Morgunblaðið - 24.12.1995, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 1995
MORG UNBLAÐIÐ
Halldór Baldursson á sjúkrahúsi norska hersins í Tuzla
Læknir og major á
vegum NATO í Bosníu
HALLDÓR Baldursson mæt-
ir alltaf til vinnu á sjúkra-
húsinu í Tuzla í norskum
herbúningi. Þegar viðvörunar-
merki eru gefin þarf hann að klæð-
ast skotheldu vesti, setja á sig
hjálm og hlaupa í sprengjuhelt
herbergi.
Á öxlunum ber Halldór merki
með íslenska fánanum og áletrun-
inni „Iceland“. Hann er ennfremur
með norska ríkisljónið úr gulli á
beltissylgju og er alltaf með
skammbyssu til sjálfsvarnar.
„Vonandi þarf ég aldrei að nota
byssuna,“ segir Halldór og brosir.
„Ég lít ekki á mig sem hermann.
I ráðningarsamningnum stendur
líka að ég sé ráðinn sem læknir."
Samkvæmt samkomulagi ís-
lendinga og Norðmanna, sem und-
irritað var í byrjun ársins 1994,
fær Halldór laun frá íslenska rík-
inu og starfar á vegum friðar-
gæslusveitar norska hersins í Bos-
níu. Norðmenn hafa þurft að leita
til íslands og Svíþjóðar eftir starfs-
fólki í hersjúkrahúsið í Tuzla, en
þar starfa 220 manns. Yfirmaður
sjúkrahússins er sænski læknirinn
Per Malmstrom, sem er titlaður
yfírlautinant.
Grænir hjálmar í stað blárra
Halldór fór til Bosníu í október
eftir nokkurra vikna þjálfun í her-
búðum norðan við Ósló. Hann fékk
þar meðal annars þjálfun í með-
ferð vopna. Gert er ráð fyrir að
hann starfí á norska sjúkrahúsinu
þar til í apríl.
Liðsmenn friðargæslusveitar-
innar settu á sig græna hjálma á
Segja má að Halldór Baldursson bæklunarlæknir
hafí orðið fyrsti íslenski hermaðurinn undir stjórn
Atlantshafsbandalagsins (NATO) þegar bandalag-
ið tók við yfirstjórn friðargæslunnar í Bosníu af
Sameinuðu þjóðunum á miðvikudag. Fréttarítari
Morgunblaðsins, Jan Gunnar Furuly, hitti Hall-
dór að máli á sjúkrahúsi norska hersins í Tuzla,
þar sem hann starfar sem læknir og major.
miðvikudag í stað bláu hjálmanna
sem þeir höfðu þegar þeir voru
undir yfírstjórn Sameinuðu þjóð-
anna. Þeir hafa því sem næst allir
samþykkt að starfa á vegum
NATÖ. Áður fengu allir bílar Sam-
einuðu þjóðanna grænan lit en
þeir voru áður hvítir. _________
íslenski læknirinn hef-
ur ekkert á móti því að
taka þátt í starfseminni
á vegum Atlantshafs-
bandalagsins, en þess
ber að geta að friðargæslusveitirn-
ar hafa nú allt annað umboð en
þegar þær voru á vegum Samein-
uðu þjóðanna.
„Starf mitt felst í því að bjarga
lífí og heilsu manna hér á sjúkra-
húsinu, óháð litnum á hjálminum,"
segir læknirinn.
ísland ekkí hættulaust
Halldór er 53 ára að aldri hefur
starfað við bæklunarlækningar á
Landspítalanum í 24 ár. Hann á
fjögur börn á aldrinum 13-28 ára
Vonandi þarf
ég aldrei að
nota byssuna
og er kvæntur Margréti Snorra-
dóttur.
Halldór segir að það hafi fyrst
og fremst verið löngunin til að
gera eitthvað nýtt og spennandi
sem hafi dregið hann til Bosníu.
Hann viðurkennir að starfinu í
________ Tuzla geti fylgt nokkur
áhætta, en vill sem
minnst úr henni gera.
„Sömu nótt og ég fór
til gömlu Júgóslavíu féll
snjóflóðið mikla á Flat-
eyri. Það er ekki heldur alveg
hættulaust að vera á íslandi,“ seg-
ir hann.
