Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 D 25 FRAMTIÐARSVÆÐI Háskólans á Akureyn við Sólborg. AKUREYRI Stofnun Vilhjálms Stefánssonar leggur skólanum mikla ábyrgð á herðar unina verði traust og skilvirk. Hann segir ákvörðun um Stofnun Vil- hjálms Stefánssonar leggja Háskól- anum á Akureyri mikla ábyrgð á herðar og ljóst sé að við mótun framtíðarstefnu háskólans þurfi að taka tillit til hennar. „í tengslum við Stofnun Yilhjálms Stefánssonar á Akureyri kemur ný vídd inn í stefnumótun Háskólans á Akureyri. Sú stefna þarf að taka mið af því að háskólinn marki sér ákveðnar bás en nú er sem háskóli á norður- slóð og líti á það sem hlutverk sitt að rannsaka og fræða um lífsskil- yrði, náttúru og atvinnulíf á norður- slóð. Tillaga um rannsóknardeild ferðamála Samgönguráðuneyti hefur til umfjöllunar tillögu háskólans um að komið verði á fót rannsóknardeild ferða- mála víð Rannsóknar- stofnun Háskólans á Akureyri. Meðal verk- efna yrði að safna og vinna úr upplýsingum um þróun, umfang og hag ferðaþjónustunnar, en þar má nefna þætti er varða fjár- festingu í greininni, nýtingu að- stöðu, fjárhagslega afkomu og upp- lýsingar vegna markaðssetningar, að gera skipulegar kannanir á mati ferðamanna á gæðum þjónustunn- ar, að veita stjómvöldum og aðilum ferðaþjónustu ráðgjöf og þjónustu og stuðla að rannsóknum á sviði ferðamála og kynningu þeirra, m.a. í vísinda- og fagtímaritum. Til að koma á fót deild ferða- mála við Rannsóknarstofnun Há- skólans á Akureyri hefur verið sótt um þriggja milljóna króna framlag til samgönguráðuneytis. Sagði Þor- steinn að samgönguráðherra og þeir sem tillagan hefur verið kynnt fýrir hafi tekið vel í hugmyndina. Verði rannsóknardeild ferðamála komið á fót segir hann nauðsynlegt að námsframboð rekstrardeildar verði styrkt til að veita rannsóknar- deildinni öflugra bakland. Sérstaða Háskólans á Akureyri Háskólinn á Akureyri hefur nokkra sérstöðu, „í fyrsta lagi bjóð- um við upp á nám í sjávarútvegs- deild, en það er eina BS-námið í sjávarútvegsfræðum hér á landi. Þá höfum við markað okkur nokkra sérstöðu með því nána samstarfi sem við eigum við rannsóknarstofn- anir atvinnuveganna sem hér fer fram. Við stöndum saman að ráðn- ingu sérfræðinga á ýmsum sviðum sem hafa kennsluskyldu við skól- ann. Þá get ég nefnt sérhæfingu innan rekstrardeildar, en hægt er að ljúka BS-prófi í gæðastjórnun frá skólanum og er það eina námið af því tagi sem í boði er hér á landi. Einnig get ég nefnt að við höfum aðrar áherslur í námi bæði innan heilbrigðisdeildar og kennaradeild- ar, en í þeirri síðarnefndu er lögð áhersla á starf í fámennum skól- um,“ sagði Þorsteinn. Háskólamenn eru þessa dagana ekki einungis að koma sér fyrir á nýrri háskólalóð og að vinna að auknu námsframboði. Nýjar áhersl- ur í rannsóknum hafa einnig verið boðaðar. Samstarfsstofnanir Há- skólans á Akureyri eru Hafrann- sóknarstofnun, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Iðntæknistofnun ís- lands, Rannsóknarstofnun landbún- aðarins, Fiskifélag íslands og Fræðsluskrifstofa Norðurlandsum- dæmis eystra. Nú nýverið var skipuð samvinnu- nefnd um norðurmálefni í samræmi við þingsályktun um Stofnun Vil- hjálms Stefánssonar á Akureyri. Hlutverk hennar er að tengja saman og treysta samstarf stofnana sem hafa ann- -__________ ast og munu annast ~ , rannsóknir á norðurslóð- KannSOknar- um svo og tengsi og deild ferða- samstarf um málefni mála komið á Stofnunar Vilhjálms fýt vlð HA? Stefánssonar. Einnig er _____ henni falið í samráði við ráðuneyti að vinna að