Morgunblaðið - 24.12.1995, Síða 1
88 SÍÐUR B/C
295. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. DESEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skotið á tvær
hjálparflugvél-
ar yfir Bosníu
Sarajevo. Reuter.
BANDARÍSK flutningaflugvél með
hjálpargögn og bresk þyrla í sjúkra-
flugi með tvö sjúk böm innanborðs
urðu fyrir skotárás í Bosníu í fyrra-
dag, að því er talsmaður Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) skýrði frá í
gær.
Skot hæfðu bandarísku flutninga-
flugvélina, sem var af gerðinni Her-
kúles C-130, en hana sakaði ekki.
Lenti hún heilu og höldnu í Sarajevo
með hjálpargögn á vegum mannúð-
arstofnana Sameinuðu þjóðanna.
Flugvélin var að koma frá Ancona
á Italíu og stödd skammt frá
Sarajevo er hún varð fyrir árás.
Hjálparflugið var ekki stöðvað vegna
árásarinnar, sem var sú fyrsta sem
vitað er Um frá því NATO tók við
stjórn friðargæslu í Bosníu í vikunni.
Þá var skotið á breska Sea King-
þyrlu sem flutti tvö veik börn frá
Tuzla í norðurhluta landsins til
Sarajevo þar sem koma átti þeim
undir læknishendur. Árásin var gerð
við Visoko skammt frá Sarajevo en
skotin hæfðu ekki þyrluna.
„Fiugmaðurinn sá glóðarkúlur
stefna að þyrlunni og taldi að verið
væri að skjóta á sig en engin kúla
hæfði,“ sagði Simon Haselock, tals-
maður NATO. Hann sagði að þyrlan
hefði sömuleiðis orðið fyrir árás á
bakaleiðinni til Tuzla en ekki sakað.
Díana dregnr að
svara drottningu
London. Daily Telegraph.
BÚIST er við því að Díana prins-
essa verði við tilmælum tengdamóð-
ur sinnar, Elísabetar drottningar,
og samþykki skilnað við Karl Breta-
prins en talið er að hún muni bíða
með ákvörðun þar til um miðjan
næsta mánuð. Þá verða synir henn-
Fjórtán lík á
fjallasléttu
París. Reuter.
LÍK 14 liðsmanna Svissneska sér-
trúarsafnaðarins Musteri sólarinnar
fundust í gærmorgun, laugardag, í
skógarlundi á hásléttu í frönsku
ölpunum, 60 km suðvestur af
Grenoble.
Að sögn lögreglu virðist fólkið
hafa framið þaulskipulagt sjálfs-
morð. Líkunum hafði verið raðað
upp í hringlaga mynd þannig að
fætur sneru saman. Lundurinn
hafði nýlega verið ruddur og voru
trjágreinar sem þá féllu til notaðar
til að kveikja í líkunum.
Sextán liðsmanna Mustéris sólar-
innar hafði verið saknað frá byrjun
vikunnar og þvi er ekki vitað um
afdrif tveggja eða hvort þeir fylgdu
hinum 14 upp á sléttuna, sem er á
afskekktu svæði.
ar komnir aftur í heimavistarskóla
þar sem þeir verða síður varir við
fjölmiðla.
Díana er sögð vilja vernda syni
sína sem mest frá umfjöllun fjöl-
miðla um hjónabandsmál þeirra
Karls. Þó þykir það öllu líklegri
skýring að hún muni styrkja stöðu
sína með því að draga ákvörðun.
Fróðir menn segja, að því meiri
tíma sem Díana taki sér til að gera
upp við sig hvort hún fallist á skiln-
að þeim mun meiri undanlátssemi
bíði hennar af hálfu eiginmanns
hennar og hirðarinnar.
Ennfremur þurfi Díana að halda
andliti því í sjónvarpsviðtali við
BBC-stöðina í síðasta mánuði sagð-
ist hún vera „kona með bein í nef-
inu“ og mótfallin skilnaði við Karl
prins: Ennfremur myndi hún ekki
„hverfa hljóðlaust" ef til slíks kæmi.
Því segja sérfræðingar að það
væri veikleikamerki að samþykkja
strax tilmæli drottningár.
' Elísabet drottning og John Major
forsætisráðherra eru bæði sögð vilja
forðast að þrýsta á Díönu. Þau vilja
ekki taka áhættu á að hún hafni
skilnaði og ennfremur vilja þau ekki
að svo líti út sem annað hvort þeirra
Karls og Díönu fari með sigur af
hólmi í málinu.
■ Skilnaður/6
Morgunblaðið/RAX
ODDIÁ RANGÁR VÖLL UM
16
Það er tekið
að birta
A THAFNAMAÐ UR Á
HRAÐRISIGLINGU
KOLLUNIN