Norskur Akureyringur
Kristján Rolfsson, sem er 23
ára, starfar einnig á vegum norska
hersins í Bosníu. Hann er þó með
öðruvísi ráðningarsamning, þar
sem hann hefur verið norskur rík-
isborgari frá því í fyrra.
„Ég bjó í Noregi frá því snemma
á síðasta áratug með foreldrum
mínum, gekk í norskan skóla og
Jan Hauge
HALLDÓR Baldursson, læknir og major, á
sjúkrahúsi norska hersins í Tuzla.
# Jan Hauge
KRISTJAN Rolfsson liðsforingi (t.v.) ásamt
Halldóri Baldurssyni bæklunarlækni.
tala nú betri norsku en íslensku.
Það var því eðlilegt að ég yrði
norskur ríkisborgari," segir Krist-
ján. Móðir hans er íslensk en fað-
ir hans af dönskum og finnskum
ættum.
Kristján lauk nýliðaþjálfun í
norska hernum í fyrra og er nú
titlaður liðsforingi í hjúkrunarsveit
norska friðargæsluliðsins. Hann
annast birgðavörslu á sjúkrahús-
inu í Tuzla.
Athygli hefur vakið innan
norsku friðargæslusveitarinnar að
Kristján er í skrám hersins með
heimilisfangið: Akureyri, íslandi.
Richard Holbrooke,aðalsamningamaður Bandaríkjanna í málefnum Bosníu, hyggst hætta í utanríkisþjónustunni
„Kissinger Balkanskagaí4
aftur til Wall Street?
RICHARD Holbrooke (t.v.) þykir beita óhefðbundnum aðferðum
í samningaumleitunum sínum. Hér hvíslar hann að Warren
Christopher, utanríkisráðherra Bandarikjanna, sem þykir eiga
fátt sameiginlegt með undirsáta sinum.
Washington. The Daily Telegraph.
RICHARD Holbrooke, aðal-
samningamaður Banda-
ríkjanna í málefnum Bos-
níu, lýsti því yfír á Bandaríkja-
þingi á miðvikudag að hann hygð-
ist láta af störfum sem aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna
„einhvern tíma á næsta ári“.
Holbrooke lagði áherslu á að hann
myndi sitja „stóran hluta þess tíma
sem friðarferlið tekur“ og að hann
væri ekki að snúa baki við neinum.
Holbrooke hefur ítrekað lýst því
yfir að hann hygðist ekki sitja út
allt kjörtímabil Bandaríkjaforseta.
Holbrooke er 54 ára og kvænt-
ist nýlega Katy Marton, útvarps-
fréttamanni og fyrrverandi eigin-
konu fréttamannsins Peter Jenn-
ings hjá ABC-sjónvarpsstöðinni.
Sagði hann að eiginkonan teldi
hann veija meiri tíma með Haris
Silajdzic, forsætisráðherra Bos-
níu, en með sér. Vinir hans telja
fullvíst að hann muni snúa aftur
til Wall Street, þar sem hann
hefur starfað á milli þess sem
hann hefur unnið hjá utanríkis-
þjónustunni. Var Holbrooke fram-
kvæmdastjóri fjárfestingafyrir-
tækisins Lehman-brothers í New
York og hafði yfír eina milljón
dollara í Iaun á ári, um 65 milljón-
ir ísl. kr. Hann hefur gantast með
það að starf sitt hjá utanríkisþjón-
ustunni kosti hann um 10.000
dali á dag, um 650.000 kr.
Enginn annar
kemst að
Sagt er að ekki muni allir gráta
brotthvarf Holbrookes úr utan-
ríkisráðuneytinu en þar þykir sum-
um hann hafa truflandi áhrif. Þar
gusti af honum og enginn annar
komist að á þeim fundum sem
hann sitji. Þá þykir hann hreinskil-
inn og nýlega var haft eftir bresk-
um embættismanni að Holbrooke
ætti til að haga sér eins og fíll í
Richard Holbrooke, að-
alsamningamaður
Bandaríkjanna í mál-
efnum Bosníu, hyggst
láta af störfum á næsta
ári. Hann segir að eigin-
konan hafi kvartað und-
an því að hann eyddi
meiri tíma með Haris
Silajdzic, forsætisráð-
herra Bosníu, en henni
glervörubúð. Hins vegar þykir
Holbrooke hafa náð frábærum
árangri að bijóta niður hefðbundn-
ar aðferðir innan utanríkisþjón-
ustunnar en hann hefur m.a. hvatt
lægra setta starfsmenn til að gefa
sér skýrslu en ekki til næsta yfir-
manns.
