Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 16
16 D FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 l MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Svandís Þóroddsdóttir fatahönnuður flutt heim frá Danmörku Börnin sýndu frj álsleg spariföt með tilþrifum GLEÐIN skein úr svip unga fólksins sem sýndi föt á tískusýn- ingu í Deiglunni á dögunum. Þau voru að sýna föt sem Svandís Þóroddsdóttir fatahönnuður hef- ur verið að hanna og sauma nú í haust. Það var líka greinilegt að þeir sem eldri voru og fylgd- ust með höfðu gaman af. Svandís Þóroddsdóttir fata- hönnuður og fjölskylda hennar, eiginmaðurinn Grétar Orlygsson tölvunarfræðingur og þrír synir, Birkir Örn, 13 ára, Oddur 5 ára og Reynir 3ja ára eru nýflutt til Akureyrar frá Danmörku þar sem þau hafa búið sjö síðustu ár. Þau bjuggu skammt utan Kaup- mannahafnar, í Gladsaxe. Svan- dís lærði fatahönnun í Colenbina skólanum í Kaupmannahöfn fyrstu tvö árir. en starfaði síðan að faginu en Grétar starfaði hjá Den Danske Bank. Ætluðum alltaf heim „Okkur líkaði vel úti, en ætluð- um svo sem aldrei að vera þar allt okkar líf. Það var mjög gott að búa í Danmörku, en okkur þótti leiðinlegt að börnin kynnt- ust fjölskyldu sinni svo lítið. Við ræddum oft um að flylja heim og sögðum alltaf að það yrði á næsta ári og svo á því næsta, en svo kom að því í sumar að við seldum íbúðina okkar og létum verða af því að koma heim,“ sagði Svandís. Langar að opna vinnustofu Bæði Svandís og Grétar eru Ak- ureyringar og því Iá beint við að flytja í heimabæinn. „Við vor- um að sækjast eftir meiri tengsl- um við fjölskyldur okkar, þess sem við söknuðum mest úti. Þess vegna vildum við flytja til Akur- eyrar, því okkur fannst við alveg eins geta átt heima í Kaupmanna- höfn eins og Reykjavík upp á það að gera.“ Grétar starfar í Reykjavík og kemur norður af og til, en þau vona að hann fái atvinnu á Akureyri áður en langt um líður. Svandís hefur leigt sér kjall- araíbúð nyrst í Glerárhverfi, en hefur hug á að opna vinnustofu síðar og færa dálítið út kvíarnar. Þannig vill hún leggja sitt af mörkum til uppbyggingar at- vinnulífsins í heimabæ sínum en á því hefur hún mikinn áhuga. „Eg tel líka að ég hafi meiri möguleika á að gera eitthvað hér en fyrir sunnan. Mig langar að opna vinnustofu og reyna að skapa einhverja atvinnu í kring- um það sem ég er að gera,“ seg- ir hún en ætlar sér í framtíðinni að vinna að því að nýta íslensku ullina í sínu starfi. „Eg ætla að reyna að skapa mér sérstöðu, vera ekki að gera nákvæmlega það sama og aðrir eru að gera.“ Nú nýlega hélt Svandís sýn- ingu á fatnaði sem hún hefur hannað á ung börn, að 7 ára aldri og tókst hún einkar vel, en 9 börn sýndu fötin hennar Svandísar og stóð unga sýning- arfólkið sig með prýði. „Eg hef verið að einbeita mér upp á síð- kastið að því að hanna föt á stráka, ég tók eftir því þegar ég var að leita að fötum á strák- ana mina að það vantaði skemmtileg og fijálsleg föt á litla stráka. Eg vil að börnunum líði vel í fötunum sem ég geri, en hef líka að leiðarljósi að for- eldrarnir séu sáttir við þau,“ sagði Svandís. Hún notar hand- gerðar tölur á öll fötin sem hún saumar, þær gerir Sveina Jó- hannesdóttir textílnemi úr Eyja- fjarðarsveit, en tölurnar selja svip sinn á fatnaðinn. Nóg að gera Viðbrögðin við sýningunni í Deiglunni voru mjög góð að sögn Svandísar. „Eg sé fram á að hafa nóg að gera á