Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 45
Vilja stúdentar fremur
veifa röngu tré en öngvu?
ENN einu sinni
hafa staðreyndir um
fjölda námsmanna í
lánshæfu framhalds-
námi á íslandi orðið
að þrætubókarlist í
opinberri umræðu. Sú
óhagganlega stað-
reynd blasir við að
námsmönnum á Is-
landi í framhaldsnámi
hefur fjölgað um rúm-
lega 1.100 manns frá
árinu 1992, þ.e. frá
því ári sem ný lög um
LÍN tóku gildi. Það
er sérkennileg reynsla
að upplifa að allar
götur frá árinu 1991 hafa forystu-
menn Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands gripið til þess ráðs, að mis-
túlka gjörsamlega eða hreinlega
búa til eigin skilning á tölum um
fjölda námsmanna í framhalds-
námi tii þess eins að því er virðist
að finna fyrir því rök að fólk hafi
hrakist frá námi vegna laga um
LÍN frá árinu 1992. Sumir stjórn-
málamenn hafa talið sér skylt að
blása þennan áróður upp á Al-
Námsmönnum í fram-
haldsnámi hefur íjölgað
um 1.100 frá árinu
1992, segir Gunnar
Birgisson, en það ár
tóku ný lög um LIN
Námsm. á íslandi m/börn á framfæri (Hagstofan).
1985 1988 1990 1991 1992 1993 1994
Námsm. með böm 1695 2353 2852 3361 2890 2927 2858
Breyting milli ára 658 499 509 -471 37 -69
Breyt. milli/ára í % 38% 21% 18% -14% 1% -2%
Hvers vegna fækkaði innrituðum námsmönnum haustið 1992?
Gunnar
Birgisson
en öngvu í þeim til-
gangi að koma áróðri
sínum á framfæri við
stjórnmálamenn og
almenning.
Könnun Hagstofu
íslands
gildi.
þingi. Þetta hefur oftast gerst
þegar stutt er í stúdentaráðskosn-
ingar. Oft er skipt um forsvars-
menn árlega. Nýju mennirnir spila
sömu plötuna um LÍN og þeir sem
áður voru þar í forystu. Engu virð-
ist skipta hvað hefur reynst rétt
í málflutningi fyrri leiðtoga eftir
nánari athugun og þessir forsvars-
menn stúdenta virðast ekki sjá
ástæðu til að staldra við og athuga
mál frá fleiri hliðum þegar nýjar
upplýsingar berast, heldur er
hlaupið af stað með írafári og lát-
um og þá gjarnan gripið til mjög
svo hæpinna útskýringa.. Því
vaknar sú spurning hvort við séum
að ala upp kynslóð menntamanna
sem telur betra að veifa röngu tré
Fulltrúi náms-
manna hélt því fram í dagblaði sl.
vor (rétt fyrir alþingiskosningar)
að námsmönnum í framhaldsnámi
á íslandi með böm á framfæri
hafi fækkað um 34% og einstæð-
um foreldrum í hópi námsmanna
hafi fækkað um 40%. milli áranna
1991 og 1992. Svona væru nú
nýju lögin um LÍN vond! Forráða-
menn Lánasjóðsins sáu í hendi sér
að hér var um fáránlegar ályktan-
ir að ræða og óskuðu að eigin
frumkvæði eftir því að Hagstofa
íslands kannaði hvort námsrnönn-
um í lánshæfum skólum á íslandi
hefði fjölgað eða fækkað á tilteknu
árabili, en slíkar upplýsingar lágu
alls ekki fyrir þegar fyrrgreindur
forystumaður námsmanna hélt
þessu fram. Fyrir nokkru skilaði
Hagstofan niðurstöðu sinni og er
hún sem hér segir: sjá töflu.
Öllum innrituðum námsmönn-
um fækkaði nokkuð milli skólaár-
anna 1991-92 og 1992-93 um ca
500 manns. Þá gerðist þrennt:
Innritunargjöld í nokkrum skólum
á íslandi hækkuðu, þannig hækk-
uðu þau í Háskóla Islands úr kr.
7.700 upp í kr. 22.350. Afnumin
voru sérstök fríðindi stúdenta á
sama tíma, þ.e. dagvistargjöld
þeirra voru hækkuð og lög um LÍN
breyttust. Eftir skólaárið 1992-93
hefur námsmönnum í lánshæfu
námi á íslandi fjölgað ár eftir ár
'eða samtals um 1.540 manns eða
nettó á gildistíma laganna (frá
skólaárinu 1991-92) um rúmlega
1.100 manns. Allt bendir til þess
að hækkun innritunar og dagvist-
argjalda hafi haft þau áhrif að
allavega þeir sem voru með börn
á framfæri og stunduðu hlutanám
eða voru innritaðir án þess að
stunda nám hafi ekki látið innrita
sig haustið 1992. Sá hávaði sem
gerður hefur verið út af þessari
fækkun og að það sé lögum um
LÍN að kenna er því algjörlega
órökstuddur og raunar fráleitur
þegar litið er til þess að námsmenn
í lánshæfu námi hafa aldrei verið
fleiri en eftir gildistöku laganna.