Óvíst er með öllu hvaða áhrif
brottför hans hefur á stöðu mála
í Bosníu. Óvenjulega ákafar að-
ferðir hans og það hversu óhrædd-
ur hann er við að taka mikla
áhættu, hafði úrslitaáhrif í samn-
ingaviðræðunum. í Dayton í Ohio,
þar sem viðræðurnar fóru fram,
hlaut hann viðurnefnið „Einræðis-
herrann" og honum tókst oftar en
einu sinni að reita deiluaðila til
reiði. í eitt skiptið hrópaði Slobod-
an Milosevic, forseti Serbíu, á
Holbrooke þegar hann var ósáttur
við skiptingu lands: „Ég treysti
þér og þú reyndir að svindla á
mér.“
Holbrooke er einn þeirra manna
sem ekki geta setið kyrrir eitt
andartak. Hann er oftar en ekki
með tvö símtól í hendi og horfir
stundum á tvær myndir á einu
kvöldi.
Vakti ungur athygli
Holbrooke gekk til liðs við utan-
ríkisþjónustuna árið 1962 og starf-
aði fyrst í Víetnam. Hann vakti
athygli yfirmanna sinna fyrir góð-
ar gáfur, m.a. Averell Harriman
og starfaði síðar fyrir hann í frið-
arviðræðum í París. Hann ritstýrði
um tíma tímariti um utanríkismál
ásamt Antony Lake, öryggismála-
ráðgjafa Bill Clintons Bandaríkja-
forseta, og var aðstoðarutanríkis-
ráðherra með málefni Austur-Asíu
og Kyrrahafssvæða í forsetatíð
Jimmy Carters. Er repúblíkanar
komust til valda 1980, hætti hann
í utanríkisþjónustunni og hóf störf
á Wall Street.
Þegar Bill Clinton varð forseti,
sóttist Holbrooke eftir embætti
sendiherra í Japan en var sendur
til Þýskalands. Þýskum embættis-
mönnum til mikillar armæðu,
hunsaði Holbrooke Klaus Kinkel
utanríkisráðherra algerlega en
leitaði þess í stað alfarið til Joac-
him Bitterlich, sérfræðings Helm-
uts Kohls kanslara í utanríkismál-
um. Er Holbrooke hafði verið rétt
ár í Þýskalandi, var hann skipaður
aðstoðarutanríkisráðherra í mál-
efnum Evrópu'og Kanada í júní
1994.
„Lofa þú
þeim friði“
Holbrooke hefur verið óþreyt-
andi við að kynna stefnu Banda-
ríkjanna í Bosníu og að reyna að
fá stríðsaðila að samningaborði.
Var hann svo staðráðinn í því að
ná árangri að franska blaðið Le
Figaro kallaði hann „Kissinger
Balkanskaga“.
Holbrooke hefur ekki látið bug-
ast þrátt fyrir erfiða reynslu í
ágúst sl. er hann var staddur í
Bo^níu. Herforinginn sem útveg-
aði honum farartæki til að fara á
milli staða í landinu, ákvað að
láta flytja Holbrooke í Humvee-
bifreið sem ekki er eins vel varin
og brynvarinn flutningabíll sem
samningamennirnir, er voru með
Holbrooke í för, ferðuðust með.
,.Ég vissi að þá myndi Dick
[Holbrooke] geta séð betur út en
hann er alltaf svo forvitinn,“ sagði
herforinginn, Wes Clark. Bryn-
varða bifreiðin ók út af veginum
á Igman-fjalli nærri Sarajevo og
fórust þrír samstarfsmenn
Holbrookes í slysinu. Holbrooke
og Clarke voru fyrstir á slysstað.
Þegar friðarviðræðurnar í
Dayton voru á lokastigi, bauð
Holbrooke ekkjum samninga-
mannanna og börnum þeirra til
fundar við samningamenn. Ekkj-
urnar grétu og Silajdzic, forsætis-
ráðherra Bosníu, kvað tilfinning-
arnar við það að bera hann ofurl-
iði. Eiginkona Holbrookes, Katy
Marton, sagði þá við ráðherrann.
„Lofir þú þeim friði, verður það
besti minnisvarðinn.“