Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 64
54 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Tommi og Jenni
rffAuerjuerttX 7Af hyerju
of huotfC ? ) (Hf'oturSucáeq*
' /canns/u eri pú á.
i nvotfc cg 'ep sny
‘7'S'V réti
Ljóska
Ferdinand
Kringlan 1103 Reykjavík • Sírni 5691100 • Símbréf 569 1329
Framlag Aðvent-
safnaðarins til upp-
byggingar á Flateyri
Frá Aðventsöfnuðinum á íslandi:
VEGNA þeirra hörmunga sem
dundu yfir 26. október sl. vill
Aðventsöfnuðurinn á íslandi votta
öllum Flateyringum dýpstu samúð
oghluttekningu.
í 150 ára sögu sinni hafa að-
ventistar leitast við að leggja þeim
lið sem eiga um sárt að binda af
einhverjum ástæðum og svo er
einnig núna þegar náttúruhamfar-
ir hafa dunið yfir landið og fjöldi
fólks á Flateyri hefur misst eignir
og ástvini.
Þótt eignamissirinn sé léttvæg-
ur í samanburði við þann missi sem
ekkf verður bættur hafa ADRA -
Hjálparstarf aðventista og sys-
trafélögio Alfa í hluttekningar-
skyni tekið höndum saman og
safnað fé til stuðnings endurupp-
byggingarstarfinu. Féð, að upp-
hæð 1.150.000, mun í fullu sam-
ráði við forsvarsmenn á Flateyri
renna til byggingar nýs leikskóla
á Flateyri en sem kunnugt er varð
gamla leikskólahúsnæðið snjóflóð-
inu að bráð.
Umrædd fjárupphæð er tilkom-
in vegna þátttöku Alþjóða þróun-
ar- og líknarsjóðs aðventista,
ADRA - Hjálparstarfs aðventista
í Bretlandi, Noregi og Finnlandi
og framlags systrafélaganna Alfa
á íslandi. Einnig mun Frækornið
- bókaforlag aðventista gefa
bókagjöf í nýja leikskólann.
ADRA - Hjálparstarf aðvent-
ista hefur áður veitt styrki til
hjálparstarfs á íslandi og er
skemmst að minnast snjóflóðanna
á Súðavík þar sem ADRA - Hjálp-
arstarf aðventista og systrafélögin
Alfa gáfu samtals 2.000.000 í
söfnunina Samhugur í verki.
STELLA LEIFSDÓTTIR,
fulltrúi ADRA - Hjálparstarfs aðvent-
ista á íslandi.
Leitarmannakofi
fræðsiusetur
Frá Höskuldi Jónssyni:
ÞEGAR Ferðafélag Íslands reisti
sæluhús á Hveravöllum árið 1938
var þar fýrir leitarmannakofi. Eðli
máls samkvæmt fluttu fjallmenn
sig í sæluhúsið og smám saman
lenti kofinn í vanhirðu.
Fyrir nokkrum árum kom ég á
Hveravelli í byijun ágúst. Veggir
kofans voru þá skrýddir blóðbergi
sem komið hafði sér fyrir í hleðsl-
unni. Auk blómanna vöktu veggir
hússins athygli mína. Augljóslega
höfðu þeir verið listilega hlaðnir á
sínum tíma þótt gijótið í þeim
væri frekar smátt og illa fallið til
hleðslu. Þetta hús varð mér minn-
isstætt og ég ákvað að næst þegar
ég færi um Hveravelli yrðu blómin
og hieðslan fest á mynd.
Næsta ferð á Hveravelli var síð-
sumars að árum liðnum. Blómin
voru fallin, hluti hleðslunnar hrun-
inn og ryðgað bárujárn flygsaðist
á gafli hússins í haustnæðingnum.
Myndefnið varð ekkert og æ síðan
er mér í huga þetta ömurlega hræ
á einum vinsælasta ferðamanna-
stað landsins.
Það er mikið fagnaðarefni að
nú hafa umskipti orðið á leitar-
mannakofanum. Á undanförnum
árum hefur verið unnið að endur-
gerð hans. Veggir hlaðnir upp að
nýju, þak tyrft og timburverk lag-
að eða endurnýjað. Húsið stendur
við þjóðbrautina um hverasvæðið
og verður í framtíðinni nýtt til að
koma skilaboðum á framfæri til
almennings um furður Hveravalla
sem tengjast náttúru lands og
sögu. Við endurgerð hússins hefur
þess verið gætt að svipur þess sem
kofi fjallmanna glataðist ekki enda
ærin ástæða til að varðveita þátt
þeirra í ferðasögu íslendinga.
HÖSKULDUR JÓNSSON,
forseti Ferðafélags íslands.
Smáfólk
OJELL, l'M OFF TO MV
DANCE CLA55..EMILV
15 PR06A5LV WAITIN6T0
DANCEWITH ME A6AIN..
'-ir
HERE I C0ME,
5WEET EMILV!
HERE COME5VOOR
DANCE PARTNER!
nc
WHIRL AROOND
THE FL00R WITH
ME, EMILV..
lir
''SOME A
ENCHANTED
BÆNIN6.."
nr
£
OT :
1
S u. 1 ©
%
JÆJA þá, ég er að fara Ég er að koma, Sveiflaðu þér „Á töfrandi
í danstíma ... Emelía er sæta Emelía! um gólfið með kvöldi...“
sennilega að bíða eftir því Hér kemur mér, Emelía ...
að dansa við mig aftur ... dansfélagi þinn!
Hver á að borga?
Frá Gunnari Ólafssyni:
MÁ ÉG biðja ykkur um aðstoð og
álit:
Það er nú þannig að ýmsir ís-
lendingar sem búið hafa í útlönd-
um um árabil láta það í veðri vaka
að þeir vilji gjarnan eyða ævikvöld-
inu á íslandi.
Hvað þýðir þetta svona fyrir
okkur „normal“ skattborgara?
Getur fólk búið í útlöndum og
borgað þar sín félagslegu gjöld og
komið síðan til Islands og sest upp
á okkur og við hin sem haldið
höfum uppi íslands ærnum kostn-
aði, eigum við að auki að borga
fyrir það ævikvöldið?
Þetta eru mínar hugleiðingar
um velferðarkerfið sem gott er en
ekki gallalaust.
GUNNAR ÓLAFSSON,
Traðarlandi 14, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.