Morgunblaðið - 14.12.1995, Síða 2
2 D FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
DAVID og Coleen Hutchinson fyrir miðri mynd með verðlaunin sem þau hlutu á dögunum. Jóhann-
es Már Jóhannesson, markaðsstjóri Samherja, er lengst til hægri á myndinni og Gústaf Baldvins-
son frá ísberg, sölustjóri Ice Fresh fisks í Englandi, lengst til vinstri.
Keppni veitingastaða í Englandi sem selja fisk og franskar
Veitingastaður ársins
selur fisk frá Samherja
HUTCHINSONS Fish and Chips í
Heiston í Comwall bar sigur úr
býtum í keppni um val á „Fish and
Chips“ veitingastað ársins í Eng-
landi sem nýlega fór fram en stað-
urinn selur eingöngu fisk af togur-
um Samherja hf. á Akureyri.
Jóhannes Már Jóhannesson mark-
aðsstjóri Samheija segir að árlega
sé valinn veitingastaður ársins í
þessum flokki, en „fískur og fransk-
ar“ séu nokkurs konar þjóðarréttur
Englendinga. Um 900 veitingastaðir
taka þátt í keppninni og stendur
valið yfír í um tvo mánuði. Á þeim
tíma sem valið stendur yfír geta
staðimir átt von á heimsóknum þar
sem fulltrúar keppninnar fara í
saumana á öllum þáttum rekstrarins
auk skyndiheimsókna þar sem mat-
argestir láta ekkert uppi um ástæð-
ur heimsóknarinnar fyrr en að lokn-
um snæðingi. Einn staður í hveijum
hluta landsins er síðan valinn til
þátttöku í úrslitakeppni og var hún
haldin nýlega í Lundúnum.
Hutchinsonhjónin, David og
Cloeen sem reka staðinn hafa ein-
göngu notað sjófrystan físk frá
Samheija síðustu 4-5 ár og töldu
þau gæði fisksins tvímælalaust eina
aðalástæðu velgengni sinnar.
Vandalaust sé að fá iðnaðarvöru
af bestu gerð, en erfiðara að tryggja
gæði físksins. Þau hefðu prófað
marga framleiðendur en aldrei get-
að treyst því að gæðin væru þau
sömu frá degi til dags, en Jóhannes
sagði að þau teldu það mikið happ
fyrir reksturinn þegar þau keyptu
sjófrystan fisk af Samheija fyrir
nokkmm árum.
Beint til neytenda
„Það er nokkuð útbreiddur mis-
skilningur á íslandi að sjófrystur
fískur fari til frekari vinnslu í verk-
smiðjum í Englandi, staðreyndin er
sú að meira en 95% af sjófrystum
flökum em seld beint til neytenda,“
sagði Jóhannes. „Okkur þykir afar
ánægjulegt að sjófrystur fiskur frá
íslandi skuli hafa getið sér svo gott
orð.“
Nýir eigendur að taka
við í Krossanesi
NÝIR eigendur taka við rekstri
loðnuverksmiðju Krossaness á Ak-
ureyri í dag eða á morgun. Verk-
smiðjan hefur um langt árabil ver-
ið í eigu Akureyrarbæjar, en núver-
andi meirihluti í bæjarstjóm stefnir
að því að selja hlutabréf bæjarins
í atvinnufyrirtækjum og er sala á
Krossanesi liður í því.
Ýmsir möguleikar
Verksmiðjan var seld á 150
milljónir króna auk þess sem kaup-
endur, hópur fjárfesta sem Þórar-
inn Kristjánsson framkvæmda-
stjóri Gúmmívinnslunnar á Akur-
Aflétta bæjar-
ábyrgðum sem
nema hátt í 300
milljónir
eyri fór fyrir, aflétta bæjarábyrgð-
um sem hvíla á fyrirtækinu en þær
nema hátt í 300 milljónir króna.