Fjöldi lánþega LÍN og fjöldi
námsmanna óskyld hugtök
í opinberri umræðu, einkum af
hálfu stjórnmálamanna og sumra
forystumanna námsmanna, hafa
menn oft á tíðum blandað saman
tvennu óskyldu, þ.e. fjölgun eða
fækkun lánþega hjá LIN og ein-
stakra hópa þeirra annars vegar
og fjölgun eða fækkun náms-
manna í lánshæfu námi hins veg-
ar. í raun er afar lítið eða ekkert
samhengi þarna á milli. Þetta
kemur glöggt í ljós ef skoðuð er
sú þróun sem átti sér stað í Há-
skóla íslands á árunum 1989-91.
Þá fækkaði beinlínis innrituðum
stúdentum við Háskólann en á
sama tíma fjölgaði þeim stúdent-
um sem tóku námslán um 750
manns eða 37%! (Sjá mynd). Mig
rekur ekki minni til þess að mold-
virðri hafi verið þyrlað upp vegna
þessa og lögum um LÍN hafi verið
kennt um þessa fækkun. Astæðan
gæti verið sú að þá vermdu mestu
hávaðamennimir stólana í Stjórn-
.arráðinu.
Einstæð móðir með 2 börn
155.000 kr. á mánuði
Þegar að er gáð er það einnig
fráleitt að tala um að barnafólk
og sérstaklega einstæðir foreldrar
hafi verið hrakin frá námi. Stjóm
LÍN hefur gert margvíslegar
breytingar á reglum sem hafa
verið hagstæðar fyrir þetta fólk,
t.d. hafa barnabætur og barna-
bótaauki ekki lengur áhrif á rétt
manna til námslána og sem dæmi
má nefna að einstæð móðir með
2 börn á framfæri hefur til ráðstöf-
unar með námsláni sínu 155.000
-kjami málsinv!
FJÖLDI NÁMSMANNA OG LÁNÞEGA LÍN
I HÁSKÖLA ISLANDS
6
Fjöldi
Fjölgun námsm.
viö Háskóla Islands
Fækkun námsmanna
5 í Háskóla Islands
Fjölgun
lánþ.
1988/81 89/90 90/91 93/94 94/95 95/96
Námsmenn Lánþegar 4.454 2.032 4.421 2.641 4.397 2.787 4.959 2.014 5.568 2.209 5.726 2.301
Námsmenn
Lánþegar
krónur á mánuði ef hún stundar
fullt nám.
Hafa kröfur
verið auknar?
Lágmarkskröfur eru þær sömu
til þess að menn teljist lánshæfir
eins og verið hefur frá stofnun
LÍN, þ!e. menn þurfa að skila að
lágmarki 75% af fullu námi til
þess að teljast lánshæfir. Þetta
þýðir að menn geta t.d. verið í
fjögur ár að ljúka þriggja ára há-
skólanámi. Það er á hinn bóginn
rétt að til þess að fá fullt lán þurfa
menn að skila 100% námsfram-
vindu, þ.e. menn fá sem svarar
fullu láni fyrir þriggja ára nám,
hvort sem menn ljúka því á þrem-
ur eða fjórum árum. Það er athygl-
isvert að fólk með böny á fram-
færi, sem tekur lán hjá LÍN, skilar
að meðaltali 96-98% námsfram-
vindu, sem er betra en almennt
gerist. Sú staðreynd bendir ekki
til þess að gerðar séu óraunhæfar
kröfur til þessa fólks.
Höfundur er stjórnarformaður
LÍN.
IÐNAÐARHURÐIR - BÍLSKÚRSHURÐIR
ÞAK- OG VEGGSTÁL
ÍSVÁL-öORGA H/F
HÖFÐABAKKA9 -112 REYKJAVÍK - SÍMI: 587 8750 - FAX: 587 8751
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA - KRINGLUNNI
Mikið úrval af spariskóm frá
F*ETER kaiser
-Litir
-Hælahæðir
-Skraut við
allra hæfi
-Töskur í úrvali
-Hanskar
-Gjafakortin
vinsælu
J
V