið.
Með forritinu fylgir listi yfir
helstu tölvur (,,skákservera“) sem
hægt er að tefla á á Internetinu
svo næsta skref er einfaldlegá að
keyra forritið (CHESSBD.EXE)
og velja einhveija tölvu undir
„ICS“ í valmynd. Þar liggur bein-
ast við að velja A-FICS til að
byija með.
Þegar A-FICS er -valið birtist
gluggi þar sem slá þarf inn not-
andanafn. Á þessu stigi má slá
þar inn hvað sem er. Eftir að inn
er komið er fyrsta skrefið að
kynna sér helstu skipanir. Mikil-
vægasta skipunin er „help“ sem
gefur upplýsingar um helstu skip-
anir. Mikilvægustu skipanirnar til
að lesa um í byrjun eru „match“,
„set“, „who“, „accept", og
„reject" en miklu fleiri eru til.
Síðast en ekki síst gefur „help
register" upplýsingar um hvernig
á að skrá sig á viðkomandi tölvu
sem er nauðsyn til lengri tíma lit-
ið. Margir skrá sig undir dul-
nefni. Skráningin fer fram með
hjálp tölvupósts. Þegar svar hefur
borist í tölvupósti um að skráning
hafí heppnast er hægt að fara inn
á A-FICS á því notandanafni sem
valið var við skráningu og hefja
taflmennsku. Þegar inn er komið
í fyrsta sinn ætti að gefa skipun-
ina „set style 12“ til að „tilkynna"
að notað sé forrit sem býður upp
á taflmennsku á taflborði á skján-
um.
Þess má geta að til eru sérstök
forrit sem skrá tímanotkun á
hvern leik og eru þannig vanda-
mál vegna slæms Internetsam-
bands að mestu úr sögunni. Nán-
ari upplýsingar um það fást með
því að slá inn „help timeseal“ eða
„help timestamp" á þeirri tölvu
sem verið er að tefla á.
Síðast en ekki síst má prófa
að tefla á fleiri stöðum en A-
FICS. Þar er ICC áhugaverðast.
Margeir Pétursson