Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 12
12 D FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Jóhannes Valgeirsson, einn stjómenda sunnudagaskólans í Akureyrarkirkju
Eigum í harðri
samkeppni
við sjónvarpið
Starfið hefur verið öflugt í
gegnum tíðina og í vetur
hefur verið óvenju mikið að
gerast. Það er mjög gaman að
starfinu þegar vel er mætt og það
_ er ekki síður mikilvægt að foreldr-
ar fylgi bömum sínum í sunnu-
dagaskólann," segir Jóhannes í
samtali við Morgunblaðið.
Skiljum eftir margar
spurningar
SUNNUDAGASKÓLI er starfræktur bæði 1 Akureyrarkirkju og
Glerárkirkju yfir vetrarmánuðina og er tilgangurinn að kenna börn-
um að ganga til kirkju og færa þeim þann boðskap sem kirkjan
er kölluð til að flytja. í Akureyrarkirkju fer starfið fram bæði í
kirkjunni og eins í safnaðarheimilinu. Hjónin Jóhannes Valgeirsson
og Astrid Hafsteinsdóttir eru á sínu fjórða starfsári með sunnudaga-
skólann og með þeim starfa sóknarprestar og organisti.
Morgunblaðið/Kristján
SONGURINN er mikilvægur í starfi sunnudagaskólans og læra börnin bæði sálma og svokallaða
hreyfisöngva. Einnig fá börnin möppur og Jesúmyndir og mætingamiða sem þau safna.
„í okkar fræðslustarfí skiljum
við eftir mikið af spurningum í
huga barnanna og því er mikilvægt
að foreldamir taki þátt í starfínu,
því um leið eiga þeir auðveldara
með að svara þeim spumingum
sem upp koma hjá sínum bömum.“
Starfið fer fram bæði í safnaðar-
heimilinu og í kirkjunni og segir
Jóhannes að í kirkjunni sé starfíð
nokkuð fastmótað en aftur sé meira
sprellað í safnaðarheimilinu. Aldur
þeirra bama er sækja sunnudaga-
skólann er alltaf að færast neðar
og segir Jóhannes böm allt niður
í tveggja ára taki þátt í starfínu.
Jesú getur líkar verið vinur
„Við erum kannski helst að miða
okkar starf við börn í kringum 5
ára aidur en það fá allir eitthvað
við sitt hæfi, bæði þau eldri og þau
yngri. Okkar aðalmarkmið er að
benda bömunum á að Jesú er meira
en eitthvert andlegt afl. Jesú getur
HJÓNIN Jóhannes Valgeirsson og Astrid Hafsteinsdóttir
stjórna sunnudagaskólanum í Akureyrarkirkju og segir Jó-
hannes að starfið hafi breyst mikið á undanförnum árum.
PRESTAR og organisti taka fullan þátt í starfi sunnudagaskól-
ans og hér sést Séra Birgir Snæbjörnsson, sóknarprestur í
Akureyrarkirkju í hópi barna í sunnudagaskólanum.
líka verið vinur og hann vill vera
vinur barnanna og ekki síst nú um
hátíðamar - og til hans er hægt
að leita í bæninni. Jólin snúast
nefnilega ekki bara um pakka og
kökur og Jesú er lykilatriði í þessu
öllu. Bömin þurfa líka að læra að
koma til kirkju og kynnast því
starfí sem þar fer fram. Það er oft
of mikil viðkæmni í kirkjunni, böm
eru böm og það þarf að koma fram
við þau sem slík. Þau þurfa oft að
hreifa sig og hafa hátt en það er
þeim bara eðlilegt."
Börnin mótast mjög fljótlega
Jóhannes segir að börnin mótist
mjög fljótlega af því sem þau heyra
og sjá og því sé Sunnudagaskólinn
afar mikilvægur. En kirkjan á í
mikilli samkeppni og ekki síst á
sunnudagsmorgnum.