„Það er alveg klárt að við hefð-
um ekki boðið í verksmiðjuna nema
vegna þess að við teljum að þama
megi reka arðvænlegt fyrirtæki,“
sagði Þórarinn Kristjánsson. „Við
sjáum fyrir okkur ýmsa möguleika
á að gera góða hluti í þessum
rekstri.“
Þórarinn sagði að engar breyt-
ingar yrðu á rekstrinum fyrst í
stað, framkvæmdastjórinn Jóhann
Pétur Andersen stóð að tilboðinu
með Þórarni, ísfélagi Vestmanna-
eyja, stofnanafjárfestum og fleir-
um og verður hann áfram fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
„Ég tel að bærinn hafí stigið
rétt skref með því að selja fyrir-
tækið, sveitarfélagið á ekki að vera
í atvinnurekstri til lengri tíma,“
sagði Þórarinn.
Jódís Jósefsdóttir hefur starfað
fyrir Morgunblaðið síðan 1962
„Viltu biðja
pabba þinn...“
JÓDÍS Kristín Jós-
efsdóttir hefur
starfað fyrir Morg-
unblaðið á Akur-
eyri siðan um ára-
mótin 1961 og 1962.
Fyrst með eigin-
manni sínum, Stef-
áni Eirikssyni sem
varð umboðsmaður
blaðsins, sem um-
boðsmaður sjálf
eftir lát hans 1980
og síðan Morg-
unblaðið opnaði
skrifstofu á Akur-
eyri 1986 hefur hún
starfað þar.
Líf Jódísar snér-
ist um Morgunblað-
ið i mörg ár, enda segist hún
aldrei hafa farið í sumarfrí á
árunum frá 1962 til 1986, „nema
þrjá daga um verslunarmanna-
helgina og um páskana, frá skír-
degi til þriðja í páskum — þetta
voru einu dagarnir sem blaðið
kom aldrei út,“ segir Jódís. Og
þegar börnin hennar tvö voru
fermd, spilaði Morgunblaðið
inní. „Eiríkur og Hulda voru
bæði fermd á annan í páskum,
því það var eini fermingardag-
urinn sem ég gat verið alveg
viss um að eiga frí. Svona sner-
ist líf mitt um Moggann í mörg
ár, ég gat ekki einu sinni farið
í leikhús fyrr en ég væri viss
um að blaðið væri komið, því
stundum var ekki flogið fyrr en
undir kvöid.“
Þrjátíu og fimm ár verða á
næsta ári frá því Jódís hóf störf
þjá Morgunblaðinu og sagðist
hún „aldeilis hrædd" um að
starfið væri öðru vísi nú. „Þá
voru nú ekki tölv-
urnar og þurfti til
dæmis að hand-
pakka öll blöð sem
fóru í sveitirnar."
Og breytingin hef-
ur orðið mikil á
blaðinu. „Þá þótti
blaðið ákaflega
stórt ef það var
meira en 24 siður.“
í þá daga komu
líka margir blað-
berarnir í af-
greiðslu blaðsins,
sem var í „Morgun-
blaðshöllinni", litlu
húsi sem stóð sunn-
an Bautans en var
rifið 1990. „Það var
afar skemmtilegt að krakkarnir
skyldu koma til að ná í blaðið
því ég kynntist þeim svo vel.
Þeir urðu vinir mínir. Sumir
þorðu ekki að tala við Stebba,
hann var harðari en ég, og ef
þeir vildu fá frí eða þurftu að
biðja um eitthvað annað sögðu
þeir gjarna: Viltu biðja pabba
þinn...“ Þetta fannst mér voða
fyndið, en hann var tveimur
árum eldri en ég.“
Jódís, sem verður 68 í vor,
starfaði á Amtsbókasafninu þeg-
ar Stefán tók við umboði Morg-
unblaðsins á Akureyri en hætti
því til að starfa með honum.
„Mér féll það illa fyrst að hætta
því starfið á safninu var það
besta sem ég gat hugsað mér.
En það rættist úr því — mér lík-
aði þetta starf ógurlega vel,
þótti og þykir mjög vænt um
Moggann. Og samstarfsfólk mitt
hér á skrifstofunni er alveg ynd-
islegt.“
Jódís Kr.
Jósefsdóttir
Akureyri
Bæjarstjórnin á Akureyri
óskar Akureyringum og
landsmönnumn öllum
/fs>//t///t//S á/'-i.
Glerárgötu 28 - Akureyri
Áskriftarsími 462 4966
ijjtu e kki af dejemberbókunum