Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 10
10 D FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Danskt ráðgjafafyrirtæki skoðar landvinnslu Útgerðarfélags Akureyringa hf.
Fyrirtækið kaupir
fullkomna
pökkunarlínu
Nýr og spennandi matseðill
með úrvalí rétta við allra hæfi
Sjálfsafgreiðsla er frá kl.08-18.00,
en þjónað er til borðs eftir það.
Opið er til kl. 22.00 alla datja nema föstudaga
. og iaugardaga, en þá er opið til kl. 23.00.
Verú velhmin
SULNABERG
, Æoaanxxxfik
FUNHEITT!
Hótel KEA • Hafnarstræti 87-B9 • 600 Akureyri • Sími 462 2200
Morgunblaðið/Kristján
„ÞAÐ stefnir í að aflinn í ár verði svipaður og í fyrra en hins
vegar er of snemmt að segja til um hvernig allt árið kemur
út rekstrarlega," segir Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri
Utgerðarfélags Akureyringa hf.
Útgerðarfélag Akureyringa hf. var rekið
með rúmlega 92 milljóna króna tapi fyrstu
6 mánuði ársins en allt árið í fyrra var fyrir-
tækið rekið með 155 milljóna króna hagn-
aði. Kristján Kristjánsson spjallaði við
Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóra, sem
segir margar ástæður fyrir verri afkomu í ár.
UA hefur samið við danska
ráðgj afafyrirtækið
MATCON, um að yfirfara
allan rekstur í land-
vinnslu fyrirtækisins og er stefnt að
því að þeirri vinnu verði lokið í lok
janúar á næsta ári. Einnig hefur
verið ákveðið að kaupa fullkomna
pökkunarlínu til ÚA, sem sett verður
upp í vetur. Gunnar Ragnars, fram-
kvæmdastjóri ÚA, segir að ekki sé
gert ráð fyrir að starfsfólki fækki
með tilkomu pökkunarlínunnar en
hins vegar geti orðið eitthvað um
tilfærslur í starfí.
Stefnir í svipaðan afla
„Það stefnir í að aflinn á þessu
ári verði svipaður og á síðasta ári
en það er of snemmt að segja til
um hvernig árið kemur út í heild
sinni,“ segir Gunnar. „Því er hins
vegar ekki að leyna að afkoma í
sjávarútvegi er mjög mismunandi
eftir því hvaða greinar er um að
ræða. Landvinnslan er sú grein hjá
okkur sem átt hefur hvað erfiðast
uppdráttar á síðustu misserum og
þar kemur margt til. Gengisþróunin
hefur verið mjög óhagstæð og doll-
arinn, sem var um og yfír 70 krón-
ur, er nú ekki nema 64-65 krónur.
Ýsuaflinn hefur aukist mjög mikið,
sem aftur hefur þýtt lægra afurða-
verð og grálúðuveiði, sem var mjög
stór þáttur í okkar rekstri og af-
komu, hefur nánast hrunið. Á móti
kemur að karfaveiðin hefur verið
með besta móti.“
Gunnar segir að fyrir nokkrum
árum hafi allur karfi farið í einföld-
um pakkningum á markað í Rúss-
landi en í dag er hann að mestu
seldur til annarra landa í Evrópu
og fyrir hærra verð. „Það hefur
orðið töluverð framþróun í vinnslu
karfa og nú er verulegur hluti af
okkar karfa hausfrystur í smásölu-
pakkningar. Aftur á móti er Banda-
ríkjamarkaður afgerandi fyrir
þorskafurðir og þar hefur ekki verið
neinn vaxtarbroddur fyrir hefð-
bundnar pakkningar. Við höfum því
þurft að leita annarra leiða og leggja
í meiri vinnu og kostnað við fram-
leiðsluna. Þetta hefur ieitt til þess
að framlegðin hefur ekki aukist sem
skyldi.“
Fullkomin pökkunarlína keypt
Gunnar segir að þetta kalii á
endurskoðun framleiðsluferilsins,
með það fyrir augum að auka tækni-
væðingu og freista þess að framlegð
aukist. Ekki sé hægt að vænta þess
að afurðaverð hækki að neinu marki
og alla vega ekki í takt við þann
tilkostnað sem á móti kemur. „Einn
stór þáttur er þessi mikla aukning
á lausfrystingu og pökkunin hefur
aukist verulega. Þess vegna hefur
verið ákveðið að ráðast nú þegar í
uppsetningu á fullkominni pökkun-
arlínu sem á að leiða til verulegrar
hagræðingar en hún kostar uppsett
um 30 milljónir króna. Jafnframt
hefur verið ákveðið að gera úttekt
á öllum landvinnsluferlinum með
það fyrir augum að bregðast við
breyttum aðstæðum og freista þess
að endurheimta þá framlegð og
framleiðni sem landvinnslan skilaði
undir hinum hefðbundnu leiðum.“
Aflaheimildir ÚA hafa verið
skertar um 10 þúsund tonn á síð-
ustu 6 árum en þrátt fyrir það hef-
ur fyrirtækið haldið uppi svipuðu
framleiðslumagni fyrir vinnsluna.
