Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 50
 sokkabuxur Desember tilboð í apótekum mijji jjjf$&fr*$Jr fjjf jjjjj M fff M ^L® f MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR 50 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 FÓRNARLÖMBUM styrjalda og náttúru- hamfara hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Flóttamönnum og heimilislausum fer ört fjölgandi og þörf fyrir framlög til hjálp- arstarfa hefur stór- aukist. Talið er að 250-300 milijónir manna verði fyrir áföllum af völdum hamfara og átaka ár- lega. Flóttamenn eru taldir vera 23 milljónir og aðrar 26 milljónir manna eru heimilis- lausar og á vergangi í eigin landi. Styijaldir eru nú háðar í 31 landi þótt margar þeirra fari ekki hátt í umfjöllun fjölmiðla í okkar heims- hluta. Þorri þeirra sem verða fyrir barðinu á átökum og hamförum, af náttúrunnar völdum og manna, eru konur, börn og gamalmenni. Styijaldaraðilar bera æ minni virðingu fyrir alþjóðlegum mann- úðarlögum. I stað skipulagðra heija fyrri tíma takast nú iðulega á lítt skipulagðir, óagaðir her- flokkar sem þekkja ekki til þeirra leikreglna sem gilda eiga í ófriði eða láta þær sig engu skipta. Ósjaldan eru börn og ungmenni þjálfuð til voðaverka sem oft eru framin undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Þetta gerir starf Rauða krossins og annarra hjálparstofnana sífellt erfiðara og dæmi eru um að ótryggt ástand geri starfsmönnum hreyfingarinn- ar ókleift að koma nauðstöddum til hjálpar. Um 110 milljónir jarðsprengna leynast í jörðu í tugum landa. Meira en tvö þúsund manns látast eða limlestast af völdum jarð- sprengna í hveijum mánuði, í flest- um tilvikum óbreyttir borgarar á svæðum þar sem átökum er lokið, og milljónum manna er bráð hætta búin af þeirra völdum. Alþjóðaráð Rauða krossins telur að jarð- sprengjur séu eitt hrikalegasta vandamál mannkyns á síðari ára- tugum. Ráðið berst nú hart fyrir banni við framleiðslu, sölu og notkun þessara voðavopna og raunar hefur hreyfingin öll sam- þykkt að beita sér fyrir slíku banni. Mannúðarhreyfing Þetta eru brot úr þeim veruleika sem var til umfjöllunar á alþjóða- ráðstefnu Rauða krossins með aðildarríkjum Genfarsáttmálanna sem haldin var í Genf 3.-7. desem- ber undir yfírskriftinni Viðhöldum voninni (Keeping hope alive). Ráðstefnan er sú 26. í röðinni en sú fyrsta var haldin í París 1867, fjórum árum eftir stofnun Alþjóðaráðs Rauða krossins og nokkurra landsfélaga. í París 1867 þinguðu fulltrú- ar Alþjóðaráðsins, 16 landsfélaga og níu Evrópuríkja. í Genf 1995 komu saman fulltrúar Alþjóðaráðs- ins, Alþjóðasambands landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans, 168 landsfélaga, þeirra á meðal fulltrúar Rauða kross íslands, og fulltrúar 186 ríkja sem eiga aðild að Genfarsátt- málunum. Rauði krossinn er stærsta og öflugasta mannúðarhreyfing heims og vex enn fiskur um hrygg. Meira en tvö þúsund manns látast eða lim- lestast af völdum jarð- sprengna í hverjum mánuði, segir Garðar Guðjónsson; þær eru eitt hrikalegasta vanda- mál mannkyns á síðari áratugum. Hjáíparstarf hreyfingarinnar um víða veröld er feiknalega umfangs- mikið en um leið eru ýmsar blikur á lofti um framhald þessa starfs. Ólík hlutverk Til útskýringar er vert að gera grein fyrir því að alþjóðahreyfing Rauða krossins samanstendur af þremur stólpum sem styðja hver við annan: Alþjóðaráði Rauða krossins, Alþjóðasambandi lands- félaga og landsfélögunum. Þau eru nú 168 og fleiri bíða viðurkenning- ar. Innan landsfélaganna starfa svæðadeildir. Deildir Rauða kross íslands eru til að mynda 50 talsins um land allt, enda er það ein for- senda þess að landsfélag njóti við- urkenningar að starfið nái til landsins alls. í stuttu máli má segja að hlut- verk Alþjóðaráðsins sé að koma stríðshijáðum til hjálpar, gæta hagsmuna óbreyttra borgara við Garðar Gúðjónsson Klæðningin sem þolir íslenska veðróttu S Grátt Bláft Fílabein Leitið tilboða ÁVALLT TIL A LAGER - kjarni málsins! Þú kaupir 3 pör og færð 4. parið frítt! Frábær styrkur, frábær mýkt Tilboð gildir 1. —w -31. des. í öllum apótekum sem selja Filodoro sokkabuxur og sokka. LXIRA Viðhöldum voninni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.