Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 D 27 AKUREYRI Olafur Asgeirsson aðstoðaryfirlögTegluþjónn Afskipti af ölvuðum mun minni en áður Vínveitingastöðum á Akureyri hefur fjölgað mikið síðasta áratug FRAMBOÐ á veitinga- og skemmtistöðum á Akureyri hefur aukist til mikilla muna á síðustu 10 árum. Árið 1985 voru 6 slíkir staðir með vínveitingaleyfi og þar af þrír þeirra einnig með skemmtanaleyfi, Sjallinn, Hótel KEA og H-100. Nú 10 árum síðar eru 19 staðir með vínveitingaleyfi og þar af 9 þeirra einnig með skemmtana- leyfí. Um er að ræða matsölustaði, veitingahús, bari, hótel og skemmti- staði. En hveiju hefur þetta aukna fram- boð á stöðum sem selja áfengi breytt í tímans rás. Því svarar Óiafur As- geirsson, aðstoðaryfírlögregluþjónn. Bein lögreg'luafskipti miklu minni „Mér finnst ýmislegt í drykkjusið- um okkar hafa lagast með fjölgun þessara staða og bein lögreglu- afskipti af ölvuðu fólki nú eru miklu minni en t.d. fyrir 10 árum síðan og slagsmálum og öðrum ólátum hefur fækkað mjög mikið. Eftir að bjórinn var leyfður má segja að það séu fleiri undir áhrifum áfengis og færri fullir." Ólafur sem sjálfur er bindindismaður, segir að ef greidd hefðu verið atkvæði um bjórinn á sínum tíma hefði hann greitt atkvæði á móti bjórnum en hann viður- kennir samt að ýmislegt í drykkjuvenjum lands- ^ Ólafur Ásgeirsson manna hafí lagast með tilkomu bjórs- ins. Umferðin tekið nánast alla löggæsluna „Hér á árum áður var það aðal- starf lögreglumanna að hafa afskipti af ölvuðu fólki en í dag fer mestur tími í afskipti af ökumönnum. Um- ferðin hefur tekið nánast alla lög- gæsluna. Bílum hefur fjölgað, veg- irnir eru betri, bílarnir eru betri og umferðarhraðinn því meiri. Þegar ég hóf störf í lögreglunni fyrir 30 árum síðan voru örfáir lög- reglumenn á dagvakt og jafnvel einn maður á vakt hluta dagsins. Þá voru aftur jafn margir á næturvakt og eru í dag, eða 5 menn og öll fjölgunin nú er á dagvaktina og það virð- ist vera nóg að gera.“ Ólafur telur að ansi margir ökumenn aki með lítið áfengi í blóð- inu og í mörgum tilvik- um undir leyfílegum mörkum og þótt vín- veitingastöðunum hafí fjölgað hefur ölvunar- akstur ekki aukist. „Við gerum reglulega athug- jy i r- Setrið • Sunnuhlíb 12 Slerárgötu 20 Sjallinn Geislagötu 14 Hótel Norðurland Geislagötu Pizza 67 Geislagötu Fiðlarinn Skipagötu 14-------. a Dropinn/Bar og Pizza Hafnarstræti 98—I ja Hótel KEA Hafnarstr. 87-89- Café Karolína Kaupvangsstr. 23 Hótel Harpa Hafnarstr. 83-85 Hótel Edda^ v. Hrafnagilsstræti (yfir sumarmánubina) Vínveitingastabir á Akureyri 1995 straumrAs h.f Legur og pakkdósir í úrvali STRAUMRA5 h.f Furuvöllum 3 • 600 Akureyri Sími 461 2288 Þjónusta við sjávarútveg, landbúnað og iðnað P ierpont of Switzerland - úrið sem þú getur treyst - 9(aUór<QLÍ, sson URSMIÐUR H F. HAFNARSTRÆTI 83 • AKUREYRI • S. 462 2509 Eldhúsinnréttingar Baðinnréttingar Fataskápar Parket íslenskt já takk m INNRETTINGAR Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1188 anir á ástandi ökumanna og þeir sem eru teknir fyrir ölvun við akstur eru almennt jninna fullir en á árum áður. Menn voru blindfullir á bílunum þeg- ar þeir fengu ekkert nema sterk vín.“ Þurfum að uppræta unglingadrykkju Ólafur hefur aftur á móti mun meiri áhyggjur af mikilli drykkju unglinga í bænum og telur brýnt að taka á því vandamáli. „Við verðum að reyna að útrýma drykkju unglinga undir 18 ára aldri, með fræðslu og forvarnarstarfi. Hins vegar er ég fylgjandi því að leyfa áfengisneyslu við 18 ára aldur en leggja þarf áherslu á að koma í veg fyrir að unglingar undir þeim aldri hafi áfengi um hönd og við þurfum að útrýma áfengisneyslu í unglingaskól- um_ bæjarins." Ólafur telur ekki mikil brögð að því að unglingar undir aldri séu inni á vínveitingastöðum, enda sé nokkuð gott eftirlit með því að svo sé ekki. „Það er að mínu mati rangt að hleypa 18 ára unglingum inn á vínveitinga- staði, þar sem þeir mega svo ekki kaupa vín. Þá vil ég ekki sjá að for- eldrar séu að kaupa áfengi handa börnum sínum sem ekki eru komin með aldur en ég hef heyrt foreldra vera að monta sig af því að kaupa vín handa börnum sínurn," sagði Ólafur Ásgeirsson. Jólaglöggið varasamt Nú er sá tími að fyrirtæki standa fyrir litlujólum fyrir starfsmenn, þar sem þeir koma saman eina kvöld- stund og drekka jólaglögg. Ólafur segir að jólaglögg eigi að vera óá- fengur drykkur en nú sé yfirleitt búið að styrkja það með sterku áfengi og það sé slæm þróun. „Þessi jóla- glöggspartí hafa oft farið út í öfgar og valdið leiðindum á heimilunum rétt fyrir jólin.“ Tilboð 10-50% af fatnaði 20% af vöðlum Vantar notaðar byssur í umboðssölu fyrir velöimannlnrt Skot- hreinsisett - byssubelti VEIÐI-SPORT HF. Kaupvangsstræti 21 - 600 Akureyri s. 462 2275 Langar þig að eignast ESÍTTI FARSÍMA Þá skaltu koma til okkar, það er sama verð hvort sem þú kemur fullklæddur eða ALLSBER við bjóðum sömu kjör ,4 elí9l»Va v* p Vcrð/r^ ÍLAÞJÓNUSTAN hf. ahlutaverslun - verkstæði, Dalsbraut 1 - 600 Akureyri sími 4611516 ð virka daga kl. 9-18

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.