Afli ÚA hefur verið um 20-22 þús-
und tonn á ári og segir Gunnar að
þetta hafi þýtt hærri hráefniskostn-
að vegna kaupa á aflaheimildum.
þar eigum við gífurlega mikla mögu-
leika. Afkastageta þessara fyrir-
tækja er það mikil að þau geta með
skömmum fyrirvara tekið við veru-
legri aukningu og ég tel að það sé
mikil framtíð fyrir ungt fólk í dag
að hasla sér völl á þessu sviði.“
Gunnar nefnir í þessu sambandi
hversu fljótt SH var að bregðast við
sölu á framleiðslu þýska félagsins
Mecklenburger Hoschseefisherei og
hversu hagstætt það var, ekki að-
eins fyrir MHF, heldur einnig í nýt-
ingu á sölukerfi SH. Þetta á einnig
við um landvinninga ÍS í Asíu.
„Þetta eru aðeins tvö dæmi en þarna
eru okkar sterkustu vaxtarbrodd-
ar.“
Fjárfestar sýna
UA-bréfum áhuga
Útgerðarfélag Akureyringa hefur
unnið að því að halda uppi svipaðri
starfsemi þrátt fyrir minni aflaheim-
ildir og fyrirtækið tengist útgerð
og fiskvinnslu á Grenivík, útgerð á
Suðurnesjum og Skagaströnd,
loðnufrystingu á Seyðisfirði og út-
gerð MHF í Þýskalandi.
Fyrirhuguð sala á hlutabréfum
Akureyrarbæjar í ÚA hefur verið
nokkuð til umræðu að undanförnu.
Hlutabréf í ÚA hafa verið til sölu
á almennum markaði og fyrirtækið
er skráð á Verðbréfaþingi íslands.
Gunnar segir að umræður hafí átt
sér stað um eignasamsetningu ÚA
og þann stóra hlut sem bærinn á.
í þeirri umræðu hafa verið vanga-
veltur um það hvað bærinn hyggð-
ist gera varðandi sinn hlut, bæði á
aðalfundi fyrirtækisins og í bæjar-
stjórn.
„Við finnum fyrir því að fjárfest-
ar velta þessu nokkuð fyrir sér.
Þess vegna tel ég nauðsynlegt að
bærinn setji um það skýra stefnu
hvað hann hyggst gera og ef hann
ætlar að minnka sinn hlut, á hvern
hátt það verði gert,“ sagði Gunnar
Ragnars.
„Við vonum að botninum sé náð,
allavega í þorskinum og að hægt
verði að auka aflaheimiidir á ný.“
Upplýsingatæknin á eftir
að hafa mikil áhrif
Hvaða framtíðarsýn sérð þú í
sjávarútvegi hér á landi?
„Það hefur átt sér stað mikil
hagræðing og að hluta til vegna
þess að einingarnar hafa verið að
stækka. Fyrirtæki hafa verið að
sameinast og í öðrum tilfellum er
um samstarf að ræða. Einnig hefur
tilfærsla á aflaheimildum orðið til
þess að nýting á sumum fram-
leiðslutækjum er betri og önnur þá
aflögð. Upplýsingatæknin á eftir að
hafa mikil áhrif hér á landi og gef-
ur mikla möguleika varðandi skipu-
lag og rekstur fyrirtækja í framtíð-
inni.“
Gunnar segist vona að á meðan
þurfí að stýra veiðunum, fari menn
ekki að hrófla við grundvallarfyrir-
komulagi í aflamarkskerfinu. Sjálf-
sagt sé að sníða af þá vankanta sem
menn sjá og það hafí verið gert til
þessa. Hann segir það liggja í loft-
inu að skipulagi verði komið á veið-
ar á fjarlægum miðum og kvóti
okkar þar verði í besta falli í svipuð-
um mæli og það magn sem við höf-
um veitt nú þegar. En að öllum lík-
indum gæti orðið um minni afla að
ræða.
Öflug markaðsfyrirtæki
helsti vaxtarbroddurinn
„Ég hef þá trú að við höfum
nokkra möguleika á að leita lengra
og taka þátt í veiðum og vinnslu á
fjarlægari slóðum, eins og við höfum
reyndar verið að gera. Hins vegar
hlýtur spurningin að snúast um það
hvað við komumst yfir mikið og
þessi mál eru það snúin fyrir okkur
að í þeim er sígandi lukka best.
Hins vegar eigum við mjög öflug
og sterk markaðsfyrirtæki, sem
teygja sig til allra heimshorna og
t)ví ekki
að halda
árshátíðina á
Akureyri?
Gerum tilbot) í mnt og gi.sti.ngu
iÉÉá
Hótel KEA ■ Hafnarstræti 87-89 • 600 Akureyri ■ Sími 462 2200 • Fax 461 2285