undirbúningi Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri, en ætlun- in er að hún hefji starfsemi í árs- byijun 1997. Þorsteinn telur að tryggja þurfi að tengsl stofnun- arinnar við háskólann verði með sem nánustum hætti, að hún verði í húsnæði skólans og formleg og starfsleg tengsl skólans við stofn- Birkir Skarphéðinsson kaupmaður í Amaro Verslunar- ferðir til út- landa hafa mikil áhrif AMARO rekur verslun og heild- sölu á Akureyri en fyrirtækið var stofnað árið 1940 af Skarphéðni Ásgeirssyni og fleirum. í dag reka synir Skarphéðins fyrirtækið, þeir Birkir og Kristján og um tíma var þriðji bróðirinn Brynjar einnig aðili að rekstrinum. Hjá fyrirtæk- inu starfa um 35 manns. Birkir segir að rekstrarum- hverfið sé erfitt í dag og hafi ver- ið sl. 5 ár og hann sér ekki fram á annað en svo verði áfram fram undir aldamót. „Reksturinn var mun léttari fyrir 10 árum, þá var töluverð verðbólga og umhverfið allt öðruvísi en það er í dag. Stöð- ugleikinn nú er hins vegar nyög mikilvægur og nauðsynlegur í Morgunblaðið/Kristján Birkir Skarphéðinsson, í Am- aro telur að lengri afgreiðslu- tími í desember skili sér ekki í meiri verslun. Hér er hann staddur í undirfatadeildinni í verslun sinni. rekstri fyrirtækja," segir Birkir. í seinni tíð hefur verið nokkuð um beint flug frá Akureyri á haustin til borga í Evrópu og hafa fleiri hundruð bæjarbúar farið í þessar ferðir til að skemmta sér og versla. „Þessar verslunarferðir erlendis taka mikla verslun frá okkur og hafa stórkostleg áhrif á reksturinn." Rugl að breyta kortatímabilinu Jólaverslun hefur farið hægt og sígandi af stað og Birkir reikn- ar með að vershin fari á fulla ferð um og eftir helgina. Hann er á móti því að lengja afgreiðslutíma mikið í desember og telur það heldur ekki skila sér í meiri versl- un. „Þá er það algjört rugl að minu mati að breyta kreditkortatimabil- inu í desember og með því er að- eins verið að lengja í hengingaról- inni þjá fólki. Eg gerði óforinlega könnun í búðinni fyrir síðustu jól og þá kom fram að um 80% af því fólki sem ég talaði við vildi ekki að dagsetningu kortatímabilsins væri breytt. Fólki er heldur eng- inn greiði gerður með þessu rugli,“ sagði Birkir. / Oskutn JAkiireyringum og Candsmönnum öCCum gCeðiCegrajóCa ogfarsczCs lípmandi árs. ‘Þökkum viðskiptin á árinu sem er að Cíða * Sparisjóður Akureyrar og Arnarneshrepps S. 462 4340 Brekkugötu 1 Gúmmívinnslan hf. óskar eftir stjórnanda í HJÓLBARÐADEILD Umsækjendur þurfa að hafa mikla þjónustulund á velli og í síma, hafa stjórnunarhæfileika, vera áreiðanlegir og skapandi auk þess að geta unnið breytilegan vinnudag á álagsstundum. Æskilegt er að viðkomandi séu vanir vinnu á tölvur og hafi þekkingu á hjólbörðum. Öll menntun og starfsreynsla er metin að verðleikum. Óskað er eftir starfsmanni í fullt starf, sem ekki neytir tóbaks og er tilbúinn að vinna í vinnugalla sem og sínum hversdags- fötum. Kvenfólk er hvatt til að sækja um starfið. Umsækjendúr skulu setja upp sína umsóknir og skila á skrif- stofu Gúmmívinnslunnar hf. Árni gefur nánari upplýsingar um starfið í síma 461 2600. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað þegar búið er að ráða í starfið. GÚMMÍVINNSLAN HF. Réttarhvammi 1 - 603 Akureyri sími 461 2600 Fax 461 2196 Gúmmívinnslan hf. er traust framleiðslu- og þjónustufyrirtæki. Þar eru seld dekk á allar gerðir farartækja, stærri dekk sóluð, framleiðddar ýmsar vörur úr gúmmi og útgerðarvörur úr stáli. Skoðaðu úrvalið í Nestunum / Nestin , Leiruvegi • Veganesti • Tryggvabraut C. •'■****

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.