Morgunblaðið - 14.12.1995, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 51
slíkar aðstæður, heimsækja fanga
og stríðsfanga, sameina fjölskyld-
ur sem verða viðskila og koma
skilaboðum milli manna og síðast
en ekki síst að stuðla að út-
breiðslu alþjóðlegra mannúðarlaga
og efla virðingu fyrir þeim. Starfs-
menn Alþjóðaráðsins eru einatt
fyrstir á vettvang átaka og mann-
legra hörmunga. Þeir eru nú um
átta þúsund talsins. Meginhlut-
verk Alþjóðasambandsins er á
hinn bóginn að koma flóttamönn-
um utan stríðssvæða til hjálpar. í
fyrra nutu 19,4 milljónir manna
aðstoðar sambandsins og um 1,7
milljörðum króna var varið til að-
stoðarinnar. Sambandið hefur á
þriðja þúsund starfsmenn um heim
allan en hefur, eins og Alþjóðaráð-
ið, höfuðstöðvar sínar í Genf.
128 milljónir félagsmanna
Landsfélögin taka virkan þátt í
alþjóðlegu hjálparstarfi með
starfsmönnum og fjárframlagi en
hafa auk þess margvíslegum
skyldum að gegna við þá sem
minna mega sín heima fyrir, svo
sem í neyðarvörnum, félagsmálum
(sbr. Rauðakrosshúsið, Vin, aðstoð
við flóttamenn, alnæmissjúka og
fleiri) og heilbrigðismálum
(sjúkraflutningar, skyndihjálp,
rekstur sjúkrahótels). Landsfélög-
in hafa 128 milljónir félagsmanna
og virkra sjálfboðaliða, auk 275
þúsund starfsmanna. Félagsmenn
Rauða kross íslands eru tæplega
18 þúsund, virkir sjálfboðaliðar
nema hundruðum og starfsmenn
eru 44. Deildir félagsins eru 50
eins og áður var getið. Félagið
svaraði á síðasta starfsári 53
hjálparbeiðnum með ijárframlagi
og 19 sendifulltrúar þess voru við
hjálparstörf víða um heim.
í grimmri veröld
Þessi stærsta mannúðarhreyf-
ing heims hefur tekist á við feiki-
lega umfangsmikil og ijölbreytileg
verkefni síðan Alþjóðaráð Rauða
krossins var stofnað í Genf 1863
að frumkvæði Svisslendingsins
Henrys Dunant. Hún hefur þurft
að bregðast við æ þróaðri og upp-
finningasamari aðferðum manns-
ins við að valda bræðrum sínum
og systrum dauða og þjáningum,
reynt hefur á styrk hennar í tveim-
ur heimsstyijöldum og aragrúa
staðbundinna átaka, auk náttúru-
hamfara og hamfara af manna
völdum. Ný áhyggjuefni hreyfing-
arinnar á alþjóðavettvangi eru fjöl-
mörg. Á alþjóðaráðstefnunni í
Genf var meðal annars rætt um
vaxandi erfiðleika í hjálparstarfi
vegna viðskiptaþvingana, þverr-
andi virðingu stríðsaðila fyrir al-
þjóðlegum mannúðarlögum, vax-
andi fjölda flóttamanna og heimil-
islausra, þátttöku bama í styijöld-
um, jarðsprengjuvandann og þörf-
ina fyrir aukin framlög til alþjóð-
legs hjálparstarfs. Fulltrúar Rauða
kross íslands og íslenska ríkisins
Ný sending af undirfatnaði í
hvítu, grænu og vínrauðu.
tóku heilshugar undir kröfuna um
bann við framleiðslu og notkun
jarðsprengna. Ráðstefnan lýsti
einnig yfír stuðningi við það starf
sem unnið er í því skyni að koma
í veg fyrir þátttöku bama í styijöld-
um en Rauði kross íslands hefur
haft framkvæði að því starfi innan
Rauða kross hreyfingarinnar.
Vonin lifi!
Mörgum kann að virðast vonlít-
ið um árangur af því að um eitt
þúsund fulltrúar Rauða krossins
og ríkja heims komi saman í hinni
fögra Genfarborg að ræða þessi
óskaplegu vandamál. Okkar skoð-
un er þó sú að með samstarfi hjálp-
arstofnana og ríkja megi þoka
málum til betri vegar og halda
voninni á lofti hjá þeim hundruðum
milljóna sem eiga undir högg að
sækja í veröldinni. Rauði kross
íslands og deildir hans era hlekkur
í þeirri sterku keðju sem lýst er
hér að ofan. Félagið hefur metnað
til þess að taka virkan þátt í sam-
starfi hreyfingarinnar á alþjóða-
vettvangi um leið og það heldur
uppi öflugu starfi hér innanlands
með tilstyrk félagsnffanna, sjálf-
boðaliða og annarra velunnara.
Markmið okkar er að glæða voriina
lífi hjá þeim sem verst eru stadd-
ir, heima og erlendis, á sem árang-
ursríkastan og hagkvæmastan
hátt.
Höfundur er kynningarfulltrúi
Rauða kross íslands.
DIESEL
JEANS AND MENTAL POWER
Kröftugur
ilmur
/