„Við eigum í mikilli samkeppni
við sjónvarpið og dagskrá sjón-
varpsstöðvanna er alltaf að lengj-
ast. Það er freistandi fyrir foreldra
að kveikja á sjónvarpinu fyrir börn-
in á sunnudagsmorgni og halla sér
svo aftur. Kirkjan má ekkert gefa
eftir í þessu sambandi og verður
að hella sér út í þessa samkeppni
og gera allt sem hún getur til þess
að ná til fólksins.“
Barnastarfið alltaf að batna
Kirkjan hefur látið vinna sér-
stakt bamaefni, sem stuðst er við
í starfi sunnudagaskólanna og seg-
ir Jóhannes að þetta efni sé alltaf
að verða betra og betra. „Þetta er
að skila sér og það hefur verið al-
veg rosalega gaman í starfinu í
vetur og hingað hafa komið allt
upp í 240 börn og yfir 90 foreldrar
í einu. Við höfum verið að nálgast
fólkið og það kemur af því að kirkj-
an er að gera eitthvað sem því lík-
ar,“ segir Jóhannes.
ólatilboð
0ýjf á Octek tölvum
486DX2-66 frá _
486DX4-100 frá
486DX4-120 frá
87.000
96.000
105.000
486 tölvur eru með 4 Mb
og 850 Mb disk
Pentium 75 frá
Pentium 90 frá _
Pentium 100 frá
129.000
139.000
148.000
Pentium tölvur eru með 8Mb
og 850 Mb disk
Komið og sjáið úrvalið
Glerárgötu 30
sími 461 -2290 - fax 461 -2293
Elías lætur af starfi
sýslumanns á næsta ári
Morgunblaðið/Kristján
ELIAS I. Elhisson, sýslumaður hefur starfað
hjá embættinu á Akureyri frá árinu 1980
en áður var hann bæjarfógeti á Siglufirði í
tæp 14 ár. Elías hefur starfað hjá ríkinu
alla tíð og segist hafa kunnað því vel.
ELÍAS I. Elíasson, sýslumaður á
Akureyri, lætur af störfum á næsta
ári. Elías verður sjötugur þann 10.
apríl nk. og samkvæmt reglum
þarf hann að látá af embætti í
kringum þau tímamót. Elías hefur
starfað við embættið á Akureyri
frá 15. ágúst 1980 en áður var
hann bæjarfógeti á Siglufírði í tæp
14 ár.
„Elías sagðist reikna með því að
margir hafí áhuga á sýslumanns-
embættinu, „enda er Akureyri góð-
ur staður og embættið ágætt,“ seg-
ir Elías. Hann segist þó eiga eftir
að ræða við þá í ráðuneytinu um
sín starfslok og er ekki mikið far-
inn að hugsa um þau mál ennþá.
„Sjálfur hef ég verið mjög
ánægður í starfinu á Akureyri. Hér
er allt tii alls og þá eru samgöngur
góðar og því auðvelt að komast á
milli staða.“
Embættismaður alla tíð
Elías segir að ýmislegt hafi
breyst á þessum árum hans í emb-
ætti bæjarfógeta og sýslumanns.
„Embættin stækkuðu á alla kanta
og við þennan aðskilnað árið 1992
fór dómstóllinn út. Þá fóru hin eig-
inlegu dómsmál frá embættinu."
Elías hefur alla tíð starfað innan
embættismannageirans. Hann var
starfsmaður á skrifstofu tollstjór-
ans I Reykjavík frá 1951-1955,
fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu frá 1956 til 1962 og starf-
aði jafnframt fyrir saksóknara rík-
isins ’61-’62. Elías var skipaður
bæjarfógeti á Siglufirði
frá 1. maí 1966 og
starfaði sem deildar-
stjóri í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu til
þess tíma. Hann leysti
bæjarfógetann í Hafn-
arfírði af í hálft ár árið
1976 en tók svo aftur
við embættinu á Siglu-
fírði. Elías var skipaður
bæjarfógeti á Akureyri
og Dalvík og sýslumað-
ur í Eyjafjarðarsýslu
frá 15. ágúst 1980.
Hann var jafnframt
settur bæjarfógeti í
Ólafsfirði í rúma fjóra
mánuði árið 1988 og
við breytingar árið
1992 var hann skípað-
ur sýslumaður á Akur-
eyri.
„Hann segist hafa
kunnað því vel að
starfa hjá ríkinu, enda
ekki atltaf verið á sama
staðnum og tilbreyt-
ingin því verið nokkur. Sýslumenn
hafa mikil samskipti við dómsmála-
ráðaráðuneytið og starfsmenn
embættisins eiga í miklum og ágæt-
um samskiptum við starfsmenn
ráðuneytisins, að sögn Elíasar.