næstunni, en hef hug á því síðar að fá aðra sem eru í svipaðri framleiðsu til liðs við mig, þannig að hægt verði að framleiða meira, “ segir Svan- dís Þóroddsdóttir. SVANDÍS hafði í mörg horn að líta á sýningunni í Deiglunni, hér huggar hún hana Heklu litlu Skjaldardóttur. Morgunblaðið/Kristján RAGNHEIÐÚR Vilma Ingvarsdóttir, Fanney Ryes Guðmunds- dóttir og Hekla Skjaldardóttir. REYNIR Grétarsson og Sunna Svavarsdóttir. HRESSIR strákar í fijálslegum fötum, Þóroddur Ingvarsson, Oddur Grétarsson og Daníel Jóhannsson. Hann er af sumum kallaður sjö mánaða maðurinn Ekki hingað kominn til að setja allt á annan endann ÞÓRÐUR Guðbjörnsson er af sumum kallaður 7 mánaða maðurinn og hann er misjafnlega vin- sæll innan bæjarkerfis- ins. „Eg hef heyrt ýmis- legt sagt um þetta starf, sumt af því ér ekki sanngjarnt en annað á kannski við einhver rök að styðjast. Ég er þó ekki hingað kominn til þess að setja allt á ann- an endann,“ segir Þórð- ur. Hann var ráðinn til þess að fara yfir rekstur ýmissa málaflokka, koma með athugasemd- ir, athuga innkaup og margt fleira. Spamaðartillögur Þórð- ar í rekstri íþróttamannvirkjanna hafa farið fyrir bijóstið á starfsfólki þeirra og hefur það mótmælt þeim, m.a. á fundi bæjarstjórnar nýlega. „Hluti af þessu verkefni hefur verið að fara yfir allan rekstrarkostn- að mannvirkja og koma um leið með skynsamlegar tillögur til að lækka kostnað. Að sjálfsögðu er launa- kostnaður stór þáttur í rekstri íþróttamannvirkja og meiri en sums staðar annars staðar." Þórður segir að alltaf sé verið að tala um að hagræða í rekstri og nýta peninga skatt- borgara betur. í ljósi minnkandi tekna sé enn meiri ástæða til að að- laga reksturinn í sam- ræmi við það. „Ég kem mínum til- lögum um sparnað til hagsýslustjóra og bæjarstjóra, sem er kosinn til þess að taka ákvarðanir um fram- haldið ásamt öðrum bæjarfulltrúum. Þetta snýst ekki um að ég sé einhver vondur maður og ef ég hefði ekki komið með þess- ar tillögur hefði einhver annar gert það. Ég er hins vegar í þeirri að- stöðu að vera blóraböggull en óverð- skuldað." -Margir hafa talað um að í þess- ari endurskoðun hafí verið byrjað á öfugum enda. Hefði ekki átt að byrja á því að skoða launakjör þeirra hæst launuðu innan bæjarkerfísins ogfara síðan niður eftir launastigan- um? „Það eru öll mál til skoðunar, líka launamál þeirra hæstlaunðu. Hins vegar var sú stefna mörkuð að byija á að skoða skipulag íþróttamann- virkjanna og endurskipuleggja rekstrarforsendur þeirra.“ Einnig er verið að skoða innkaup á vegum bæjarins, svo og útboð á vöru og þjónustu. Þórður var ráðinn til starfa í sjö mánuði og hann hefur þegar starfað við þessa skoðun í þrjá. Hann er með BS gráðu í rekstr- arfræði og hefur starfað hjá nokkr- um sveitarfélögum og því búið víða á landinu. Þórður segist kunna ágætlega við sig á Akureyri, þrátt fyrir það að vera af sumum talinn „vondi maðurinn." Málefni íþróttamannvirkja bæj- arins og sparnaðartillögur Þórðar, voru til umræðu á síðasta bæjar- stjórnarfundi. Þórarinn E. Sveins- son, Framsóknarflokki, sagði m.a. að með ráðningu Þórðar hafi ekki verið meiningin að menn gengju haltir eða særðir frá borði, vegna tillagna hans. Þórarinn B. Jónsson, Sjálfstæðisflokki, hafði einnig sínar athugasemdir og taldi að menn hafi farið offari í málinu og alveg gleymt mannlega þættinum. Þórður Guðbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.